Morgunblaðið - 30.04.1995, Síða 8
8 SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Viðamikil bandarísk rannsókn um heilaskaða
Heilaskaði sjaldnar
tengdur fæðingum
NÝLEG rannsókn á heilaskaða ný-
bura sýnir fram á að heilaskaði
verður mun sjaldnar vegna súrefn-
isskorts í fæðingu en talið var.
Rannsóknin tók til 54.000 fæð-
inga og reyndust 189 börn heil-
asködduð. Aðeins 20% sködduðu
barnanna höfðu eitt eða fleiri ein-
kenni um súrefnisskort í fæðingu
og aðeins í 9% tilvika gat ekkert
annað skýrt heilaskaðann. Rann-
sókninni lauk upp úr miðjum síð-
asta áratug og
hafa meginn-
iðurstöður henn-
ar þegar verið
staðfestar í öðr-
um rannsóknum
vestan og austan
hafs.
Jón Hilmar
Alfreðsson, yfir-
læknir á Kvenna-
deild Landspítal-
ans, fjallar um
málið í tölublaði
Heilbrigðismála
sem er að koma
út. Hann segir í
samtali við
Morgunblaðið
niðurstöðuna
valda straum-
hvörfum því áður hafí 60 til 80%
heilaskaða verið tengdir fæðing-
unni.
Jón Hilmar segir að lengi hafi
verið ríkjandi sú tilhneiging að
tengja heilaskaða nýbura við sjálfa
fæðinguna enda hafí ekki verið vit-
að mikið um aðra áhrifaþætti.
„Þó stundum væri vitað að um
meðfæddan sjúkdóm væri að ræða
var orsökin oftar óþekkt. Því var
leitað skýringa í sjálfri fæðingunni
og sérstaklega væri hún erfið. Ég
nefni í því sambandi ef grípa þurfti
inn í með töngum. Önnur skýring
á því að litið var til fæðingarinnar
er að heilinn er mjög viðkvæmur.
Næring hans er annars vegar sykur
og hins vegar súrefni og ef hann
fær ekki súrefni, segjum í 3 til 4
mínútur, er hætt við óafturkallan-
legum skaða.
Að síðustu nefni ég fósturhjart-
sláttarritin. Við erum farin að geta
mælt hjartslátt í meðgöngu og oft
sýna ritin frávik þó allt sé í lagi.
Raunar koma tímabundin afbrigði
fram í allt að helmingi eðlilegra
fæðinga án þess að talið sé rétt að
grípa inn í fæðinguna. Töf getur
engu að síður verið Iækni til áfellis
reynist barnið skaddað," segir Jón
Hilmar.
Hann segir að smám saman hafí
komið upp efasemdir um að tengja
heilaskaða fæðingunni með jafn
afgerandi hætti. „Rannsakendur
fóru að velta því fyrir sér að fæðing
tæki ekki nema 9 klukkustundir eða
svo miðað við 9 mánaða meðgöngu.
Ýmislegt gæti gerst á þeim tíma,“
segir Jón Hilmar. Hann segir að
rannsóknum hafí verið hleypt af
stokkunum án þess að afgerandi
niðurstaða fengist.
„En ýmsar skýringar hafa komið
fram. Naflastrengurinn gæti til
dæmis hafa flækst fyrir fóstrinu
og hindrað tímabundið súrefnis-
streymi. Af öðrum hugsanlegum
skýringum er þroskahömlun móður,
meðfæddur galli á höfði og með-
göngueitrun."
Ekki nægar upplýsingar
um heilaþroska
Eitt af því sem valdið hefur vanda
við rannsóknimar er hversu lítið er
vitað um þroska heilans. „Ólíkt
flestum líffæram, sem þroskast að
mestu fyrstu þijá mánuðina, er
heilinn að þroskast alla með-
gönguna. Þegar við vitum hvenær
hvaða þroskastigi er náð færumst
við nær því að geta sagt fyrir um
hvað gæti hugsanlega hafa orsakað
skaðann," segir Jón Hilmar og hann
tekur fram að fullburða heilbrigð
börn séu ótrúlega þolgóð. Öðra
máli gegni um fyrirbura, t.d. fædda
mánuði fyrir tímann. Þeir séu veik-
ari og á allan hátt viðkvæmari.
Eins og áður segir voru 60 til
80% heilaskaða meðal nýbura rakin
til fæðingarinnar. Einstök dæmi
urðu til að draga úr þeirri trú.
Dæmi er um að heilaskaði fyrsta
barns hafi verið rakinn til mistaka
í fæðingu en annað barn hafi fæðst
með sama skaða eftir keisaraskurð.
Nú hefur áðurnefnd bandarísk
könnun sýnt fram á að aðeins í litl-
um hluta, 20% tilvika, greinist ein-
kenni súrefnisskorts í fæðingu hjá
heilasködduðum bömum.
Áhrif á bótaskyldu
Jón Hilmar segir að nauðsynleg
kynning á staðreyndum málsins
hafi þegar farið fram í flestum
nágrannalöndum okkar. Hann segir
að ein ástæðan fyrir því að kynning-
in sé nauðsynleg felist í því að tölu-
vert sé um að kærur berist sjúkra-
húsum vegna meintra mistaka við
fæðingar. Málin
séu erfið viður-
eignar og dóms-
valdið hafi til-
hneigingu til að
snúa sönnunar-
byrðinni við og
krefjast þess að
sjúkrastofnunin
sanni að ekki hafi
verið gerð mi-
stök. Þeim reyn-
ist hins vegar
erfítt að finna
skýringar þegar
skýringanna sé
enn leitað eins og
varðandi heil-
askaðann.
Hann segir að
á Norðurlöndun-
um hafí verið farin sú leið að veita
sjúklingum bætur vegna skaða eftir
meðhöndlun á sjúkrahúsi óháð því
hvort mistök hafi átt sér stað eða
ekki. íslensku Karvellögin taki á
þessu. Gallinn sé hins vegar sá að
bæturnar séu of litlar og því freist-
ist sjúklingar fremur til að höfða
mál en ella. Málin séu höfðuð gegn
viðkomandi sjúkrastofnun. Síðan
hafi hún rétt til að höfða mál á
hendur viðkomandi starfsmanni.
En Jón Hilmar sagðist ekki vita til
að slíkt hefði gerst.
Jón Hilmar segir að á Vestur-
löndum sé miðað við að af 1000
nýburum fæðist 1 til 2 með heila-
skaða. Samkvæmt því fæðist 5 til
10 heilasködduð börn hér á landi á
hveiju ári. Aðspurður segist hann
ekki hafa yfirlit yfir hversu mörg
mál hefðu verið höfðuð hér á landi
í tengslum við mistök við fæðingu.
Hins vegar vissi hann til að á 6 ára
tímabili hefðu 18 mál verið í gangi
eða að meðaltali 3 á hveiju ári. Ef
frá væru talin mál vegna annars
en heilaskaða mætti búast við að
eitt mál væri höfðað af því tagi á
hveiju ári. Hann sagði að ekki
væri hægt að fullyrða að sjúkrahús
hefðu verið ranglega dæmd miðað
við fyrirliggjandi niðurstöður. Hins
vegar væri fullvíst að framvegis
yrði tekið á þessu máli af enn meiri
varfæmi en áður.
kommódur - skrifborö - sófar - slyttur - Ijósakrónur gólflampar - boröstofusett^ máluerk - sófasett
í
Ijósakrónur - gó(flampar - rúm
t
Mikið
skal
seljast
Antik - Utsala
Ótrúlegt verð
alla helgtna
Verslunin flytur 1. maí.
Nýjar vörur daglega
Munir og minjar
Ótrúleg
°p‘ð 3113
a-
sófaboró - Ijósakrónur - góIflampar - sófaborö - rúm - kistur - fataskápar
Grensásvegi 3, sími 588-4011
- málverk - sófasett - skatthol ~ gólflampar - boröstofusett
Eitt blab
fyrir alla!
- kjarni málsins!
Baráttudagur verkalýðsins 1. maí
Baráttan við
atvinnuleysið
helsta málið
ALÞJÓÐLEGUR bar-
áttudagur verka-
lýðsins er á morg-
un, 1. maí, og segir Björn
Grétar Sveinsson, formaður
Verkamannasambands ís-
lands, að dagurinn sé enn
sem fyrr mjög mikilvægur
fyrir verkalýðshreyfinguna
í heild. íslendingar verði að
hafa í huga að verkalýðs-
baráttan sé alþjóðleg eins
oft sé minnt á með ýmsum
hætti, og nú síðast með
morði á 12 ára talsmanni
þeirra sem búa við barna-
þrælkun í Pakistan, sem
skotinn var til bana fyrir
skemmstu.
„í mínum huga er 1. maí
þessi alþjóðlegi baráttudag-
ur. Sumir segja að þetta sé
einungis eitthvað táknrænt,
en þetta er alls ekki svo í
mínum huga. Þessi dagur er allt
að því helgastur daga fyrir mig
persónulega. Fólk verður að
skynja það sem að baki stendur,
og menn fara með ýmsum hætti
fram til að minnast þessa dags
hér á landi, t.d. með kröfugöngum
sem segja má að séu tákn um
samstöðu."
- Hver eru helstu baráttumál
verkalýðsins 1. maí að þessu
sinni?
„Mér sýnjst þvl miður að bar-
áttumálin núna ætli að verða þau
sömu og þau voru á síðasta ári.
Það er fyrst og fremst krafan um
að tekist verði á við atvinnuleys-
ið, en að því leyti er ástandið hér
á landi skelfilegt. Við erum með
7-8 þúsund atvinnulausa einstakl-
inga þannig að meðtöldum fjöl-
skyldunum er hópurinn sem
stendur á bak við þetta skelfileg:
ur. Það þýðir ekkert að miða sig
við nágrannalöndin í þessu sam-
bandi. Það er hérna á þessu landi
sem við lifum og við verðum að
horfa í eigin barm og eyða þessu
atvinnuleysi. Þetta er helsta bar-
áttumálið.
En við stöndum líka frammi
fyrir því að búið er að jafna sam-
keppnisstöðu atvinnuveganna
gagnvart helstu nágrannalöndum
og viðskiptaþjóðum, og þá ekki
síst fyrir tilstuðlan verkalýðs-
hreyfingarinnar. Núna gerum við
því þá kröfu að á allra næstu
árum verði kaupmáttur
sá sami fyrir þetta
framlag hér á landi eins
og í þ'essum viðmiðun-
arlöndum." ______
- Hver er skoðun þín
á stjórnarsáttmála ríkisstjórnar-
innar, t.d. hvað þetta varðar?
„Ég hef það alltaf fyrir sið að
gefa nýjum ríkisstjórnum sinn
tíma til að útskýra hvað stendur
í pappírunum. Við eigum eftir að
fá svör við því hvað meint er með
breytingu á vinnulöggjöfinni og
hvað það táknar að segja að litlir
hópar geti ekki farið í vinnustöðv-
un. Táknar það kannski að eitt-
hvað Iítið verkalýðsfélag geti ekki
gert verkfall? Ef svo er þá er
verið að höggva beint inn í grunn-
uppbyggingu verkalýðshreyfíng-
arinnar. Við þurfum að fá útskýr-
ingar á þessu og fleiru í stjórnar-
sáttmálanum.
Á meðan þetta stendur sem
hálfkveðin vísa þá bíður maður
eftir að fá svarið. Verkalýðshreyf-
ingin lætur auðvitað ekki bijóta
upp sín helgustu vé og ætlar ekki
að falla í sömu gryfju og t.d.
Björn Grétar Sveinsson
►Bjöm Grétar Sveinsson, for-
maður Verkamannasambands
íslands, er fæddur 19. janúar
1944 á Hánefsstaðaeyrum í
Seyðisfirði. Hann er gagnfræð-
ingur frá Héraðsskólanum á
Laugarvatni 1960 og húsasmið-
ur frá Iðnskóla Eskifjarðar
1966. Auk þess hefur hann
stundað nám við Félagsmála-
skóla MF A og tekið þátt í ýms-
um námskeiðum. Bjöm Grétar
var verkamaður á árunum 1955
til 1962 og sjómaður 1962 til
1964. Hann starfaði svo við
húsasmiði og sjómennsku 1964
til 1981, og við smíðar og lager-
störf hjá RARIK 1981 til 1985.
Hann hefur verið formaður
Verkalýðsfélagsins Jökuls frá
1985 og formaður Verka-
mannasambands íslands frá
1991. Eiginkona Björns Grét-
ars er Guðfinna María Björns-
dóttir verkakona og eiga þau
þijú böm.
Kröfugöngur
eru tákn um
samstöðu
Nýsjálendingar gerðu. Þar er allt
flakandi rúst eftir að breytingar
voru gerðar á vinnulöggjöfinni í
nafni svokallaðs frelsis, en þar
var verkalýðsfélögunum nánast
bannað að gera kjarasamninga."
- Kjarasamningarnir eru upp-
segjanlegir um áramót efforsend-
urþeirra breytast. Finnst þéreitt-
hvað benda tilþess að samningun-
-------- um verði sagt upp?
„Það á eftir að koma
i ljós hvað aðrir kjara-
samningar koma til að
________mæla inn í þessa frægu
vísitölu og það þarf að
skoða þau mál í heiid. Bankarnir
eru núna að boða vaxtahækkanir
og ég tel þá vera að nota þarna
tækifærið til að handstýra vöxt-
unum upp og það er hreinlega
ekki í fyrsta skipti. Ef þróunin
verður eitthvað í líkingu við þetta
þá hefur það víðtæk áhrif, en ég
get ekki svarað einhliða fyrir það
hvort þetta leiði til að forsendur
kjarasamninganna bresti. Það
verður auðvitað skoðað mjög
gaumgæfilega þegar þar að kem-
ur. ,
Það er hins vegar ansi hart ef
Qármagnseigendur, hvort sem
þeir heita lífeyrissjóðir, kolkrabb-
ar eða eitthvað annað, ætla að
hirða beint til sín með vaxtahækk-
unum þann efnahagsbata, sem
hugsanlega er að koma fram og
boðaður var í kosningabarátt-
unni. Ef það verður raunin þá
hlýtur að verða hart sótt. “