Morgunblaðið - 30.04.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1995 21
framfærslu. Óréttlát skerðing
tekjutryggingar vegna greiðslna
úr lífeyrissjóðum verði afnumin. í
því sambandi er á það bent að
eignir sjóðfélaga eru í raun sparifé
þeirra og ættu því að njóta full-
komins skattfrelsis þegar annað
sparifé nýtur þess.
Hlutfall námsmanna utan af
landi og bamafólki hefur fækkað
um meira en 30% af lántakendum
hjá Lánasjóði íslenskra náms-
manna. Það er staðreynd að jafn-
rétti er ekki til náms. Eins og
Lánasjóði íslenskra námsmanna
var breytt í tíð síðustu ríkisstjóm-
ar er ljóst að efnalítið fólk getur
ekki stundað nám. Hámarksláns-
tími lána á framhaldsskólastigi var
styttur úr 7 áram í 5 ár og gerir
nemendum skólanna erfíðara fyrir
um áframhaldandi nám.
— Drögum úr tekjutengingu bóta!
— Auðlindaskatt á útgerðina!
— Fjármagnstekjuskatt!
— Samtímagreiðslur námslána!
— Endurskoðun framfærsluút-
reikninga námslána með sér-
stöku tiliti til bamafólks og
nemenda utan af landi!
— Afnám skatta af námsbókum!
— Afnáms skólagjalda til að
tryggja jafnrétti til náms!
Launamál
Kaupmáttur launa er óviðun-
andi. Launamunur er mestur þar
sem einstaklingssamningar era
algengir. Þar sem markaðurinn
fær að vera óáreittur metur hann
vinnu kvenna til lægra verðs en
karla. í kjarasamningum er launa-
jafnrétti og launamunur minni en
þar sem einstaklingssamningar
era ríkjandi. Kjarasamninga þarf
til að útrýma launamismun kynj-
anna og öðra launamisrétti.
Launamál og atvinnumál eru
greinar á sama meiði. Þegar at-
vinnumál eru í ólestri verða launa-
mál erfiðari viðfangs. Of lítil fjár-
festing í atvinnulífi hindrar hag-
vöxt. Arðsemi íslenskra fyrir-
tækja er minnst í Evrópu, sem
er lýsandi dæmi um skort á
ábyrgri atvinnustefnu og metnað-
arleysi íslenskra atvinnurekenda.
Afleiðingar alls þessa eru að dreg-
ur úr eftirspurn eftir vörum og
þjónustu á heimamarkaði. En
öflugur heimamarkaður er undir-
staða útflutnings og stendur und-
ir framförum í íslensku atvinnu-
lífi.
Laun á íslandi eru skammarlega
lág og bein afleiðing þeirrar lág-
launastefnu sem ríkt hefur mörg
undangengin ár. Snúum af braut
metnaðarlausrar launastefnu.
Krafa okkar er: Atvinna — vel-
ferð til framtíðar!
1. maí há-
tíðarhöld í
Reykjavík
EINS og undanfarin ár munu Full-
trúaráð verkalýðsfélaganna í Reykja-
vík, Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja og Iðnnemasamband íslands
standa saman að hátíðarhöldum í til-
efni 1. maí, baráttudags verkalýðsins.
í ár er fyrirhugað að hátiðarhöldin
verði með hefðbundnu sniði eins og
undanfarin ár. Safnast verður saman
við Hlemm kl. 13.30 og mun gangan
leggja af stað kl. 14. Gengið verður
niður Laugaveg út Austurstræti að
Ingólfstorgi, til útifundar.
Aðalræðumenn dagsins verða
Magnús' L. Sveinsson, formaður
Verslunarmannafélags Reykjavíkur,
og Björg Bjarnadóttir, leikskóla-
kennari. Ávarp flytur Hreinn Sig-
urðsson, formaður Iðnnemasam-
bands Islands. Fundarstjóri verður
Sigríður Ólafsdóttir, aðaltrúnaðar-
maður Dagsbrúnar hjá Reykjavíkur-
borg.
Milli ræðumanna mun Egill Ólafs-
son flytja tvö lög við undirleik Jónas-
ar Þóris. í lok fundar koma þeir fé-
lagar fram Örn Árnason og Laddi
(Þórhallur Sigurðsson).
Volvo heldur
örygginu á lofti!
Opið laugardag kl. 12-17
og sunnudag kl. 13-17
VOLVO 960
Frumsýning
á flaggskipinu frá Volvo.
Óviöjafnanlegur á alla vegu!
SIPS-púQinn
Verð frá 2.848.000 kr.
VOLVO 850
Mest verðlaunaði
nýi bíll í heimi!
SlPS-pÚðÍnn frá Volvo er nú
staðalbúnaður i Volvo 850 og er
staðsettur I sætisbaki framsætanna
(12 lítrar hvor púði), en ekki ( hurðum, _
þannig er tryggt að hann kemur að
fullum notum hvort sem sætisbakinu
hefur verið hallað eða ekki.
Verðfrá 2.298.000 kr
BIFREIÐ SEM ÞU GETUR TREYST
VOLVO 440/460
Á ótrúlegu
verði!
VOLVO 440/460 KOSTAR FRÁ:
1.398.000!
IB
BRIMBORG
FAXAFHNI 8 • SlMI 91- 685870
Sjðundl hlmlnn