Morgunblaðið - 30.04.1995, Side 26
26 SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/Regnboginn hefur tekið til sýninga gamanmyndina The Road To Well-
ville, Leiðina til Wellville, sem er nýjasta mynd leikstjórans Alans Parkers. Með aðalhlut-
verk í myndinni íara Anthony Hopkins, Matthew Broderick og Bridget Fonda.
Á heilsuhæli
flögfukóngsins
var það fólk sem þjáðist eða
taldi sig þjást af offitu og
. síþreytu, og drukku dvalar-
gestirnir hreinlega í sig boð-
skap Dr. Kelloggs, en erfíð-
ast áttu þeir með að fylgja
hinu stranga kynlífsbindindi
sem boðað var á hælinu.
Smábærinn Battle Creek
dró dám af velgengni heilsu-
hælisins, en mest bar þar á
allskyns spákaupmönnum og
bröskurum sem ætluðu að
græða offjár á því að fínna
upp ný matvæli, og þá einna
helst nýjar tegundir morgun-
verðar.
Byggir á skáldsögu
Mynd Alans Parkers
byggir á samnefndri
skáldsögu ef'*
T.C. Boyle,
sem
sogu
urra per-
sóna er
dvöldu á
„The
Ikvikmyndinni The Road
To Wellville er sögð saga
hins kostulega Dr. John
Harvey Kellogg, föður kom-
flaganna og hnetusmjörsins,
en hann var upp á sitt besta
um síðustu aldamót. Kellogg
var óþreytandi að vinna að
þeirri lífsköllun sinni að leita
leiða til að bæta heilsufar
meðbræðra sinna. Hann
hannaði kostuleg æfingatæki
og matarkúra, naut þess að
messa yfír gestum sínum,
framkvæmdi skurðaðgerðir
og þróaði ný matvæli í tuga
tali svo eitthvað sé nefnt.
Goðsögn í lifanda Iífi
Kellogg var lifandi goð-
sögn á sínum tíma þegar
hann byggði upp og rak á
vegum Sjöunda dags aðvent-
ista hið heimsfræga heilsu-
hæli „The San“ í smábænum
Battle Creek í Michigan-
fylki. Boðaði ákafamaðurinn
og læknirinn Dr.' Kellogg
hreinlífi og heilbrigt lífemi
með mikilli hreyfíngu, hollu
mataræði, algjöru bindindi á
kynlíf, vín og tóbak og þar
sem grænmeti og kom komu
í stað kjöts.
Heilsuhælið „The San“
varð sannkallaður tískustað-
ur og streymdi fólk þangað
til meðferðar hvaðanæva að,
og dvöldu þar allt að 1.000
manns í einu. Oft á tíðum
Afkasta-
mikil
BRIDGET Fonda sem fer með hlut-
verk Eleanor Lightbody í The
Road to Wellville á nú að baki 23
kvikmyndir eftir aðeins átta ára
feril sem kvikmyndaleikkona.
Hún er fædd 27. janúar 1964 í Los
Angeles, dóttir leikarans Peter Fonda
og þar með barnabarn Henrys Fonda. Sam-
býlismaður hennar
er leikarinn Eric
Stoltz.
Fonda segir að
það hafi fyrst og
fremst verið áhug-
inn á að starfa með
Alan Parker sem réð
því að hún tók að sér
hlutverk Eleanor, en
eftir að hún las
handritið að mynd-
inni var hún ekki í
nokkrum vafa,
enda hlutverkið
„ ., , „ , ólíkt þeim sem hún
Bndget Fonda hefur áður fengist
við. Fonda byrjaði að vinna að The Road
to Wellville skömmu eftir að hún lék í It
Could Happen to You á móti Nicholas Cage.
Árið 1993 Iék hún aðalhlutverkið í tryll-
inum Point of No Return, sem John Bad-
ham leikstýrði. Sama ár lék hún á móti
Eric Stohtz og Tim Roth í Bodies, Rest and
Motion. Arið 1992 lék Fonda annað aðal-
hlutverkið í sálfræðitryllinum Single
White Female, og einnig lék hún það ár
í smellinum Singles.
Meðal annarra mynda sem Bridgét
Fonda hefur leikið í eru Doc Hollywood,
Scandal, The Godfather III, Shag, Strap-
Iess, Camilla og Little Buddha. Hún
hefur nýlega lokið við að leika í mynd-
inni Rough Magic og leikur hún nú
í mynd Harolds Becker, City Hall.
San“, eða ætluðu að slá í
gegn í skugga hælisins. Það
er hinn afkastamikli Anthony
Hopkins sem fer með hlut-
verk hins ofvirka Dr. Kel-
loggs, en með önnur helstu
hlutverk fara Bridget Fonda,
Matthew Broderick, John
Cusack og
Dana
Carv-
ey.
BRIDGET Fonda og Matthew Broderick eru í hlutverkum hjóna sem leita sér
lækninga á heilsuhæli Dr. Kelloggs, sem Anthony Hopkins leikur.
Þijóskur og erfíður
BRESKI leikstjórinn Alan
Parker hefur allan sinn
feril haft orð á sér fyr-
ir að vera erfiður í
umgengni. Hann hef-
ur ætíð reynst vera
andsnúinn „kerf-
inu“ í hvaða gervi
sem það birtist,
og einatt hefur
hann beint
spjótum sínum
að breska
kvikmynda-
iðnaðinum og
þeim sem þar
hafa setið við
stjórnvölinn.
Alan Prker
er fæddur í
Islington 14.
febrúar
1944. Hann
byrjaði
ungur að
starfa við
póstútburð
hjá auglýs-
ingastofu,
en vann sig
svo upp í að
verða texta-
höfundur
fyrir Collett
Dickenson Pe-
arce, og voru samstarfs-
menn hans þar þeir David
Puttnam og Charles Saatc-
hi.
Ekki leið þó á löngu þar
til hann hóf að munda kvik-
myndatökuvélina og árið
1966 leikstýrði hann fyrstu
sj ón varpsauglýsingpmum
sem hann gerði. Árið 1970
stofnaði hann sína eigin
óháðu auglýsingastofu,
The Alan Parker Film Co,
en samstarfsmaður hans
var Alan Marshall. Parker
gerði hundruð sjónvarps-
auglýsinga sem unnu til
margvíslegra verðlauna,
en auglýsingar hans tóku
að líkjast æ meir kvik-
myndum eftir því sem
tíminn leið.
Árið 1974 fjármögnuðu
þeir Parker og Marshal
eigið sjónvarpsleikrit, No
Hard Feelings, en engin
sjónvarpsstöð vildi koma
nálægl, verkinu, hvað þá
sýna það. En þetta leiddi
ANTHONY Hopkins leikur
hinn kostulega konung
kornflaganna sem hefur þá
lifsköllun að leita leiða til
að bæta heilsufar með-
bræðra sinna.
engu að síður til þess að
Parker var fenginn til að
Ieikstýra sjónvarpsmynd-
inni The Evacuees fyrir
BBC árið 1975, en hún var
gerð eftir handriti Jack
Rosenthal og fjallaði um
tvö bresk börn af gyðinga-
ættum á tímum seinni
heimsstyijaldarinnar.
Myndin hlaut góðar mót-
tökur, og notaði Parker
tækifærið óspart til að
hnýta í sjónvarpsstöðvarn-
ar fyrir að hafa hafnað því
að taka No Hard Feelings
til sýninga.
Alan Parker
Eftir gerð sjónvarps-
myndarinnar fyrir BBC
var Parker kominn á skrið
og árið 1976 réðst hann í
gerð sinnar fyrstu kvik-
myndar. Það var hin vin-
sæla Bugsy Malone,
söngvamynd sem var skop-
stæling af glæpamyndum
þriðja áratugarins.
Önnur mynd Parkers
var hin umdeilda Midnight
Express (1977) með Brad
Davis, Randy Quaid og
John Hurt í aðalhlutverk-
um. Myndin var tilnefnd til
sex Óskarsverðlauna og
hlaut þau fyrir tónlist og
handritið sem Oliver Stone
skrifaði, en einnig vann
myndin til sex Golden
Globe-verðlauna og fjög-
urra verðlauna Bresku
kvikmyndaakademíunnar.
Árið 1979 gerði Parker
Fame sem var einskonar
óður til ungra listamanna,
en í kjölfar hennar voru
gerðir vinsælir sjónvarps-
þættir um hliðstætt efni.
Myndin hlaut tvenn Ósk-
arsverðlaun en alls hlaut
hún sex tilnefningar.
Persónulegustu mynd
sína til þessa gerði Parker
árið 1981 en það var Shoot
the Moon með Diane Kea-
ton og Albert Finney í aðal-
hlutverkum. Sama ár gerði
hann Pink Floyd - The
Wall, eftir einni vinsælustu
rokkplötu sem gefin hefur
verið út. Þijú ár liðu þar
til Parker gerðu næstu
mynd sína. Það var Birdy,
sem gerð var eftir skáld-
sögu William Wharton, en
með aðalhlutverk í henni
fóru Nicholas Cage og
Matthew Modine. Hlaut
myndin sérstök verðlaun
dómnefndar á kvik-
myndahátíðinni í Cannes
árið 1985. Hina dulúðugu
og umdeildu Angel Heart
gerði Parker árið 1986, en
með aðalhlutverk í henni
fóru Mickey Rourke, Ro-
bert DeNiro og Lisa Bonet.
Næsta mynd á verkefna-
skránni hjá Alan Parker
var stórmyndin Mississippi
Burning (1988) þar sem
mannréttindabarátta í Suð-
urríkjum Bandarikjanna
var viðfangsefnið. Með að-
alhlutverk í myndinni fóru
Gene Hackman og Willem
Dafoe, og var myndin til-
nefnd til sjö Óskarsverð-
launa og hreppti þau fyrir
bestu kvikmyndatöku.
Mississippi Burning var til-
nefnd til fjölda annarra
verðlauna og hlaut hún
meðal annars Silfurbjörn-
inn á kvikmyndahátíðinni í
Berlín. Ári síðar gerði
hann myndina Conie See
the Paradise, en það er
ástarsaga þar sem kyrr-
setning japanskra Banda-
ríkjainanna í sérstökum
búðum í seinni heimsstyij-
öldinni er sögusviðið. Að-
alhlutverk í myndinni léku
Dennis Quaid og Tamlyn
Tomita.
Árið 1990 gerði Parker
myndina The Commit-
ments sem fjallar um
hljómsveit sem skipuð er
írskum ungmennum úr
verkamannastétt. Fyrir
hana hlaut Parker marg-
vísleg verðlaun en hún
hlaut þó ekki tilnefningu
til Óskarsverðlauna. Fjög-
ur ár liðu þar til Parker
gerði næstu mynd sína, en
það er The Road to Well-
ville sem Regnboginn sýnir
og strax í kjölfar hennar
réðst hann í gerð Evitu
eftir söngleiknum fræga.