Morgunblaðið - 30.04.1995, Síða 34
34 SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ODDUR SIGURÐSSON
+ Oddur var
fæddur í
Reykjavík 1. ágúst.
Hann lést á Land-
spítalanum 25. april
sl. Oddur ólst upp í
foreldrahúsum á
Laugavegi 30. For-
eldrar hans voru
Herdís Jónsdóttir,
ættuð úr Árnes-
þingi, og Sigurður
Oddsson, skipstjóri
og lóðs í Reykjavík.
Þau eignuðust átta
börn; Elínu, Stein-
unni, Jón, Odd, Þor-
leifu, Sveinbjörn, Málfríði og
Sigríði Herdísi. Öll systkini
Odds eru á lífi, utan Elín, sem
giftist til Danmerkur og lést
ung að árum. Odd-
ur kvæntist Guðf-
innu Björnsdóttur,
ættaðri úr Vest-
mannaeyjum, og
eignuðust þau tvo
syni; Sigurð, f. 13.9.
1942, verkfræðing-
ur, kvæntur Erlu
Aðalsteinsdóttur,
þau eiga þijú börn,
og Björn, f. 1.11.
1951, dr. í jarðverk-
fræði, kvæntur
Gaby Richter og
eiga þau tvö börn.
Bamabamabömin
em tvö. Oddur verður jarðs-
unginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík þriðjudaginn 2. maí
og hefst athöfnin kl. 13.30.
ELSKU pabbi.
í mörg ár vissum við að kallið
gæti komið, hvenær sem væri. Samt
kom það okkur á óvart. Við vorum
orðin svo vön að þú fengir ofur-
styrk og hristir af þér veikindin.
Um leið og ég þakka læknum og
hjúkrunarfólki Landspítalans fyrir
góða aðhlynningu, ber að þakka
öllum þeim sem báðu fyrir þér.
Ekki hvað síst henni Auði í Hvíta-
sunnusöfnuðinum.
Fyrstu minningamar era sunnu-
dagsbíltúrar niður að höfn að skoða
skipin. Stundum fórum við um borð
í Skeggja eða Skíða, sem þú og Jón
bróðir þinn gerðuð út. Oft enduðu
þessar ferðir á að.fá sér krónuís á
Röðli eða á Vesturgötunni. Toppur-
inn var að fara í heimsókn á
Ásvallagötuna til Halldórs Kjart-
anssonar húsbónda þíns hjá Elding
Trading. Þar fékk maður ekki bara
útlenskt.gott, heldur líka bestu epli
í heimi. Mér er í bamsminni stærð-
in á þessum eplum. Að minnsta
kosti helmingi stærri en nokkur
önnur epli, sem ég hefi séð. Frá
þessum tíma minnist ég líka göngu-
ferðanna með henni mömmu upp á
spítala að heimsækja þig. Fyrst af
Háteigsveginum og síðan af Flóka-
götunni. Dag eftir dag og oft viku
eftir viku.
Eitt haustið er ég kom úr sveit-
inni, þá líklega 11 ára, hafðir þú
legið mestallt sumarið í sérstöku
sjúkrarúmi í herbergi mínu. Þú
hafðir fengið gulu eftir að meiri-
hluti magans hafði verið skorinn
burt úr þér. Læknamir sögðu að
þú yrðir hætta að vinna hjá öðmm
ættir þú að ná þér. Vera sjálfs þíns
herra og ekkert stress. Þá hófst
' „heimilsiðnaðarskeiðið". Reiðarslag
fyrir mig. Það var ekki bara að þú
hættir að vera Oddur Elding og allt
í uppnámi með eplin. í ofanálag gat
ég ekki lengur selt inn á bíó í bíl-
skúmum.
Iðnaðurinn dafnaði, þú losnaðir
ekki við veikindin og alltaf var jafn-
gaman að koma á Ásvallagötuna.
Eg hætti að vera í sveit og fékk
vinnu hjá þér á sumrin. Frá þessum
tíma minnist ég hversu erfitt var
að passa að þú tækir ekki upp kassa
og rúllur, sem þú alls ekki máttir
gera. Þú varst líka sérstaklega
hjálpsamur og bóngóður.
Leiðir skildi er ég fór í nám er-
lendis. Skömmu áður en ég kom
heim varst þú mikið veikur. Vart
hugað líf og mamma vakti yfír þér
heilar nætur. Þú vissir ekki hver
var hjá þér en hafðir orð á, hvað
þú hefðir haft góða vökukonu. í
öllum þessum veikindum heyrði ég
þig aldrei kvarta. Alltaf fór mamma
að heimsækja þig og stappa í þig
stálinu. Oft meir af vilja en mætti.
Síðar höguðu örlögin því þannig
að ég fékk að starfa við hliðina á
þér. Það vom forréttindi. Þá fyrst
kynntist ég hversu magnaðan
pabba ég átti. í byijun ætlaði ég
að bæta tekjurnar með aukavinnu
heima, en þú sagðir að ég skyldi
vera af heilum hug, ef ég ætlaði
að vinna með þér. Það var oft erf-
itt og margs að minnast. Þú hafðir
orð á því að þú hefðir aldrei aftur
ætlað að reka fyrirtæki án nauðsyn-
legs rekstrarijármagns, en við gæt-
um bætt það upp með mikilli vinnu.
Biblían var á náttborðinu og þú
sóttir styrk á samkomum í Hvíta-
sunnukirkjunni. Oft sagðir þú „við
höfum séð hann svartari", en segði
ég það, þá sagðir þú „ég held að
þetta sé nú bara lognið á undan
storminum".
Fyrir um það bil 15 ámm fékkst
þú hjartaáfall og þá fyrst fékk ég
bæði að kynnast, hvað er að reka
fyrirtæki án íjármagns og hversu
mikinn viljastyrk og trú þú hafðir
til að sigrast á veikindunum. Því
má lýsa með orðum læknis, er út-
skrifaði þig fyrir þrem ámm af
sjúkrahúsi í útlöndum eftir langa
legu á gjörgæslu. Hann sagði „þetta
var ein versta tegund af salmon-
ellu, ég átti ekki von á að þú lifðir
það af, en þér tókst það með frekj-
unni“.
Síðustu mánuði fannst mér þú
vera meira á spítala en heima. Það
var alltaf gaman að sækja þig á
spítalann og fara svo á „stofugang"
Hveragerðisbær
Tívolíhúsið í Hveragerði
Hveragerðisbær óskar eftir tilboðum í Austurmörk 24,
Tívolíhúsið". Húsið er 6.245 fm að stærð og byggt árið
1987. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum. Nánari upplýsingar veita
bæjarstjóri og bæjartæknifræðingur
í síma 98-34000.
Austurmörk 11
Hveragerðisbær auglýsir til sölu iðnaðarhúsnæði í
Austurmörk 11, Hveragerði. Húsið er steinsteypt
104 fm, 445 rm og byggt árið 1979.
Nánari upplýsingar veitir bæjartæknifræðingur.
Bæjarstjórinn í Hveragerði.
í fabrikkunni, áður en ég skilaði
þér heim.
í öllum þessum veikindum heyrði
ég þig aldrei kvarta. Alltaf fór
mamma að heimsækja þig og
stappa í þig stálinu. Síðustu árin
oft meira af vilja en mætti. Ekki
alls fyrir löngu falaðist fjársterkur
aðili eftir kaupum á plastfram-
leiðsludeild okkar til flutnings út á
land. Margir kvöttu mig til að selja.
Ég ráðfærði mig við þann frænda
okkar, sem ég tel mestan „bísniss“-
mann í okkar ætt — jafnvel meiri
en þú ert. Hann sagði: „Þú ert asni,
ef þú selur ekki.“ Ég spurði þig,
hvað þú vildir. Þú sagðist alltaf
hafa verið fyrir að beijast. Þar með
var það útrætt og það þótti mér
gott.
Daginn fyrir andlátið hringdir
þú af spítalanum, eins og svo oft
áður, að kanna gang mála. Meðal
annars sagðir þú mér, að bráðum
yrðu kartöflur settar niður og
spurðir, hvort ég ætlaði ekki að
fara að auglýsa garðaplastið. Þá
hélt ég að þú færir að hrista af þér
veikindin eina ferðina en. Svona var
pabbi.
Elsku pabbi minn, ég veit þú
hefur það gott þar sem þú ert núna.
Ég þakka fyrir hvað við fengum
að hafa þig lengi hjá okkur. Bið
guð að vernda mömmu og að við
bræðumir megum beijast áfram,
eins og þú hefðir gert.
Sigurður Oddsson.
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég
langa ævi.
(23. Davíðssálmur.)
Með þessum fallegu ritningar-
orðum viljum systkinin kveðja afa
okkar, Odd Sigurðsson. Það er
margs að minnast en þó em nokkur
atriði sem við systkinin vomm sam-
mála um að stæðu uppúr þegar við
fómm að bera saman bækur okkar
um þetta gamla og góða í samskipt-
um okkar við Odd afa. Þrátt fyrir
gífurlega vinnusemi og það ótrúlega
ævistarf sem eftir afa liggur þá
hafði hann ætið nógan tíma fyrir
bamaböm sín. Það var alltaf svo
gott að koma til afa og ömmu á
Flókagötuna og sérstaklega spenn-
andi að fá að gista, þá var mikið
spilað á spil, aðallega „Pétur“ og
afi las alltaf fyrir okkur á kvöldin
þegar við vorum komin uppí, þá
voru þjóðsögur og sögur úr Bibl-
íunni í miklu uppáhaldi. Við munum
svo vel eftir öllum ferðunum til
Hveragerðis, á Sædýrasafnið, niður
á Tjörn og víðar, alltaf var tilhlökk-
unin jafnmikil. Hápunktur þessara
ferða var þegar komið var út fyrir
bæinn og stoppað var í fallegri laut,
allir fengu kaffi og með‘í en alltaf
leyndist eitthvað gott handa okkur
í nestiskörfunni. Gamlárskvöldin
em okkur einnig mjög minnisstæð.
Þeim eyddum við alltaf hjá afa og
ömmu og var afi jafnspenntur og
við í að sprengja upp flugeldana.
Þegar við bræðurnir uxum úr grasi
fengum við stundum að fara með
afa í veiðitúra og drógum við okkar
fyrstu laxa á land með hans að-
stoð. Afí var ætíð ótrúlega hrein-
skilinn og sagði það sem hann í
bijósti bar. Við viljum þakka Guði
sérstaklega fyrir þá náð að hafa
kynnst afa og komum við til með
að sakna hans mikið, en minning-
una um hann munum við geyma í
hjörtum okkar. Elsku amma, við
biðjum góðan Guð að styrkja þig í
sorg þinni. Afí dvelur nú á góðum
stað S húsi Drottins og einn góðan
dag hittum við hann þar.
Oddur, Aðalsteinn, Anna
Margrét.
Mér brá illilega þegar sá fregnina
um andlát Odds vinar míns í Morg-
unblaðinu en hann hafði verið hjá
mér í sambandi við lyfjameðferð
nokkmm dögum áður. Þá var hann
glaður og hressilegur að vanda. Ég
vissi að vísu að hann hafði alllengi
átt við veikindi að stríða, meðal
annars hjartabilun, sem ég geri ráð
fyrir að hafi nú orðið honum að
fjörtjóni. Við Oddur höfum um ára-
tuga skeið átt margt saman að
sælda, hann leitað til mín með lækn-
isfræðileg vandamál og ég hef oft
þurft á mörgu að halda sem hann
hefur hjálpað mér með. Ég ætla
ekki að rekja hér ætt eða æviferil
hans, það munu sjálfsagt aðrir gera.
' Oddur var óvenjulega duglegur
og vel gefinn maður og hamhleypa
við öll þau mörgu störf er hann
þurfti að sinna. Það er ótrúlegt hve
miklu hann gat afkastað þrátt fyrir
langvarandi heilsubrest. Hans góða
skap og létta lund hefur ömgglega
hjálpað honum mikið. Aldrei heyrði
. ég hann æðrast eða barma sér hvað
sem fyrir kom eða á honum dundi.
Ég hef alltaf metið orðheldni mikils
og Oddur var einn þeirra manna
sem hægt var að treysta enda vom
honum falin mörg trúnaðarstörf á
ævinni. Einnig var hann mjög úr-
ræðagóður og kom það sér vel því
fjölda vandamála þurfti hann við
að glíma. Það er sárt að sjá á bak
slíkum manni bæði fyrir vini,
vandamenn og íslenskt þjóðfélag.
Eftirlifandi eiginkonu Odds, frú
Guðfinnu Bjömsdóttur, hef ég
kynnst allnáið og fallið vel við hana.
Austurbrún 2,
Reykjavík. Mjög góö 2ja
herb. ib. á 6. hæð. Suðursvalir.
Glæsil. útsýni. Laus strax. Verð
5,2 millj.
Austurströnd -
Seltjarnarnesi. Falleg
2ja herb. íb. á 4. hæð í lyftuh.
Góðar innr. Parket. Bílskýli. Áhv.
3,6 millj. Verð 5,9 millj. 6343.
S: 5685009-5685988
ÁRMÚLA21
DAN V.S. WIIUM, HDL., LÖGQ. FASTSALI
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, SÖLUSTJÓRI
SÖLVI SÖLVASON, HDL.
BIRGIR GEORGSSON, SÖLUM.
Álf hólsvegur - Kóp.
3ja herb. íb. á 2. hæð í 5-íb. húsi
ásamt bílskúr. Þvhús innaf eldh.
Glæsil. útsýni. Áhv. 3,1 millj. Verð
6,7 millj. Ath. skipti á stærri eign,
verðhugmynd 8-10 millj. 4914.
Háteigsvegur.
Skemmtil. innr. þakíb. í fjórb.
Stærð 100 fm. Góðar innr. Park-
et. Útsýni yfir Miklatún. Áhv.
byggsj. 3,5 millj. Verð 8,9 millj.
4918.
Sumarbústaðaland - tveir hektarar á
Laugarvatni. Vorum að fá í einkasölu skógi vaxið sumar-
bústaðaland á besta stað. Örstutt í flesta þjónustu. Aðgangur
að heitu og köldu vatni. Verð: Tilboð. Teikningar á skrifstofu.
6356.
Hún hefur því miður lengi verið
heilsulítil. Þau hjónin eignuðust tvo
syni, þá Sigurð og Björn, sem báð-
ir em vel menntaðir dugnaðarmenn.
Hinn fyrrnefndi starfar við fyrir-
tæki föður síns, Plastos, sem tækni-
legur framkvæmdastjóri og er verk-
fræðingur að mennt.
Ég óska Oddi velfarnaðar og
guðsblessunar á þeim leiðum sem
hann nú hefur lagt út á. Blessuð
veri minning hans. Við Þórdís og
fjölskylda okkar sendum frú Guð-
finnu, bömunum og öðmm vanda-
mönnum innilegar samúðarkveðjur.
Erlingur Þorsteinsson.
Andlát Odds Sigurðssonar bar
hvorki brátt að né fyrr en þeir sem
þekktu nokkuð til hans gátu búist
við. Mig furðaði hins vegar oftlega
á því hvað hann stóð lengi af sér
árásir mannsins með ljáinn, jafn oft
og sá leiði stríðsmaður lagði til at-
lögu við hann. Hann háði marga
sjúkdómshildina, hafði jafnan betur
þar til nú. Þrátt fyrir endurteknar
sjúkrahúsalegur bugaðist hann
aldrei. Hann reis alltaf upp aftur
og aftur, sífellt með hugann við
rekstur fyrirtækis síns, vakinn og
sofínn, heill heilsu eða sárlasinn.
Hann var einn starfsamasti maður
sem ég hefi kynnst, nánast ofvirki.
Hann var andstæða kyrrstöðunn-
ar, hann sótti alla tíð fram, stefndi
upp.
Hann bar sig manna best, hár
vexti, grannholda, beinn í baki og
kvikur í hreyfíngum. Hann var fyr-
irmannlegur maður og gat verið
léttur í tali.
Oddur dreifði ekki kröftunum,
heldur einbeitti sér að uppbyggingu
fyrirtækis síns, Plastosar hf., sem
hann stofnaði fyrir röskum 20 ámm
og gerði að stóm fyrirtæki á ís-
lenska vísu.
Ég sendi eiginkonu hans, frú
Guðfinnu Bjömsdóttur, og sonum
þeirra tveim, verkfræðingunum
Sigurði og dr. Bimi, samúðarkveðj-
ur, svo og öðmm aðstandendum.
Guðm. Ingvi Sigurðsson.
Fmmkvöðlar eru fjöregg hverrar
þjóðar. Um þá fjalla skólabækur
með samblandi af virðingu og var-
úð. Virðingin er óskipt ef kapp fylg-
ir forsjá. Það lærir enginn að verða
fmmkvöðull, slíkur eiginleiki er ein-
faldlega meðfæddur. Áræði, víð-
sýni, hröð ákvarðanataka og djörf-
ung em eiginleikar sem lýsa fmm-
kvöðlum best. Gæfan getur hins
vegar reynst fallvölt ef ekki fylgja
eiginleikar á borð við viðskiptavit,
skynsemi og heiðarleika. Gæfa
frumkvöðulsins Odds Sigurðssonar
var að vera gæddur öllum þessum
eiginleikum í ríkum mæli. Saga
flestra fmmkvöðla hefst í bílskúr
og svo var einnig með Odd. Ekki
einu sinni, heldur tvisvar með rúm-
lega 15 ára millibili var bflskúrinn
þeirra Odds og Guðfinnu við Flóka-
götuna vettvangur og kveikjan að
plastpokafyrirtæki, sem bæði tvö
döfnuðu og blómstmðu og urðu að
stórfyrirtækjum á íslenskan mæli-
kvarða. Sem lítilli stelpuhnátu úr
Hlíðunum, stendur fallegi garður-
inn við Flókagötuna mér enn í
fersku minni. Hugfangin horfði ég
á fallegasta garðinn í hverfinu í
blóma á sumrin og ekki var hrifn-
ingin minni þegar jólaljósin lýstu
hvem glugga og tijágreinar í des-
ember.
Með þéttu og hlýju handabandi,
Fersk blóm og
skreytingar
við öll tækifæri
Persónuleg þjónusta.
Fákafeni 11, sími 689120.
liwxTmra'riririrtmnrii