Morgunblaðið - 30.04.1995, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1995 43
I DAG
Arnað heilla
-| n/\ÁRA afmæli. í
X V/vfdag, sunnudaginn
30. apríl, er tíræð frú Þor-
björg S. Jónsdóttir,
Laugateig 5, Reykjavík.
Hún tekur á móti gestum
á heimili sonar síns og
tengdadóttur, Safamýri
93, milli kl. 16-18.
-| /\/\ARA afmæli. í
XV/i/dag, sunnudaginn
30. apríl, er tíræður Hall-
dór Guðjónsson, fyrrum
skólastjóri Barnaskólans
í Vestmannaeyjum og
kvöldskóla iðnaðar-
manna þar, til heimilis í
Hraunbæ 103, Reykjavík.
Foreldrar hans voru Guðjón
Guðnason, frá Tungufelli í
Hreppum og Halldóra Hall-
dórsdóttir frá Dísarstöðum
í Flóa. Eiginkona hans er
Elin S. Jakobsdóttir. Hall-
dór verður að heiman á
afmælisdaginn.
(\/\ÁRA afmæli. Á
i/\Jmorgun, mánudag-
inn 1. maí, verður níræð
Solveig Kristjánsdóttir
frá Munkaþverá í Eyja-
firði, nú til heimilis á Elli-
heimilinu Grund í
Reylgavík. Hún tekur á
móti gestum í Templara-
höllinni v/Eiríksgötu 2.
hæð, kl. 15-18 á afmælis-
daginn.
(\/\ÁRA afmæli. Á
c/\Jniorgun, mánudag-
inn 1. maí, verður níræð
Sveinsína Aðalsteinsdótt-
ir, Reykjavegi 80, Mos-
fellsbæ. Hún tekur á móti
vinum og vandamönnum í
Miðleiti 5, Reykjavík kl.
15-18 á afmælisdaginn.
Q^ÁRA afmæli. Á
iJUmorgun, mánudaginn
1. maí, verður níræð Guð-
rún Jónsdóttir, Akurey,
Vestmannaeyjum, Skúla-
skeiði 38, Hafnarfirði.
Eiginmaður hennar var Ari
Markússon, sem lést 1972.
Guðrún tekur á móti gest-
um í Haukahúsinu Hafnar-
firði milli kl. 16-19 á af-
mælisdaginn.
^nÁRA afmæli. í dag,
i Usunnudaginn _ 30.
apríl, er sjötugur Árni
Þorvaldsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri
Tryggingar hf., Keldu-
hvammi 9, Hafnarfirði.
Hann og kona hans Hulda
Ágústsdóttir eru erlendis
á afmælisdaginn.
fT ^ÁRA afmæli. I dag,
ðUsunnudaginn 30.
apríl, er fimmtug María
Erla Friðsteinsdóttir,
Hæðarseli 15, Reykjavík.
Eiginmaður hennar er Stef-
án Tyrfingsson. Þau hjónin
taka á móti gestum í Fossin-
um, Garðatorgi l,.Garðabæ
milli kl. 19 til 22, í dag,
afmælisdaginn.
Meðmorgunkaffinu
Ást er
að klippa lokk og geyma
hann til minningar.
SLAPPAÐU bara af!
ORÐABÓKIN
ÉG á von á því, að ein-
hverjir lesenda staldri við
fyrirsögn þessa pistils.
Ekki er samt mjög langt
síðan ég heyrði þul á
Bylgjunni taka sér þetta
orð í munn og vafalítið
eftir handriti einhvers
fréttamanns. Fleiri en ég
tóku eftir þessu, því að
Gísli Jónsson víkur að
þessu í íslenzku máli, 8.
apríl sl. Hingað til hefur
verið talað um það, sem
gerðist fyrir tveimur
nóttum, að það hafi gerzt
í fyrrínótt. En sé talað
um nótt sem leið, á ég
einungis við síðastliðna
Gærnótt
nótt. Vissulega er talað
um gærdag, gærkvöld
eða gærmorgun, en gær-
nótt hefur ekki verið
notað í máli okkar fram
að þessu, enda kemur
ekki annað fram í prent-
uðum sem óprentuðum
orðabókum. Vel má hér
vera um áhrif frá öðrum
norrænum málum. í
sænsku er t.d. talað um
i gárnatt, en það er að
sjálfsögðu þýtt sem /
fyrrínótt í Sænsk-
íslensku orðabókinni.
Þetta rifjar upp fyrir mér
atvik frá unglingsárum
mínum. Kona bauð
tveimur vinkonum heim
til sín og spurði, hvort
þær gætu ekki komið á
morgunkvöld og átti þá
við annaðkvöld. Þær
kímdu að þessu, en
skildu auðvitað, við hvað
var átt og fóru í heim-
boðið á réttum tíma. Eft-
ir þetta nefndu þær kon-
una stundum í gamni sín
á milli morgunkvöld. í
sænsku er vissulega tal-
að um morgonkváll.
Þarflaust er samt að
taka þessi orð upp í ís-
lenzkt mál.
J.A.J.
STJÖRNUSPA
eftir Franccs Drakc
NAUT
Afmælisbarn dagsins: Þú
læturþér annt um aðra og
vinnur vel fyrir góðan mál-
stað.
Hrútur (2t. mars - 19. apríl) Þú nýtur þess að geta dund- að þér heima í dag og stund- að þína tómstundaiðju áhyggjulaust. Kvöldið verður rólegt.
Naut (20. apríl - 20. maí) ifjifi Margskonar afþreying stendur til boða í dag sem :)ú getur notfært þér með vinum og ættingjum. Hvíldu þig svo í kvöld.
Tvíburar (21. maí - 20. júní) 'JJX' Þér berast góðar fréttir í dag sem koma þér mjög á óvart, og þú átt von á gestum. Ástvinir eiga saman gott kvöld.
Krabbi (21. júní — 22. júlí) >"$£ Láttu ekki óþarfa hlédrægni koma í veg fyrir að þú takir þátt í skemmtilegum mann- fagnaði með vinum og kunn- ingjum í dag.
Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Láttu verða af því að skreppa í ökuferð með fjölskyldunni í dag, og mundu að taka með nesti. Þú leysir vanda bams í kvöld.
Meyja (23. ágúst - 22. september) Góður vinur er eitthvað mið- ur sín í dag og þú getur veitt honum aðstoð við að ná áttum á ný. Ferðalag virð- ist á næsta leiti.
Vog (23. sept. - 22. október) Þér verður vel ágengt árdeg- is. Einhver snurða hleypur á þráðinn varðandi fyrirhugað ferðalag, sem ástvinir leysa í sameiningu.
Sporódreki (23. okt. - 21. nóvember) Einhver sem á við vandamál að stríða leitar ráða hjá þér í dag, og þú fínnur réttu lausnina. Ástvinir fara út saman í kvöld.
Bogmaður (22. nóv. -21. desember) Þú ættir að hreinsa til heima í dag og losa þig við óþarfa dót sem nýtist engum leng- ur. Svo getur þú boðið heim gestum f kvöld.
Steingeit (22. des. - 19. janúar) Smá vandamál, sem upp kemur milli vina í dag, reyn- ist auðleyst. Með góðri sam- vinnu tekst að ná þeim ár- angri sem stefnt er að.
Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) $5%» Þú lætur ekkert koma í veg fyrir að þér takist að ljúka því sem þú ætlaðir þér í dag. Aðrir sýna þér skilning og veita góða aðstoð.
Fiskar (19. febrúar - 20. mars) 2* Þú þarfnast tíma útaf fyrir þig í dag til að sinna einka- málunum. Að því loknu gefst ástvinum tækifæri til að fara út saman.
Stj'ómuspána á aó lesa sem
dœgradvöl. Spár af pessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra staðreynda.
VEIÐIFELAG
ELLIÐAVATNS
Stangveiði á vatnasvæði Elliðavatns
hefst 1. maí. Veiðiieyfi eru seld á
Vatnsenda og Elliðavatni. Á sömu stöðum
geta félagar úr Sjálfsbjörgu, unglingar
(12-16 ára) og ellilífeyrisþegar úr Reykjavík
og Kópavogi fengið afhent veiðileyfi án
greiðslu.
Veiðifélag Elliðavatns.
Prjónasett, silkisett (toppar, blússur, pils og buxur). Tvískiptir kjólar, blússur, dragtir, jakkar og síðbuxur.
Glugginn, Laugavegi 40.
? Jk J
SkemmtaNafíkLaR
atH>
Örfá
sæti
laus
BlLUÐUStU
BæjaRiNS
Ef þú þorir með þá hafðu samband
fyrir miðvikudaginn 3. maí nk.
Bókanir í síma 16313, Karólína, alla virka daga frá kl. 10-16
MEST SELDU GRILLSTEIKUR
Á ÍSLANDI
FRÁ 690 KRÓNUM
Nauta-, lamba- og svínagrillsteikur
með hrásalati, kryddsmjöri og
bökuðum kartöflum.
Laugardagar og sunnudagar eru fjölskyldudagar á
Jarlinum,
og nú einnig 1. maí.
Barnadiskarnir vinsælu á lí)5 krónur.
Þeim fylgir: Hamborgari, franskar, gos og aukaglaðningur. Börn séu í
fýlgd matargesta.
Ódýrara en að borða heima
... og engin fyrirhöfn.
Jarlinn
Sprengisandi
VEITINGASTOFA