Morgunblaðið - 30.04.1995, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1995 B 25
AIVIN WnMAUGL YSINGA R
Hraðfrystihús
Eskifjarðar
óskar að ráða vélvirkja og plötusmið til starfa
á vélaverkstæði okkar.
Upplýsingar veittar hjá verkstjóra
í síma 97-61126.
Skriflegar umsóknir sendist til:
Hraðfrystihús Eskifjarðar,
c/o Guðni,
Strandgötu 39,
735 Eskifirði.
Leikskólar
Mosfellsbæjar
Stöður leikskólakennara við eftirtalda leik-
skóla eru lausar til umsóknar.
Upplýsingar gefa leikskólastjórar og leik-
skólafulltrúi:
Hlíð: Einsetinn leikskóli með 6-8 tíma vistun.
Leikskólastjóri Gunnhildur Sæmundsdóttir,
sími 566-7375.
Hlaðhamrar: Tvísetinn leikskóli.
Leikskólastjóri Lovísa Hallgrímsdóttir,
sími 566-6351.
Reykjakot: Tvísetinn leikskóli.
Leikskólastjóri Halla Jörundardóttir,
sími 566-8606.
Sólveig Ásgeirsdóttir leikskólafulltrúi,
sími 566-8666.
Rauði kross íslands
óskar eftir að ráða
kynningarfulltrúa
Leitað er að dugmiklum kynningarfulltrúa er
hefur áhuga á starfsemi Rauða krossins sem
er mannúðarhreyfing og starfar á innlendum
og erlendum vettvangi.
Helstu verkefni
Kynningárfulltrúi RKÍ sinnir kynningar- og
markaðsmálum og vinnur náið með stjórn-
endum félagsins að þeim málum. Starfssvið
hans/hennar er að ritstýra og bera ábyrgð
á gerð fréttatilkynninga, vinnslu blaða, tíma-
rita og annars útgáfuefnis sem félagið gefur
út. Kynningarfulltrúi hefur frumkvæði að ein-
stökum útgáfuverkum og einnig fjáröflunar-
starfsemi eftir því sem tilefni gefur til hverju
sinni. Kynningarfulltrúi heyrir undir fram-
kvæmdastjóra RKÍ.
Kröfur um hæfni
Viðkomandi þarf að hafa menntun á sviði
fjölmiðlunar, markaðsmáia eða hliðstæða
menntun og minnst 3ja ára reynslu ífjölmiðl-
un og/eða markaðsmálum. Viðkomandi þarf
að vera liðleg/ur í samskiptum, hafa góð tök
á íslensku og ensku, bæði í rituðu og mæltu
máli og tilbúin/n til þess að koma fram fyrir
hönd RKÍ.
í umsókn þurfa að koma fram nákvæmar
upplýsingar um menntun og fyrri störf. Farið
verður með allar upplýsingar sem trúnaðar-
mál og öllum umsóknum verður svarað.
Þeim, sem telja sig uppfylla þær kröfur er
að ofan greinir, er boðið að senda inn um-
sókn til KPMG Sinnu hf. fyrir 6. maí 1995.
SINNA hf.
REKSTRAR- OG STJÓRNUNARRÁÐGJÖF
Sími 565-3335
Myndriti 565-1212
Bæjarhrauni 12,
220 Hafnarfjörður
KPMG Sinna hf. veitir ráðgjöf á ýmsum sviðum stjórnunar- og starfs-
mannamála og einnig sérhæfða ráðningarþjónustu. KPMG Sinna
hf. er í samstarfi við KPMG Management Consulting.
Framreiðslunemar
óskast
Upplýsingar gefa þjónar á staðnum, mánu-
daginn 1. og þriðjudaginn 2. maí,
milli kl. 15 og 17 (ekki í síma).
m
Bergstaðastræti 37.
Sumarvinna
Óskað er eftir starfi í ferðaþjónustu, hér eða
erlendis, í sumar.
Ég hef víðtæka reynslu af krefjandi störfum
í ferðaþjónustu, kennslu og stjórnun hér og
erlendis. Ég hef ferðast víða um heim og
unnið og numið erlendis.
Ég er fyrst og fremst að leita að skemmti-
legu starfi í sumarfríinu sem mótvægi við
daglegt amstur og innisetu.
Nánari upplýsingar í síma 15973 á kvöldin.
Skjalavörður
Staða skjalavarðar við Borgarskjalasafn
Reykjavíkur er laus til umsóknar. Starfið felst
m.a. í að veita borgarstofnunum ráðgjöf um
skjalastjórn.
Óskað er eftir starfskrafti með próf í bóka-
safnsfræði, sagnfræði eða aðra sambæri-
lega menntun.
Nánari upplýsingar veitir borgarskjalavörður
í síma 632370.
Umsóknarfrestur er til 12. maí nk.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf skal senda Borgarskjalasafni
Reykjavíkur, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík.
A
LAGERSTJORI
FYRIRTÆKIÐ er eitt af stærstu innkaupa-
og vörudreifingarfyrirtækjum landsins.
LAGERSTJÓRI mun, ásamt því að sinna
starfsmannastjómun, m.a. hafa yfimmsjón
með móttöku vöm, ffágangi og afhendingu
pantana, skipulagi vömlagers auk annars
tilfalllandi.
HÆFNISKRÖFUR em að umsækjendur séu
með haldbæra reynslu af stjómun, séu
drífandi, jákvæðir, samviskusamir og vel
skipulagðir í vinnubrögðum. Áhersla er lögð
á lipurð í mannlegum samskiptum. Leitað er
að aðila, sem þolir vel álag og eflist við.
UMSÓKNARFRESTUR er til og með 5
maí n.k. Ráðning verður eftir nánara sam-
komulagi.
Umsóknareyöublðð cru fyrirliggjandi á
skrifstofunni, sem opin er frá kI.10-16, en
viðtalstímar eru frá kI.10-13.
Starfsráðningar hf
SuBurlandsbraut 30 ■ 5. hæi ■ 108 Reykjavik
, Simi: S88 3031 ■ Fax. SflS 3010
Gubný Harbardóttir
ST
Leikskólakennarar
óskast
á leikskólana Undraland og Óskaland
í Hveragerði.
Umsóknarfrestur er til 15. maí.
Allar nánari upplýsingar gefa Sesselja Ólafs-
dóttir, Undralandi, í síma 98-34234 og
Gunnvör Kolbeinsdóttir, Óskalandi,
í síma 98-34139.
AKUREYRARBÆR
STARFSMAIMNADEILD
Staða jafnréttis- og fræðslufulltrúa
Akureyrarbæjar er laustil umsóknar
Starfið er tvíþætt, annars vegar er um að
ræða stjórnun, umsjón og skipulagningu
fræðslu og endurmenntunar starfsmanna og
stjórnenda Akureyrarbæjar og hins vegar að
vinna að framgangi jafnréttisáætlunar Akur-
eyrarbæjar og öðrum jafnréttismálum, innan
bæjarkerfisins og í bæjarfélaginu öllu, skv.
lögum um jafnan rétt og jafna stöðu kvenna
og karla.
Krafist er háskólamenntunar, reynslu og
þekkingar á sviði fræðslu- og jafnréttismála,
svo og reynslu af stjórnun og skipulagningu.
Umsækjendur þurfa einnig að hafa góða
hæfni í samskiptum og eiga auðvelt með að
tjá sig í ræðu og riti.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Akur-
eyrarbæjar og STAK.
Umsóknarfrestur er til 12. maí nk.
Umsóknum skal skila til starfsmannastjóra,
Geislagötu 9, 600 Akureyri, á sérstökum
eyðublöðum sem fást þar.
Nánari upplýsingar hjá jafnréttis- og fræðslu-
fulltrúa og starfsmannastjóra
í síma 96-21000.
Tölvudeild
Óskum að ráða deildarstjóra tölvudeildar
hjá stóru opinberu fyrirtæki.
í tölvudeildinni starfa sjö manns. Deildinni
er skipt í þrjú svið, þjónustu-, rekstrar- og
kerfisfræðisvið. Tölvubúnaður stofnunarinn-
ar er 250 einmenningstölvur, tengdar saman
á nærneti. Netinu tengjast Unix tölvur af
ýmsum gerðum.
Deildarstjórinn er yfirverkefnastjóri deildar-
innar og sinnir auk þess fjármálum, áætlana-
gerð, stefnumótun deildarinnar í samráði við
yfirstjórn og framfylgir stefnu hennar.
Hann hefur umsjón með rekstri kerfa og
tölvubúnaðar og yfirumsjón með endurgerð
rekstrarkerfa. Sérstök áhersla er lögð á þjón-
ustuþátt starfsins.
Leitað er að aðila með háskólamenntun í
tölvunarfræðum eða sambærilega menntun.
Viðkomandi þarf að hafa almenna þekkingu
á sviði kerfisgerðar og gagnasafnskerfa.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., Skeif-
unni 19, Reykjavík merktar: „Tölvudeild -
161“, fyrir 15. maí nk.
Hagva ngurhf
Skeifunni 19 1 Reykjavík | Sími 813666 Róðningarþjónusta Rekstrarróðgjöf Skoðanakannanir