Morgunblaðið - 04.05.1995, Side 1
80 SÍÐUR B/C/D
99. TBL. 83. ÁRG. . FIMMTUDAGUR 4. MAÍ1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Keðjugengi end-
urreist í Alabama
Búist við að fleiri ríki taki upp refsinguna
sem er umdeild meðal fangelsisstjóra
Elkmont, Alabama, New York. Daily Telegraph, Reuter.
KEÐJUGENGI, refsifangar
hlekkjaðir saman til vinnu utan
fangelsismúra, birtust á ný í gær
í Alabama, í fyrsta sinn í þrjá ára-
tugi. Þykir það til marks um herta
stefnu bandarískra ráðamanna
gagnvart glæpastarfsemi og ásetn-
ing þeirra að sýna skattgreiðend-
um í verki, að ekki er dekrað við
glæpamenn.
Fjögur hundruð fangar voru
hlekkjaðir á fótum, fimm í hverri
keðju, og látnir hreinsa illgresi og
tína rusl meðfram ríkishraðbraut
65, umferðarþyngsta vegi Alab-
ama-ríkis. Vonar Fob James ríkis-
stjóri að senn verði þúsund fangar
við störf af þessu tagi.
Fangarnir voru í áberandi ein-
kennisklæðum sém á var prentað
„keðjugengið“. Búist er við að fleiri
ríki fylgi fordæmi Alabama.
Fulltrúi bandarískra fangels-
isyfirvalda sagði að um vísvitandi
niðurlægingu á föngunum væri að
ræða og sagðist hann óttast að
hún ætti eftir að valda bakslagi í
fangelsum. Aðferðin væri mjög
umdeild meðal stjórnenda þeirra.
Keðjugengin voru aflögð á sjötta
áratugnum þar sem meðferðin á
föngunum, jafnvel í suðurríkjun-
um, þótti ekki mönnum sæmandi.
Mannréttindasamtök Bandaríkj-
anna hófu í gær aðgerðir til þess
að fá meðferðina bannaða.
Sveitarstjórnarkosningar 1 Bretlandi
*
Ihaldsmenn hart
gagnrýndir
London. Reuter.
ÁÆTLANIR bresku ríkisstjórnar-
innar um að skattleggja atvinnu-
lausa húseigendur vöktu
hörð viðbrögð í gær, dag-
inn fyrir sveitarstjómar-
kosningar þar í landi.
Kemur það sér einkar illa
fyrir John Major forsæt-
isráðherra þar sem kosn-
ingarnar kunna að ráða
úrslitum um pólitíska
framtíð hans.
Skoðanakannanir
benda til þess að íhalds-
menn muni tapa miklu fylgi í kosn-
ingunum. Ofan á það bættust í gær
ásakanir í breskum blöðum um að
stjórnin hygðist skattleggja at-
vinnuleysisbætur til þeirra sem fá
húsnæðislán. Kenneth Clarke fjár-
málaráðherra sagði að
ekki yrði af þeirri skatt-
heimtu en stjórnarand-
stæðingar hentu fréttirn-
ar engu að síður á lofti.
Þá sökuðu þingmenn
Verkamannaflokksins
stjórnina um að reyna
að seinka vaxtahækkun
til að koma í veg fyrir
frekara fylgishrun.
Clarke sagði andstæð-
inga sína hins vegar reyna að þyrla
upp pólitísku moldviðri til að beina
athyglinni frá málefnum einstakra
sveitarfélaga.
Major
Reuter
KRÓATÍSKAR hjúkrunarkonur huga að kornabörnum í neðanjarðarbyrgi barnaspítalans í Zagreb
í gær. Þrjár eldflaugar, sem Serbar skutu á borgina til að hefna árásar Króata inn á yfirráðasvæði
þeirra, hæfðu sjúkrahúsið í gær.
Serbar í Króatíu
fallast á vopnahlé
Zagreb, Genf, París. Reuter.
LEIÐTOGAR Serba í Króatíu féll-
ust á vopnahlé í gær eftir að hafa
haldið áfram eldflaugaárásum á
Zagreb til að hefna árásar Króata
inn á yfirráðasvæði þeirra.
Yasushi Akashi, sendimaður
Sameinuðu þjóðanna, samdi drög
að vopnahléssamkomulaginu og
sagði að tryggja ætti að serbneskir
hermenn og óbreyttir borgarar
fengju að fara frá Vestur-Slavoníu
undir vernd friðargæsluliða til
Bosníu. Króatíuher náði Vestur-
Slavoníu á sitt vald í tveggja daga
sókn fyrr í vikunni.
Samkomulagið dregur úr líkun-
um á því að allsheijarstríð blossi
upp í Króatíu og hugsanlega víðar
á Balkanskaga.
Lögreglumaður beið bana og 43
særðust í eldflaugaárásum Serba á
Zagreb í gær. Eldflaugarnar sem
Serbar beita eru með klasasprengj-
ur |em dreifa málmkúlum yfír stórt
svæði. Lögreglumaðurinn sem beið
bana var að reyna að gera sprengju
óvirka eftir að hún lenti á tré við
helsta barnasjúkrahúsið í borginni.
400 böm höfðust við í kjallara
sjúkrahússins eftir árásina.
Eldflaug lenti einnig á þaki leik-
húss í borginni og féll niður í sal
þar sem balletdansarar voru á æf-
ingu. Á meðal þeirra sem særðust
voru 20 Úkraínumenn, Rússi, Rúm-
eni og Breti.
Serbar afvopnaðir
Eldflaugunum var skotið af hreyf-
anlegum skotpöllum á yfirráða-
svæði Serba um 50 km suðvestur
af Zagreb.
Serbneskir hermenn, sem voru
yfirbugaðir í Vestur-Slavoníu, af-
hentu friðargæsluliðum Sameinuðu
þjóðanna þungavopn sín. Yasushi
Akashi hvatti Króata til að flytja
hersveitir sínar af svæðinu og íáta
friðargæsluliðið um að halda uppi
eftirliti þar. Sendiherra Króatíu hjá
Sameinuðu þjóðunum hafði þegar
hafnað þeirri hugmynd og sagt að
Króatar hefðu rétt til að hafa her-
menn á svæðinu þar sem það væri
innan landamæra Króatíu.
Talsmaður franska utanríkis-
ráðuneytisins sagði í gær að Evr-
ópusambandið væri að íhuga að
slíta viðræðum um samstarfssamn-
ing við Króatíu til að mótmæla
hernaðaraðgerðunum í Vestur-
Slavoníu en hygðist halda þeim
áfram um sinn.
■ Allsheijarstríð ólíklegt/ 20
Signr blasir við Chirac
eftir jafntefli í kappræðu
París. Reuter.
FRANSKIR stjórnmálaskýrendur
voru á einu máli í gær, um að jafn-
tefli hefði orðið í sjónvarpskapp-
ræðum forsetaframbjóðendanna,
Jacques Chiracs borgarstjóri í París
og sósíalistans Lionels Jospins, í
fyrrakvöld. Það væri sama og ósig-
ur fyrir Jospin sem verið hefði
8-10% prósentustigum fylgisminni
en Chirac fyrir einvígið. Ur þessu
ætti því ekkert að koma í veg fyr-
ir að Chirac færi með sigur af hólmi
næstkomandi sunnudag.
Frambjóðendurnir sátu allan
tímann á honum stóra sínum og
sýndu hvor öðrum mikla kurteisi
með þeim afleiðingum að áhorfend-
ur voru að meðaltali aðeins 17
milljónir eða mun færri en búist
var við og talsvert færri en fyrir
bæði kosningarnar 1981 og 1988.
Alain Duhamel, einn kunnasti
stjórnmálaskýrandi landsins, lýsti
jafntefli í einvíginu og sagði að það
myndi litlu sem engu breyta um
fylgi frambjóðendanna.
Nái Jacques Chirac kjöri sem
Frakklandsforseti eru miklar líkur
taldar á, að Alain Juppe utanríkis-
ráðherra taki við starfi forsætisráð-
herra. I ráðherratíð sinni hefur
orðstír hans eflst heima fyrir sem
erlendis en hann þykir skarpur í
hugsun, úrræðagóður og skýr.
Francois Mitterrand Frakklands-
forseti stjórnaði síðasta ríkisstjórn-
arfundi sínum í gær. Að því loknu
varpaði hann blómvendi í Signu á
þeim stað þar sem skallabullur
drekktu innflytjanda frá Marokkó
á mánudag. Vottaði hann hinum
látna virðingu sína með einnar
mínútu þögn á staðnum. Fulltrúar
Chiracs og Jospins vörpuðu sömu-
leiðis blómvendi í ána. Morðið átti
sér stað við Caroussel-brúna í þann
mund er útifundi Þjóðfylkingarinn-
ar, flokks hægriöfgamannsins Je-
an-Marie Le Pens, lauk.
Le Pen sagðist í gær ætla að
skila auðu í kosningum á sunnu-
dag. Hann hlaut 15,1% atkvæða i
fyrri umferðinni og benda kannanir
til, að helmingur stuðningsmanna
hans muni kjósa Chirac, fjórðungur
Jospin og um fjórðungur muni fara
að dæmi foringja síns og skila auðu.
■ Hlutverkaskipti/28-29
Reuter
FRANCOIS Mitterrand Frakklandsforseti varpar blómvendi í
Signu við Caroussel-brúna, á þeim stað þar sem skallabullur
drekktu innflytjanda frá Marokkó á máuudag.