Morgunblaðið - 04.05.1995, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUll 4. MAÍ 1995
FRÉTTIR
Heldur hænsni í garði sínum í Hafnarfirði
Aldrei kvartað undan hanagali fyrr
Tryggingastofnun
Tólf sækja
um stöðu
læknis
TÓLF umsóknir bárust um stöðu
tryggingayfirlæknis en umsókn-
arfresturinn rann út 30. apríl
síðastliðinn.
Umsækjendur eru Gauti Am-
þórsson, Gunnar Ingi Gunnars-
son, Halldór Baldursson, Hrafn
V. Friðriksson, Kristján Bald-
vinsson, Ólafur Hergill Oddsson,
Sigurður Thorlacius, Vigfús
Magnússon, Þorsteinn Njálsson
og Þórarinn Ólason. Tveir um-
sælq'enda óska nafnleyndar.
„ÉG FÉKK hænurnar og hanana
í kaupbæti með húsinu. Hérna
hafa verið hænsni í mörg ár og
ég ætla mér að hafa þau áfram.
Það hefur aldrei verið kvartað
fyrr en nú, en þá heyrðist gal í
öðrum hananum, þar sem
gleymst hafði að loka hlera, svo
hann komst út í netgirðingu,"
segir Hafþór Kristjánsson, íbúi
við Hverfisgötu 8 í Hafnarfirði.
Hafþór heldur átta hænur og
tvo hana í garðinum við hús sitt
og búa hænsnin í sátt og sam-
lyndi við köttinn Rósmund og
tíkina Trýnu. Fyrir skömmu
barst kvörtun til lögreglunnar í
Hafnarfirði, um að annar haninn
héldi vöku fyrir fólki með gali
kl. 4 á nóttunni. Lögreglan segir
að lengfi hafi verið vitað af litla
hænsnabúinu, en menn hafi ekki
verið að fetta fingur út í það
þótt leyfi hafi vantað, þar sem
aldrei hafi verið kvartað.
Hafþór segir að hann telji 99%
af nágrönnum sínum ánægða
með hænsnin. „Ég hef sjálfur
aidrei orðið var við gal í hanan-
um, en um daginn komst hann
út að nóttu til, svo einhverjir
heyrðu í honum. Mér finnst ha-
nagal nú ekkert til að gera veð-
ur út af miðað við drunur í stór-
um diselbílum, sem aka Reykja-
víkurveginn á nóttunni, en fólk
þekkir það hljóð víst betur og
kippir sér því síður upp við það.
Heilbrigðiseftirlitið kom í heim-
sókn til mín eftir kvörtunina, en
bæjaryfirvöld munu víst fjalla
um málið.“
Heimilislegt
Nágrannakona Hafþórs, sem
Morgunblaðið ræddi við, segir
að hani hafi verið í garðinum í
mörg ár. „Mér finnst heimilislegt
og gaman að heyra hanagal af
og til og sé ekki neina ástæðu
til að kvarta.“
Morgunblaðið/RAX
HANINN, sá ljósi, hreykir sér á öðrum fæti í hænuhópnum og kærir sig kollóttan um kærur vegna morgunsöngs. Eigandinn, Hafþór
Kristjánsson, fylgist stoltur með hópnum.
Mjólkurfræðingar fylgja verkfallsboðun sinni eftir með yfirvinnubanni
Gæti komið til mjólkur-
skorts í lok næstu viku
KOMI verkfall mjólkurfræðinga til fram-
kvæmda eru horfur á að skortur verði á mjólk-
urvörum í versiunum á höfuðborgarsvæðinu í
lok næstu viku. Möguleikar Mjólkur-samsöl-
unnar í Reykjavík og Mjólkursamlags KEA til
að bregðast við verkfallinu eru takmarkaðir
því að mjólkurfræðingar hafa boðað yfirvinnu-
bann frá og með næsta föstudegi.
Mjólkurfræðingar hafa boðað verkfall hjá
KEA 8.-10. maí og hjá Mjólkursamsölunni í
Reykjavík 10.-12. maí. Yfirvinnubann hjáöllum
mjólkurbúum á landinu kemur til framkvæmda
á miðnætti 5. maí.
Guðlaugur Björgvinsson, forstjóri Mjólkurs-
amsölunnar í Reykjavík, sagðist gera ráð fyrir
að verkfallið myndi leiða til skorts á mjólkur-
vörum í verslunum í Reykjavík í lok næstu viku.
Guðlaugur sagði að sala á mjólk væri mun
meiri í síðari hluta vikunnar en í upphafi vik-
unnar. Að jafnaði seldist helmingi meira af
mjólkurvörum á fimmtudegi og föstudegi en á
mánudegi og þriðjudegi. Guðlaugur sagði að
yfírvinnubannið gerði það að verkum að Mjólk-
ursamsalan ætti erfitt með að auka fram-
leiðslu dagana fyrir verkfall. Guðlaugur sagð-
ist þó gera ráð fyrir að reynt yrði að auka
framleiðslu nk. föstudag. Með því móti yrði
væntanlega hægt að bjarga málum í upphafí
vikunnar.
Guðlaugur sagði að yfirvinnubannið gerði
það að verkum að framleiðslutíminn yrði styttri
en ella. Á mánudagsmorgnum væru öll tæki
sótthreinsuð og og það tæki um tvo tíma.
Mjólkurfræðingar sinntu einnig þvottum í lok
vinnudags, sem tæki yfír einn klukkutíma.
Framsleiðslutíminn á mánudaginn yrði því vart
meiri en fímm klukkutímar.
Yfirvinnubann mjólkurfræðinga
gildir um allt land
Hugsanlegt er talið að ef tii verkfalls komi
í Reykjavík leiti verslanir eftir því að fá
mjólkurvörur frá mjólkursamlögum sem ekki
verða í verkfalli. Framleiðslugeta þeirra er hins
vegar takmörkuð. Ljóst er að þau geta alls
ekki annað þörfum markaðarins á höfuðborg-
arsvæðinu í verkfallinu. Yfirvinnubannið gerir
það auk þess að verkum að samlögin eiga erf-
itt með að auka framleiðslu til að mæta auk-
inni eftirspurn.
Hólmgeir Karlsson, framleiðslustjóri hjá
Mjólkursamlagi KEA, sagði að verkfall myndi
raska verulega framleiðslu í samlaginu. Hann
sagði að stjórnendur samlagsins væru ekki
búnir að ræða hvernig brugðist yrði við, en
reynt yrði að haga framleiðslunni á þann veg
að neytendur yrðu fyrir sem minnstri röskun.
Hólmgeir sagði að ákvörðun hefði ekki ver-
ið tekin um hvort mjólk yrði sótt til bænda í
Eyjafirði ef til verkfalls kæmi. Hann sagði að
samráð yrði haft um það við bændur.
Rútuferðir suðvestanlands leggjast af
Komi boðað verkfall Bifreiðafélagsins
Sleipnis til framkvæmda 11. maí falla strætis-
vagnaferðir niður í Kópavogi, Hafnarfirði,
Garðabæ og Mosfellsbæ. Áætlanaferðir út frá
Reykjavík falla líka niður. Þannig verða t.d.
engar rútuferðir til Keflavíkur, Selfoss, Borgar-
ness, Snæfellsness eða til Akureyrar. Verkfall-
ið raskar hins vegar ekki strætisvagnaferðum
í Reykjavík.
Gera má einnig ráð fyrir að verkfallið leiði
til erfíðleika við flutning keppenda á heims-
meistaramótið í handknattleik. Forráðamenn
mótsins ræða nú leiðir til að bregðast við verk-
fallinu.
í Sleipni eru rúmlega 150 félagsmenn. Fé-
lagssvæðið er allt Reykjanes, Gullbringusýsla,
Borgarfjarðarsýsla og Snæfellsnessýsla.
Samningafundi Sleipnis og viðsemjenda
þeirra lauk í gær án þess að samningar tæk-
just. Eitthvað mun þó hafa miðað í samkomu-
lagsátt. Annar fundur hefur verið boðaður í
dag. Enginn fundur hefur hins vegar verið
boðaður í kjaradeilu mjólkurfræðinga.
:( aJttTJDH3M
MORGUNBLAÐIÐ
Þungur
fótur í
léttri færð
LÖGREGLAN í Reykjavík hef-
ur haft í nógu að snúast und-
anfarna daga, enda segin saga
að bensínfótur ökumanna
þyngist eftir því sem færðin
léttist.
Frá þriðjudagsmorgni fram
á miðvikudagsmorgun voru
yfir 100 ökumenn stöðvaðir
fyrir umferðarlagabrot og
höfðu flestir farið of geyst.
Af þessum hópi ökumanna
sá lögreglan ástæðu til að
áminna 67, en 16 að auki fóru
svo hratt að lögreglan kærði
þá fyrir athæfið.
Þá hefur lögreglan einnig
haft klippurnar á lofti undan-
farna daga og fjarlægt númer
af bílum ef eigendurnir hafa
trassað að greiða bifreiðagjöld,
svokallaðan þungaskatt.
255 millj. tap
á gjaldþroti
Saltfélagsins
SKIPTUM er lokið í þrotabúi
íslenska saltfélagsins hf., sem
varð gjaldþrota 4. maí í fyrra.
Alls var lýst 267 millj. kr. kröf-
um í búið en rúmum 12 millj-
ónum króna var úthlutað til
kröfuhafa.
12 milljónirnar runnu allar
til forgangskröfuhafa og
nægðu fyrir 37% höfuðstóls
þeirra krafna, sem samkvæmt
því námu alls um 32 milljónum
króna.
Ekkert kom hins vegar í
hlut almennra kröfuhafa en
kröfur þeirra námu alls um
235 milljónum króna, auk
vaxta og kostnaðar.
Reiðhjól
hverfa
REIÐHJÓL eru farin að hverfa
frá réttmætum eigendum sin-
um, en á vori hveiju fara reið-
hjólaþjófar á kreik um leið og
sést til hjólanna á ný eftir
ófærð vetrarins.
Ómar Smári Ármannsson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn í
Reykjavík, segir að fingra-
langir hjólreiðamenn séu aug-
Ijóslega komnir á stjá í um-
dæmi Iögreglunnar í Reykja-
vík, því ekki sé óalgengt að
daglega berist fimm tilkynn-
ingar um reiðhjólaþjófnaði.
Með vopn
úr plasti
LÖGREGLAN í Reykjavík af-
vopnaði mann í gær, eftir að
henni bárust ábendingar um
að hann væri gyrtur skamm-
byssu. Byssan sú reyndist vera
ieikfang úr plasti.
Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem lögreglan tekur leikföng
af fullorðnum mönnum. Þess
er skemmst að minnast að um
síðustu helgi tók lögreglan eft-
irlíkingu af haglabyssu af
mönnum, sem höfðu ógnað
fólki með henni í miðbæ
Reykjavíkur. Lögreglan segir
erfitt að skilja leikfangaað-
dáun fullorðinna manna, en
telur víst að mikil löngun til
að líkjast byssubófum kvik-
myndanna ráði ferðinni.