Morgunblaðið - 04.05.1995, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1905
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Morgunblaðið/Hallgrímur Magnússon
INGI Hans að störfum á verkstæði sínu.
Handverk í Grundarfirði
Grundarfirði - Þrátt fyrir allt
er lífið í Grundarfirði ekki
eintómur fiskur. Ef grannt er
skoðað leynist hérna fram-
leiðslustarfsemi sem ekki
heyrir undir fisk. Fyrirtækið
„Ingi Hans Handverk“ er
dæmi um þetta, en þar eru
smíðaðir verðlaunagripir og
sérsmíðuð gjafavara.
Eigandinn, Ingi Hans, hóf
þessa starfsemi fyrir tveimur
árum og hefur eftirspurn eftir
gripum hans aukist jafnt og
þétt. Við smíði gripanna notar
Ingi Hans m. a. grjót sem hann
sækir í fjöllin í nágrenninu.
Efni sótt á hafsbotn
Jarðfræði fjallanna í
kringum Grundarfjörð er
óvenjulega fjölbreytt. Hægt
er.að finna margar bergteg-
undir á tiltölulega litlu
svæði, m. a. hvítan marmara,
sem er mjög sjaldséður á ís-
landi. Ingi Hans hefur jafn-
vel leitað fanga niður á hafs-
botn. Við dýpkun Grundar-
fjarðarhafnar í fyrra komu
upp álitlegir jaspis-steinar
og fallegar holufyllingar.
Þessa steina notar Ingi Hans
í smíðisgripi sína, sker þá og
slípar og verða þeir þá æg-
ifagrir útlits.
Helstu verkefni fyrirtæk-
isins hingað til hafa verið
verðlaunagripir fyrir
íþróttamót og gjafir á stóraf-
mælum og við önnur hátíðleg
tækifæri.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
STEFÁN Jóhannsson, skólastjóri Alþýðuskólans á Eiðum. Byggingar skólans í baksýn.
Alþýðuskóliim á Eiðum
sameinast Mennta-
skólanum á Egilsstöðum
Egilsstöðum - Alþýðuskólinn á
Eiðum hefur sameinast Mennta-
skólanum á Egilsstöðum. Nokkur
fækkun hefur orðið á aðsókn nem-
enda í Alþýðuskólann á síðustu
árum, en á meðan hafa ekki allir
komist að hjá Mennstaskólanum á
Egilsstöðum, sem sótt hafa um
skólavist. Meðal annars hefur
skort pláss á heimavist skólans,
en með sameiningunni eykst
heimavistarpláss Menntaskólans
til mikilla muna. Á næsta vetri
tekur Menntaskólinn því til starfa
með aðsetur á tveimur stöðum,
Egilsstöðum og Eiðum, með 13
km fjarlægð á milli bygginga.
Fjölbreytt nám
Að sögn Stefáns Jóhannssonar,
núverandi skólastjóra Alþýðuskól-
ans, verða gerðar nokkrar breyt-
ingar í námsframboði Menntaskól-
ans. Námið mun skiptast upp í
stúdentsbrautir sem verða kennd-
ar á Egilsstöðum og starfsnáms-
brautir sem verða kenndar á Eið-
um. Meðal þessara, starfsnáms-
brauta verða ferðaþjónustubraut
og markaðs- og hönnunarnám.
Skólastarf í rúma öld
Skóli hefur verið á Eiðum frá
síðustu öld, því Búnaðarskóli var
starfræktur frá 1883-1919 og
Alþýðuskóli frá 1919 til dagsins í
dag. Alþýðuskólinn hafði kennslu
með 10. bekk og tveim bekkjum
í almennu framhaldsnámi. 10.
bekkjar kennsla grunnskóla verð-
ur þar áfram, það er hjá Mennta-
skólanum.
K#iLIL¥IEIIÍIILA
<® Á KAFFI keykjavík ig
fimmtudag, föstudag, faugardag og sunnudag
-/míKBANO BJO'ý . vawr»*sw —
OG Kaíft
S
leetarata
gestu®0-
Hinn ókrýndi konungur bresks
pubbrokks, hinn hvíti Chuck Berry,|
verflur í banastuði hjá okkur.
Láttu þig
ekki vanta.
AVÍK
Glæsilegur
rokkmatseðill
öll hvöldin.
Ókeypis lögfræðiaðstoð
á hverju fimmtudagskvöldi milli
kl. 19.30 og 22.00 í síma 11012.
ORATOR, félag laganema.
m*
ríTn
NORDISK FORSKERUTDANNINGSAKADEMI
NorFA býður
vísindamönnum á Nordurlöndum
ad sœkja um styrk til undirbúnings
norrœnna vísindanámskeióa 1996
UMSOKNARFRESTUR
ER TIL 1. JÚNÍ 1995
Fresturinn gildir einnig um styrki
fyrir vísindanámskeið innan norræna
umhverfisrannsóknaverkefnisins fyrir
eftirfarandi svið:
• Rannsóknir verðandi loftslagsbreytinga.
• Umhverfisrannsóknasamvinna á Eystrasaltssvæðinu.
• Samfélagsforsendur umhverfisstefnunnar.
NÁNARI UPPLÝSINGAR
færðu í bæklingi NorFa, „Gránslös forskarutbildning 1995“
Pantaðu hann hjá þínum háskóla/menntastofnun
(upplýsingadeild) eða hjá skrifstofu NorFa:
NORDISK FORSKÉRUTDANNINGSAKADEMI
Postboks 2714 St. Hanshaugen, N-0131 Oslo.
Sími +47 22 03 75 20 / Símbréf + 47 22 03 75 31.
Finnsku gœðatcekin
Lf kI
í baðið, handlaugina, sturtuna
og eldhúsið.
Sölustaðir:
IBaðstofaNI Smiöjuvegi 4a
ALFAÐORG F Knarrarvogi 4
Pöulsen Suöurlandsbr. 10