Morgunblaðið - 04.05.1995, Qupperneq 15
HEIMSFERÐIR
Auglýsing
Sambú, rekstrarfélag Lífeyrissjóðs bænda og
Samvinnulífeyrissjóðsins, mun flytja starfsemi
sína úr Sambandshúsinu á Kirkjusandi
á 3. hæð í Hús verslunarinnar, Kringlunni 7.
Vegna flutninganna verða skrifstofur Sambús
lokaðar föstudaginn 5. maí 1995, en opna í
hinu nýja húsnæði að morgni mánudagsins
8. maí 1995.
Síma- og faxnúmer verða óbreytt.
Sambú
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1995 15
LANDIÐ
g grömm Léttasta umqjöröT heimi
PltrgmMitíítóí
- kjarni málsins!
RIM
Föstudaginn 5. maí veitir Anna og útlitið ráðgjöf
við val á umgjörðum í verslun okkar frá kl. 13-18.
Gleraugnaverslunin í Mjódd Aitabakka u
GALVASKT göngufólk!
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
Beint leiguflug íjúlí og ágúst
Heimsferðir bjóða nú vikuferðir sínar til
Parísar þriðja árið í röð og glæsileg ný hótel.
Tryggðu þér saeti meðan enn er laust.
Flug og bíll í viku: Frá kr. 29.300
Flug og hótel í viku: Frá kr. 36.600
*lnnifalið í
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
EINAR Kristinsson í Mosfelli við grunninn að nýbyggingunni.
Byggt við gistihús
Mosfells á Hellu
Selfossi - Hafin er bygging tveggja
hæða gistihúss hjá Mosfelli á Hellu.
Húsið verður byggt út frá núverandi
gistihúsi við Þrúðvang og verða 25
tveggja manna herbergi í viðbygg-
ingunni. Áformað er að nýbyggingin
verði fokheld á þessu ári.
í gistihúsinu við Þrúðvang eru
fyrir 20 herbergi og borðsalur fyrir
100 manns. Á sumarhúsasvæði Mos-
fells eru 25 hús af mismunandi stærð
með svefnaðstöðu fyrir 90 manns og
þar eru einnig matsalir fyrir 100
manns og góð aðstaða fyrir tjald-
gesti. Öll aðstaða hjá Mosfelli á Hellu
er rómuð af þeim sem þar dvelja
enda snyrtimennska og góð þjón-
ustulund í fyrirrúmi hjá eigendum
og starfsfólki fyrirtækisins.
Að sögn Einars Kristinssonar eins
af eigendum Mosfells er nýting gist-
ingarinnar góð yfir sumartímann.
Hann sagði viðbygginguna nauðsyn-
lega til þess að mæta auknum kröf-
um varðandi gistiherbergi. Nú væri
naðusynlegt að geta boðið eins og
tveggja manna herbergi með baði.
Eirjar sagði nýtingartímann yfir
sumarið of stuttan og hætt við að
hann lengdist lítið.
Almennings-
íþróttadeild í
Hveragerði
Hveragerði - Almenningsíþrótta-
deild var stofnuð við Iþróttafé-
lagið Hamar, Hveragerði, nýver-
ið. Tilgangur deildarinnar er að
skapa vettvang fyrir fólk til
íþróttaiðkunar sem ekki vill tak-
ast á við harðar æfingar annarra
deilda.
Aukin umfjöllun um holla lifn-
aðarhætti, mataræði og hreyf-
ingu hefur valdið því að fjöldi
fólks hefur áhuga á hreyfingu
og útiveru án þess að vilja stunda
einhveija ákveðna íþróttagrein
með keppni að markmiði. Iþrótta-
félagið Hrannar vildi koma til
móts við þessar óskir almennings
og auka um leið möguleika bæj-
arbúa á hreyfingu við hæfi, þar
með varð hugmyndin að almenn-
ingsíþróttadeildinni til.
Innan deildarinnar eru nú
skipulagðar gönguferðir tvisvar
í viku og fær göngufólk ókeypis
í sundlaugina að lokinni göngu.
Hefur þátttaka verið mjög góð
og fer vaxandi með hækkandi
sól. Þolfimi, almenningshlaup og
fræðsla um hollt liferni eru einn-
ig hluti af starfsemi deildarinnar
og fleiri verkefni eru í bígerð.
Formaður almenningsíþrótta-
deildar er Gísli Garðarsson bæj-
arstj órnarmaður.
Rýmingarsala á kjólum
- mikil verðlækkun
ELÍZUBÚÐIN
Skipholti 5