Morgunblaðið - 04.05.1995, Síða 17

Morgunblaðið - 04.05.1995, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1995 17 Bam í bíl UMFERÐARRAÐ hefur gefið út bækling í samvinnu við Bifreiða- skoðun Islands. í máli og myndum er greint frá helstu atriðum sem þarf að huga að þegar börn ferð- ast í bílum, en allmörg ár eru nú liðin frá því lög þess efnis tóku gildi. I bæklingnum, sem ber heitið Öryggi mitt er í þínum höndum, segir að 9 af hverjum 10 foreldr- um virði iögin og sjái til þess að börn þeirra noti öryggisbúnað. „En það er ekki nóg að eiga örygg- isbúnað ef hann hentar ekki aldri og stærð barnsins og er auk þess ekki rétt festur í bílinn. Rannsókn- ir í Svíþjóð sýna að um helmingur alls öryggisbúnaðar fyrir börn í bílum er ranglega notaður og sterkar líkur eru á að ástandið sé svipað hér á landi.“ Dýrkeypt kæruleysi Vitnað er í nýlega rannsókn á umferðarslysum í Svíþjóð, þar sem fram kemur að orsök 8 dauða- slysa af 11 var hægt að rekja til kæruleysis fullorðinna. Sex af börnunum sem dóu voru án öryggis- búnaðar, en tvö sátu í barnabílstól sem var svo ranglega notaður að hann gerði ekkert gagn. „í um- ræddum tilvikum voru umferðar- slys þess eðlis að með réttum ör- yggisbúnaði hefðu börnin lifað af. 011 börnin sem dóu köstuðust út úr bílunum," segir í bæklingnum. Ymsar aðrar upplýsingar eru þar, meðal annars þær að ætla má að í hörðum framaná-árekstri gangi mælaborð inn í bílinn. „Þá er barn, sem situr í barnabílstól í framsæti og snýr.fram, í meiri hættu en barn í stól sem snýr baki í akstursstefnu. Af sömu ástæðu er ekki æskilegt að börn yngri en 10 ára silji í framsæti." Einnig er bent á að ungbarna- bílstóll sem snýr öfugt í framsæti á að vera í að minnsta kosti 20 sentímetra fjarlægð frá mæla- borði, og að bílbelti sem sett er undir handlegg getur verkað eins og hnífur ef bíll lendir í árekstri. „Sumir eru hræddir um að ská- bandið skaði barnið liggi það of nærri hálsi. Sérfræðingar gera ekki mikið úr þeirri hættu en leggja til að bílstóll sé fluttur nær miðju sætis, því þá leggist beltið betur að öxl barnsins." Domestication- pöntunarlisti PÖNTUNARFÉLAGIÐ hefur hafið söiu á varningi frá bandaríska verslunarfélaginu Hanover house, sem gefur út marga vöru- lista í Bandaríkjunum. Sá fyrsti sem kemur á markað hér á landi er Do- mestications með rúmteppum, glugga- tjöldum og öðrum varningi fyrir svefn- herbergi og stofur. „Þessi listi er í mikilli sókn S Banda- ríkjunum," segir meðal annars í fréttatil- kynningu frá Pöntunarfélaginu. Þar kemur fram að væntanlegir eru fleiri vörulistar frá Hanover House, til dæmis International Male og Safety Zone, þar sem kynntur er öryggis- varningur til heimilisnota. Afgreíðslutími á vörum úr Domestications-listanum er 4-6 vik- Pöntunarfélagið annast einnig afgreiðslu fyrir Sears-listann og Ellos, og í fréttatilkynn- ingu kemur fram að hagstætt gengi sænsku krónunnar geri kaupmátt á sænskum vörum meiri en áður. Ennfremur er vörulistinn Mot- hercare á vegum fé- lagsins, en þar er kynntur ungbarna- varningur. RÚMTEPPI, 50% bómull og 50% pólýester, kostar um 6.500 krónur ásamt púðum. RÖNDÓTTUR bómullarkjóll kosts 3.600 kr. í Ellos-pöntunarlista. Til að þinglýsa afsali á íbúð þarf að vera til eignaskiptasamningur OTAL íbúar fjölbýlishúsa hafa þurft að fá sérfræðinga til að útbúa eignaskiptasamninga fyrir sig að undan- förnu þar sem ekki er hægt að þinglýsa afsali hjá sýslumannsembættum nema slíkur samningur liggi fyrir. Virðist vera algengt að ekki hafi verið gerðir eignaskiptasamningar og á það sérstaklega við um fjöl- býlishús sem komin eru til ára sinna. Sérstakt ákvæði er í nýju fjölbýlishúsalögunum um að óheimilt sé að þinglýsa eignayfirfærslu nema eigna- skiptayfirlýsing liggi fyrir og eignayfirfærsla sé í sam- ræmi við hana. Þar sem það er mjög algengt að eignaskiptasamning- ar hafi ekki verið gerðir hefur starfsfólk þinglýsinga- deildar sýslumannsins í Reykjavík gert undantekningar og þinglýst kaupsamningum með athugasemd um að eignaskiptayfirlýsing sé ekki fyrir hendi. Ef kaupsamn- ingum í fjölbýlishúsi er þinglýst á þessu ári er afsölum um sömu eign vísað frá þinglýsingu hafi eignaskiptayf- irlýsingu ekki verið þinglýst. Að sögn Birnu S. Björnsdóttur deildarstjóra í þinglýs- ingadeild Sýslumannsembættisins í Reykjavík hvílir þessi lagaskylda á eigendum fjölbýlishúsa og verða þeir allir að standa að gerð slíkrar eignaskiptayfirlýs- ingar og undirrita hana ásamt mökum. Hún segir að í eldri lögum um fjölbýlishús hafi ver- ið hliðstætt ákvæði en þá var því ekki fylgt eftir sem skyldi hjá sýslumannsembættum landsins. Hún segir að starfsfólki þinglýsinga við sýslumanns- embættin beri hinsvegar að framfylgja þessu ákvæði nýju laganna. Enn á ný bjóðast handhöfum Far- og Gullkorta VISA sérferðir með Úrvali-Útsýn á einstökum kjörum. Prag, Dresden, Berlín og Varsjá 2. - 15.júní Einstök ferð um Austur-Evrópu þar sem heimsóttar eru nokkrar af fegurstu borgum álfunnar. Stórfenglegar byggingar, leiftrandi saga, heillandi menning - feró sem þú gleymir aldrei. Fararstjóri Lilja Hilmarsdóttir. Sérkjör fyrir Far- og Gullkorthafa 130.805 kr. á mann í tvíbýli Barcelona, Franska Rivieran og Torino 29. júní - 15. júlí Þú fellur í stafi yfir töfrum Barcelona, nýtur ljúfa lífsins í Cannes, Nice og Monaco og verður ástfangin(n) upp fyrir haus afítalska matnum, mannlíflnu og menningunni. Ögleymanleg munaðarferð um Suður-Evrópu. | Fararstjóri Hólmfríður Matthíasdóttir, blaðamaóur. I Sérkjör fyrir Far- og Gullkorthafa j 126.845 kr. 1 á mann í tvíbýli ÚRVAL ÚTSÝN Ldgmúla 4: sími 569 9300. Hafnarfirði: st'mi 565 23 66. Keflavik: sfmi 11353. Selfossi: stmi 21666. Akureyri: simi 2 50 00 f - og bjd umbQðsmötinum um larnl allt. |

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.