Morgunblaðið - 04.05.1995, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 19P5
ERLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ
Heiti
sígauna
breytt
RÚMENSKA stjórnin hefur
breytt opinbera heitinu á sí-
gaunum. Kallast þeir nú „Tig-
an“, sem er bein þýðing á orð-
inu sígauni í stað „Romani" til
að koma í veg fyrir að þeim
verði ruglað við Rúmena. Sí-
gaunaleiðtogar hafa sagt þessa
breytingu ætlaða til að ýta
undir mismunun og sé nið-
urlægjandi fyrir sígauna.
Carignon
úr fangelsi
FRANSKUR áfrýjunardóm-
stóll veitti í gær fyrrum sam-
gönguráðherra landsins, Alain
Carignon, lausn úr fangelsi.
Hann hefur verið í haldi í sjö
mánuði þar sem hann bíður
þess að réttarhöld hefjist yfir
honum, en hann er ákærður
fyrir spillingu. Er nú efast um
að hann komi fyrir rétt þann
15. maí eins og áætlað var.
Yfirburðir
Nazarbajevs
NURSULTAN Nazarbajev,
forseti Kazakhstans, vann yf-
irburðasigur í þjóðartkvæða-
greiðslu um helgina. Greiddu
95,46% kjósenda því atkvæði
að framlengja setu hans á for-
setastóli fram til ársins 2000.
Voru lokatölur kosninganna
staðfestar í gær.
Yiðskipta-
bann til bóta
ALI Khamenei, leiðtogi írans,
sagði Bill Clinton Bandaríkja-
forseta „einfelding“ í gær og
sagði að fyrirhugað viðskipta-
bann Bandaríkjamanna á Iran
myndi koma landinu til góða,
þar sem þrýstingur kallaði það
besta fram í fólki.
Pýramídi
fundinn
HÓPUR frahskra fornleifa-
fræðinga hefur fundið leifar
4.000 ára gamals pýramída
nærri Kaíró í Egyptalandi. Seg-
ir yfirmaður fornleifa í Giza að
pýramídinn hafi tilheyrt dóttur
eða eiginkonu faraósins Pepi
I, sem var þriðji konungur
sjöttu konungsættarinnar.
Hunsa
vopnahlé
TSJETSJENSKIR uppreisnar-
menn gerðu í gær árásir á
stöðvar Rússa í Tsjetsjníju
þrátt fyrir einhliða vopahlé
Rússa, sem undirbúa mikil há-
tíðahöld í tilefni loka heims-
styrjaldarinnar síðari í Evrópu.
Voru framin að minnsta kosti
35 vopnahlésbrot á einum sól-
arhring.
Murayama
íKína
TOMIICHI Murayama, forsæt-
isráðherra Japans, sem er í
opinberri heimsókn í Kína,
baðst ekki afsökunar á blóð-
ugri innrás Japana inn í Kína
á fjórða áratugnum er hann
ræddi við Li Peng, forsætisráð-
herra Kína. Þá greindi leiðtog-
ana á um kjarnorkutilraunir,
Tævan og efnahagsleg tengsl
landanna.
Allsherjar-
stríð ólík-
legt í Króatíu
Zagreb. Reuter.
ÞRÁTT fyrir eldflaugaárásirnar á
Zagreb telja stjórnarerindrekar í
króatísku höfuðborginni ólíklegt að
Serbar hætti á allsherjarstríð gegn
stjórnarhernum í Króatíu.
Króatar hafa stóreflt her sinn frá
stríðinu árið 1991 þegar Serbar
náðu þriðjungi landsins á sitt vald
og stjórnarerindrekarnir sögðu ólík-
legt að serbnesku hersveitirnar
treystu sér til að heyja stríð gegn
honum.
Her Króatíu vann sinn fyrsta
mikilvæga sigur gegn Serbum frá
1991 þegar hann endurheimti Vest-
ur-Slavoníu í tveggja daga sókn inn
á yfirráðasvæði Serba fyrr í vik-
unni. Þessi sigur veikir þó ekki
varnir yfirráðasvæðis Serba í Kraj-
ina. Vestur-Slavonía hefur tak-
markaða þýðingu fyrir Serba og
aðeins um 15.000 Serbar hafa búið
þar.
Milosevic vill ekki stríð
Stjómvöld í Króatíu búast við að
eldflaugaárásunum á króatískar
borgir linni fljótlega og að fall Vest-
ur-Slavoníu verði til þess að styrkja
Reuter
HJÚKRUNARKONA hlynnir
að sextugum manni sem særð-
ist alvarlega í eldflaugaárás
Serba á miðborg Zagreb á
þriðjudag.
SOKN KROATIUHERS
Her Króatíu náði mikilvægu
svæði á sitt vald í tveggja daga
sókn inn á yfirráðasvæði
Serba. Um 600 serbneskir
hermenn voru um- ^
kringdir og
gáfust upp
E-70 þjóövegurinn
Stækkaö
svæöl
BOSNÍA-
HERZEGOVINA
Sarajevo E
SKVRINGAR
yyi Yfirráöasvæöi
iis Serba í Króatíu
Svæöi
Bosníu-Serba
Króatar hafa náð á sitt vald
þjóðvegi og járnbraut sem
tengir Zagrebog
\ austurhluta landsins
Stara Gradiska brúin
Króatískum sprengiflugvélum
tókst ekki að granda brúnni
hófsama Serba sem vilja leita sátta
við Króata. Peter Galbraith, sendi-
herra Bandaríkjanna, segir að for-
sætisráðherra Krajina, sem er tal-
inn til hófsamra Serba, hafi verið
á leið til Zagreb þegar eldflaugaá-
rásirnar hófust, líklega að undirlagi
þjóðernissinnans Milans Martics
forseta.
Galbraith telur að Slobodan Miio-
sevic, forseti Serbíu, geti haft taum-
hald á serbnesku þjóðernissinnun-
um i Króatíu, en honum er mjög í
mun að refsiaðgerðum Sameinuðu
þjóðanna gegn Serbíu verði aflétt.
„Við teljum að Milosevic forseti vilji
ekki allsherjarstríð í Króatíu,“ sagði
Galbraith.
Mario Nobilo, sendiherra Króatíu
hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði að
markmið árásarinnar á Vestur-
Slavoníu hefði aðeins verið að ná
E-70 þjóðveginum, sem tengir
Zagreb og austurhluta landsins, og
fleiri árásir væru ekki ráðgerðar.
Hann sagði að Króatar myndu ekki
hefna eldflaugaárásanna en ef þær
héldu áfram kæmi til greina að
freista þess að skjóta eldflaugum á
skotpalla Serba.
Baráttan gegn
leghálskrabba
Stökkbreyt-
ingar í veirum
London. Reuter.
BRESKIR vísindamenn sem rann-
saka krabbamein segjast hafa fundið
eina af ástæðum þess að legháls-
krabbamein vex hratt í sumum kon-
um.
Að sögn þeirra nær varnarkerfi
líkama sumra kvenna ekki að snúast
gegn krabbameinsveirunni vegna
þess að í stökkbreyttri gerð hennar
er prótín sem svonefndar t-frumur
þekkja ekki sem óvin og ráðast því
ekki gegn.
Ymsar orsakir eru sagðar vera
fyrir leghálskrabba en algengast að
á ferðinni sé veira er veldur vörtum
á fólki og smitast hún við kynmök.
Ákveðin stökkbreytt gerð hennar er
einkum hættuleg konum með
ákveðna vefjagerð, að sögn vísinda-
manna bresku krabbameinstofnun-
arinnar. Niðurstöður rannsókna
þeirra eru kynntar í tímaritinu Nat-
ure Medicine.
Rabin segir
Sýrland
vilja frið
Jerúsalem. Reuter.
YITZHAK Rabin, forsætisráðherra
ísraels, sagði í gær, að Sýrlands-
stjóm hefði fallist á þær meginkröf-
ur ísraela, að með friðarsamningum
milli landanna yrðu landamærin
opnuð og stjórnmálaleg samskipti
tekin upp.
Kom þetta fram í viðtali, sem
dagblaðið Yedioth Ahronoth hafði
við Rabin en hann vitnaði aftur í
fulltrúa Bandaríkjastjórnar, sem
reynt hafa að miðla málum milli
ísraela og Sýrlendinga. Rabin full-
yrti, að Sýrlendingar hefðu í raun
samþykkt að semja um frið við ísra-
ela en gat ekki sagt hvenær af því
yrði.
Deilan um Gólanhæðirnar er
helsti þröskuldurinn í vegi friðar-
samninga en Sýrlendingar krefjast
þess, að ísraelar dragi allan sinn
her þaðan. Rabin hefur áður sagt,
að brottflutninginn frá Gólanhæð-
um verði að bera undir þjóðarat-
kvæði í ísrael eða að tekist verði
sérstaklega á um það mál í kosning-
um.
Reuter
Kaldir hverir
í RÚMENÍU finnast mjög sér-
stæð, jarðfræðileg fyrirbæri,
sem kölluð eru „eldfjöll“ þótt
þau séu ekki nema frá einum
metra og upp í tíu metra há.
Upp úr þeim vellur eðjan en hún
er ekki heit eins á hverasvæðum,
heldur köld. Ekki er vitað um
neitt þessu líkt annars staðar í
Evrópu.
Hryðjuverkið í Oklahoma
Lögreglan leitar enn
að félaga McVeighs
Oklahomaborg. Rcuter.
TVEIR menn, sem handteknir voru
í Missouri í fyrradag og yfírheyrðir
vegna vitneskju eða aðildar að
hryðjuverkinu í Oklahomaborg,
voru látnir Iausir í gær. Bandaríska
lögreglan leitar enn hugsanlegs
samverkamanns Timothy McVeighs
en hann er ennþá sá eini, sem grun-
aður er um ódæðið.
Mönnunum tveimur, Gary Land
og Robert Jacks, var sleppt í fyrra-
kvöld án þess að þeim væru birtar
ákærur og að sögn sjónvarpsstöðv-
anna CNN og ABC virðist sem lög-
reglan hafí ekki haft neitt í höndun-
um gegn þeim. Hugsanlegt er, að
þeir tengist McVeigh með einhverj-
um hætti en lýsingin á samverka-
manni hans á ekki við þá.
Enn er meira en 10 manna sakn-
að í rústum stjórnsýsluhússins í
Oklahomaborg en vonast er til, að
lík allra verði fundin á föstudag.
Verða þá notuð stórvirk tæki til að
jafna húsið við jörðu. Formleg rétt-
arrannsókn á sprengingunni hófst
á þriðjudag en ekki verður skýrt
frá framvindu hennar til að bytja
með.