Morgunblaðið - 04.05.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1995 21
Upptaka
með Jagger
og Richards
boðin upp
London. Reuter.
ELSTA upptaka sem vitað er um
með rokkurunum Mick Jagger og
Keith Richards verður boðin upp
hjá Christie’s uppboðinu síðar í
mánuðinum og er búist við að allt
að 90.000 dalir fáist fyrir hana,
um 5,7 miiyónir kr. isl.
Upptakan er frá árinu 1961 og
er 30 mínútna löng. Á henni eru
13 lög sem sum hver urðu heims-
fræg í flutningi Rolling Stones,
hljómsveitar Jaggers og Richards,
m.a. „Little Queenie". Þá leika
þeir lög eftir Chuck Berry, Elvis
Presley og Richie Valens.
Eigandi upptökunnar var gam-
all skólafélagi Jaggers sem fékk
lánað segulbandstæki foreldra
sinna til að taka upp er Jagger
og Richards léku af fingrum fram.
Gróf hann upptökuna upp 34 árum
síðar.
Rokkráðgjafi Christie’s segir að
á upptökunum heyrist vel hinn
óvenjulegi og taktvissi gitarleikur
Richards og öryggi raddar Jag-
gers. Það sé engu líkt að heyra í
tvímenningununi á unglingsaldri,
sem síðar áttu eftir að verða dáð-
ir víða um heim. Hljómsveitin
Rolling Stones var stofnuð ári síð-
ar, árið 1962.
-----» ♦ ♦
Yfirmaður
Smithson-
ian hættur
Washingrton. Reuter.
MARTIN Harwit, yfirmaður Smit-
hsonian-safnsins í Washington, hefur
hætt störfum. Ástæðan er deila sem
upp kom vegna fyrirhugaðrar sýn-
ingar á B-29 sprengjuflugvélinni
Enola Gay, sem notuð var til varpa
kjarnorkusprengju á japönsku borg-
ina Hiroshima í síðari heimsstyrjöld.
Gagnrýnt var að í texta á sýning-
unni væri ekki útskýrt það sjónarmið
bandarískra stjónvalda að sprengjan
hefði flýtt fyrir stríðslokum og þann-
ig bjargað fleiri mannslífum en týnd-
ust í Hiroshima.
VERO HODfl 2 ÁRA
AFMÆLISTILBOÐ
fitDmíudag. fösfudaá os iauáardaá.
Otfúleá afmæiisfilboð: PrJónasilki, bolir. Pils. kiólar,
blqssur, lefiöinás, yfirhafnir. röndóft, rósótí, einlitt,
köflótt.
■—
3 Mtil j| - kjarni málsins!
BILL MOVIE STANLEY CLINT MARCO BILL
FULLAR BUÐIR
AF
NÝJUM VÖRUM
SENDUM í PÓSTKRÖFU