Morgunblaðið - 04.05.1995, Side 27

Morgunblaðið - 04.05.1995, Side 27
MQRGlINBLlAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1995 - 27 AÐSEIMPAR GREIIMAR Karlar eru ekki óvinurinn í KJÖLFAR myndunar nýrrar ríkisstjórnar hafa orðið miklar um- ræður um jafnréttismál og stöðu kvenna innan stjórnmálaflokkanna. Það er- út af fyrir sig ánægjulegt, hve fjölmiðlar hafa sýnt þessu máli mikinn áhuga þó forsendurnar fyrir málflutningi flestra þeirra séu ansi hæpnar. Gömul viðhorf og ný I þessum umræðum hafa ekki tekist á karlar og kon- ur, hægri og vinstri eða aðrir hefðbundnir „andstæðingar“, held- ur hafa tekist á gömul viðhorf og ný, án tillits til kynferðis eða stjóm- málaskoðana viðkom- andi. Hið gamla og rót- gróna viðhorf að konur séu máttvana minni- hlutahópur sem ekki geti staðið fyrir sínu hjálparlaust er þraut- seigt, og ekki að furða þar sem það viðhorf hefur einkennt kven- réttindabaráttu und- anfarinna ára og ára- tuga. Konum og körl- um er stillt upp sem andstæðingum, þar sem framganga kvenna er þó háð undanþágum og leyfí frá körl- unum með sérstökum aðgerðum til að bæta stöðu kvenna. Hið nýja viðhorf segir okkur að konur eru orðnar þreyttar á að líta á sjálfar sig sem hjálparvana fórnarlömb kringumstæðna. Við gerum þá kröfu að litið sé á okkur sem sjálf- stæða einstaklinga, en við ekki skil- greindar út frá líffræðilegu hlut- verki í náttúrunni eða tengslum við annað fólk. Misskilin jafnréttisbarátta Öllu alvarlegri er þó sú gjá sem mynduð hefur verið milli karla og kvenna með þessum málflutningi. Jafnréttisbarátta er ekki barátta kvenna gegn körlum, það er stóri misskilningurinn. Jafnréttisbarátt- an er baráttan gegn þeim viðhorfum í þjóðfélaginu sem gera lítið úr fólki og draga það í dilka, sama á hvaða forsendum það er gert. Þessum við- horfum þarf að breyta og þeim verður ekki breytt nema með sam- vinnu karla og kvenna. Því er fátt skaðlegra en að ala á óvild milli kynjanna og stilla þeim upp sem andstæðum. Hið breytta viðhorf segir að við verðum að vinna sam- an, til góðs fyrir bæði konur og karla, og ekki síst þær kynslóðir sem eru að vaxa úr grasi undir okkar leiðsögn. Hveijum er gerður greiði? Þeir sem mæla ákafast með kynjakvótum og að konur séu tekn- ar fram yfír karla til að leiðrétta kynjahlutföllin gera það að sjálf- sögðu í þeirri góðu trú að með slík- um aðgerðum sé verið að vinna að málstað jafnréttisins. Því miður er sú ekki raunin. Skammtímasjón- armið gætu sýnt annað, en þegar til Iengri tíma er litið hafa slíkar aðgerðir niðurbijótandi áhrif á sjálfsmynd kvenna. Hvað konu er gerður greiði með því að allir viti að hún skipar embætti eða starf einungis vegna þess að hún er kona? Hvað áhrif hefur það á hennar sjálfsálit? Við konur erum fyllilega í stakk búnar til að taka þátt í hinni hörðu sam- keppni sem ríkir á öll- um sviðum þjóðfélags- ins, en þá verðum við líka að trúa á mátt okkar og megin og beijast á okkar eigin forsendum; þeim for- sendum að við erum sjálfstæðir einstakl- ingar sem höfum frelsi til að gera það sem hugur okkar stendur til meðan við göngum ekki á réttindi ann- arra. Okkar starf er rétt að hefjast Þegar þetta er skrifað hefur ný ríkisstjórn setið í eina viku. Stjórn- arflokkarnir hafa komið sér saman um sáttmála þar sem skýrt er frá meginmarkmiðum sem unnið skal að á næstu fjórum árum. Eitt þeirra Við gerum þá kröfu að litið sé á okkur sem sjálfstæða einstaklinga, segir Elsa B. Vals- dóttir, en við ekki skilgreindar út frá líf- fræðilegu hlutverki í náttúrunni. meginmarkmiða er að vinna gegn launamisrétti af völdum kynferðis og stuðla að jöfnum möguleikum kvenna og karla til að njóta eigin atorku og þroska hæfileika sína. í sumar verður unnin verkefaskrá fyrir einstök ráðuneyti. Þá mun liggja fyrir hvemig þessu markmiði eigi að ná. Sjálfstæðar konur munu leggja sínar hugmyndir í því máli fyrir ráðherra og þingmenn Sjálf- stæðisflokksins á næstu dögum og vikum — okkar starf er rétt að hefjast. Höfundur starfar með Sjálfstæðum konum. Elsa B. Valsdóttir GARÐ- VINNUDAGAR 4.-6. maí Þessa daga helgum við vorverkum í görðum, bjóðum ráðgjöf sérfræáinga og gó& tilboð á margvíslegum vörum þessu tengdu. Safnhaugakassar 300 I 7.950 kr. Greinakvarnir 1400 w 19.980 kr. I Gróburkalk 10 kg. 390 kr., 25 kg. 750 kr. Allir pakkar af vorlaukum á 95 kr. Greina- og limgeróisklippur meó 20% afslætti. Papriku-, gúrku-, og tómataplöntur 145 kr. Opið laugardag kl.10-18 Sérstök ráðgjöf um trjáklippingar. Steinn Kárason, garðyrkjufræáingur kynnir bók sína og gefur góá ráó milli kl. 1 3-1 8 á laugardag. Rá&gjöf sérfræðinga um garð- og gróðurrækt GRÓÐURVÖRUR VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA SmiSjuvegi 5 • 200 Kópavogi • Sími: 554 321 1 • Fax: 554 2100 I IBM RS/6000 Unix tölvurnar keyra vinsælustu vióskiptaforritin og gagnagrunnana. DÆMI: Concorde - Fjölnir - Informix - Ingres - Oracle ^|v RISC System / 6000 Þú færð nánari upplýsingar hjá sölumönnum í síma 588 8070 eða með fyrirspurn á Internetinu í netfang unix@nyherji.is NÝHERJI SKIPHOLTI 37 - SlMI: 588 8070 NETFANG: unix@ibm.is Alltaf skrefi ú undan ARGUS & ÖRKIN /StA GV009

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.