Morgunblaðið - 04.05.1995, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
•SS*smeg ^rsmeg
Ný lína í heimilistækjum
Viö flytjum inn vönduö heimilistæki frá
Smeg og Piere Roblin. Tækin marka
tímamót í hönnun, eru stílhrein og auðveld
í notkun.
EIRVÍK heimilistæki hf.
Suðurlandsbraut 22, 108 Rvík, sími 91 -588 0200
AÐSENDAR GREINAR
Réttur kjósenda
ALMENNUR kosn-
ingaréttur er grund-
vallaratriði lýðræðis-
þjóðfélags. Flestir gera
sér ljóst hve mikilvæg-
ur þessi réttur er og
má nánast segja að
honum fylgi sú skylda
að neyta hans og láta
sig með því varða þjóð-
arhag. Vissulega veg-
ur atkvæði hvers og
eins lítið þegar á heild-
ina er litið. Þó er þess
að gæta, að kosning
þingmanns getur oltið
á einu atkvæði eða
jafnvel hlutkesti, svo
sem dæmi eru til.
Gunnlaugur
Þórðarson
I lögum um alþingiskosningar frá
1934 voru ákvæði um áhrif útstrik-
ana á atkvæðaseðli, en þá voru lista-
framboð aðeins í Reykjavík. Ákvæði
þessi voru gerð gleggri með lögum
nr. 80 frá 1942. Með þeim voru
tryggðir möguleikar kjósenda til
þess að hafa áhrif á hverjir yrðu
kosnir í listakosningu. Þannig þurfti
ekki nema rúm 5% kjósenda að gera
annað en að strika efsta manninn
á listanum út og þá færðist hann
niður. Væri um frambjóðanda að
.ræða neðar á listanum þurfti nokkru
fleiri prósentubrot til þess að ná
sama árangri. Hins vegar var í slík-
um tilvikum áhrifaríkast að strika
út næsta nafn fyrir ofan nafn þess,
er ætlunin var að færa ofar og jafn-
framt setja tölustafinn einn framan
við nafnið.
Útstrikanir höfðu stundum í för
með sér að frambjóðandi náði ekki
því sæti, sem hann hefði átt að fá
að öllu óbreyttu, þannig að áhrif
hins óbreytta kjósanda voru talsverð
og í beinu samræmi við kröfur
tímans og lýðræðis.
Mér þykir ósennilegt að
nokkum tíma hafi verið
um samantekin ráð
kjósenda að ræða þegar
frambjóðendur urðu
fyrir útstrikunum, held-
ur hitt að misjöfn hylli
frambjóðenda hafi ráð-
ið mestu um hvernig til
tókst.
Árið 1959, þegar
landinu var skipt upp í
níu misstór kjördæmi
með misjafnlega mörg-
um alþingismönnum
kosnum í listakosning-
um, voru sumir þing-
menn hræddir við þann
sem útstrikanir buðu
möguleika,
upp á og óttuðust þennan rétt kjós-
enda. Því var að tilhlutan þeirra
sett ákvæði í kosningalögin, sem
gerðu útstrikanir marklausar. Með
þeirri ólýðræðislegu breytingu,
þurfti helmingur kjósenda listans
eða 50% að strika frambjóðandann
•út til þess að hann færðist niður
eftir listanum eða tífalt fleiri en
áður.
Þannig að hefði gamla lýðræðis-
lega aðferðin um kosningar til Al-
þingis verið í gildi í kosningunum
8. apríl sl. hefði hvorki Ólafur G.
Einarsson né Guðmundur Árni Stef-
ánsson náð kosningu.
I grein hér í blaðinu 25. febrúar
sl. undir yfírskriftinni: Forneskju-
legt óréttlætibenti ég á nauðsyn
þess að útstrikanir á listum fengju
sitt fyrra vægi og það er vissulega
krafa nútímans, ekki síst þegar vax-
andi vilji er til þess meðal menning-
arþjóða að gefa kjósendum aukinn
möguleika á því að kjósa tiltekna
frambjóðendur, ekki síður en flokk.
Þess má minnast, að í þingkosning-
unum í Þýskalandi fá kjósendur tvo
atkvæðaseðla, einn seðil til að kjósa
flokk og annan til þess að kjósa
sérstaklega einstaka frambjóðendur
og það meira að segja í öðrum flokki.
Undirritaður hefur ekki haft tæki-
færi til að kynna sér hvernig þetta
er framkvæmt.
Úr því, að hér er fjallað um Al-
þingi, furða ég mig á þeirri íjar-
stæðu, sem sumir þingmenn okkar
hafa haldið fram, að einhveiju til-
teknu kjördæmi fylgi réðherraemb-
Ef gamla lýðræðislega
aðferðin hefði gilt, segir
Gunnlaugfur Þórðar-
son, hefðu hvorki Guð-
mundur Árni Stefáns-
son né Ólafur G. Einars-
son náð kosningu.
ætti, ef tiltekinn flokkur er í stjórn.
Auðvitað eiga menn að veljast eftir
hæfni sinni og reynslu. Þá er hitt
ekki síður fjarstæða að embætti
þingforseta sé lítilfjörlegra en ráð-
herraembætti. Undarlegt að þessir
þingmenn skuli ekki átta sig á því,
að Alþingi er yfír hverri ríkisstjórn
og að ráðherrar eru aðeins fram-
kvæmdastjórar hennar. Það er illt
til afspurnar að jafnvel þingmenn
eru berir að því að óvirða Alþingi.
Höfundur er hæstaréttar-
lögmaður.
SPRENGJ A
DÖMUDEILD VERÐ ÁÐUR TILBOÐSVERÐ
KJÓLAR 3990,- 1990,-
DRAKTIR 12700,- 7990,-
DRAKTIR 7990,- 5990,-
BUXUR 3790,- 1990,-
BOLIR 1690,- 990,-
BÓMULLARSKYRTUR 3290,- 2300,-
RÓSÓTT VISCOSE DRESS 6980,- 3990,-
BÓMULLAR PILS 2990,- 1990,-
GLANS PILS SÍÐ 4790,- 3590,-
HERRADEILD VERÐ ÁÐUR TILBOÐSVERÐ
SKYRTURBÓMULL 2990,- 1990,-
SMITHS BUXUR 5790,- 3990,-
PEYSUR 3990,- 2990,-
HERRA JAKKAR 9990,- 6990,-
SUMARSTAKKAR 7990,- 5990,-
JAKKAFÖT 13990,- 9990,-
PÓLÓ BOLIR 2490,- 1990,-
DR. MARTENS SKÓR 8490,- 4990,-
ÁSAMT FJÖLDA SPRENGITI LBOÐA
AÐEINS FIMMTUDAG, FÖSTUDAG OG LAUGARDAG