Morgunblaðið - 04.05.1995, Side 34
.34 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
iU
AÐSEIMDAR GREIIMAR
Röddin
og reykingar
Reyklaus dagur - 4. maí
í ÞEIM áróðri sem
við notum gegn reyk-
ingum hættir okkur til
að gleyma því að einn
versti óvinur raddarinn-
ar er reykingar. Þeir
unglingar sem ætla að
velja lífsstarf eða
áhugamál þar sem
starfið krefst þess að
röddin sé í lagi, ættu
að hafa þetta í huga.
Góð rödd og reykingar
eiga ekki saman. Ungl-
ingar sem hyggjast
velja sér leiklist, Ijölm-
iðlun, kennslu eða söng
þurfa að gera sér grein
fyrir að reykingar eru
áreiti sem þeir leggja á raddböndin.
Fólk sem er í raddfreku starfí á gjam-
an við raddvandamál að stríða, sér-
staklega eftir kvef. Álagið á röddina
er oft gífurlegt og má lítið út af bera
til að viðkomandi einstaklingur fái
stöðugt hæsi sem hann losnar ekki
við. Slímhúðin sem þekur raddböndin
ertist mikið er reykurinn fer á milli
raddbandanna áfram niður í lungu
og raddvandamálið verður viðvar-
andi. Eftir reykingar í langan tíma
verður röddin oft grófari og ekki eins
áheyrileg.
Hver rödd hefur sín sérkenni sem
þarf að varðveita með skynsamlegum
hætti. Að vera með hása eða ráma
„whisky“ rödd telja sumir vera mjög
„töff“ en staðreyndin er sú að þann-
ig rödd veldur eigandanum oft mikl-
um erfíðleikum og slík rödd brestur
oft og gefur sig þegar síst skyldi.
í umræðunni um reykingar er
mikilvægt að muna þetta. Flestir
unglingar vita af hættunni sem reyk-
ingar geta haft í för með sér en
þegar fólk velur sér starf sem grund-
vallast á röddinni skiptir miklu máli
að vita hvernig maður verndar hana.
Það er ekkert grín að vera alltaf
með hæsi og finna til í hálsinum í
vinnunni.
Röddin er viðkvæmt hljóðfæri
Við eigum mikið af listamönnum
á öllum sviðum tónlistar.s.s. vísna-,
popp- og klassískri tónlist. Eitt hið
versta sem við bjóðum
þessum söngvurum
okkar er að syngja í
reykfylltum salarkynn-
um. Jafnvel þó þeir
hafí einhvern tíma
ánetjast tóbaksgyðj-
unni á lífsleiðinni fínna
þeir eftir sem áður fyr-
ir því að það fer illa
með röddina að anda
beint inn tóbaksreyk,
jafnvel heila kvöld-
stund. Sýnum þeim til-
litssemi og minnkum
reykingar í kringum li-
Bryndís_ _ stafólkið okkar. Við
Guðmundsdóttir höfum gert margt gott
eitt versta í því að aðskilja sérstök reyksvæði
og yfirleitt eru reykingamenn mjög
tillitssamir hvað þetta snertir. Ég
heyrði af skemmtistað sem bauð upp
á reykingar öðrum megin í salnum
og reyklaust í hinum hlutanum.
Söngvarinn, sem í þessu tilfelli var
jazzsöngkona átti erfitt og ræskti sig
látlaust á milli laga. Auðvitað skipti
litlu máli fyrir hennar rödd hvort
reykurinn var hægra megin eða
vinstra megin. Hún fann fyrir honum
samt. Síðar komu tilmæli til gesta
um að reykja aftast í salnum. Stór-
Góð rödd og reykingar,
segir Bryndís Guð-
mundsdóttir, eiga
ekki saman.
breyting varð á umhverfínu fyrir þá
listamenn sem þar komu fram. Reyk-
urinn minnkaði við sviðið og radd-
heilsa söngvaranna stórbatnaði.
Rödd og reykur á sviði
í sumar verða margir söngleikir
á Ijölunum hér heima. Leikarar þurfa
bæði að hafa góða framsögn, syngja
og dansa, allt í senn. Við raddbeitingu
á sviði þarf öndun að vera í lagi og
er mjög erfítt fyrir þann sem dansar
að halda réttum þrýstingi kviðarvöðva
í öndun, um leið og hann syngur.
Hér þurfa listamennimir á mikilli
samhæfíngu að halda til að röddin
komist vel til skila. Leikhúsfólkið okk-
ar er farið að nota reyk á sviði sem
„sviðseffect" á mjög áhrifaríkan hátt.
Ég fæ reyndar alltaf í hálsinn, þegar
ég sé reykinn en held að það tengist
mínu starfí frekar en að vera raun-
verulegt. Ég vil þó koma þeirri ábend-
ingu á framfæri að listafólkið okkar
sé ekki látið syngja eða tala mikið í
reykmekki. Reyndar er ég viss um
að vel er gætt að heilbrigði raddarinn-
ar hjá flestum leikhópum. Reynslan
sýnir þó að reynslulitlir leikarar og
söngvarar enda oft með raddvanda-
mál ef ekki er að gætt. Góð vísa er
því aldrei of oft kveðin.
Höfundur er talmeinafræðingur á
háls-, nef- og eymadeild
Borgarspítaians.
Hvað er snuff
eða snus?
Nokkur orð um reyklaust tóbak
# LOWARA
JARÐVATNS-
DÆLUR
Á SAMA tíma og
dregið hefur úr reyking-
um fullorðinna og reyk-
lausum heimilum hefur
ijölgað þá hefur tóbak-
snotkun unglinga aukist
og þá sérstaklega reyk-
ingar 15-16 ára stráka.
Ástæðumar eru eflaust
margar og sem dæmi
má nefna tilkomu bjórs-
ins, auknar reykingar í
kvikmyndum og snuff-
neyslu.
Snuff eða snus er inn-
flutt fínkornótt munn-
og neftóbak sem er til-
tölulega nýtt á mark-
Þuríður Backman
lútur (ph=8—9,5) og
verkar því ætandi á
slímhúðina bæði í nefi
og munni. Slímhúðin
þykknar, bólgnar og
dregst saman. f fyrstu
verður æðanetið áber-
andi og sprungur koma
í slímhúðina. Á þessu
stigi þegar sviðinn
verður of mikill þá
„bjarga“ margir ungir
neytendur sér með því
að reykja. Eftir lengri
neyslu kemur hvít skán,
sem gulnar og verður
brún með tímanum. Við
notkun á munntóbaki
Gæðavara,
mikið úrval,
hagstætt verð,
örugg þjónusta.
= HEÐINN =
VERSLUN
SEUAVEGI2 SÍMI 91-624260
aðnum hér á landi. Árið 1987 voru
flutt inn 45 kg af efninu og á síð-
asta ári var magnið komið í tæp tvö
tonn og að mestu neftóbak. Neytend-
ur eru að stærstum hluta drengir og
ungir karlmenn og fyrir 2-3 árum
mátti sjá töluverða snuffnotkun hjá
strákum á fermingaraldri og er lík-
legt að sú neysla skili sér nú m.a. í
auknum reykingum eldri strákanna.
Hættulegt er það viðhorf að neysla
þessa tóbaks sé öðru vísi eða hættu-
minni en reykingar. Sérstaklega á
það við um foreldra, sem þakka fyr-
ir að bamið þeirra sé þó ekki farið
að reykja. Foreldrar ættu að bregð-
ast eins við litlu dósinni og sígarettu-
pakkanum því snuff eins og annað
tóbak veldur fíkn, sjúkdómum og
dauða.
Hvers vegna er þetta fínkomótta
neftóbak og nýja munntóbak svo
varasamt?
í fyrsta lagi vegna þess að það
höfðar til ungs fólks og þar með
nýrra nikotínista. Rannsóknir sýna
að þeir sem nota reyklaust tóbak
byrja frekar að reykja og öfugt.
I þetta tóbak eru notaðar dökkar
og sterkar tóbakstegundir. í það er
blandað salti, pottösku og bragðefni
og í munntóbakið er auk þess bland-
aðvatni.
í tóbakinu eru ýmis sterk krabba-
meinsvaldandi efni og þegar er farið
að bera á aukinni tíðni krabbameina
í munnholi í þeim löndum þar sem
neyslan hefur aukist mest.
Snuff er sterkt alkalískt efni eða
dregst tannholdið frá tönnunum og
þær losna með tímanum en auk þess
eykst munnvatnsframleiðslan svo
mikið að hrækingar verða algengar.
Nikotínmagnið er hátt því í einum
skammti af snuff-munntóbaki sem
vegur 2,5 g er 32-61 mg nikotín. I
íslenska „garnla" neftóbakinu er ni-
kotínmagnið í sama skammti 25,2
mg. Fínkoma tóbakið frásogast
í fínkorna munn- og
neftóbaki eru, segir
Þuríður Backman,
sterk krabbameins-
valdandi efni.
gegnum slímhúðina mun betur en
það grófkomótta og er meðalfrásog
nikotíns úr fínkorna munntóbakinu
4,5 mg og neftóbakinu 3,6 mg. Til
samanburðar er meðalfrásog nikot-
íns úr reyk einnar sígarettu um 1
mg. Áhrif nikotíns á líkamann er
margþætt og sama í hvaða formi það
er tekið. Snuff er nýtt neysluform
nikotíns, sem auðvelt ætti að vera
að stemma stigu við og draga þar
með úr fjölda þeirra, sem ánetjast
fíkniefninu.
Tóbaksvarnir
- allra mál
Höfundur er fræðslufulltrúi
Krabbameinsfél. íslands á
Austurlandi.
Sveinn Magnússon
4. MAÍ er reyklaus
dagur. Hvað merkir
það í raun? Jú, með
honum er viðurkennt
mikilvægi reykleysis
fyrir heilsufar og vell-
íðan. Alvarlegar af-
leiðingar tóbaksfíkn-
innar réttlæta þennan
baráttudag um allan
heim.
Faraldur
Reykingar líkjast
faraldri, þær eru
mesta hótun heilbrigð-
is meðal vestrænna
þjóða, 30-50% reyk-
ingafólks deyr vegna neyslunnar,
ijöldi þjáist mikið og lengi vegna
reykingatengdra sjúkdóma, áhrif
eru einnig þekkt á fóstur, börn
geta borið merki reykinga móður-
innar strax við fæðingu, enginn
reykingamaður kemst hjá einhveij-
um líkamlegum skemmdum vegna
neyslunnar.
Skaðsemi tóbaksins
Flestir þekkja vel til skaðsemi
tóbaksins, en hún er að sjálfsögðu
aðalástæða þess, að um allan heim
er barist harðri baráttu gegn notk-
un tóbaks. Hveijar eru hinar
líkamlegu skemmdir, sem tóbaks-
neyslan veldur? Bráð einkenni geta
verið sviði í augum, öndunarfæra-
erting ofl. en varanlegar líkamleg-
ar breytingar, sem koma vegna
langtíma reykinga eiga eitt sam-
eiginlegt: Það eru breytingar ell-
innar.
Séu hinir ýmsu vefir líkamans
athugaðir hjá þeim sem reykja, svo
sem æðar, lungu, heili o.fl., þá sjást
engar breytingar sem eru sérkenn-
andi fyrir tóbaksneysluna, hins
vegar eru þær allar þekktar sem
hluti öldrunar, æðaþrengsli,
lungnaþemba, krabbamein svo
dæmi séu nefnd.
Skaðsemi reykinganna felst í því
að flýta ellinni.
Styttir ævina hjá helmingi
reykingaifólks
Nýlegar rannsóknir hafa leitt í
ljós, að af 1.000 tvítugum reyk-
ingamönnum mun fjórðungur eða
250 deyja um miðjan aldur vegna
reykinga og aðrir 250 deyja um
aldur fram á efri árum. Annar
hver reykingamaður styttir því ævi
sína mikið. Talið er að þijár millj-
ónir manna deyi árlega vegna
reykinga! Að meðaltali munu um
tveir íslendingar byija að reykja á
degi hveijum, um 15 á viku og
annar hver þeirra mun stytta ævi
sína verulega eða að hluta vegna
þessa illa ávana. Því miður byija
flestir að reykja á unglingsárum.
Tóbaksvarnir — ábyrgð
hverra?
Foreldrar — systkini. Margsann-
að er að fordæmi og afstaða for-
eldra og systkina til reykinga ræð-
ur einna mestu um það, hvort ein-
staklingur byijar að reykja. For-
eldrar skyldu aldrei Iáta börn sín
sjá sig reykja, aldrei láta þau heyra
talað jákvætt um þá fíkn heldur
hvetja þau til þess að hefja aldrei
reykingar.
Skólar — leikskólar. Öll böm
ganga í skóla. Fjöldi dvelur mikið
á leikskólum. Frá þessum mikil-
vægu uppeldisstöðum mega aldrei
koma önnur skilaboð en að tóbaks-
fíknina beri að forðast. Því miður
er töluvert um reykingar meðal
kennara og starfsfólks leikskóla.
Foreldrar sem ala börn sín upp í
reykleysi eiga heimtingu á að
kennari eða starfsmaður leikskóla
gefi ekki hið ilia fordæmi. Allar
þessar stofnanir eiga að vera reyk-
lausar.
Vinnustaðir —
vinnufélagar. Æ fleiri
vinnustaðir hafa orðið
reyklausir. Afstaða
vinnufélaga hefur
hjálpað mörgum til að
hætta að reykja. Eng-
inn á að láta bjóða sér
að vinna í reykmett-
uðu lofti, það er
óþægilegt en einnig
sánnanlega hættulegt.
Frumkvæði margra
fyrirtækja til reyk-
leysis er til fyrirmynd-
ar.
Heilbrigðisstarfs-
fólk. Þekking þess á
skaðsemi tóbaks er mikil, bæði
reyktóbaks og reyklausa tóbaks-
ins. Það reykir minnst allra starfs-
stétta. Hins vegar gæti heilbrigðis-
starfsfólk beitt sér af meira a.fli
gegn þessum stærsta vágesti heil-
brigðis okkar. Mikilvægt er, að það
láti í sér heyra hvar sem er og
hvenær sem er.
Fjöimiðlar. Áhrifamáttur þeirra
er óumdeilanlegur og fer vaxandi.
Fjölmiðlar ættu að forðast að sýna
reykjandi fólk. Oft er reynt að
koma beinum eða óbeinum tóbaks-
auglýsingum fyrir augu lesenda
eða áhorfenda. Því er mikilvægt
að fjölmiðlar haldi vöku sinni, beiti
áhrifamætti sínum á jákvæðan
hátt og forðist að láta tóbaksfram-
leiðendur koma duldum auglýsing-
um á framfæri.
Löggjafinn. Hann hefur á marg-
an hátt áhrif á neyslu tóbaks.
Rannsóknir sýna, segir
Sveinn Magnússon, að
fjórðungur tvítugra
reykingamanna
deyr um miðjan aldur
vegna reykinga.
Áhrif verðlagningar er vel þekkt
um allan heim, löggjöf skiptir
miklu hvað varðar , aðgengiieika,
auglýsingar og aðra óbein áhrifa-
þætti, sem óþreytandi söluaðilar
beita óspart og geta verið afger-
andi í því að leiða fólk inn á braut
tóbaksneyslu. íslendingar vöktu
mikla athygli á alþjóðlegum vett-
vangi, þegar síðustu tóbaksvama-
lög voru sett. Aðrar þjóðir fylgdu
á eftir og nú hafa margar þeirra
náð lengra í tóbaksvörnum. Sorg-
legt var að nýtt framvarp til tóbak-
svarnalaga dagaði uppi á Alþingi
fyrir skömmu, þrátt fyrir að fylgi
við það virtist mjög mikið. Ábyrgð
þeirra er stóðu í vegi fyrir sam-
þykkt frumvarpsins er mikil. Von-
andi verður framvarpið lagt fyrir
þing á ný og samþykkt.
Mikið hefur áunnist
Þekking á skaðsemi tóbaks hefur
aukist mikið meðal almennings.
Dregið hefur úr reykingum fullorð-
inna. Æ fleiri vinnustaðir verða
reyklausir. Gististaðir bjóða reyk-
laus herbergi. Flugvélar era orðnar
reyklausar. Kvikmyndahús og hóp-
ferðabifreiðir era reyklaus. Reyk-
lausum heimilum fjölgar. Þeir sem
hafa beitt sér gegn notkun tóbaks
geta því séð talsverðan árangur af
starfí sínu, þótt baráttunni sé ekki
lokið. Þrátt fyrir mikla fræðslu
byija margir unglingar að reykja,
hjálpum þeim til að trúa nægilega
á sjálf sig svo þeir sandist freisting-
una, hjálpum þeim sem reykja til
Aað hætta og látum engan þurfa að
anda að sér reykmenguðu lofti.
Höfundur er héraðslæknir
Reykjaneshéraðs.