Morgunblaðið - 04.05.1995, Page 35

Morgunblaðið - 04.05.1995, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ BJÖRNEY HALLGRÍMSDÓTTIR + Björney Jakob- ína Hallgríms- dóttir fæddist 26. apríl 1904 að Bald- ursheimi i Mývatns- sveit. Hún lést á Landspítalanum laugardaginn 22. apríl sl. Foreldrar hennar voru Hall- grímur Jónsson sjó- maður í Holti í Mjóafirði, f. 7. okt. 1875, d. 6. júní 1910 og Sigríður Björns- dóttir, f. 11. nóv. 1881, d. í Hafnar- firði 5. júlí 1959. Björney nam við Kvennaskólann á Blönduósi 1920-’21 og 1922—’23, en tók síðan kennarapróf frá Kenna- raskólanum í Reykjavík 1925. Hún stundaði heimiliskennslu á Urriðaá á Mýrum 1925-’26, kenndi í Nauteyrarhreppi N- ísafjarðarsýslu 1926-’27 og var við smábarnakennslu í Reykjavík 1929-’30, og starf- aði jafnframt við verslunar- störf í Reykjavík 1927-’29. Björney giftist 15. maí 1930 eftirlifandi manni sínum Jóni Jónssyni (f. 25. sept. 1908) sem lengi var kenndur við útgerðar- fyrirtækið Akurgerði í Hafnar- firði, síðar framkvæmdasljóri Hraðfrystihússins í Innri- Njarðvík. Faðir Jóns var Jón ÉG KYNNTIST Björneyju ungur drengur að sniglast í kringum litla fallega húsið á Öldugötu 12 austur undir Hamrinum í Hafnarfirði. Ég bjó á Brekkugötu vestan í Hamrin- um. í húsi hennar var fallegasta stúlkan í Hafnarfírði! „Komdu sæll og komdu innfyrir, hún Steinunn er hjá Unnu. Fáðu maltsopa og flatbrauð — já þú ert sonur hennar Maríu Víðis!“ Ög svo var spjallað og spurt. Frá þessari stundu fyrir bráðum hálfri öld höf- um við Björney oft setið saman og spjallað. Það voru góðar og fræð- andi stundir fyrir ungan dreng, námsmann, ungan föður og fullorð- inn embættismann. Hún var góður viðmælandi og spyrill, sagði lítið, hlustaði af athygli, skaut að nýjum efniviði og sagði vel valin lokaorð. „Heldurðu það, Þorvaldur? — Já það þykir mér sennilegt, Þorvaldur, en við getum ekki verið svona hand- viss.“ Þetta voru fræðslustundir hjá góðum kennara sem notaði fá orð og skýrar áherslur. Það var hlýja og bjart á Öldugötu, sérkennileg ró, enda Björney íhugul, fróð og víðlesin um lífið þessa heims og annars. Hún var ekki bara tengda- móðir mín heldur einnig trúnaðar- vinur sem var ómetanlegt, vonandi okkur báðum. Björney missti föður sinn aðeins 6 ára gömul, en hann drukknaði ásamt þremur öðrum með bátnum Ingólfi undan Mjóafirði 1. júní 1910. Þann 10. nóvember sama ár eignaðist Sigríður móðir hennar son sem skírður var Hallgrímur Baldi, en í apríl hafði látist óskírt bam þeirra hjóna. Átta ára gömul fór bóndi á Ekru á Rangárvöllum, síð- ar kaupmaður í Versluninni Rangá á Hverfisgötu í Reykjavík, síðan flutt í Skipasund 57 þar sem verslunin er enn. Björney og Jón bjuggu lengst af á Oldugötu 12 í Hafnarfirði eða fram til 1991 er þau keyptu sér íbúð í Sunnuhlíð í Kópa- vogi. Þau eignuðust þijú börn: Elstur er Þórhallur, verkfræðingur, fæddur 7. febr. 1931. Hann á sex börn og fimmtán barna- börn. Kona hans er Elín Guð- jónsdóttir og búa þau í Kópa- vogi. Þórhallur var bæjarverk- fræðingur í Vestmannaeyjum 1960-’64. Þá Steinunn, fædd 6. nóvember 1933, á þijú börn og tvö barnabörn. Maður henn- ar er Þorvaldur S. Þorvaldsson. Þau búa í Reykjavík. Yngst er Hallbera Kolbrún, fædd 14. maí 1944. Hún á eina dóttur og þijú barnabörn. Hennar maður er Pétur Axelsson og búa þau á Álftanesi. Útför Björneyjar fer fram frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Björney í Svartárkot í Bárðardal, en þar bjuggu Jakobína móður- amma hennar og síðari maður Þórð- ur Flóventsson ásamt Snæbimi Þórðarsyni hálfbróður Sigríðar og frá 1914 konu hans Guðrúnu Árna- dóttur. Þarna ólst Björney upp hjá góðu fólki og ættingjum og var styrkt til náms eins og að framan er jgetið. I Hafnarfirði átti Björney góðar vinkonur sem hún starfaði með m.a. í Kvenfélagi Hringsins, en þar var hún í stjórn í mörg ár og gerð- ur heiðursfélagi 1984. Hún kunni að njóta fegurðarinnar og skjólsins í hraununum við Hafnarfjörð og fór í langar gönguferðir fram á síðustu ár. Einnig stundaði hún sund dag- lega um árabil með Jóni manni sín- um á Seltjarnarnesi og í Vesturbæj- arlaug. Veit ég að margir könnuð- ust við þessa fallegu, brosandi, dökkhærðu konu úr pottunum og af bökkum sundlauganna. Hún átti einig góða vini á stuttum tíma í Sunnuhlíð en þar leið heni skínandi vel í góðri umsjá Jóns. Björney var hjálpsöm öllum sem á þurftu að halda og aðstoðaði böm og barna- börn hvenær sem þörf krafði. Það er gott að minnast Bjömeyjar á vordegi því hún var svo sannarlega kona vors og blóma. Ég kveð hana með ljóðlínum Davíðs Stefánssonar úr „Nú finn ég angan“ — (Svartar fjaðrir). Ég man þig enn og mun þér aldrei gleyma. Minning þín opnar gamla töfraheima. Blessað sé nafn þitt bæði á himni og jðrðu Brosin þín mig að betri manni gjörðu... Þorvaldur S. Þorvaldsson. FIMMTUDAGUR 4. MAI1995 35 MINNINGAR Elskuleg amma mín, ísafold Jón- atansdóttir, lést 22. janúar síðastlið- inn. Það er eins og ég hafi ekki bara mist ömmu mína heldur besta vin minn líka. Ég man fyrst eftir ISAFOLD JÓNA TANSDÓTTIR + ísafold Jónatansdóttir fædd- ist í Hrísey 21. mars 1927. Hún lést á Landspítalanum 22. janúar síðastliðinn. Hún var jarðsungin frá Akureyrarkirkju 31. janúar sl. ELSKULEG amma mín, ísafold Jón- atansdóttir, lést 22. janúar síðastlið- inn eftir hetjulega baráttu gegn veikindum sínum. Ég bjóst aldrei við að þurfa skrifa minningargrein um ömmu mína og hvað þá svona snemma. Það er því stórt tómarúm sem hún skilur eftir í hjarta mínu, tómarúm sem aldrei hverfur. Amma var hjartahlýjasta og heiðarlegasta manneskja sem ég hef kynnst og hún var gædd miklum mannkostum. Ég man eftir því þegar ég gekk í grunnskólann gisti ég hjá henni allar helgar og oft á virkum dögum því það var svo stutt í skólann frá henni og ég hafði auk þess svo gaman af því að vera hjá henni. Amma tók alltaf mjög vel á móti mér, hún spil- aði við mig, eldaði handa mér og við horfðum saman á sjónvarpið. Ég sakna samt mest þegar við sátum saman tvö inni í eldhúsi og spjölluð- um saman því ég gat sagt ömmu allt og hún vildi alltaf vita hvað var að gerast í kringum mig og oft sagði hún mér sín leyndarmál því hún sagðist treysta mér svo vel. Það voru margar sögurnar sem amma sagði mér frá því í „gamla daga“ og ég hafði mjög gaman af þeim því hún var gædd miklum frásagnar- hæfileikum. Amma var alltaf að styrkja Rauða krossinn eða kaupa happadrættismiða til styrktar þeim sem minna máttu sín og vildi allt fyrir alla gera, t.d. vildi hún alltaf gefa mér peninga þó að hún ætti ekki mikið sjálf og ég veit að hún hefði gefið allt frá sér til að hjálpa öðrum, því hún hugsaði fyrst og fremst um aðra og alltof lítið um sjálfa sig. Ég gæti talið endalaust um það sem hún gerði fyrir mig og aðra en þá þyrfti ég miklu fleiri blaðsíður. Ég íofai alltaf ömmu að ég skyldi borga henni allt sem hún gerði fyrir mig aftur og að hún fengi ða búa hjá mér þegar hún væri göm- ui, en nú býr hún bara í hjarta mínu. Ég hugsa oft um síðasta skiptið sem ég sá ömmu mína, þá var hún í Reykjavík að bíða eftir því að kom- ast í uppskurð og var með bros á vör og tók utan um mig og sagði, við sjáumst. Ég veit að einn daginn hittumst við amma aftur og þá get ég borgað henni allt sem hún gerði fyrir mig. ísafold Jónatansdóttir var ekki bara amma min heldur minn besti vinur. Elsku amma mín, nú er komið að leiðarlokum og ég vil þakka þér fyr- ir allar þær yndislegu stundir sem við áttum saman. Megi Guð umvefja þig ástarörmum og leiða þig að ljós- inu. Þinn, Jesse John Kelley. ömmu þegar ég var pínulítill strákur og átti heima í Norðurgötunni, það var stutt að fara yfír til hennar því hún bjó í Ægisgötu 11. Ég man allt- af eftir þvi þegar ég labbaði til henn- ar, þá sleit ég upp nokkur blóm í húsagarði á leiðinni og færði henni. Alltaf var hún jafn ánægð að fá þessi ræfilslegu blóm. Tíminn var fljótur að líða í Ægisgötu 11 því þar var alltaf eitthvað um að vera, hjá henni lærði ég að spila, hún gerði mig að spilasjúklingi. Níu ára gam- all fékk ég fyrst að smakka kaffi hjá henni og hef verið háður því síð- an. Ég man í eitt skipti að mér fannst kaffið vont svo ég bætti meiri sykri út í kaffið en það skánaði ekki og amma fór að athuga sykurinn. Þá komst hún að því að hún hafði lánað sykurkarið í næsta hús og fengið það til baka með salti í. Þessu gleymdi hún aldrei og var alltaf að minnast á það. Síðustu árin var amma daglegur gestur í Reykjasíðu 2. Það var spilað næstum daglega og oft fyrir kvöldmat gaf ég henni merki með höndunum og þá sótti hún spilin og svokölluð spilagleraugu upp í skáp og það voru tekin eitt til tvö spil fyrir kvöldmat. Um helgar var þetta hálfgert spilavíti. Þegar ég hugsa um hana þá verð ég að segja að hún var hreint og beint frábær kona sem vildi allt fyr- ir alla gera og hafði alltaf tíma fyr- ir alla nema sjálfa sig. Ég og allir sem þekktum þessa konu, mömmu, ömmu og langömmu, eigum eftir að sakna hennar sárt. Nú kveð ég þig amma en ég mun aldrei gleyma þér og þú munt alltaf lifa með mér í huga mínum. Pétur J. Kelley. Þann 22. janúar síðastliðinn lést ástkær amma mín, ísafold Jónatans- dóttir, eftir baráttu við illvígan sjúk- dóm. Þótt mér þyki það mjög sárt að hafa misst hana svona fljótt þá veit ég að vel hefur verið tekið á móti henni og nú líður henni vel. Meðan amma og afi bjuggu í - Ægisgötu var ég mjög mikið þar og á flestar mínar bernskuminningar þaðan, þar var amma óþreytandi að leika við mig og spjalla um heima og geima. Þær sögur sem hún sagði mér voru sagðar af mikilli innlifun og flestar byggðar á eigin reynslu. Það eru mikil forréttindi að hafa átt svona yndislega ömmu og góðan vin sem alltaf var hægt að leita til með gott hjartalag og hlýju sem hún var þekkt fyrir. Ég gæti talað heil- lengi um hana, en það væri of mik- ið að gera það hér, ég á þær minn- ingar með mér. Gaman var að fylgj- ast með dóttur minni leika við langömmu sína, þær sungu oft og dönsuðu saman. < Elsku amma mín, ég kveð þig nú en ég veit að við munum hittast á ný. Hvíl í friði. Þór Kelley. Sparisjóðimir bjóða hæstu innlánsvextína Verðtrygging + 5,6% SPARISJOÐIRNIR -fyrir þig og þína í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.