Morgunblaðið - 04.05.1995, Page 38

Morgunblaðið - 04.05.1995, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR JÓNAS JÓHANNSSON + Jónas fæddist að Skógum á Fellsströnd 18. des. 1899. Hann lést 25. febrúar sl. Jónas var næstelsta barn hjónanna Jóhanns Jónssonar og Júlí- önu Sigmundsdótt- ur, sem bjuggu í Skógum allan sinn búskap. Jónas ólst upp í Skógum í stórum systkina- hópi. Börn þeirra Jóhanns og Júlíönu urðu tíu, þar af eru sex á lífí. Útför Jónasar var gerð frá Staðarfelli á Fellsströnd 4. mars sl. SKÓGAR eru falleg jörð. Það sem mætti augum lítils drengs þegar hann fór að virða fyrir sér veröldina voru grasi — og víða kjarrivaxnar brekkur og ásar. Göltinn, ávalt gró- ið fjall bar við himin í norðri, mynni Helludals og Helluá sem liðaðist kliðmjúk milli bakka, 'í fjarska Hvammsfjörður með eyjum sínum og hólmum og Skógar- strandarfjöllin hinum megin íjarðar. Nú drúpa höfði í grænum túnbletti gamli bærinn í Skógum og grónar rústir til minningar um það sem einu sinni var. Nú er fokið í spor lítils drengs sem lék sér í túninu í Skógum. Skógrækt ríkisins á jörðina núna. í blá- móðu framtíðar sé ég hávaxin, laufmikil tré í Skógum, greinar þeirra bærast í golunni og hvísla sögu genginna kynslóða. Jónas hreifst ungur af hugsjón- um ungmennafélagshreyfingarinn- ar, sem þá var að vakna á Islandi. „íslandi allt!“ var kjörorð unga fólksins, sem af eldlegum ákafa trúði á bjarta framtíð landsins. Þá var sungið: Vormenn íslands, yðar bíða eyðiflákar heiðalönd. Komið grænum skógi að skrýða skriður berar sendna strönd. Huldar landsins vemdarvættir vonarglaðar stíga dans, t Útför eiginkonu minnar, BJÖRNEYJAR HALLGRÍMSDÓTTUR, Kópavogsbraut 1 b, áöurtil heimilis á Öldugötu 12, Hafnarfiröi, ferfram frá Fossvogskapellu í dag, fimmtudaginn 4. maí, kl. 13.30. Fyrir hönd afkomenda, Jón Jónsson. Eiginmaöur minn, SIGURJÓN BJÖRNSSON, Vík f Mýrdal, verður jarðsunginn frá Víkurkirkju laug- ardaginn 6. maí kl. 14.00. Fyrir hönd ástvina. Sigurbjörg Guðmundsdóttir. t Elskulegi sonur okkar, bróðir, dóttur- sonur og unnusti, HANS ERNIR VIÐARSSON, Eyjahrauni 3, Þorlákshöfn, sem lést af slysförum 28. apríl, verður jarðsunginn frá Þorlákskirkju í Þorláks- höfn laugardaginn 6. maí kl. 11.00. Guörún í. Johansen, Ingi Þ. Þórarinsson, Viðar E. Axelsson, Sigríður L. Gestsdóttir, Hrafnhildur Tómasdóttir, Þóra G. Briem og systkini. t Ástkeer sonur okkar, bróðir, mágur og sonarsonur, GUNNAR ÖRN WILLIAMSSON, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 5. maf kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Flugbjörgunarsveitirnar í Reykjavík og á Akureyri. Kristfn Guömundsdóttir, William Þór Dison, Eðvarð Þór Williamsson, Margrét Sigrún Þorsteinsdóttir, Stefanfa Sif Williamsdóttir, Þórunn Ingimarsdóttir. eins og mjúkir hrynji hættir heilsa bömum vorhugans. (Guðm. Guðm.) Ég vil elska mitt land ég vil auðga mitt land ég vil efla þess dáð, ég vil styrkja þess hag. Eg vil leita’ að þess þörf ég vil létta þess störf ég vil láta það sjá margan hamingjudag. (Guðm. Magn.) Ungmennafélög voru stofnuð vítt og breitt um landið. Ungmennafé- lagið á Fellsströndinni var nefnt Dögun. Jónas var þar stofnfélagi, virkur og góður félagi og vann þar mikið og gott starf. Mér er það minnisstætt hvað umf. Dögun og kvenfél. Hvöt stóðu vel saman og unnu að framgangi margra góðra mála í sveitinni. Jónas var síðar gerður að heiðursfélaga umf. Dög- unar. Hann vann einnig mikið að ýmsum öðrum félagsmálum, m.a. í búnaðarfélagi hreppsins þar sem hann var gjaldkeri í tíu ár, einnig sat hann í hreppsnefnd um árabil, var stofnfélagi bæði í nautgripa- ræktarfélagi og sauðfjárræktarfé- lagi og sá um bókasafn Lestrarfé- lagsins í mörg ár. Jónas var búfræð- ingur frá bændaskólanum á Hvann- eyri og vann að námi loknu tals- vert við plægingar hjá Bún.samb. Dala og Snæfellsness. Árið 1952 kvæntist Jónas eftirlif- andi konu sinni, Guðbjörgu Andrés- dóttur frá Þrúðardal í Strandasýslu. Þau keyptu jörðina Valþúfu á Fells- strönd og hófu þar búskap. Sámbúð þeirra var farsæl og góð, byggð á gagnkvæmu trausti og væntum- þykju. Þau eignuðust tvo mannvæn- leg syni, Andra lyfjafræðing í Reykjavík og Rúnar sem tók við búi af foreldrum sínum og býr nú á Valþúfu. Eitt var það hugðarefni Jónasar sem var honum mikils virði og gaf honum mikla lífsfyllingu, einkum síðari hluta ævinnar, en það var ljóðagerð, hann hafði svo gaman af að yrkja. Lionsklúbbur Búðar- dals gaf svo.út kver með ljóðum Jónasar, sem var þarft framtak. Valþúfa er næsti bær við Breiða- bólsstað, æskuheimili mitt. Ná- grennið var alltaf gott. Jónas kom oft í heimsókn til Steinunnar móður minnar og þau ræddu m.a. um skáldskap, kváðust á og rifjuðu upp gamlar endurminningar, þar var margs að minnast á langri ævi. Jónas og Guðbjörg fluttu frá Valþúfu síðsumars 1984 og dvöld- ust síðan á dvalarheimili aldraðra, Silfurtúni í Búðardal. Móðir mín saknaði vina í stað og kvaddi þau með þessari vísu: Lífið heil við heiðríkt sólarlag horfið yfir liðinn starfadag er ykkur léði dugnað, frelsi, frið og fógnuð þann að veita mörgum lið. (St. Þorgilsdóttir.) „Undir Dalanna sól“ stóð vagga Jónasar, þar átti hann sínar hug- sjónir, vonir og drauma. Þar vann hann af trúmennsku meðan dagur entist. „Undir Dalanna sól“ stendur hans gröf. Blessuð sé minning Jónasar Jó- hannssonar. Sigurbjörg Jóh. Þórðardóttir. Erfídrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð, fallegir salir og nijög góð þjónusta. Upplýsingar í síma 22322 FLUGLEIDIR IIÓTEL LOFTLeiBIR ODDUR SIG URÐSSON + Oddur var fæddur í Reykjavík 1. ágúst 1914. Hann lést á Landspítalanum 25. apríl sl. Oddur var jarðs- unginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík 2. maí sl. ÞAÐ VAR fyrir 35 árum að ég kynntist Oddi. Ég var 15 ára og vann hjá honum í verksmiðjunni. Ég minnist þess, þegar þessi virðu- legi teinrétti og vel til hafði maður renndi i hlaðið á R39, gekk síðan um verksmiðjuna og rabbaði við okkur. Virðing okkar starfsfólksins var takmarkalaus fyrir þessum manni. Ég vissi það ekki þá, að hann yrði tengdafaðir minn fimm árum seinna. Með árunum gerði ég mér smám saman betur grein fyrir því hvílík- ur maður Oddur var. Ég man ekki eftir einu einasta skipti, að hann hefði ekki tíma til að gera það sem hann var beðinn um, hvort heldur var fyrir heimilið, drengina sína tvo eða fyrirtækið. Arið sem yngsta barnið okkar Sigurðar fæddist stofnaði Oddur Plastos, þá 60 ára gamall. Það var ótrúlegt, en hann skorti hvorki vilja, kjark né reynslu. Þrátt fyrir harða sam- keppni og að heilsan væri ekki alltaf góð óx og dafnaði fyrirtækið með mikilli vinnu hans sjálfs og góðs starfsfólks. Eftir því sem ég eldist sé ég enn betur hversu djarf- ur hann var. Ég var svo lánsöm að eiga hann ekki bara fyrir tengdaföður, heldur fékk ég líka að starfa með honum þessi ár. Síðustu árin var .hann mikið á spítala, en alltaf þegar hann var sóttur lá leiðin upp í Plastos. Hann naut þess að ganga um, sjá hvað væri í framleiðslu og rabba við fólkið sitt. í byijun febrúar spurðist út að umbúðadeildin yrði kannski seld. Ég mun aldrei gleyma svipnum og hversu glaður hann var, þegar hann kom inn á skrifstofuna til mín og sagði: „Það er bara tekið á móti manni eins og þjóðhöfð- ingja.“ Daginn áður hafði starfs- fólkinu verið tilkynnt að plastpoka- framleiðslan yrði ekki seld, því að hann vildi beijast áfram. Ég bið Guð að styrkja tengda- móður mína í hennar miklu sorg. Hún stóð við hlið hans í nær 55 ár. Næstum hvern einasta dag sem hann var á spítala heimsótti hún hann, þar til yfir lauk, þrátt fyrir háan aldur og heilsuleysi síðustu árin. Missir hennar er mestur. Erla Aðalsteinsdóttir. Ég vil i fáum orðum minnast mágs míns, Odds Sigurðssonar, er andaðist 25. apríl. Kynni okkar og vinátta hafði varað hálfa öld, frá þjóðhátíðarárinu 1944 og til hinstu stundar. Oddur kom mér strax fyrir sjónir, sem sérstakt ljúfmenni í allri framkomu og samskiptum í hvívetna. Það var gott að koma á heimili þeirra hjóna. Þar var ávallt hlýlegt og gott andrúmsloft. Við áttum alla tíð mjög gott samstarf, bæði í starfi og á mörgum ferða- lögum um landið og erjendis, þar bar engan skugga á. Ég minnist þess að við fórum á hveijum að- fangadegi, svo framarlega að báð- ir væru við sæmilega heilsu, tveir saman í Fossvogskirkjugarð og kveiktum á kertum og lögðum greinar á leiði sameiginlegra ætt- ingja okkar. Síðasta ferðin var farin síðustu jól. Ég gerðist fram- kvæmdastjóri fyrir hans beiðni ERFIDRYKKJUR P E R L A N sími 620200 1968, þegar hann var forstjóri fyr- ir Plastprent hf. Þá hefði fyrirtæk- ið fært út starfsemina og keypti eina af elstu plastverksmiðjum í pokagerð, sem Plastpokar hf. hét á Laugavegi 71, og starfaði ég þar í þijú ár. Þá varð breyting á rekstri Plastprents hf., sem skiptist í tvö fyrirtæki og Odds hlutur varð síðar Plastos hf. og ég starfaði þar sem framkvæmdastjóri yfir tuttugu ár. Oddur átti í mörg ár við sjúkleika að stríða, einkum síðustu árin, en aldrei bilaði lífsþróttur hans og áhugi fyrir lífinu og starfinu. Ég vil að lokum senda eftirlifandi eig- inkonu hans, Guðfinnu Bjömsdótt- ur, hugheilar samúðarkveðjur og Drottinn styrki hana í þeim erfið- leikum sem nú fara í hönd. Einnig votta ég samúð mína sonum þeirra hjóna, bamabömum og eiginkon- um þeirra. Hjálmar Hafliðason. Fallinn er í valin eftir langvar- andi veikindi Oddur Sigurðsson forstjóri og stjórnarformaður Plastos hf. Oddur hóf snemma ýmis verslunarstörf á árunum 1932- 1941, var skrifstofustjóri hjá Eld- ing Trading 1941-1958, stofnaði Plastprent 1958, var forstjóri þess til 1973. Var framkvæmdastjóri Etnu á þessu tímbili. Stofnaði Plastos hf. 1974 og var stjórnar- formaður og forstjóri þess til dauðadags. Rak hann Plastos með Sigurði syni sínum sem nú er for- stjóri fyrirtækisins. Oddur var einn af brautryðjendum og framkvöðl- um í iðnaði og plastumbúðum, hann var mjög framsýnn og harð- duglegur þrátt fyrir sín miklu veik- indi. Oddur tók virkan þátt í félags- málum og var félagi innan Odd- fellow-reglunnar í mörg ár og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum innan hennar og í öðram félögum. Þau hjónin byggðu sér glæsilegt hús á Flókagötu 59 í Reykjavík sem var prýtt fallegum munum og hlýleika. Dúa ræktaði fallegan verðlaunagarð í mörg ár og alltaf var jafn ánægjulegt að heimsækja þau á heimili þeirra. Á Flókagöt- unni bjuggu þau í hartnær 40 ár þar til þau fluttu að Bólstaðarhlíð 41 í þjónustuíbúð. Ég vil fyrir mína hönd og eigin- konu minnar þakka Oddi og Dúu fyrir allar góðu samverustundirnar og vottum við eftirlifandi eigin- konu og börnum og barnabömum okkar innilegustu samúð með kveðju frá Hallveigarbræðrum. Sæberg Þórðarson, Áshamri. Skilafrest- ur vegna minningar- greina EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunn- inn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.