Morgunblaðið - 04.05.1995, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 04.05.1995, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MAÍ1995 43 FRÉTTIR Herðubreið Morgunblaðið/Kári Kristjánsson Myndakvöld um Odáðahraun EFNI myndakvölds Útivistar fimmtudaginn 4. maí í Fóst- bræðraheimilinu verður „Innviðir Ódáðahrauns". Kári Kristjánsson sem starfað hefur sem landvörður í Herðu- breiðarfriðlandi og Öskju sl. sumar mun leiða gesti um Ódáðahraun og gera grein fyrir helstu útgöngu- leiðum ofanjarðar sem neðan. Námskeið í skyndi- hjálp REYKJAVÍKURDEILD RKÍ gengst fyrir tveimur námskeiðum í skyndiKjálp. Fyrra námskeiðið hefst sunnudaginn 7. maí kl. 11 og verður kennt til kl. 17. Einnig verður kennt sunnudaginn 14. maí. Námskeiðið verður haldið í Fákafeni 11. Síðara námskeiðið hefst mánu- daginn 8. maí kl. 19 og verður kennt til kl. 23. Kennsludagar verða 8., 9. og 11. maí. Námskeið- ið verður haldið í Ármúla 34. Bæði námskeiðin teljast verða 16 kennslustundir. Skólafólki er bent á að sækja námskeiðin tímanlega ef á að láta meta þau. Þátttaka er heimil öllum 15 ára og eldri. Meðal þess sem kennt verður á námskeiðunum er blásturmeðferð- in og endurlífgun með hjarta- hnoði, hjálp við bruna, blæðingum úr sárum og mörgu öðru. Einnig verður fjallað um forvarnir gegn slysum. Að námskeiðinu loknu fá nemendur skírteini sem hægt er að fá metið í ýmsum skólum. Á næstunni verður einnig haldið námskeið í áfallahjálp (sálrænni skyndihjálp) og móttöku á slys- stað. Nánar verður sagt frá þeim síðar. Þeir sem áhuga hafa á að komast á ofangreind námskeið geta skráð sig í síma 688188 frá kl. 8-16. Tekið skal fram að Reykjavíkur- deild RKÍ útvegar leiðbeinendur til að halda námskeið fyrir þá sem þess óska. í fréttatilkynningu segir að efn- ið skiptist i þijá hluta: Ferð í Dyngjufjall, fylgt er farvegi Jök- ulsárs á Fjöllum frá upptökum við Dyngjujökul og niður að Detti- fossi og litast verður um á einni fegurstu gönguleiðinni í Ódáða- hrauni, úr Herðubreiðarlindum um Flötudyngju að Bræðrafelli. Zorbas hjá Grikkland- svinum Á FUNDI hjá Grikklandsvinafélag- inu Hellas, sem fram fer fimmtu- dagskvöldið 4. maí kl. 20.30 í Litlu Brekku, Bankastræti 2, verður fjall- að um gríska rithöfundinn Níkos Kazantzakís (1883-1957) og verk hans, einkum söguna um grallarann og ævintýramanninn Alexís Zorbas, sem kom fyrst út árið 1943 og hlaut mikla frægð, ekki síst eftir að hún var kvikmynduð árið 1964 af M. Kakojannis með Anthony Quinn í aðalhlutverki og með tónlist eftir Míkís Þeoðorakís. Þá hafði sagan þegar verið þýdd á íslensku af Þorgeiri Þorgeirssyni og lesin í útvarp veturinn 1959-60. Nú hefur Þorgeir lokið við nýja þýð- ingu og mun ásamt Vilborgu Dag- bjartsdóttur kynna hana á fundinum en síðar verða almennar umræður. ---------» ♦ ♦-- Hádegisverðar- fundur um mat- vælamarkaðinn í Bandaríkjunum AMERÍSK-íslenska verslunarráðið heldur hádegisverðarfund fimmtu- daginn 4. maí á Háteigi í Grand Hótel í Sigtúni 38. Þar fjalla Magnús Gústafsson, for- stjóri Iceland Seafood Corgoration og fyrrverandi formaður fslensk- ameríska verslunarráðsins í Banda- ríkjunum, um efnið: Matvælamark- aðurinn í Bandaríkjunum — staða íslenskra fyrirtækja, horfur og möguleikar. Fundurinn stendur milli kl. 12 og 13.30. Ráðstefna norrænu blindrafélaganna hefst í dag Rætt um aðgang blindra að upplýsingum og menningu Samstarfsnefnd norrænu blindrafélaganna NSK stendur fyrir ráðstefnu um aðgang blindra og sjónskertra að menningu og upplýs- ingum á Hótel Sögu dagana 4.-7. maí. Blindrafélagið hér á landi sér um undirbúning 'og framkvæmd ráðstefnunnar. Fjallað verður m.a. um hvemig blint og sjónskert fólk geti með nútímatækni fengið aðgang að þeim upplýsingum, sem aðrir eiga að- gang að. Þá verður fjallað um menningu, aðgang þessa hóps að söfnum, leikhúsum, alls kyns opin- berum menningarstofnunum og fjallað verður um hvaða hlutverki almennings- og blindrabókasöfn gegni í framtíðinni. Þá mun verða rætt um hljóðbók framtíðarinnar, en líklegt er að snældan sé innan skamms liðin tíð á þeim vettvangi. í fréttatilkynningu frá Blindrafé- laginu segir m.a: Miklar tækniframfarir í því þjóðfélagi, sem við lifum í nú, vex gildi upplýsinga og mennt- unar stöðugt. Þeir, sem eru blindir eða sjónskertir, fara að mestu á mis við það prentaða mál, sem hin- um almenna þegn gefst kostur á. Með tækni nútímans er hægt að veita sjóndöpru fólki nær óhindrað- an aðgang að prentuðum upplýsing- um, sem nú orðið eru settar fram með tilstilli tölva. Þannig er hægt að breyta venjulegum texta á skjá í þreifanlegt letur (blindraletur). Hægt er að láta tölvu lesa upphátt það, sem sjáandi sér á tölvuskjá. Með tilstilli blindraleturs og talandi tölva eru sjóndaprir tölvunotendur jafn færir um að nálgast þær upp- lýsingar, sem aðrir vilja fá og eiga rétt á. Nú er farið að gefa dagblöð út á stafrænan hátt, svo að sjóndaprir geti fengið þau um leið og fullsjáandi, og er ísland sjöunda landið í Evrópu, þar sem slík út- gáfa er hafin. Ráðstefnan verður sett á Hótel Sögu fimmtud. 4. maí kl. 9. Arne Husveg, formaður norrænu sam- starfsnefndar blindrafélaganna, mun setja ráðstefnuna. Forseti ís- lands, frú Vigdís Finnbogadóttir, ávarpar gesti. Þá mun Blindrafélag- ið veita Morgunblaðinu viðurkenn- ingu vegna sérstakrar útgáfu þess á stafrænu formi fyrir blint og sjón- skert fólk. Allt að 50 manns munu sækja ráðstefnuna, þar af 40 full- trúar frá Norðurlöndum. Slíkar ráð- stefnur eru haldnar á tveggja ára fresti, til skiptis á Norðurlöndunum. EIGENDURNIR Jóhannes Long, ljósmyndari og Ása Finnsdóttir fyrir framan „Big Image“- risamyixd í Ásholti 2. STARFSFÓLK Ljósmyndarans í Mjóddinni, f.v.: Inga Hulda Guðmundsdóttir, ljósmyndari, Magnús Fjalar, aðstoðarmaður, Svala Haukdal, framkvæmdastjóri og Lára Long, ljósmyndari. ■ BREYTING hefur orðið á starf- semi Ljósmyndarans í Mjóddinni. Jóhannes Long ljósmyndari hefur flutt sig um set og opnað ljósmynda- stofu í Ásholti 2, gengið inn frá Laugavegi. Aðaláhersla er lögð á svart/hvítar portrett-myndatökur, fyrirtækjaþjónustu, hópmyndir o.fl. Áfram verða til sölu risamyndir „Big Image“ sem eru stækkanir á hvers kyns tau og er minnsta stærð 3 m2. Jóhannes er einnig með myndasafn af Stór-Reykjavíkursvæðinu og landsbyggðinni. Lára Long er tekin við starfsemi Ljósmyndarans í Mjóddinni, en hún lauk námi í ljós- myndun á síðasta ári. Ljósmyndarinn í Mjóddinni leggur enn sem fyrr aðalá- herslu á barnamyndatökur, brúðar-, fermingar-, stúdenta- og íjölskyldu- mjmdatökur, bæði í lit og svart hvítu. Fyrirlestur um sjálfsvíg NÝ DÖGUN, samtök um sorg og sorgarviðbrögð, gengst fyrir fyrir- lestri um sjálfsvíg í Gerðubergi í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20. Wilhelm Norðfjörð, sálfræðing- ur, mun fjalla í fyrirlestri sínum um sjálfsvíg ungs fólks og áhrif þess á aðstandendur. Einnig mun hann vitna í rannsókn sem gerð hefur verið á vegum Landlæknis- embættisins. Að loknu erindi Wilhelms gefst þátttakendum er þess óska kostur á að skrá sig í hópvinnu sem Wilhelm mun leiða. FÉLAGSSTARF Kópavogsbúar Vorfagnaður Hinn árlegi vorfagnaður verður haldinn í Hamraborg 1, 3. hæð, föstudaginn 5. maí kl. 21.00. Árni Ragnar Árnason, alþingismaður, mun flytja ávarp. Hér er tilvalið tækifæri að ræða málin á léttu nótunum í lok vetrarstarfsins. Allir velkomnir. Sjálfstæðisfélag Kópavogs. < Ai.veg Einstök Gæði SUMARTILBOÐ Þegar gamla ryksugan sýgur sitt síðasta, þá er kominn tími til að endurnýja. Er þá ekki tilvalið að skoða AEG möguleikana. AEG AEG AEí AEG A EO AEG Ryksuga Vampyr 7400 1400 w. Þrjár sogsfillingar. Sexföld síun.Ultrafilter skilar 99.97% hreinu lofti. PokastærS 4 L. Inndraganleg snúra. Lengjanlegt sogrör. Fylgihlutageymsla. Verb ábur 18.720,- eba 17.789,- stgr. Verb nú 15.900,- stgr. 3RÆÐURNIR =)] OKMSSON HF Lágmúla 8, Sími 553 8820

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.