Morgunblaðið - 04.05.1995, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 04.05.1995, Qupperneq 46
46 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ 1 94026 Wc >rd námskeið [ Tölvu- og verkfræðiþjónustan Tölvuskóli Halldórs Kristjánssonar í Grensásvegi 16 • ® 68 80 90 Diplomat fístölvur 486 DX2 66 MIIz VESA Local Bus, hljóökort, $ Mb minni, 240 Mb IIDD Verö kr. 189.900,- ^BOÐEIND— Austurströnd 12. Sími 561-2061. Fax 561-2081 Viít þá gem góð kaup? Þessar glæsilegu aspir verða teknar upp og seldar á gjafverði dagana 15.-19. maí. Komið strax og veljið ykkur tré á 5-8 þúsund. Fossvogsstöðin hf. - plötusalan í Fossvogi, sími 564 1777, Fossvogsbletti 1 - fyrir neðan Borgarspítalann. Opið ki. 8-18. Ný lína í heimilistækjum ^rsmeg ^rsmeg Við flytjum inn vönduð heimilistæki frá Smeg og Piere Roblin. Tsðkin marka tímamót í hönnun, eru stílhrein og auðveld í notkun. EIRVÍK heimilistæki hf. Suðurlandsbraut 22, 108 Rvík, sími 91 -588 0200 I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Hver tendraði fyrsta ljósið? KÆRU landar. Þið sem voruð í Kaupmannahöfn stríðsárin 39-45. I kvöld 4. maí er hálf öld liðin frá því að þáver- andi krónprinsessa, Ingrid, kom í útvarpið og sagði stutt og laggott: „Aften 4. maí, krigen er slut.“ Hvað gerðuð þið þá? Þið rifuð burt gluggatjöldin, sáuð blossann í húsinu á móti. Þið fóruð strax að leita að kertum og settuð í gluggana. Áður en þið hlupuð út á götu og urðuð vitni að undrinu sem gerð- ist þegar myrkvuð borg breyttist í Drottnanna há- sal. Þessi sýn mun fylgja mér á vegsenda. í kvöld kveiki ég á kertum í minn- ingu þeirra sem féllu á víg- vellinum í fangabúðum og á flótta. Einnig fyrir þeim millj- ónum flóttafólks sem hvergi eiga höfði að halla vegna óstjórnar og spill- ingar í heimalandi sínu. Ég skora á allar lýðræð- islega kjörnar ríkisstjómir í heiminum og mannrétt- indadómstóla Evrópu að setja fastar reglur og lög sem gera einstakiingum kleift að lifa mannsæmandi lífí í heimalandi sínu, af- nema ólæsi, byggja skóla og sjúkrahús og hjálpa þeim með þessa þrælútp- índu jörð sem ekkert gefur af sér. Lögin eiga að ganga jafnt yflr alla. Þeir sem sóa eignum ríkisins í munað sjálfum sér til handa verði settir í fangelsi. Með lögum skal land byggja og með ólögum eyða. Verðugt verkefni fyrir 21. öldina. Svo vil ég minna á að margt smátt gerir eitt stórt eins og Hjálparstofnun kirkjunnar segir. Gleðilegt sumar. Sigríður Johnsen. Hjaltabakka 2. Flórída hefur upp á margt að bjóða ALLIR vita sem dvalið hafa á Flórída að þar er hlýtt og notalegt. Þetta á bæði við um veðurfar og viðmót fólks. Ég hef frá mjög jákvæðri reynsiu að segja eftir dvöl þar. Uppi- staða og ívaf í þessari ánægjulegu dvöl eru hjón- in Anna Bjarnason og Atli Steinarsson blaðamenn. Ég bjó í ljómandi góðu og vel búnu húsi skammt frá Orlando sem þau eiga og leigja ferðamönnum. Staðurinn féll mér vel og ekki spillti nágrennið við eigenduma. Þau eru bæði einstaklega vel að sér og upplýst og hafa á taktein- um hvað eina sem ferða- maðurinn þarf að vita. Þau sækja fólk á flugvöllinn og veita ýmsa þjónustu gegn vægu verði. Báðum er þeim einkar lagið að leið- beina og útskýra. Það er ómetanlegt fyrir ókunnuga að fá slíka til- sögn um hvernig best sé að snúa sér í hlutunum og upplýsingar um land og þjóð. Fyrir utan þetta allt eru Anna og Atli gott og skemmtilegt fólk sem fengur er í að kynnast. Ég mæli hiklaust með þessum stað fyrir þá sem vilja kynnast Flórída. Flórídafari Þagriarskylda á Selfossi OKKUR langar að koma því á framfæri að fólk sem vinnur á opinberum stofn- unum er bundið trúnaði við skjólstæðinga sína og má ekki hafa þeirra mál í flimt- ingum út á við. Við erum þijú á Selfossi sem höfum misst æruna vegna þess að fólk þessara stofnana er ekki starfi sínu vaxið. Þrír Selfossbúar Tapað/fundið Jakki tapaðist BRÚNN þykkur rúskinns- jakki tapaðist fyrir utan Ömmu Lú eða í leigubíl þaðan að Barmahlíð að- faranótt sl. sunnudags. Finnandi vinsamlega hringi í vinnusíma 637488 eða heimasíma 621537. Hanna María. Farsi SKÁK llmsjön Margcir Pctursson Hvítur leikur og vinnur. Þótt Gary Kasparov (2.805), PCA-heimsmeist- ari, næði að sigra á minn- ingarmótinu um Mikhail Tal um daginn sigldi hann ekki alltaf lygnan sjó. Þessi staða kom upp í einni af skákum hans á mótinu. Rafael Vaganjan (2.615), Armeníu, hafði hvítt og átti leik gegn Kasparov. Armeninn lék 29. Rxg2? - Hxfl+ 30. Kxfl - Dcl+ 31. Kf2 - Bxd7 32. Dxd7 - Hg8 33. Dh3 - Dd2+ 34. Kfl - Dxb4 35. De3 — Db2 og hvít- ur gafst upp. I stað- inn fyrir þessa von- lausu skiptamuns- fórn gat Vaganjan tryggt sér vinnings- stöðu: 29. Hxf6! - Hxel+ 30. Hfl + (E.t.v. hefur honum yfirsést þessi fráskák frá drottningunni á d4) 30. — Kg8 31. Hxel - Bxd7 32. Dxd7 og hvítur á peði meira, auk þess sem hann hefur tvö samstæð frípeð á miðborðinu. Víkverji skrifar... VÍKVERJI hefur oft brjálast innan í sér, þegar fyrir augu hans ber auglýsingabæklinga, sem unnir eru erlendis fyrir íslenzkan markað. Texti þeirra er í stórum dráttum misþyrming á íslenzkri tungu, svo hrikaleg oft á tíðum að ekki væri vanþörf á að stöðva dreif- ingu og refsa þeim, sem ábyrgðina bera. Víkveiji hefur séð marga auglýs- ingapésa, sem hafa farið fyrir bijóstið á honum, en svo sauð upp úr, þegar á fjörurnar rak auglýs- ingabækling um barnastóla, sem nota má á reiðhjól. Islenzku stafirn- ir þ og ð eru þar hvergi á blaði og ekki æ, en d, th og ae notaðir í staðinn. Auk þessa er textinn mor- andi af prentvillum og slæmt mál- far er áberandi. Víkveiji, sem daglega þarf á öllu sínu að halda til að misstíga sig ekki í notkun íslenzks máls, veit vel, hversu auðveldlega mistök verða. En vísvitandi misþyrmingar, eins og í framangreindum bæklingi og fleiri hans líkum, eru allt annað mál. Slíka hryðjuverkastarfsemi verður að stöðva. xxx GAMAN var að lesa í sunnu- dagsblaði Morgunblaðsins lýsingu á húsinu númer 43. við Lauf- ásveg í Reykjavík og innanstokks- munum þar. Það er lofsvert framtak að þessi gersemi er nú eign Reyk- víkinga og falin Árbæjarsafni. xxx VÍKVERJI beið þess með óþreyju að fá svör við því hvort nýr heilbrigðisráðherra ætlaði sér að hætta við tilvísanakerfið eða halda því til streitu, enda var þetta eitt mesta hitamálið fyrir kosning- ar. Nú er komið í ljós að gildistöku kerfisins hefur verið frestað um óákveðinn tíma og það á að endur- skoða frá grunni. En tilvísanakerf- ið er aðeins eitt af fjölmörgum við- fangsefnum, sem nýr heilbrigðis- ráðherra þarf að takast á við. Það kom Víkveija því á óvart að lesa forsíðuviðtal DV við ráðherrann um síðustu helgi, því ekkert var í því að finna um stefnu ráðherrans í heilbrigðismálum. Nú átti viðtalið greinilega að vera á persónulegu nótunum, en er hluta skýringarinn- ar ef til vill að leita í þeirri stað- reynd, að ráðherrann er kona? Fyrirsögnin var „Mamma ráð- herra“, en Víkveiji minnist þess ekki að hafa lesið viðtal undir fyrir- sögninni „Pabbi ráðherra", þar sem aðaláherslan var lögð á að ráðherr- ann hefði ekki haft tíma til að skipta um föt vegna anna. ítarlega var farið yfir allar fjölskylduað- stæður ráðherrans, en faglegri umfjöllun um heilbrigðismál sleppt. í sama blaði var nýr menntamála- ráðherra, karlmaður, í yfirheyrslu og þar var gengið hreint til verks, ráðherrann spurður ítarlega um verkefnin innan ráðuneytisins, en fjölskyldumálin látin eiga sig. Nú vill Víkverji ekki hnýta sérstaklega í DV vegna þessa, heldur notar þessi dæmi til að vekja athygli á, að konur fá gjarnan aðra með- höndlun í fjölmiðlum en karlar, hvort sem sú meðferð ræðst af viðhorfi fréttamannsins eða við- mælandans. Það hlýtur hins vegar að mega gera þá kröfu að kona, sem hefur vegna verðleika sinna verið valin til að gegna mikilsverðu embætti ráðherra, verði spurð um stefnumörkun sína og veiti grein- argóð svör þar um. Þá kröfu á auðvitað að gera til allra í þessum sporum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.