Morgunblaðið - 04.05.1995, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ1995 47
i BBIDS
llmsjún Guðmundur Páll
Arnarson
Eftir opnun vestur á eðli-
legu laufí er engin klæðs-
kerasaumuð sögn til í spili
norðurs. En það er í brids
og lífínu sjáifu, að oft verða
verksmiðjufötin að duga.
Spil 11. Suður gefur;
| enginn á hættu.
Norður
♦ ÁG74
V G2
♦ ÁK8
♦ G643
Vestur Austur
♦ KD98 ♦ 6
♦ Á9 IIIIH f D1087653
♦ 106 111111 ♦ D975
♦ ÁKD107 ♦ 5
Suður
♦ 10532
| * K4
' ♦ G432
♦ 982
Isiandsmeistararnir, _
Helgi Sigurðsson og ísak
Örn Sigurðsson, voru með
spil NS gegn Stefáni Guð-
johnsen og Kristjáni Blön-
dal. Kristján í vestur opnaði
á Standard-laufi og Heigi
I valdi að segja eitt grand,
frekar en dobla eða strögla
| á fjórlitinn í spaða.
ISkömmu síðar lenti hann í
erfiðri ákvörðun:
Vestur Norður Austar Suður
K.B. H.S. S.G. Í.Ö.S.
1 lauf 1 grand 3 hjörtu* Pass
Pass 3 spaðar Pass Pass
Dobl Allir pass
* Hindrun.
I
)
)
Eftir hindrun Stefáns í
hjarta taldi Helgi miklar lík-
ur á því að makker ætti
spaðalit og lét vaða í þrjá
spaða. Sem reyndist vel
heppnuð ákvörðun, því það
er engin leið að hnekkja þeim
samningi. Ennfremur vinn-
ast þijú hjörtu auðveldlega
í AV.
Dobl Kristjáns vár ekki
eins dýrt og ætla mætti, því
það gaf góða skor að spila
þijá spaða ódoblaða (22 af
30). Algengasti samningur-
* inn var flórir spaðar doblað-
| ir, einn niður.
LEIÐRÉTT
Röng dagsetning
í grein Carl-Otto von
Sydow sem birtist í Morg-
unblaðinu 26. fyrra mánað-
ar undir fyrirsögninni „ís-
landsferð Engströms" segir
að sýning sem varðar
Engström og ísland verði í
Norræna húsinu 3.-21. júlí.
Hið rétta er að umrædd
sýning verður í Norræna
húsinu 3.-21. júní. Beðist
er velvirðingar á þessum
mistökum.
Rangt nafn
í myndatexta við frétt um
Elite-keppnina í gær var
rangt farið með nafn Reg-
ínu Diljár Jónsdóttur, sem
var kynnir keppninnar.
Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Rangt föðurnafn
í frétt í ferðablaði Mbl. sl.
föstudag þar sem fjallað
var um Saga bar á Benid-
orm var farið rangt með
föðurnafn annars rekstra-
raðila eldhússins Fríðu Ein-
arsdóttur en hún var sögð
Gunnarsdóttir. Morgun-
blaðið biðst velvirðingar á
mistökunum.
Pennavinir
FULLORÐINN belgískur
karlmaður sem er að læra
íslensku með aðstoð lingu-
aphone-námsefnis, iangar
að skrifast á við eldri ís-
lendinga og þiggur bréfin
helst á íslensku:
Jerome Aspeslagh,
81, Jules de Troozlaan,
8370 Blankenberge,
Belgium.
ÍDAG
HOGNIHREKKVISI
+ fÁ, þAÐ NÆR Li'KA VFIR
Með morgunkaffinu
... og gættu þess
svo, í guðanna bænum,
að toga ekki fast í
hálsfestina.
ÞAÐ eina sem er athugavert við bókhaldið er, að
komman er alltaf á vitlausum stað.
HVAR varstu eigin-
lega? Það er fiskifýla
af þér.
COSPER
“T3?---
£ 8NKI
EF konan þín fylgir þessum megrunarkúr, getur
hún brátt staðið upp úr stólnuin.,
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
*
NAUT
Afmælisbarn dagsins:
Þú vilt ráða ferðinni, en
hefur vit á að hlusta
einnigáaðra.
Hrútur
(21.mars- 19.aprfl)
Þér er óhætt að treysta vini
sem gefur þér góð ráð varð-
andi vinnuna. Taktu ekki til
u'n aðdróttanir öfundsjúks
starfsfélaga.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Hugvitssemi þín fær að njóta
sín í dag, en ættingi þarf
tíma til að íhuga vel hvort
hann getur stutt fyrirætlanir
þínar.
Tvíburar
(21.ma!-20.júní) 9»
Láttu ekki eyðsluna fara úr
böndum þótt þróunin í fjár-
málum sé hagstæð. f kvöld
ættir þú að taka þátt í mann-
fagnaði.
Krabbi
(21. júní — 22. júl!) H88
Það getur verið erfitt að
gera deilugjörnum ættingja
til hæfis í dag. Reyndu samt,
því það verður þér til góðs.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Taktu ekki of mikið mark á
því sem slúðurberar hafa að
segja í dag. Beittu skynsem-
innni við að greina kjarnann
frá hisminu. >
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú hefur í mörgu að snúast
í dag og hvatning frá vinum
auðveldar þér störfin. Fjár-
festing fer að skila góðum
arði.
(23. sept. - 22. október)
Góðar fréttir koma þér
skemmtilega á óvart í dag,
og þú hefur frumkvæðið að
því að koma á skemmtilegum
vinafundi í kvöld.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú átt erfitt með að gera
upp hug þinn, en verður að
fara að taka af skarið varð-
andi fyrirhugað ferðalag
með ástvini.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Varastu freistingar sem geta
komið þér í vanda í vinn-
unni. Þú ættir frekar að
njóta kvöldsins heima i faðmi
fjölskyldunnar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Láttu ekki ágreining um
peningamál spilla góðu tæki-
færi til skemmtunar í kvöld.
Gættu tungu þinnar svo þú
særir engan.
Vatnsberi
(20.janúar-18. febrúar)
Mundu að gæta hófs ef þú
ferð út að skemmta þér í
kvöld, og láttu ekki smá
ágreining milli vina spilla
góðu kvöldi.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) £
Þér miðar vel áfram í vinn-
unni, og þú kynnist einhveij-
um sem á eftir að reynast
þér vel. Taktu tillit til óska
ástvinar.
ÞJÓDARATHVGU
ALOE VERA brunagelið frá JASON hefur vakið
athygli þjóðarinnar vegna sérstakra eiginleika
safans úr ALOE VERAjurtinni.
ALOE VERA-gelið er ómissandi
í sólarlandaferðina (fyrír og efdr
ALOE-VERA 98% gelið frá JASON
er kristaltært eins og ómengað
lindarvatnið úr hreinni náttúrunni.
Áriðandi er að hafa í huga að aðeins
ALOE VERA-gel án litar- og ilmefna
gefur áþreifanlegan árangur.
98% ALOE VERA gel frá Jason á
hvert heimili sem fgrsta hjálp
(First Aid).
98% ALOE VERA-gel frá JASON
fæst í apótekinu.
lalifll
§ Yl p <p f*
M 1» Á MISK E I Ð %
Sumarönn hefst 8. maí
Hraðnámskeið í tungumálum
fyrir byrjendur
og talmálshópar fyrir lengra komna
Tungumál fyrir sumarið: 12 kennslustundir
Enska • Danska • Sænska « Þýska
Spænska • ítalska • Franska
íslenska fyrir útlendinga
Tómstundir og listir
Myndlist » Glerskurður Tiffany's • Glerbræðsla • Skrautritun
Ljósmyndataka • Vídeótaka á eigin vélar • Nuddnámskeið
Fluguhnýtingar • Austurlensk matargerð
i
r
—.-r—-------------—- ......-
Ferðir
Söguferðir með Jóni Böðvarssyni
• Njálssaga
* Grettissaga
Ræktun og umhverfi
Vorverkin í garðinum • Mat- og kryddjurtir
Villtar jurtir og grasasöfnun
Námskeið fyrir börn
í maí og júní
Tónlistarleíkir fyrir ungabörn • Enska • Leiklist
Myndlist fyrir börn • Tónlistarleikir fyrir ungabörn
T&m$töimámskólinn
HimijHniiiiAÁili Grensásvegi 16A ginmiI'niUIb i
Sími: 588 72 22 • Fax: 581 42 30