Morgunblaðið - 06.05.1995, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995 45
BREF TIL BLAÐSIIMS
Körfuboltaíþróttín
í tilvistarkeppu
Frá Stefáni Ingólfssyni:
KÖRFUBOLTI á í vandræðum í
höfuðborginni því Reykjavíkurfé-
lögin eiga sér engan málsvara.
Iþróttagreinar starfa í svonefndum
sérráðum innan íþróttabandalags
Reykjavíkur. Sérráð körfubolta-
manna er Körfuknattleiksráð
Reykjavíkur, KKRR. Innan þess
eiga körfuknatleiksdeildirnar að
vinna að hagsmunamálum sínum
eins og gerist í öðrum íþróttagrein-
um. KKRR hefur hins vegar verið
í lamasessi lengi. Aðalfundur hefur
ekki verið haldinn svo árum skiptir.
Eina verkefni ráðsins er að halda
Reykjavíkurmót en framkvæmd
mótmælendanna.
Bjórsölu
áHM
mótmælt
VIÐ UNDIRRITUÐ, kennarar og
starfsfólk Víðistaðaskóla í Hafnar-
firði, viljum hér með lýsa mikilli
óánægju með þá ákvörðun þeirra
sem standa að HM að leyfa sölu
á áfengum bjór á leikjum Heims-
meistarakeppninnar í Laugardal
og vonum að önnur íþróttahús þar
sem keppnin fer fram leyfi það
ekki.
Leikir heimsmeistarakeppninn-
ar verða sóttir af unglingum og
börnum jafnt sem fullorðnum. Við
teljum að það sé afar óheppilegt
að tengja saman íþróttir og vímu-
efnaneyslu með þessum hætti og
vandséð að hægt verði að koma í
veg fyrir að unglingar undir lö-
galdri neyti áfengisins sem í boði
verður.
Kennarar og starfsfólk
Víðistaðaskóla í Hafnarfirði.
ZERO-3"
3ja daga megrunarkúrinn
- kjarni málsins!
þeirra er með ólíkindum. Mótið
1994 er dæmigert. Fyrir nokkru
sendi formaður KKRR félögum nið-
urröðun í Reykjavíkurmót 1994. Þá
hafði ekkert samráð verið haft við
félögin í nokkra mánuði. Fjórum
dögum síðar átti Reykjavíkurmót
A-liða í ellefu aldursflokkum að
vera lokið! Þetta er svipuð fram-
kvæmd og undanfarin ár. Niðurröð-
un leikja og framkvæmd mótsins
er ámælisverð. Ótal dæmi má taka.
til dæmis var leikjum fermingar-
barna nú raðað á sunnudag. Eitt
lið gat aðeins mætt með 5 leikmenn
vegna ferminga og léku þeir sam-
fellt í þijá klukkutíma. Körfuknatt-
leikssambandinu er fullkunnugt um
ástandið í KKRR. Formaður KKÍ
er auk þess starfsmaður íþrótta-
bandalags Reykjavíkur og öllum
hnútum kunnugur. Það er fullreynt
að stjórn KKÍ mun ekki hafa neitt
frumkvæði að því að koma reglu á
starf KKRR því sambandið hefur
lítinn áhuga á höfuðborgarsvæðinu.
Til marks um það eru ársþing sam-
bandsins núorðið alltaf haldin úti á
landi, nú á Flúðum. Yfírstjórn
íþróttahreyfingarinnar í Reykjavík
er í höndum ÍBR. Henni ber að
koma lagi á skipulag ákveðinna
greina þegar starfið fer úr skorðum.
Meðjiessari grein er athygli stjórn-
ar Iþróttabandalags Reykjavíkur
vakin á því ástandi sem áður er
lýst og hún hvött til að kynna sér
aðstæður og boða til aðalfundar í
KKRR.
STEFÁN INGÓLFSSON,
körfuknattleiksdeild ÍR.
EINSTAKT
TÆKIFÆRI!
NÚ BÝÐST ÞÉR EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ EIGNAST SÉRÚTBÚINN GOLF,
GOLF GRAND, HLAÐINN AUKABÚNAÐI. AUK ÞESS BJÓÐUM VIÐ UPP Á
GREIÐSLUKjÖR TIL ALLT AÐ 5 ÁRA.
BÚNAÐURINN SEM PRÝÐIR GOLF GRAND ER M.A.:
• 1400ÍVÉL
• ÁLFELGUR
• BLAUPUNKT GEISLASPILARI
• SÉRSTAKLEGA STYRKT YFIRBYGGING
• ÞJÓFAVÖRN
• FJARSTÝRÐAR SAMLÆSINGAR
• GL - INNRÉTTING
• SNÚNINGSHRAÐAMÆLIR
• 4 HÖFUÐPÚÐAR
• TVÍSKIPT AFTURSÆTI
• VÖKVA- OG VELTISTÝRI
• HÆÐARSTILLANLEGT BÍLSTJÓRASÆTI
• RAFSTÝRÐIR SPEGLAR
• LITAÐ GLER
• SAMLITIR STUÐARAR OG SPEGLAR
VW GOLF GRAND 2JA DYRA KOSTAR AÐEINS
1.290.000
HEKIA
-////e///a
Laugavegi 170-174, sími 569 5500
Völkswagen
Öruggur ó alla vegul