Morgunblaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Li Lanqing, aðstoðarforsætísráðherra Kína væntanlegur
Kínverjar kanna þjóðfélags-
gerð á Norðurlöndum
LI LANQING, aðstoðarforsætisráðherra Kína,
er væntanlegur í opinbera heimsókn hingað til
lands 21. júní nk. ásamt 37 manna fylgdarliði.
Heimsóknin er hluti af ferðalagi hans um öll
Norðurlöndin. Kínverski hópurinn hefur þriggja
daga viðdvöl hér.
Varaforsætisráðherrar Kina eru fimm talsins
og fer Li Lanqing með viðskipta- og efnahags-
mál, en fyrir stuttu var hér á ferð varaforsætis-
ráðherra sá sem fer með utanríkismálefni. Með
Lanqing eru m.a. á ferð ýmsir fulltrúar ríkisfyrir-
tækja í Kína og vararáðherrar af öðrum sviðum
stjómsýslu.
Norðurlönd sem fyrirmynd
„Kínveijar hafa, að því er mér skilst, litið
talsvert til Norðurlanda sem fýrirmynd á ýmsum
sviðum, um þjóðfélagsgerð og fleira og eru að
skoða samfélagið þar, auk þess að leita að sam-
starfí um viðskipti og slíkt," segir Hörður H.
Bjamason, sendiherra og prótókollstjóri utanrík-
isráðuneytisins.
Að hans sögn er Lanqing sennilega þriðji eða
fjórði valdamesti maður Kína í hinu opinbera
stjómkerfí á eftir forsætisráðherra þessa fjöl-
mennasta ríkis heims.
Lanqing mun meðal annars eiga fund með
Halldóri Asgrímssyni utanríkisráðherra, heim-
sækja frú Vigdísi Finnbogadóttur, forseta ís-
lands, og eiga hádegisverðarboð með Davíð
Oddssyni forsætisráðherra. Einnig verður farið
í stuttar kynnisferðir út á landsbyggðina.
Lanqing kemur hingað til lands frá Noregi.
Flutningur reiðhjóla hófst á tveimur leiðum SVR um helgina
Starfsmenn
óttast tafir
o g slysahættu
FLUTNINGUR reiðhjóla á leið-
um 10 og 115 hjá Strætisvögnum
Reykjavíkur hófst á laugardag í
tilraunaskyni. Lilja Ólafsdóttir,
forstjóri SVR, segir að leyfilegt
verði að flytja reiðhjól á Ieiðun-
um tveimur þar til fer að snjóa.
Eftir það verði tekin ákvörðun
um hvort slík þjónusta verði tek-
in upp til frambúðar og á hversu
mörgum akstursleiðum ef af
verði.
Flutningurinn hófst á leið 10
á laugardag en leið 115 er ekki
ekin á helgidögum þannig að
fyrstu reiðhjólin voru flutt í
vagninum í gær. Hjólunum er
komið fyrir aftast í bilnum og
þau fest með sérstökum ólum.
Hafa vagnstjórar meðal annars
mótmælt því að slysahætta geti
skapast af festingunum. Sigur-
björn Halldórsson, vagnstjóri á
leið 115, sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að hann hefði
þurft að kalla á ungan farþega
að losa sig undan einni ólinni sem
hann hafi verið búinn að smeygja
um hálsinn á sér.
„Ég var búinn að vera með
fullan bíl af fólki þannig að ég
sá ekkert aftur í kjallarann,"
Póstur og sími
Búið að
komast fyrir
hnökra í nýja
símakerfinu
GENGIÐ hefur verið frá öllum laus-
um endum vegna símanúmera-
breytinganna að sögn Ragnars
Benediktssonar yfirdeildarstjóra
hjá Pósti og síma. Bilunar varð þó
vart í talvél sem tekur á móti hring-
ingum í gömul númer frá útlöndum.
Ragnar reiknaði með að viðgerð
myndi Ijúka snemma í morgun en
fylgst verði með talvélinni næstu
daga.
Ragnar sagði að hringingar í
gömul númer dreifðust á margar
talvélar á símstöðvunum en ein vél
sinni annars vegar öllum hringing-
um í gömul aðalnúmer fyrirtækja
sem skiptu algjörlega um símanúm-
eraraðir á iaugardaginn og hins
vegar hringingum frá útlöndum.
Stefnt sé síðan að því að sú vél
taki við öllum hringingum, innlend-
um sem erlendum, þegar frá líður.
segir hann og á við rými við öft-
ustu dyr vagnsins, sem er nokkr-
um þrepum neðar en gangvegur-
inn.
„Ég var bara svo heppinn að
vagninn tæmdist í Grafarvogin-
um og sá þá tvær stelpur, Iíklega
11-12 ára. Var önnur þeirra kom-
in með ólina um hálsinn. Ég lét
færa þetta til bókar í dags-
skýrslu hjá okkur. Ef eitthvað
er af fólki í vagninum sé ég ekki
svona lagað. Það hefði ekki þurft
að spyrja að leikslokum hefði ég
þurft að hemla snögglega," segir
Sigurbjörn. Að hans sögn eru
ólarnar talsvert langar og auð-
veldlega hægt að herða þær að.
Bókun fyrir sljómarfund
Starfsmenn lögðu bókun fyrir
sljórnarfund SVR fyrir hálfum
mánuði þar sem margvíslegar
athugasemdir eru gerðar við
reiðhjólaflutningana, meðal ann-
ars hvað varðar röskun á tímaá-
ætlun og hættu og óþægindi sem
hjólin og festingamar geti skap-
að öðmm farþegum. í henni er
einnig vikið að undirskriftalista
gegn framkvæmdinni sem gekk
milli starfsmanna einn dag og
Banaslys
við sum-
arbústað
BANASLYS varð við sumar-
bústað í landi Grímsstaða í
Borgarfirði sl. föstudagskvöld.
Maður á
sjötugs-
aldri var að
gera við
loftnet á
sumarbú-
stað sínum.
Hann er
talinn hafa
fallið niður
úr stiga eða
ofan af þaki bústaðarins og
borvél, sem hann var að vinna
með, hafí stungist í liann og
gengið á hol með þeim afleið-
ingum að maðurinn lést.
Maðurinn hét Sigurður Sól-
mundarson, til heimilis að
Dynskógum 5 í Hveragerði.
Hann lætur eftir sig eiginkonu
og fimm uppkomin börn.
. Morgunblaðið/Golli
Olafur Amason vagnstjóri sýnir ólina sem notuð er til að festa
reiðhjól í vagni númer tíu.
segir Sigurbjörn að 67 hafl sett
nafn sitt á listann. Lilja Ólafs-
dóttir, forstjóri SVR, segir til-
drög atviksins í vagninum í gær-
dag ekki ljós. „Atvikið með stúlk-
una er mjög óljóst en verður
kannað mjög nákvæmlega [í
dag],“ segir Lilja. Segir hún
ýmsa hnökra hafa verið á fram-
kvæmdinni til dæmis hafi nokkur
þjól verið flutt samtímis með leið
10 í fyrradag og það valdið töfum
þegar Iosa þurfti hjólin sem fyrst
vom sett inn. Einnig segir hún
hafa borist kvartanir yfir því að
festingar væm of fáar eða of litl-
ar en einnig hafi hririgt fólk til
að þakka fyrir þjónustuna.
Kennsla við einsetna skóla
Engar ákvarðanir
verið teknar
MENNTAMÁLARAÐHERRA,
Björn Bjarnason, segir engar
endanlegar ákvarðanir hafa verið
teknar í framhaldi af greinargerð
og tillögum nefndar kennarasam-
takanna og stjómvalda um ráðn-
ingu kennara í fullt starf við ein-
setna skóla.
„Þetta er samningamál á milli
ríkisins og kennara," sagði Bjöm.
„Mér fínnst eðlilegt að menn skoði
þessar leiðir sem þama eru nefndar
þegar menn eru að velta fyrir sér
hvernig kennsluskyldu kennara
verður háttað miðað við ákvarðanir
um einsetinn skóla.“
Bjöm bendir á að þessar ákvarð-
anir komi ekki endanlega til fram-
kvæmda fyrr en árið 2000 þannig
að menn hafí tíma til að ákveða sig.
Fjögnr rán
á þremur
dögum
FJÖGUR rán vom framin í
Reykjavík á aðeins þremur
dögum. Tvö málanna em enn
óupplýst.
Aðfaranótt laugardags
veittust tveir ungir menn að
fertugum manni í Ingólfs-
stræti, slógu til hans og tóku
af honum veski hans. í því
vom óvemlegir fjármunir og
skilríki. Leitað var að árásar-
mönnunum en án árangurs.
Skömmu eftir klukkan tvö
á laugardag var lögreglu til-
kynnt um að sænskur maður
hefði verið rændur í Hafnar-
stræti, gegnt húsi númer 20.
Þar vom á ferð tveir menn og
hafði annar þeirra ráðist að
manninum og rænt hann. Þeir
fundust í veitingahúsi við
Hverfísgötu skömmu síðar.
Á föstudag var veski, sem
í vom 70 þús. krónur, skilríki
o.fl., hrifsað af tvítugri stúlku
á Barónsstíg. Málið er óupp-
lýst. Á fimmtudag var full-
orðin kona rænd 30 þúsund
krónum á Freyjugötu. Ungur
piltur gekkst við athæfínu og
er málið upplýst.
Framsókn
Deilur í
þingflokki
ÓÁNÆGJA er meðal nokk-
urra þingmanna Framsóknar-
flokksins með tilnefningar á
fulltrúum flokksins í nokkrar
stjómir, nefndir og ráð og
gekk Gunnlaugur Sigmunds-
son alþingismaður af þing-
flokksfundi vegna málsins.
Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er gert ráð
fýrir að Stefán Guðmundsson
alþingismaður verði áfram í
stjóm Byggðastofnunar, en
ekki er frágengið hver verður
annar fulltrúi flokksins þar.
Stjóm þingflokksins lagði
til að það yrði Anna Jensdótt-
ir, kennari á Patreksfirði. Þá
mun Jóhannes Geir Sigur-
geirsson varaþingmaður taka
sæti í stjórn Landsvirkjunar. Í
bankaráð Landsbankans sezt
hins vegar Helgi Guðmunds-
son, sem starfar hjá Vátrygg-
ingafélagi íslands.
Nútímavæðing/8
Sáttahugur í
bankamönnum
SAMNINGANEFND banka-
manna lagði fram tillögur til
sátta í kjaradeilu þeirra og
bankanna á fundi hjá ríkis-
sáttasemjara í gær. Samn-
inganefnd bankanna ætlar að
svara henni á fundi í dag.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins ber ekki mikið
á milli aðila.
Fjórar gerðir af útskriftarhúfum
Æ FLEIRI hópar setja upp húfur
í tilefni brautskráningar frá hin-
um ýmsu framhaldsskólum. Húf-
umar era af fjórum gerðum og í
þremur litum að sögn Njálu Vídal-
ín starfsmanns i húfugerð og
herraverslun P. Eyfelds.
Hvítu kollarnir tilheyra nýstúd-
entum og er þeim leyfiíegt að
bera húfurnar fyrsta árið eftir
útskriftina. Að því loknu eru hvítu
kollarair teknir af og svartar
húfur koina í ljós.
Bláar húfur tilheyra nemend-
um með verslunarskólapróf úr
Verslunarskólanum og rauðar
húfur, sem eru nýmæli, fá iðn-
nemar úr iðn- og fjölbrautarskól-
um þegar þeir Ijúka námi. Svartar
húfur með grænum borða næst
derinu tilheyra búfræðingum.