Morgunblaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995 49 Fyrirlestur í Norræna húsinu GUÐMUNDUR Ólafsson, fornleifafræðingur, deildar- stjóri fornleifadeildar Þjóð- minjasafns íslands, flytur fyr- irlestur í Norræna húsinu mið- vikudaginn 7. júní kl. 19. Guðmundur segir frá nýjum fornleifarannsóknum í Vestri- byggð á Grænlandi og sýnir litskyggnur. Staðurinn sem fornleifafræðingar frá Græn- landi, Danmörku, íslandi og Kanada hafa verið að rann- saka undanfarin sumur hefur verið nefndur Bærinn undir sandinum. Hann er talinn vera einn merkasti fornleifafundur síðari ára hér á norðurslóðum. Einstök varðveisluskilyrði hafa varpað nýju ljósi á dag- legt líf og þróun byggðar nor- ræna manna á Grænlandi. íslensk-sænska félagið á íslandi stendur fyrir fyrirlestr- inum en hann er haldinn á sænsku og er öllum opinn. Aðgangur er ókeypis. Fyrsta sýning Brúðubílsins FRUMSÝNING Brúðubílsins í sumar verður í Hallargarðinum við Fríkirkjuveg 11 í Reykjavík í dag, miðvikudag, kl. 14. Þetta er 15. sumarið sem Brúðubíllinn starfar í umsjón Helgu Steffensen. Leikhúsið starfar í júní og júlí og sýnir á hveijum degi kl. 14 á gæslu- völlum Reykjavíkur og öðrum útivistarsvæðum. í sumar verða sýnd leikritin Af hvetju og Trúðar og töfra- menn eftir Helgu Steffensen. Hún stjórnar brúðunum ásamt Sigrúnu Erlu Sigurðardóttur, Frímanni Sigurðarsyni og Ja- soni Ólafssyni sem einnig er bílstjóri og tæknimaður. Leik- aramir Felix Bergsson, Jóhann Sigurðarson, Helga Braga Jónsdóttir, Edda Heiðrún Backmann og Helga Steffens- en ljá brúðunum raddir sínar. Leikstjóri er Edda Heiðrún Backmann. Tónlistin er eftir Magnús Kjartansson og vísur eru eftir Þránd Thoroddsen og fleiri. ■ BOÐIÐ er upp á sérstaka sumardagskrá fyrir aldraða í kirkjum í Reykjavík á vegum Ellimálaráðs Reykjavíkur- prófastsdæmis. Alla miðviku- daga nú í júní verður samvera í fjórum kirkjum þar sem verða helgistundir, almennur söngur, kaffiveitingar og spjall. Fyrsta samveran verður í Digranes- kirkju 7. júní, næsta í Dóm- kirlyunni 14. júní, Arbæjar- kirkju 21. júní og í Háteigs- kirkju 28. júní og hefjast allar samverumar kl. 14. Hugleið- ingarefnið verður 21. Davíðs- sálmur: Ég hef augu mín til fjallanna. ■ FUNDUR um hagsmuna- árekstra í stjórnmálum verður haldinn á vegum Alþýðu- bandalagsins í Kópavogi á miðvikudagskvöld, 7. júní, kl. 20.30 í Hamraborg 11. Frum- mælendur verða alþingis- mennirnir Kristín Ástgeirs- dóttir; Vilhjálmur Egilsson og Ögmundur Jónasson. Umræðuvaki verður Flosi Ei- ríksson. ■ SPILAVIST verður haldin í kvöld, miðvikudagskvöld 7. júní, í Húnabúð, kl. 20.30 á vegum Áhugafólks um spila- vist. Á eftir spilun verður boðið upp á kaffiveitingar. FRÉTTIR Athugasemd frá Samninganefnd verkalýðsfélaganna í álverinu 1 Straumsvík Staðreyndir um ISAL deiluna MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Samn- inganefnd verkalýðsfélaganna á ál- verinu í Straumsvík: í Morgunblaðinu 3. þ.m. er nær heilsíðu viðtal við Christian Roth, forstjóra ÍSAL, og Rannveigu Rist, deildarstjóra. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Morgunblaðið gerir sjón- armiðum stjórnenda hjá ísal hátt undir höfði og hefur ekki fyrir því að leita álits verkalýðsfélaganna. Enn liggur hjá Morgunblaðinu óbirt grein um ISAL-deiluna eftir Guðmund Gunnarsson, formann Rafiðnaðarsambandsins, sem hann skrifaði vegna umfjöllunar í leiðara blaðsins og Reykjavíkurbréfi. Fullyrðingar þeirra Roths og Rannveigar um samingamálin, stjórnunaráráttu félaganna innan fyrirtækisins og getgátur um annað eru með þeim eindæmum að ekki verður hjá því komist að gera alvar- legar athugasemdir við margt af því sem þar kemur fram og fylla upp í eyðurnar varðandi ýmislegt sem þau telja sér betur henta að minnast ekki á í viðtalinu. Þá er einnig rétt að fram komi að hvorki Roth né Rannveig hafa sótt einn einsta samningafund við verkalýðsfélögin og kann það e.t.v. að skýra að hluta ýmsar missagnir í viðtalinu. Hvers vegna hafa samningar ekki tekist? Kröfur verkalýðsfélaganna í launamálum fyrir hönd starfsmanna ÍSAL byggjast annars vegar á þeim hækkunum sem samið hefur verið um og hins vegar á því að fyrirtæk- ið standi við samkomulag um greiðslu vegna þeirrar hagræðingar sem orðið hefur í fyrirtækinu. í maí 1991 var undirritað ramma- samkomulag um skiptingu ábata af framleiðniaukningu sem því miður komst ekki í framkvæmd nema að litlu leyti vegna andstöðu forstjór- ans. I samningunum 1993 var ákveðið að vinna á samningstíman- um að nýjum hugmyndum um greiðslu fyrir aukna hagkvæmd í rekstri. Enn hefur ekki náðst sam- komulag. Þess vegna gera starfs- menn þá eðlilegu kröfu að hagræð- ingin, sem óumdeilanlega hefur orð- ið í fyrirtækinu, skili sér í þessum samningum. Af einhveijum ástæðum minnist forstjórinn ekki einu orði á þetta atriði í viðtalinu, né heldur fyrri yfir- lýsingar um að starfsmenn skuli njóta hagræðingar í launum. Kröfur starfsmanna um að hag- ræðingin skiii sér að einhverju leyti til þeirra eru sanngjarnar. Þeir hafa lagt á sig ómælt erfiði og óþægindi til að ná fram hagræðingu og það hefur ávallt verið gert í þeirri trú að þegar betur áraði í fyrirtækinu þá myndi það skila sér í betri kjörum. Hluti af hagræðingunni vilja starfsmenn nota til launajöfnunar í fyrirtækinu. Svar ÍSAL við kröfunni um að hagræðingin skili sér til starfsmanna eins og samningurinn hefur stefnt að alveg frá 1990 er nei. Það er meginástæðan fyrir því að samningar hafa ekki tekist. Boðun vinnustöðvunar Ákvörðun um boðun vinnustöðv- unar var tekin eftir að samningar höfðu verið lausir í rúmlega fjóra mánuði og kom til vegna þess að ÍSAL hafnaði því að starfsmenn fái hluta af hagræðingunni. Áður en til boðunar kom vísuðu verkalýðsfélögin málinu til sátta- semjara í þeirri von að þar tækjust samningar án þess að koma þyrfti til vinnustöðvunar. Á fundi sem sáttasemjari boðaði til fimmtudaginn 1. júní var ráðgert að halda uppi viðræðum um ýmis almenn mál auk launamála. Þá var ljóst að vinnustöðvun yrði boðuð á föstudegi ef ekki miðaði verulega í átt til samninga. Þann dag mættu forstjóri ÍSAL stutta stund í húsi sáttasemjara. Það komu svo skýr skilaboð til samninga- nefndar verkalýðsfélaganna um að hluti af samninganefnd ÍSAL væri upptekin við önnur verkefni og gæti því ekki sinnt viðræðum um launa- mál. Samninganefnd verkalýðsfé- laganna lét bóka hjá sáttasemjara mótmæli við þessari uppákomu ÍSAL-manna á þeim tímapunkti í viðræðum að boðun vinnustöðvunar var á næsta leiti. Stækkun ÍSAL í viðtalinu gerir forstjóri ÍSAL verkalýðsfélögunum upp eftirfarandi þankagang: „Ef þeir vilja stækka álverið, geta þeir búið við verkfall og verða því að láta undan öllu sem við förum fram á.“ Ef forstjórinn heldur í raun og veru að þetta sé þankagangur verka- lýðsfélaganna í samningunum þá er hann á miklum villigötum og hefur auðsýnilega ekki þá þekkingu á ís- lenskri verkalýðshreyfmgu sem til þarf svo traust geti skapast milli aðila. Staðreyndin er auðvitað sú að verkalýðsfélögin sem eiga samnings- aðild við ÍSAL eru mjög hlynnt stækkun og sjá fyrir sér fleiri störf við byggingu og rekstur. En félögin eru hins vegar ekki til- búin til að kyngja öllu sem að þeim er rétt og af þeim krafist af Alusuisse. Boðun vinnustöðvunar er neyðar- úrræði til að ná fram samningum en hefur ekkert með stækkun ÍSAL að gera. Stjórnun í fyrirtækinu í lok viðtalsins segir Rannveig Rist „að deilan snúist einnig um það, enn sem fyrr, hver eigi að stjórna fyrirtækinu, stjórnendur þess eða verkalýðsfélögin," og Roth bæt- ir því við að þetta snúist ekki um peninga heldur um hver stjórni fyrir- tækinu og hvort verkalýðsfélögum eigi að haldast uppi að fara sínu fram í skjóli þess mikia skaða sem stöðvun hefur í för með sér. Af þessum ummælum gætu ókunnugir ráðið að verkalýðsfélögin séu daglega að segja þeim Roth og Rannveigu fyrir verkum og þau ásamt öðrum yfirmönnum fái ekki að stjórna fyrirtækinu í friði. Fullyrðingar þeirra um skort á stjórnunarrétti eru auðvitað bull og vitleysa og ekki til annars ætluð en að gera verkalýðsfélögin og starfs- . menn ÍSAL tortryggileg í augum almennings. Óaðgengilegar kröfur ISAL-manna Það sem felst í kröfu ÍSAL um „stjórnunarrétt" er í raun að komast fram hjá ýmsum ákvæðum kjara- samnings. ÍSAL-samningurinn nær til allrar framleiðslu og þjónustustarfa hjá Álfélaginu, þar er kveðið á um laun og önnur starfskjör þeira sem sinna þeim störfum. ÍSAL getur falið öðrum fyrirtækj- um sömu laun fyrir sömu vinnu. Krafa ÍSAL er hins vegar áð geta ráðið undirverktaka í stað fastráð- inna manna og það á lægri launum en samningar kveða á um. Nýjasta dæmið þar um ér að fela verktaka ræstingarstörf þar sem launin eru miklu lægri en ÍSAL-samningur seg- ir til um. Þannig lækkuðu laun kvenna við ræstingu mjög verulega og verkalýðsfélögin eru ekki sátt við þá launalækkun. Þá hefur ÍSAL einnig sett fram kröfu um að samningurinn verði skorinn niður á samningstimanum, án þess að skerða réttindi eins og það heitir á þeirra máli. Einu aðilarnir sem sett hafa fram kröfur um afskipti af innri málum viðsemjanda er íSAL sem hefur uppi kröfu um að samskipti verkalýðsfé- Iaga í samningum sé eftir þeirra kokkabókum. Andinn á vinnustað í upphafi viðtalsins segir Roth að andrúmsloft hafi batnað mikið á vinnustaðnum síðustu misseri og að fyrirtækið hafi greitt hveijum starfs- manni 25.000 kr. á 25 ára afmæli fyrirtækisins án þess að hafa til þess skuldbindingu og því sé honum þessi þróun kjaradeilunnar illskiljan- Námskeið um siðfræði lífs og dauða HALDIÐ verður námskeið um sið- ferðileg álitamál í heilbrigðisþjón- ustu að Hótel Eddu, Eiðum, dag- ana 9.-10. júní nk. Námskeiðið hefst föstudagskvöldið 9. júní með inngangsfyrirlestri og almennum umræðum um siðfræði. Á laugardeginum verður fjallað um margvísleg efni tengd heil- brigðisþjónustu og hefst dagskrá kl. 9. Fyrri hluta dagsins verður rætt um helstu tilefni þeirrar miklu umræðu sem nú á sér víða stað um siðfræði lífs og dauða og meg- inviðfangsefni hennar. Fjallað verður um siðareglur í heilbrigðis- þjónustu, faglega ábyrgð fagfólks og um réttindi sjúklinga. Einnig -verður hugað-sérstaklega að sam- skiptum heilbrigðisstarfsfólks og sjúklinga og vandkvæði tengd því að virða sjúklinginn sem mann- eskju. Síðari hluta laugardagsins verð- ur sjónum beint að tilteknum erfið- um ákvörðunum sem taka þarf í starfi heilbrigðisstétta og hvernig best sé að standa að slíkum ákvörð- unum. Sérstaklega verður hugað að þeim siðferðilegu úrlausnarefn- um sem rísa við meðferð deyjandi sjúklinga og einnig að viðkvæmum og erfiðum málum við upphaf lífs. Námskeiðinu lýkur kl. 4 síðdegis. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Vilhjálmur Árnason, dósent í heim- speki við Háskóla íslands. Vil- hjálmur hefur unnið mikið að fræðslumálum um þau. Hann er höfundur bókarinnar Siðfræði lífs og dauða sem kom út hjá Siðfræði- stofnun Háskólans árið 1993. Viðgerðir á öllum tegundum af töskum. Fljót og góð þjónusta. TÖSKU- VIÐGERÐIN VINNUSTOFA SlBS Ármúla 34, bakhús Sími 581 4303 leg. Hann skellir skuldinni á starfs- mann og verkalýðsfélögin. Það hlýtur hins vegar að vera umhugsunarefni hvers vegna ófriður ríkir hjá ÍSAL á sama tíma og góð- ur starfsandi er í öðrum verksmiðj- um eins og Áburðarverksmiðjunni og Grundartanga þar sem sömu verkalýðssambönd og oft sömu samningamenn eru í viðræðum við stjórnendur. Eru verkalýðsfélögin að gera upp á milli fyrirtækja eða eru starfsmenn ÍSAL svona miklu heimtufrekari en aðrir? Nei, svo er ekki. Orsakanna er að leita í stjórnunar- stefnu ÍSAL og hvernig traust starfsmanna á stjórn fyrirtækisins hefur þorrið með hveiju árinu sem líður. Síðustu samningar 1992 komust samningar nær alls staðar á með tillögu sáttasemjara, nema hjá ÍSAL. Ástæðan var sú að Vinnuveitená'dsiirnbandið felldi, að kröfu ÍSAL, þá tillögv sáttasemjara sem starfsmenn höfðu samþykkt. Sömu sáttatillögu hafði VSI sam- þykkt gagnvart öllum öðrum. Þá ■ voru starfsmenn ÍSAL samnings- lausir í 15 mánuði og verkfallsboðun þurfti til að knýja fram samning. __ Sumt af því sem þá var samið um, eins og bókun um ábataskipti af hagræðingu hefur ekki skilað sér til starfsmanna. Viljinn til samninga Fullyrðingar forstjórans um að hann hafi mikinn vilja til samninga verða með öllu ómerkar þegar litið er til þess samningsboðs sem fram kom eftir að viðtalið birtist í Morgun- blaðinu. í því felst hrein lækkun á launaliðum miðað við fyrri tilboð. Forstjórinn stefnir því ekki að samn- ingum við verkalýðsfélögin og nokk- uð ljóst hver ber ábyrgð á því að samningar takast ekki. IVAKORTALISTI Dags. 7.6. '95.NR. 185 5414 8300 2954 3104 5414 8300 3225 9102 5413 0312 3386 5018 | Ofangreind kort eru vákort, sem taka ber úr umferð. VERÐLAUN kr. 5000.- fyrir þann, sem nær korti og sendir sundurklippt til Eurocards. KREDITKORT HF., Ármúla 28, 108 Reykjavík, sími 685499 viMMlMf'AR FJÖLDI UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGAR VINNINGSHAFA VINNINGSHAFA 2.020.599 2.í 167.000 3. 4 af 5 66 8.730 4. 3*15 2.601 510 Heildarvinningsupphæ&: 4.257.289 BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.