Morgunblaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 27
MORÖUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ1995 2 . LISTIR FRÁ setningarathöfninni. Morgunbiaðið/Goiii Magn eða gæði frá siðaskiptunum til dagsins í dag. Sálmalög Hjálmars eru skýr í formi og lagferli en líklega er þó lag nr 7 „Það lífið er minnst sem í mold- inni býr“ alþýðlegast og lagskýrast og trúlegt að mönnum þyki auðvelt að læra það „utanað“. Varðandi svona tónsmíðar er jafnerfitt fyrir hlustanda og tónskáldið sjálft, að staðhæfa nokkuð um lífslíkur lag- anna, því þó sérfræðingar telji sig í standi til að sundurgreina og dæma, er það dómur hins almenna hlust- anda, sem er endanlegur og mark- tækur. Það verður fróðlegt að fylgj- ast með þessum ágætu sálmalögum Hjálmars, hversu vel fólk man þau og syngur sér til ánægju og sálu- hjálpar. Barnakórarnir sungu lögin mjög vel og sama má segja um tón- un karlaraddanna, sem hljómaði eins og munkasöngur á móti barnarödd- unum og, að öðru leyti en þar sem Hjálmar leikur sér með sjöundirnar, féll tónferli tilvitnananna vel að söng barnanna. Kirkjulistahátíðin er viðamikil listahátíð og hvað varðar tónlist, er þar margt að heyra, þrennir org- eltónleikar, norræn kórtónlist, Schu- bertmessa, norskir alþýðusálmar, Mozart-tónleikar og lýkur hátíðinni með tónleikum Óratoríukórs Gustav Vasa kirkjunnar, hljómsveitar kon- ungskapellunnar í Stokkhólmi, er ásamt einsöngvurum flytja Requiem og Te Deum, eftir Otto Olsson, sænskan orgelleikara og tónskáld, er starfaði í hálfa öld við Gustav Vasa kirkjuna í Stokkhólmi. Jón Asgeirsson TONLIST II a 11 g rí m s k i r k j a FRÖNSK ORGELTÓNLIST Francois-Henri Houbart lék franska orgeltónlist á Klais orgel Hallgrímskirkju. Sunnudagurinn 4. júní, 1995. FYRSTU orgeltónleikar á Kirkjulistahátíð Hallgrímskirkju voru helgaðir franskri orgeltónlist og hófust á Fantasíu eftir Charles Raquet (1597-1664), er var orgel- leikari við Notre-Dame kirkjuna frá 1618 til 1643 en þessi fantasía er töluvert viðamikil tónsmíð og margbreytileg í stíl en af sérfræð- ingum sögð „augljósleg samin und- ir áhrifum af verkum Sweelincks", þar sem notaður er t.d. svonefndur tvöfaldur kontrapunktur, en slík tækni hafði þá ekki verið notuð í franskri tónlist. Nr. 2 á efnisskránni var fúga í C-dúr eftir Francois Roberday (1624-1680, ekki 1672, eins og í efnisskrá) en hann gaf út „Fúgur og kaprísur“ sínar 1660, ásamt verkum eftir Froberger, Ebner og Frescobaldi. Fyrir utan að vera orgelleikari, tónskáld og kennari (kenndi m. a. Lully), starfaði hann sem gullsmiður hjá Onnu prinseesu af Austurríki og Maríu Theresu. Að formi til er þessi fúga eins kon- ar kaflaskipt „ricercare" eða jafn- vel nær því að vera kontrapunktísk fantasía og fráleitt nokkuð nálægt því sem fúgur gerðust að vera síð- ar hjá Þjóðverjum eða um daga J.S.Bach. Francois Couperin (1668-1733), „Hinn mikli“ átti næsta verk, Of- fertotium-þátt úr fyrri orgelmess- unni. Coperin var aðeins 21 árs er hann gaf út Pieces dórgue, 1690, sem inniheldur tvær orgelmessur en þær á að leika við almennar guðsþjónustur, með svipuðum hætti og ítölsku söngmessuna. Þessi orgelverk þykja óvenjulega vel gerð og standa að gæðum til hliðstæð við orgelverk Nicolas de Grigny, en verk eftir hann var næst á efnisskránni, svíta um sálm- inn Kom skapari, heilagi andi. Nicolas de Grigny (1872-1703) var organisti við dómkirkjuna í Rheims, þar sem Louis, faðir hans (og kennari), starfaði. Þrátt fyrir stutta starfsævi var Grigny fyrir- mynd Bachs í mörgum af fyrstu verkum hins þýska meistara. Svít- an hefst á að tæpt er á sálminum og þá er fimmskipt fúga og á eftir koma þrír frjálslegri þættir og end- ar verkið á Dialogue, samtals- þætti, sem var vinsælt viðfangsefni franskra orgeltónskálda. Öll verkin voru flutt í mjög bólginni raddskip- an og ólíkt því sem ætla mætti að ætti vel við kontrapunktískan rit- hátt verkanna, er olli því að tónferl- ið var oft æði óskýrt. Þessi stækkunarástríða orgel- leikarans var þó mest til friðs í jólalagi (Noél) í G-dúr, eftir Daquin (1694-1772), er var undrabarn og orðinn starfandi orgelleikari 12 ára gamall. Daquin lærði hjá Marchand þeim er þorði ekki að keppa við Bach í Dresden 1717. Rómantíska tónlistin, fantasía og fúga í gís-moll eftir Alexandre Boély, fantasía í e-moll eftir Saint- Sáens og Tilbrigði úr 5. orgelsin- fóníunni eftir Widor, vár flutt af mikilli leikni en bæði hraði og styrkur var með þeim hætti, að við lá að hann ofbyði áheyrendum. Það má sannarlega of mikið af öllu gera, þó gott sé og það á við ann- ars glæsilegan orgelleik Francois- Henri Houbart. Tónleikunum lauk með spuna (leikið af fingrum fram) yfir sálmalagið Víst ertu Jésus kóngur klár. Spuninn var á allan hátt ágætur og þar gat að heyra, oft betri tónskipan en gerist yfir- leitt í nútímatónsmíðum fyrir org- el, að minnsta kosti er varðar leikniþáttinn. Sem spuni yfir ís- lenska sálmalagið var þar um lítinn skyldleika að ræða utan einstaka „þríóla", og stefbrot, sem örsjaldan heyrðust í skrúðmiklum tónbálki orgelleikarans. Francois-Henri Houbart er feikna tekniker en ekki af sama skapi smekkvís og hefði sem best mátt láta minna, því það er eins með styrkleikann og leiknina, að þessir þættir eiga ekki ávallt sam- leið með innihaldi og gæðum verk- anna. Jón Asgeirsson Leikinn og öruggur hornisti TÓNLIST N o r r æ n a h ú s i ð SAMLEIKUR Á HORN OG PÍANÓ Emil Friðfinnsson hornleikari og Þórarinn Stefánsson píanóleikari fluttu tónverk eftir Danzi, Glazunov, Dukas, Schuniann, Bozza og þjóðlagaraddsetningar eftir Jón Leifs, Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Ilafliða Hallgrímsson. Mánudagur 5. júní. EMIL Friðfinnsson hélt fyrstu sjálfstæðu tónleika sína í Norræna húsinu sl. mánudag en hann hefur fyrir nokkru lokið framhaldsnámi erlendis og starfar nú með Sinfóníu- hljómsveit íslands. Auk þess hefur hann tekið þátt í flutningi margvís- legrar kammertónlistar, svo að ís- lenskir tónleikagestir þekkja nokk- uð til hans. Hann hóf tónleikana með sónötu í Es-dúr eftir Danzi, en hann var m.a. sellisti við Mann- heim-hljómsveitina og átti sinn þátt í framlagi Mannheim-skólans til þróunar sinfóníunnar. Frá hendi tónskáldsins er jafnræði á milli píanósins og hornsins og þrátt fyrir smá hnökra I píanóinu var leikur Þórarins skýr og fallega mótaður. Emil lék sónötuna af miklu öryggi. Tóngæði og tækni hans kom þó enn betur í ljós í Reverie op. 24, eftir Glazunov, þar sem fallegur tónn Emils naut sín einkar vel og Villan- elle eftir Dukas, en þar fékk Emil og tækifæri til að sýna leikni sína. Eftir hlé léku þeir félagar hið fræga Adagio og Allegro eftir Schu- mann en þetta verk er oftlega leik- ið á selló. Þarna reyndi bæði á tón- tækni og túlkun beggja flytjenda, sem fluttu verkið mjög vel. Sérstök ástæða er þó að lofa frammistöðu Emils í þessu erfiða verki og þar með er hægt að stafhæfa, að hann er góður hornleikari, bæði hvað varðar tækni og túlkun. Til að hvíla hornleikarann lék Þórarinn þjú smáverk fyrir píanó og valdi Rímnakviðu op. 2, nr. 4, eftir Jón Leifs, Idylle, eftir Svein- björn Sveinbjörnsson og Ljósið kemur langt og mjótt, eftir Hafliða Hallgrímsson og flutti Þórarinn þessi einföldu verk af smekkvísi, sérstaklega fallega útfærslu Haf- liða. Tónleikunum lauk svo með hressilegu verki, En Forét, eftir Bozza (1905) og var þetta ekta skógarljóð og samkvæmt uppruna: legu hlutverki (skógar)hornsins. í þessu verki og verki Schumanns, svo og villanellunni eftir Dukas, sýndi Emil sínar bestu hliðar og það, að hann er leikinn og öruggur hornisti og naut hann til þess ágætrar samfylgdar í samleik Þór- arins. Jón Ásgeirsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.