Morgunblaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 50
50 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir Tommi og Jenni Ljóska BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Sínibréf 569 1329 Skýrar línur í þjón- ustu við sumarbú- staðaeigendur Frá Guðvarði Jónssyni: LAUGARDAGINN 20. maí fylgdi með Tímanum sumbarbústaðahand- bók. I þessu aukablaði var grein um erfiðleika sumarbústaðaeigenda að ná samningum við sveitarstjórnir um þjónustu við sumarbústaðaeigendur. Ég veit að bændur eru oft harð- skeyttir, enda stundum þurft á því að halda, þegar fast hefur að þeim sótt, bæði óblíð veðrátta og rauða rósin. Þeir hafa líka oft deilt hart innbyrðis, jafnvel svo að til handalög- mála hefur komið og af þeim sem lægri hlut beið verið bitið nefið. I þessari grein eru allir sumarbú- staðaeigendur settir undir einn hatt, þó er töluverður munur á því hvort um er að ræða lóðaeigendur eða lóða- leigjendur. Fyrir þá sem taka lóð á leigu sér landeigandi um að leggja vatn og veg að húsgrunni, einnig um viðhald á hvoru tveggja. Lóðaeigend- ur verða aftur á móti að sjá sjálfir um lagningu vega, öflun vatns og viðhald á öllu sem við kemur sam- eignarsvæðinu. Mér sýnist því að lóðaeigendur eigi meira undir högg að sækja til þess að fá þjónustu frá sveitarfélögunum en lóðaleigjendur, einkum vegna þess að sveitarstjómir munu telja sig vera að veita atvinnu- starfsemi ábúanda lögbýlis í sveitini þjónustu, þegar þeir veita lóðaleigj- endum þjónustu. Af þessum sökum tel ég að það þurfi að setja skýrar línur þarna á milli þegar verið er að semja við sveitarstjómir um þjónustu við sumarbústaðaeigendur. I þessari grein er einnig minnst á það að heyrst hafi þær raddir að setja eigi reglur, án samráðs við sveitarfélög, sem geri sumarbústaða- hverfi sjálfstæð og óháð sveit- arstjórnum. Þessi hugmynd fínnst mér alveg fráleit. Það verður aldrei hægt að gera sumarbústaðabyggðir að einhvers konar innvortis sveitar- félagi í því sveitarfélagi sem sumar- bústaðabyggðin er í. Það mundi bara skapa fleiri vandamál. Ef sumarbú- staðurinn á að vera eigandanum far- sælt friðland verða menn að búa í sátt og samlyndi við sitt nánasta samfélag. En mér fyndist að menn myndu hafa gott af að losna undan viðjum kröfusamfélags þéttbýlis- kjamanna og sjá sem mest um eigin þarfír sjálfír. Eg held að það myndi fækka vandamálum út á við, auka á friðsældina, efla sjálfstæði, liðka fyr- ir samningum og gæti kannski lækk- að fasteignrskattinn. Ég er ekki með þessu að segja að sveitarfélögin eigi ekki að hafa neina ábyrgð eða skyld- ur gagnvart sumarbústaðaeigendum, að sjálfsögðu hafa sveitarfélögin skyldum að gegna í þessu tilviki. Það er nú einu sinni svo að sveitarfélögin hafa kallað yfír sig þessa plágu í von um styrkari stöðu sveitarsjóðsins. Menn verða alltaf að burðast með sínar ásköpuðu syndir, hvort sem þeim líkar það betur eða verr. Ég held að sveitarfélögin sem eru með skipulagðar sumarbústaða- byggðir séu orðin töluvert háð tekj- um af þessari byggð og í framtíðnni verði sveitarfélög að byggja meira á hliðargreinum með hefðbundnum búgreinum, t.d. sumarbústaðabyggð og ferðaiðnaði. Einnig held ég að skyldusam- skiptareglur settar af ráðunheyti yrðu báðum aðilum verri kostur en samningur gerður af samskiptaaðil- um. Þó svo að báðir væru hafðir með í ráðum. Það mun vera töluvert um samn- inga á milli sveitarfélaga og sumar- bústaðaeigenda, sem varla geta talist fugl né fískur, og þegar þarf að nota þá við lausn deilumála milli aðila hindra formgallar að hægt sé að ná fram réttlátum lausnum. Það er því ljóst að Landssamband sumarbú- staðaeigenda mun vart verða verk- efnalaust á næstunni, ætli það sér að hreinsa til í þessum frumskógi. Gott er fyrir samningamenn að hafa það í huga að þolinmæði er dyggð, ég held líka að þróunin og tíminn vinni með sumarbústaðeigendum í þessu máli. GUÐVARÐURJÓNSSON, Hamrabergi 5, Reykjavík. Smáfólk Ef Jesús hefði átt hund, hvaða tegund heldurðu að það hefði verið? Ég veit ekki, kannski fjárhund- ur... En ég er viss um að hundurinn hefði átt gott líf. Nema hann hefði orðið þreyttur á að ganga í öllum þessum sandi. Félag eldri borgara heimsækir Bessastaði Frá Félagi eldri borgara: NÝLEGA fóru hátt í 200 félagar úr Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni í heimsókn í Bessastaða- krikju. Þar tók forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, á móti hópn- um, en hún hefur ávallt sýnt starf- semi félagsins mikin áhuga og vel- vild. Gengið var í Bessastaðakirkju og var hún þéttsetin. Þar sagði forsetinn mönnum frá sögu Bessastaða og atvikum úr henni. Þá lýsti hún gerð kirkjunnar og góðum gripum henn- ar. Sérstaka athygli vöktu hinar fögru glermyndir í gluggum kirkj- unnar, sem tengjast sögu kristni og landsins. Einnig skýrði Anna Ólafsdóttir Björnsson sögu Álftaneshrepps (Bessastaðahrepps) og lifnaðarhátt- um þar fyrr á öldum og nú. Formaður FEB, Páll Gíslason, þakkaði ræðumönnum fyrir ánægju- lega stund og góðar móttökur, en síðan var ekið um Álftanes og fengu félagar góða hugmynd um lífshætti undir leiðsögn Ónnu. Þó að leiðin sé ekki löng milli áfangastaða var fjörlega tekið til við söng á báðum leiðum. Var það einróma álit félagsmanna að vel hefði tekist til og færum við þakkir fyrir hlýlegar móttökur og ánægjulegar. F.h. Félags eldri borgara, PÁLL GÍSLASON. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt i Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.