Morgunblaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 42
- .42 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR GISLI BENJAMÍNSSON + Gísli G. Benja- mínsson skip- stjóri fæddist á Bildudal 20. nóv- ember 1929. Hann lést á Landspítal- anum 29. maí síð- astliðinn. Gísli var elstur fimm barna hjónanna Klöru Gísladóttur, f. 25. 7. 1907, d. 11. 7. 1983, og Benja- míns Jónssonar, f. 22. 5. 1909, d. 10. 3. 1995. Systur hans eru Sigríður, Inda Dan, Hermina og Eva. Hinn 16. október 1960 kvæntist Gísli Kristínu A. Samsonar- dóttur frá Þingeyri, f. 12. 2. 1933. Þau eignuðust fjögur börn. Þau eru: Linda, f. 21. 9. 1956, þroskaþjálfi, hún á dótt- urina __ ídu Bjarn- eyju; Orn Smári, f. 28. 7. 1960, grafísk- ur hönnuður, kvæntur Sigrúnu Gunnsteinsdóttur og eiga þau tvo drengi, Arnar og Gísla Stein; Davíð, f. 17. 5. 1963, líf- fræðingur, í fram- haldsnámi í Kanada, sambýlis- kona hans er Inga Rún Pálmadóttir og á hún þrjá drengi; Benjamín, f. 6. 11. 1965, þjónustufulltrúi hjá SPRON, kvæntur Þóru Guð- mundsdóttur og eiga þau tvö börn, Ægi og Bergljótu Klöru. Gísli verður jarðsunginn frá Askirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13.30. NÚ þegar við kveðjum kæran bróð- ur okkar hrannast minningarnar upp, svo Ijúfar og góðar. Hann var elstur okkar systkina og alla tíð lit- um við upp til hans, enda var mað- **’ urinn stór og mikill á velli. Gísli var alvörumaður en þó var stutt í glettnina og dillandi hlátur, hlátur sem alla hreif. Hann hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum, urðu oft snarpar umræður, sem gjama lauk með hnyttinni stöku frá honum, svo allir undu málalokum. Drengur var hann góður og höfð- ingi í lund, farsæll í starfi og alla umgekkst hann með virðingu. Ævistarfið var sjómennska. Gísli starfaði hjá Hval hf. öll sumur frá 1950, eða í 45 ár, fyrst sem há- seti, þá stýrimaður, síðar skipstjóri, en seinustu árin, eftir að hvalveiðar voru bannaðar, var hann vaktmað- ur. Á veturna sinnti hann ýmsum störfum sem einkum tengdust sjó- mennsku. Áhugamálin voru þó af öðmm toga, hann var bókamaður og hafði yndi af málaralist - dáði gömlu meistarana. Sjálfur var hann lið- tækur með pensilinn og málaði og teiknaði alla tíð. Myndefnið oftar en ekki hafið bláa. Á annan áratug var hann í klúbbi frístundamálara sem hittust vikulega á veturna und- ir leiðsögn kennara. Eignaðist Gísli þar góða félaga og er þar nú skarð fyrir skildi. Hann var líka hagmælt- ur og var honum jafnvel sýnna um að tjá tilfinningar sínar í bundnu máli, líkt og sumum löndum hans að fornu. Þá lá honum tækifæris- stakan létt á tungu. Upp í hugann kemur meðal annarra þessi vísa sem hann sendi móður okkar í tilefni 50 ára afmælis hennar, þar sem hann harmar að geta ekki verið viðstaddur; Tefur fley mitt aldan ör austan kyljan ramma, óska að gæti flýtt nú för að faðmi þínum, mamma. Eftir að faðir okkar var orðinn ekkjumaður var samband þeirra Gísla einstakt og ekki leið sá dagur að þeir hefðu ekki símasamband. Þetta var föður okkar mikils virði og erum við af hjarta þakklátar. Gísli kvæntist yndislegri konu, Kristínu A. Samsonardóttur, sem hann mat mikils og varð hún okkur sem fimmta systirin. Oft hafði hann á orði að ef ekki nyti við tryggrar konu í landi gengi dæmið ekki upp. Þau eignuðust ijögur mannvænleg börn og barnabömin eru orðin fimm. Betri afa en Gísla er vart hægt að hugsa sér. Gísli var frændrækinn og vinfast- ur. Þrátt fyrir veikindi var hans hjartans mál að treysta ættarbönd- in. Hann var virkur í undirbúnings- nefnd með frændum okkar að skipuleggja ættarmót á æskustöðv- um afa okkar, Jóns Guðmundssonar frá Siglunesi á Barðaströnd, í til- efni 125 ára ártíðar hans, 7. júlí nk. Hlökkuðum við mjög til farar- innar en þar sem bróður okkar nýt- ur ekki lengur við ætlum við að gera okkar besta til að halda hans áætlun og fara glaðar. Við erum þakklátar Gísla. Hann var besti bróðir sem hægt er að óska sér. Elsku Ninna, söknuðurinn er mikill. Við sendum þér og börnum þínum okkar dýpstu samúðarkveðj- ur. Minningin um góðan dreng lifir. Sigríður, Inda Dan, Hermína og Eva. í dag þegar svili minn og elsku- legur vinur, Gísli G. Benjamínsson, er til moldar borinn og mér bæri skylda til að minnast hans, sem vert væri, er hugur minn svo harmi sleginn að hætt er við að þessi fá- tæklegu minningarorð verði döpur miðað við allar þær björtu minning- ar sem hann skilur eftir sig í huga mér og vafalaust hjá öllum sem honum kynntust. Gísli var fæddur 20. nóvember árið 1929 á Bíldudal við Arnarfjörð. Gísli var öllum þeim kostum búinn sem prýða þurfa slík- an drengskaparmann, sem hann var. í vöggugjöf og veganesti hlaut hann mikinn arf frá foreldrum sín- um, sem voru Benjamín Jónsson og Klara Gísladóttir. Ég var svo lánsamur að kynnast þeim Klöru og Benjamín. Þau voru indælar persónur sem gott og göfgandi var að eiga að vinum, blessuð sé minn- ing þeirra. Lífshlaup Gísla Benjam- ínssonar var mikil sigurför, arfinn sinn ávaxtaði hann ríkulega í lífi sínu. Gísli var listfengur maður og fór létt með að færa orð sín og hugar- flug í bundið mál, form og hrynj- andi ljóðsins fór vel saman við ljóð- rænan tón hans í mörgum þeim hrífandi málverkum og teikningum sem liann lætur eftir sig. Ungur valdi hann sér starfsvettfang. Og sjómennskan, sem var honum í blóð borin, varð fyrir valinu. Því lá leið hans fljótlega í Stýrimannaskólann til að auka við þekkingu sína, færni og réttindi í þeim störfum sem hann síðar átti eftir að gegna í áratugi. Þeim ábyrgðarmiklu og krefjandi störfum verða trúlega gerð skil af öðrum, sem nær þeim vettfangi stóðu, en ekki kæmi mér það á óvart þótt Gísli hafi verið þar fremstur meðal jafningja. Á skólaárum sínum í Stýri- mannaskólanum kynntist Gísli fal- legri og greindri stúlku, Kristínu A. Samsonardóttur frá Þingeyri við Dýrafjörð. Þau kynni urðu þeim báðum gæfuspor. Saman og sam- stiga lögðu þau af stað inn í fram- tíðina. í þau fjörutíu ár sem liðin eru síðan Gísli og Ninna tengdust mér í gegnum mína konu og síðar vináttuböndum, hefur þar aldrei skugga á borið. Gísli og Ninna eignuðust ijögur börn, sem öll eru vel virkir þegnar hvert á sínu sviði. Linda er elst þeirra og er hún þroskaþjálfi við Ríkisspítalana. Örn Smári er graf- ískur hönnuður, Davíð er líffræð- ingur og Benjamín, sem er yngst- ur, er bankastarfsmaður. Um leið og við hjónin kveðjum og þökkum Gísla fyrir vináttu hans og tryggð öll þessi ár biðjum við þess að góður guð megi styrkja og hugga Ninnu, börnin þeirra og barnabörn, tengdadætur, systur hans og aðra ástvini. Kom huggari, pig hugga þú, Kom, hönd, og bind um sárin, Kom, dögg og svala sálu nú, Kom, sól og þerra tárin, Kom, hjartans heilsulind, Kom, heilög fyrirmynd, Kom, ljós og lýstu mér, Kom, líf er ævin þver, Kom, eilífð, bak við árin. Sacer - Sb. 1886 - V. Briem. Hörður Sigurjónsson, Aðalheiður Samsonardóttir. í dag kveðjum við vin okkar og sambýlismann til margra ára, Gísla Benjamínsson, sem nú er látinn eftir stutta en erfiða sjúkdómsbar- áttu. Fyrir um það bil 30 árum fluttum við tvær fjölskyldur, hvor á sína hæðina í tvíbýlishúsi í Kópavoginum og höfum búið þar saman fram á þennan dag. Við kynntumst Gísla sem sérstaklega traustum og heil- steyptum persónuleika og svo heið- arlegum að af bar. Þar fóru orð og gerðir ætíð saman. Gísli gerði sjómennskuna að ævi- starfi sínu. Hann lauk stýrimanns- prófi frá Sjómannaskóla íslands, var við hvalveiðar lengst af sjó- mannsferli sínum og síðan skip- stjóri á Hval 9 þegar hvalveiðum lauk, þá vaktmaður á hvalabátun- um þar til sl. haust að hann veiktist. Gísli var vel lesinn og hafði yndi af þjóðlegum fróðleik svo og skáld- skap. Sjálfur var hann vel hagmælt- ur og kastaði oft fram skemmtileg- um stökum. Fyrir allmörgum árum byijaði hann að mála og náði þar mjög góðum árangri. Eftir hann liggja margar undurfallegar vatns- litamyndir og teikningar. Við viljum að leiðarlokum þakka Gísla áratuga vináttu, hjálpsemi og heilindi sem aldrei brugðust og við munum sakna. Við sendum Kristínu sem stóð eins og klettur við hlið hans á þessu mikla erfiðleikatíma- bili, börnum, tengdabörnum og barnabörnum, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Það besta sem við getum óskað afkomendum ykkar er að þín trausta skapgerð, góðar gáfur og heiðarleiki gangi í arf til þeirra. Við kveðjum þig svo með ljóði Arnar Arnarsonar: Það andar oft kalt um vom ilmbjarka skóg. Hann ymur í stormi og kiknar í snjó, en litkast og laufgast hvert vor. Og limríkir stofnar sér lyfta úr fold með langdrægar rætur í fortíðar mold og ættbálksins örlagaspor. Geirþrúður og Ólafur. í dag felldu blómin mín blöðin sín. Og húmið kom óvænt inn til min. Ég hélt þó enn væri sumar og sólskin. (Tómas Guðmundsson.) Mér komu þessar ljóðlínur Tóm- asar Guðmundssonar í hug er ég frétti lát Gísla Benjamínssonar. Hann hafði að vísu barist við þann sjúkdóm er of marga leggur að velli. Én Gísli var, að mínum dómi, sú persóna er átti skilið að fá að vera lengur í sól og sumri og því finnst manni örðugt að skilja hlutina, ef okkur er þá nokkuð ætlað að skilja. Það eru rúm tuttugu ár síðan ég var kynnt fyrir Gísla og Kristínu, konu hans, það urðu mér ánægjuleg kynni. Gísli var persóna sem ekki gleymist þeim er hann átti samleið með. Hann var kannski ekki alltaf silkimjúkur á yfirborði, en því mann- legri og betri, drengur við lengri kynni. Hann hafði sínar skoðanir á því er miður fór og eins hinu já- kvæða; hann hafði ákveðna réttlæt- iskennd. Það var indælt að eiga kvöldstund með Gísla og Ninnu. A þeirra heim- ili voru allir gestir boðnir velkomn- ir, það var sama hvort það voru kunningjar húsbændanna eða vinir unga fólksins á heimilinu, öllum mætti það viðmót er bezt gerist í mannlegum samskiptum. Um nokkurt skeið varð það venja okkar nokkurra félaga, að skreppa í Naustið á ljúfu þorrakvöldi. Þá var Gísli ávallt sá hressasti og stráði um sig léttum húmor. Já, því voru ekki kvöldin lengri og þorrarnir fleiri? I heimahögum sínum á Bíldudal hafði Gísli stundað hefðbundið nám unglinga, en síðan fór hann í hinn virta skóla við Lindargötuna, er kallaður var Ingimarsskóli. Um það leyti var hann búinn að ákveða það hlutverk er varð hans ævistarf. Hann settist því í Stýrimannaskól- ann og lauk þaðan prófi 1952. Síðan réð hann sig hjá Hval hf. og var þar ýmist stýrimaður eða skipstjóri. Síðustu árin var hann vaktmaður í hvalbátunum, sem af alkunnum ástæðum hafa verið bundnir við bryggju. Þessi fátæklegu orð eru aðeins kveðja til Gísla Benjamínssonar frá + GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR kaupkona á Akranesi, siðartil heimilis á Fálkagötu 5 í Reykjavík, lést í Hafnarbúðum föstudaginn 2. júní síðastliðinn. Hún verður jarðsungin frá Fossvogs- kapellu fimmtudaginn 8. júní kl. 10.30 árdegis. Aðstandendur. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRNS. JÓNSSON, Austurbyggð 17, Akureyri, sem andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn 4. júní, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 9. júní kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Ólöf Björnsdóttir, Birgir Sigurðsson, Anna Björnsdóttir, Stefán Þorsteinsson, Þorsteinn Björnsson, Þóranna Óskarsdóttir, Jón Björnsson, Jóhanna Guðmundsdóttir, Björn Sigurbergsson, Aðalheiður Sigtryggsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + Hjartkær unnusti minn, sonur okkar, bróðir og mágur, ALBERT ÞÓR GUNNARSSON, Brekkubraut 2, Akranesi, sem lést í Borgarspítalanum 3. júní, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju fimmtudaginn 8. júní kl. 14.00. Guðný Eliasdóttir, Rósa Kristín Albertsdóttir, Gunnar Hafsteinsson, Hafsteinn Gunnarsson, Kristjana Jónsdóttir, Lúðvík Gunnarsson. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÍÐUR MARGRÉT HANSDÓTTIR, dvalarheimilinu Jaðri, Ólafsvfk, lést í Sjúkrahúsi Akraness mánudaginn 5. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Hermann Sigurðsson, Ingveldur Karlsdóttir, Kristín Sigurðardóttir, Hallmar Thomsen, Tómas Sigurðsson, Birna Pétursdóttir, Haukur Sigurðsson, Kristín Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Hreinsum upp og gtrum við eldri iegsteina. Höjum einnig legsteina og krossa til sölu. Fjölbreytt úrvaL Gáðjuslega hajið samband í síma 566-6888. Steinaverksmiðjan Korpó | | I Krossar f | áleiði I viSarlit og máloSir. Mismunanai mynsiur, vönduö vinna. Simi 91 -35929 og 35735 Erfidrykkjur Glæsileg kafíi- hlaðborð, falíegir salir og mjög góð þjónusta Upplýsingar í síma 5050 925 FLUGLEIÐIR 1ÍTEL LOFTLEl 1)1K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.