Morgunblaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995 19 Danir framselja nýnasista HÉRAÐSRÉTTUR í Hróars- keldu varð í gær við beiðni stjómvalda í Bonn um að bandaríski nýnasistinn Gary Lauck yrði sendur til Þýska- lands. Þar bíður hans ákæra vegna þess að Lauck, sem gefur út nasistaáróður í heimaborg sinni, Lincoln í Nebraska, hefur komið ritum sínum á framfæri í Þýskalandi. Ströng lög þar í landi banna alla framleiðslu á nasistaáróðri og er Lauck talinn hafa smyglað vamingnum til landsins. Barist í fjöllum Tsjetsjníju RÚSSNESKIR hermenn og uppreisnarmenn í Tsjetsjníju börðust í gær um yfirráð fjalla- þorpsins Vedeno í suðaustur- hluta Kákasushéraðsins. Int- erfax-fréttastofan rússneska hafði eftir talsmönnum skæru- liða að þeir hefðu náð þorpinu á ný af Rússum sem tóku það um helgina. Fulltrúar vamar- málaráðuneytisins í Moskvu vísuðu því ákaft á bug, sögðu Rússa halda Vedeno. Vægur fellibylur FELLIBYLUR fór yfir Florida og Georgíu í Bandaríkjunum um helgina en olli tiltölulega litlu tjóni enda vindhraði ekki jafn mikill og í verstu byljum, hann fór upp í 120 km. Víða flæddi þó yfir götur í fískibæj- um og vinsælum ferðamanna- stöðum á vesturströnd Florida, rafmagnsstaurar og tré brotn- uðu. Allsnægtir í Bretlandi ROTTUR em nú fleiri í Bret- landi en mannfólkið, sérfræð- ingar telja að þær séu um 60 milljónir en tvífættir íbúar um 58 milljónir. Nagdýmnum fer fjölgandi og er talið að ástæðan sé vaxandi magn af sorpi, rott- umar lifi við allsnægtir vegna þess hve miklum matarleifum sé víða fleygt. Einnig virðist þær geta byggt upp mótstöðu við eitri. ERLENT Reuter HELMUT Kohl, kanslari Þýskalands, heimsækir minnigareit um þær sex miiyónir gyðinga sem Þjóðverjar myrtu i síðari heimsstytjöld. Hér er hann ásamt fyrrum þingmanni í ísrael, Yossef Burg, sem er af þýsku bergi brotinn, í „Dal hinna deyddu samfélaga," þar sem grafin eru í stein nöfn bæja þar sem Þjóð- veijar útrýmdu gyðingum í síðari heimsstyijöld. Skýrslu um vopnasölu Breta til írak lekið til fjölmiðla Ráðherra neitar að segja af sér London. Reuter. WILLIAM Waldegrave, ráðherra í ríkisstjóm Johns Majors í Bretland, neitaði staðfastlega í gær að hann myndi segja af sér vegna gagnrýni opinberrar rannsóknamefndar á þátt hans í hneykslismáli er varðar vopna- sölu til írak. Major sakaði stjómar- andstöðuna um rógburð. Uppkasti að skýrslu nefndarinnar var lekið til fréttastofu BBC og segir í því að Waldegrave hafi gefíð þing- inu villandi upplýsingar um stefnu bresku stjómarinnar um vopnasölu á ámnum fyrir Persaflóastríðið 1991. Waldegrave gegnir nú embætti landbúnaðarráðherra, en var aðstoð- amtanríkisráðherra undir lok níunda áratugarins. Hann harðneitaði þegar hann var spurður að því í gær hvort hann myndi segja af sér. Sir Richard Scott, virtur dómari sem fer fyrir rannsókninni, brást ókvæða við fréttum um að drögum að skýrslu hans hefði verið lekið til fjölmiðla. Að sögn aðstoðarmanna dómarans lítur hann á birtingu skýrslunnar sem „óréttmæta notkun á leynilegum upplýsingum." Endan- leg viðhorf dómarans muni koma fram í lokagerð skýrslunnar, ekki uppkasti að henni. Rannsóknamefndin hlýddi á vitn- isburð opinberra starfsmanna um að ríkisstjómin hefði á laun slakað á einarðri stefnu sinni um vopnasölu til írak undir lok níunda áratugar- ins. En Waldegrave tjáði þingheimi margsinnis að engin breyting hefði orðið á stefnu stjómarinnar. Það er álit dálkahöfundar blaðsins The Daily Telegraph að verði loka- gerð skýrslunnar jafn eldfim og uppkastið geti þar með slitnað síð- asta hálmstrá ríkisstjómarinnar, sem á nú litlúm vinsældum að fagna. Dauðarefsing afnumin í Suður-Afríku Jóhannesarborg. Reuter. DAUÐAREFSING var afnumin í Suð- ur-Afríku í gær með ákvörðun stjóm- lagadómstóls. F.W. de Klerk, þáver- andi forseti, stöðvaði dauðarefsingar ótímabundið árið 1989. Nelson Mandela forseti Suður-Afr- íku fagnaði ákvörðuninni. Hins vegar sögðu fylgismenn dauðarefsingar ákvörðunina geta gefíð glæpamönn- um rangar upplýsingar sem væri óvið- eigandi í landi þar sem 50 morð voru framin að meðaltali á dag í fyrra. Dauðarefsingu var síðast beitt 1989 er de Klerk stöðvaði þær með forse- taúrskurði. Sama ár náðaði hann Mandela og aflétti banni af starfsemi Afríska þjóðarráðsins (ANC). 453 fangar biðu aftöku er stjóm- lagadómstóllinn kvað upp úrskurð sinn. Mandela sagði ákvörðunina í engu breyta þeim ásetningi stjómar sinnar að uppræta glæpastarfsemi. Verulega hefur dregið úr pólitískum ofbeldisverkum frá því hann tók við völdum í maí í fyrra en ofbeldisglæpir margfaldast. Helmut Kohl heimsækir minningareit í ísrael Sagði skömm Þjóð- verja vera mikla Jerúsalem. Reuter. HELMUT Kohl, kanslari Þýska- lands, heimsótti í gær ísraelskan minningareit um þær sex milljónir gyðinga sem Þjóðveijar myrtu í síð- ari heimsstyijöld. Við minnisvarða um þá hálfu aðra milljón gyðinga- barna sem Þjóðveijar myrtu sagði kanslarinn:„Þetta er staður sem hlýtur að vekja djúpar tilfinningar hjá Þjóðveija,“ sagði hann. „Þetta er skelfileg minning sem við eigum, og skömm okkar er mikil." í stuttu ávarpi sem Kohl hélt í Yad Vashem minningareitnum í Jerúsalem sagði hann meðal ann- ars: „Maður hlýtur að skammast sín fyrir það sem gert var á hluta saklauss fólks í nafni Þýskalands." Hann gekk um „Dal hinna deyddu samfélaga," sem er hlaðinn úr steinum sem í eru höggvin nöfn bæja þar sem öllum gyðingum var útrýmt í síðari heimsstyijöld. Kansl- arinn las upphátt nöfn bæja í grennd við fæðingarbæ hans, Lud- vigshaven. Einnig átti kanslarinn í gær fund með Yitzhak Rabin og sagði frétta- mönnum að bæði hann og Rabin legðu áherslu á hversu mikilvægt þeir teldu að friðarsamningar ísra- ela og Palestínumanna yrðu endan- legir. Kohl er í viku ferð um Miðaustur- lönd og hefur þegar heimsótt Egyftaland og Jórdaníu. í dag fer hann til Jeríkó á sjálfstjómarsvæði Palestínumanna og á fund með leið- toga þeirra, Yasser Arafat. Finnland Meistara- keppni í konuburði Helsinki. Reuter. ÁRLEG meistarakeppni í konuburði fer fram í úórða sinn í finnska bænum Sonkaj- arvi 1. júlí. Keppendur þurfa að halda á konu, eldri en 17 ára, 253,5 metra vegalengd með hindrunum. Missi keppandi byrði sína eru dæmdar á hann 15 sekúndur í refsingu. Sá sem fer vegalengdina á styst- um tíma fær að launum sem svarar þyngd konunnar í lím- onaði. * Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Vikingalottó • Vikingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Vikingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Vikingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Vikingalottó * Tvöfaldur pottur - verður fyrsti vinningurínn í Víkingalottóinu Vertu með fyrir kl 16:00 miðvikudag millj. kr. 1 Freistaðu gæfunnar - kannski er röðin komin að þér! • Vikingalottó • Víkingalottó • Vikingalottó • Vikingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Vikingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Víkingalottó • Vikingalottó •
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.