Morgunblaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 07.06.1995, Blaðsíða 60
60 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ UIMGLINGAR Magnús Jónsson MAGNÚS Jónsson leikari og tónlistarmaður er viðmælandi okkar í dag. • Hann hefur verið starfandi leikari hjá Leikféiagi Reykjavíkur í fjögur ár, eða síðan hann útskrifaðist frá Leiklistar- skóla íslands vorið 1991. Hann hefur verið viðriðin bíómyndir, bæði stuttmyndir og myndir í fullri lengd. Hann er einnig þekktur sem söngv- tari hljómsveitarinnar Silfurtóna sem hefur verið starfandi um ára- bil. Magnús segir reyndar að Silfur- tónar hafi alltaf verið kallað latasta band á íslandi af því þeir nenni svo lítið að spila og séu mest að spila fyrir sjálfa sig. Hann segir okkur hér frá sjálfum sér og unglingsárum sínum. Eg var mjög erfiður unglingur. Var algjörlega óður alveg frá því ég byrjaði að labba, það var ekkert hægt að hemja mig. Ég var alltaf mikið einn, að gera eitthvað af mér. Ég hafði h'tinn áhuga á skóla og slíku, var mest í því að gera það sem ekki mátti. Einu sinni var ég að labba fram hjá gagnfræðaskól- anum mínum með vinum mínum, skólinn lá eitthvað svo vel við höggi, ég held að við höfum brotið hveija einustu rúðu í honum. Það var allt í þeim dúr að eyðileggja og skemma. Ég var mjög óheflaður yfirleitt og ekkert hægt að siða mig til. Ég held að flestir hafí hald- ið að maður væri á leið til ljandans og það yrði aldrei neitt úr mér. Ég hafði heldur ekki áhuga á nokkrum sköpuðum hlut nema vera í klík- unni, en svo breytist maður svo mikið. Ég flutti úr Garðabænum, þar sem ég er alin upp, þegar ég var 15 ára, eftir það varð ég ró- legri. Mamma og pabbi skildu og ég flutti til Reykjavíkur með pabba, þá varð ég allt í einu voðalega ábyrgur, fullorðinn maður. Um þetta leiti hætti ég í skóla og fór á sjóinn og var á sjónum í ein tvö ár. Það var gott að vera á sjónum og ég held að það hafi kennt mér mikið. Ég hafði verið svona óábyrg- ur tittur og var allt í einu kominn í erfiða vinnu, þar sem maður vann í sex tíma og svaf svo í fimm, sólar- hringum saman. Þarna lærði ég að vinna og vera ábyrgur. Fermingardagurinn Ég held að ég hafi gengið í gegn- um ferminguna eins og flestir sem ég þekki. Lét ferma mig vegna þess að allir gerðu það svo var auðvit- að mikið af gjöfum og peningum inni í þessu. Ég man að ég var ógeðslega fúll þegar ég sá að ég var sá eini í fermingunni sem var með bindi í hópnum. Ég var mjög ólánlegur á myndinni með bindi á meðan allir hinir voru með slaufu og í kirtlinum náttúrulega. Ég lokaði mig bara inni í herbergi þegar veislan var, ef einhver kom þá fór ég fram og tók á móti gjöf- inni og fór aftur inn í herbergi og var þar að telja þeninga. Minnimáttarkennd eða komplexar Ég var með mikla komplexa vegna þess hvað ég var feitur, það var alltaf verið að stríða mér á því. Pabbi átti sjoppu og ég gat legið í sælgætinu, viss for- réttindi það. Og ég held að það hafi líka gert mig hálf geðveik- ann, méð allan sykurinn í kroppnum. Mér var strítt á þessum viðkvæma aldri, fermingaraldrin- um, en svo eltist ég og grenntist og svo var það bara búið. En þetta truflaði mig mjög mikið á meðan á því stóð. Það er þáttur í upp- vextinum að lenda í krísum og takast á við þær, annars verður maður hálf asnalegur full- orðinn held ég. Er eitthvað sem þú sérð eftir að hafa ekki gert? Ég sé eftir að hafa ekki haldið áfram í píanónámi. Ég var í píanó- tímum i þijú ár og sé alltaf eftir því að hafa ekki haldið áfram. Ég var í tímum frá því ég var átta ára þar til ég var ellefu, en hætti þá af því það var svo langt í píanótímana og ég nennti ekki að fara þangað. Ég byijaði reyndar aftur þegar ég var átján ára en þá átti ég að byija á byijuninni og það þoldi ég ekki. Ég er ennþá að svekkja mig á því að hafa ekki haldið áfram. Leikari og poppari Þegar ég var yngri hugsaði ég lítið út í hvað mig langaði til að verða. Það var margt sem mig langaði til að gera, skoða heim- inn og fleira fram- andi. En ég flosnaði snemma upp úr skóla og fór á sjó- inn og tilveran snérist bara um það að vera að vinna og leigja sér húsnæði. Þarna í Garðabænum voru allir að stefna á eitthvað en ég valdi sjóinn. Ég flutti ungur að heiman og fór að sjá fyrir mér, það kom ekki fyrr en seinna að ég fór að hugsa um hvað mig langaði að verða. Hugur- inn hefur frá upphafi hneigst að tónlist, ég hlusta mikið og hef pælt í mússík í gegnum árin, leiklistará- huginn kom svo í kjölfarið á bíóferð- unum. Ég byijaði mjög ungur að fara á bíó, og sá allar myndir, á tímabili var ég kallaður Maggi bíó- glaði af því ég var alltaf í bíó. Nítj- án ára gamall skelli ég mér á leik- listarnámskeið hjá Helga Skúlasyni og ári seinna sæki ég um að kom- ast inn í leiklistarskóla íslands, kemst inn og þá var ekki aftur snúið, og hana nú, eða á eftir. STJÖRNUR C G STÖRFÍSKAR Maggi bíóglaði Leiðist að sofa Nafn: Hrefna Rósa Jóhannsdóttir. Heima: Reykjavík. Aldur: 14 ára. Skóli: Foldaskóli. Hvernig finnst þér skólinn? Allt í lagi. Gaman að hitta krakk- ana í skólanum en sumir kennararn- ir mættu vera strangari. Hvað finnst þér um félagslíf unglinga? Það mætti vera meira, sérstaklega um helgar. Félagsmiðstöðvar eru ekki opnar á laugardög um. Hverju hefur þú áhuga á? Samkvæmisdönsum, mót orhjólum og að skemmta, mér. Hverju hefur þú ekkij áhuga á? Mér finnst leiðinlegt að^ sofa og hafa ekkert aðj gera Hvað er nauðsynlegt fyrir ungling að eiga? Peninga, flott föt og góða foreldra sem leyfa manni að vera lengi úti. Hverju þurfa unglingar ekki á að halda? Áfengi, sígarettum og öðrum vímu- efnum. Hvað er mikilvægast í lífinu? Að stefna að einhveiju, ákveða hvað maður ætlar að verða svo maður geti undirbúið sig fyrir það í fram- haldsskóla og að eiga góða vini. Hvað er í tísku hjá unglingum? Allt og ekkert sérstakt. Hvað er það hallærislegasta sem þú veist um? Mér finnst ógeðslega hallærislegt að reykja. Lest þú dagblöð eða fylgist með fréttum? Já svolítið, ég les dagblöð og erlend tímarit og horfi stundum á 19:19. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Fjölmiðlafræðingur eða flugfreyja. Hvaða þrjú orð lýsa þér best? Lítil, pínu frekja, Ijóshærð. Finnst þér fullorðnir ósanngjarnir gagnvart unglingum? Sumir, alls ekki allir, mér fínnst allt í lagi þetta „stöðv- um unglingadrykkju" og allt það, en sumir þurfa að koma heim á miðnætti þegar aðrir meiga koma heim klukkan þijú og það er svo leiðinlegt fýrir þá sem þurfa að koma heim klukkan 12. Eru unglingar í dag dekurrófur? Já, sumir fá allt sem þeir vilja. Hver er munurinn á sumri og salti? Sumarið er hlítt og gott en saltið er óholt og bindur vatn í líkamanum. Hrefna Rósa Jóhannsdóttir. Sumargleði Sumarið framundan, hvað er hægl að gera? ...vera í sveitinni hjá afa og ömmu... ...passa litlu systkinin... ...vera í sundi alla daga... ...gera könnun á því hvar besti ísinn er seldur... ...æfa sig í að taka til í herberginu... ...lesa námsbækurnar fyrir næsta vetur... ...þvo alla glugga að utan sem innan... ...búa í tjaldi í garðinum... ...vera í stöðugum ferðum með Útivist... ...liggja í leti, sleikja sólskinið og þamba gos... m mmmmmmmmm Það er spurning' Ætlar þú að setja niður kartöflur? Tinna, 14 ára. Nei
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.