Morgunblaðið - 07.06.1995, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ1995 7
Skaut úr hagla-
byssu að manni
Selfossi. Morgunblaðið.
Útivistarsvæði
í Krísuvík
MAÐUR á þrítugsaldri var í Hér-
aðsdómi Suðurlands nýlega dæmdur
í níu mánaða fangelsi, þar af 6 mán-
uði skilorðsbundið, fyrir að skjóta af
haglabyssu á félaga sinn þar sem
hann var inni á kamri á Skeiðamanna-
fit á Skeiðaafrétti. Höglin fóru í gegn-
um kamarinn og í höfuð mannsins
og hlaut hann áverka af. Atburðurinn
átti sér stað 21. ágúst 1994.
Akærði gaf þá skýringu að hann
hafi ætlað að hrekkja félaga sinn. í
dómsorði er lögð á hersla á að um
refsivert og háskalegt athæfi sé að
ræða þar sem öflugu skotvogni hafí
verið beitt á ófýrirleitinn hátt. Ákærða
var fundið til refsilækkunar að hafa
ekki áður gerst sekur um refsilaga-
brot og að framkoma hans við rann-
sókn málsins var óaðfinnanleg.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
ÚTIVISTARSVÆÐI skáta og
fjölskyldufólks undir rót Bæj-
arfells í Krísuvík hefur verið
opnað og héldu hafnfirskir
skátar afmælismót á svæðinu
um helgina. Það er skátafélag-
ið Hraunbúar sem hafa byggt
svæðið upp og skiptist verk-
efnið í ræktun skjólbelta og
túns fýrir tjaldsvæði, ræktun
tijáa í lundum og uppbygg-
ingu hreinlætisaðstöðu.
Forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir, plantaði
fyrstu plöntunum í svæðið og
opnaði það formlega.
• •
Olvuð á stolnum
Málningín
dreifðist
um allt
Morgunblaðið. Akureyri
UNG ölvuð stúlka slapp furðu vel
að sögn varðstjóra lögreglunnar á
Akureyri þegar hún ók á húshorn
við Kaupvangsstræti um kl. 9 á
mánudagsmorgun.
Stúlkan hafði tekið bíl ófrjálsri
hendi á móts við pósthúsið og ók
greitt suður Skipagötu, náði hún
ekki beygjunni upp í Kaupvangs-
stræti og kastaðist bifreiðin yfir á
hornið á húsinu handan götunnar
þar sem veitingahúsið Smiðjan og
Isbúðin eru.
Málari sem var við vinnu sína
við pósthúsið átti bílinn og hafði
skilið lyklana eftir í kveikjunni. í
bifreiðinni voru 26 lítrar af máln-
ingu sem við áreksturinn við hús-
hornið dreifðust yfir bílinn, öku-
mann og húsið.
Stúlkan var flutt á slysadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
en var ekki alvarlega slösuðu að
sögn varðstjóra. Bíllinn er mikið
skemmdur, jafnvel talinn ónýtur.
------» » «----
Samningur
um leig-u-
flugí
Portúgal
ATLANTA hf. hefur gert tveggja
ára samning við Portúgali um leigu-
flug með farþega milli Portúgals
og annarra Evrópulanda og hefur
verið leigð Boeing 373-vél fyrir
þetta verkefni sem þegar er hafið.
Að sögn Arngríms Jóhannssonar,
eiganda Atlanta, er aðallega um
að ræða flug með sólarlandafar-
þega.
I nótt var væntanleg til íslands
leiguvél Atlanta sem annast mun
flug með farþega á vegum Sam-
vinnuferða-Landsýnar í sumar. Að
sögn Arngríms er Atlanta nú með
12 flugvélar í rekstri, en leiguflugi
sem undanfarið hefur staðið yfir
með pílagríma frá Nígeríu lýkur um
miðjan þennan mánuð.
------» ♦ ♦----
Jón Viktor
vann helgar-
skákmót
JÓN Viktor Gunnarsson vann helg-
arskákmót Taflfélags Reykjavíkur
sem lauk á mánudag.
Jón Viktor, sem er 14 ára gam-
all, vann allar skákir sínar, 7 tals-
ins. í 2.-4. sæti voru Arnar E. Gunn-
arsson, Páll Agnar Þórarinsson og
Björn Freyr Björnsson með 5'/2
vinninga.
Prince Polo
í nýjum búningi!
Nú er hið eina sanna Prince Polo komið í nýjar og betri umbúðir.
Fullkomnari framleiðsluaðferðir tryggja þér alltaf nýtt og ferskt Prince Polo.
Mundu eftir því næst þegar þú vilt taka þér góða Prince Polo pásu!
Ásbjörn Ólafeson hf.
Skútuvogi 11A Sími: 588 7900