Morgunblaðið - 07.06.1995, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995 17
Nfrgervi-
hnattasími
kynntur
Atlanta. Reuter.
BANDARÍSKT fjarskiptafyrirtæki
hefur kynnt nýjasta gervihnattasíma
sinn, sem er jafnframt hægt að nota
eins og faxtæki og til gagnafjar-
skipta.
Fyrirtækið Scientific-Atlanta kall-
ar þetta tæki TerraStar-M Model
9826A og það tengir notendur við
svokallað Inmarsat-M eða stafræna
fjarskiptaþjónustu um gervihnetti.
Síminn er á stærð við skjalatösku,
vegur tæp 18 pund og kostar innan
við 13.000 dollara.
Fyrirtækið segir að síminn sé
hentugt tæki þegar slys beri að hönd-
um eða hamfarir eigi sér stað og í
blaðamennsku, orkuleit, hemaðarað-
gerðum og alþjóðaviðskiptum.
Mjólkur-
drykkur frá
Pepsi CoIr
Somers, New Yorkríki. Reuter.
PEPSICo hefur í fyrsta skipti hafið
markaðsetningu á mjólkurdrykk.
Um mjólkurhristing er að ræða
og kallast hann Smooth Moos
Smoothies. Hann er ætlaður ungl-
ingum og honum er dreift í tilrauna-
skyni í Texas og Oklahoma.
Talsmenn Pepsi segja að með
þessu sé ceynt að nota síðustu
ónýttu möguleikana, sem fyrir
hendi séu á drykkjarmarkaði.
Mjólk er fjórði vinsælasti drykk-
urinn í Bandaríkjunum og Pepsi
telur nýjungar tímabærar á 19
milljarða dollara stöðnuðum mjólk-
urmarkaði.
Smooth Moos-hristingur verður
fáanlegur með súkkulaði-, vanillu-,
jarðabeija- og bananabragði.
Handelsbanken
kaupir SKOP
Li Paulnp
Helsinki. Reuter.
SAMRUNI banka á Norðurlöndum
heldur áfram, því að Handelsbanken
(SHB) í Svíþjóð mun taka við rúm-
lega helrhingi fjármuna ríkisrekna
bankans SKOP í Finnlandi að því
er tilkynnt var í síðustu viku.
Handelsbanken, annar stærsti
banki Svíþjóðar, tekur við fjármun-
um upp á 13 milljarða finnskra
marka. Eigið fé SKOP nam alls
23.75 milljörðum í marzlok.
Ekki er fulljóst hve mikið SHB
mun greiða í raun og veru, en
bankastjóri SKOP, Hannu Puhakka,
sagði að endanlegt kaupverð yrði
um 3.5 milljarðar marka. Hann
sagði að bráðabirgðaverð upp á um
3.3 milljarða marka mundi líklega
hækka.
Carl-Axel Olsson, sem stjómar
umsvifum SHB í Finnlandi, sagði
að stefnt yrði að umtalsverðri og
alhliða bankaþjónustu þar. Um
8.000 fyrirtæki í Finnlandi munu
skipta við bankann.
SHB hefur aðallega skipt við fyr-
irtæki í Finnlandi og rekið fá útibú
þar, en gefíð er í skyn að nýjum
útibúum verði komið á fót. Finnski
bankinn Postipankki Oy, sem er í
ríkiseign, og japanska fyrirtækið
Nomura Securities buðu einnig í
SKOP — sem heitir réttu nafni Saa-
stopankkien Keskus-Osake-Pankki.
Að samkomulagi varð að Hand-
elsbanken taki við lánum og ábyrgð-
um SKOP upp á 4,4 milljarða marka
og auk þess iðnvæðingarsjóði Finn-
lands, en eigið fé hans er um 7.6
milljarða marka. Sænski bankinn
kaupir einnig hlutabréf SKOP Fin-
ance, en eigið fé þess dótturfyrir-
tækis nemur einum milljarði marka.
Gjaldþrot
Finnlandsbanki tók við rekstri
SKOP 1991 eftir gjaldþrot, sem
skók undirstöður banka hvarvetna
á Norðurlöndum. Síðan í júní 1992
hefur Ríkisábyrgðasjóður Finnlands
(GGF) átt meirihluta í SKOP.
Bankinn var rekinn með tapi upp
á 1.7 milljarða marka 1993 og einn
milljarð 1994.
Lada rekin
með tapi ’94
Moskvu. Reuter.
LADA-framleiðandinn AvtoVAZ
tapaði 53 milljörðum rúblna (11
milljónum dollara) 1994 og greiðir
ekki arð af hlutabréfum í ár að
sögn talsmanns fyrirtækisins.
Framleiðsla jókst þó fyrstu fjóra
mánuði þessa árs í 186.657 bíla
úr 163.307 á sama tíma í fyrra
að sögn talsmannsins.
AvtoVAZ mætir harðri sam-
keppni frá innfluttum bílum og
hefur orðið að draga úr fyrirætlun-
um um framleiðslu á „alþýðubíl."
Fjárfestingarsamtökum var komið
á fót í fyrra til þess að afla 3
milljarða dollara til verkefnisins,
en aðeins 60 milljónir hafa safn-
azt.
Á þessu ári hyggst AvtoVAZ
flytja út 184.000 bíla samanborið
við 196.000 í fyrra.
Einnig verða framleiddir 250
bílar af nýrri, rennilegri gerð á
þessu ári og framleiðslan aukin í
56.000 1996. Ráðgert er að fram-
leiddir verði 220.000 nýir bílar
a/y&duct
ÚSi'Gofii QmpaAJ/