Morgunblaðið - 07.06.1995, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
FRÉTTIR: EVRÓPA
Edduhót-
elin opn-
uð senn
í SUMAR verða starfrækt átján
Edduhótel víðs vegar um landið.
Þau fyrstu voru opnuð 6. júní, í
Nesjaskóla, Þelamörk og í Reyk-
holti og síðan verður hvert af öðru
opnað gestum og 18. júní verða öll
komin í gagnið.
Nú eru liðin 35 ár síðan þau
fyrstu tóku til starfa, var það í
Menntaskólunum á Laugarvatni og
Akureyri. Með því að nýta heima-
vist í þessum skólum var leyst brýn
þörf fyrir gistingu fyrir erlenda
ferðamenn en þá var mjög lítið
framboð á gistingu utan Reykjavík-
ur.
Fljótlega bættust fleiri við og
Edduhótel hefur verið samheiti
þeirra frá 1967. Hótel Edda á
Kirkjubæjarklaustri er rekið allt
árið en hin yfirleitt aðeins á sumrin.
Mikil uppbygging
hefur orðið víða
Fyrstu árin var aðstaðan mjög
ólík því sem er nú, húsgögn og
búnaður skólanna var nýttur eftir
fögnum og þægindi víða af skornum
skammti. Kröfur ferðamanna hafa
aukist hvort sem eiga í hlut innlend-
ir eða erlendir ferðamenn og hefur
þeim verið mætt með miklum end-
urbótum á húsnæði og búnaði. Oft
hefur það verið í samvinnu við við-
komandi skóla og sveitarfélög.
Eins og áður getur er Hótel Edda
á Klaustri opið árið um kring. Öllum
herbergjum fylgir bað og þar er
myndarlegur veitingasalur ásamt
fundaraðstöðu. Allmikið hefur verið
um að félagasamtök og fyrirtæki
efni til funda eða skemmtiferða að
Klaustri.
Á Stórutjörnum, sem er 50 km
fyrir austan Akureyri, hefur einnig
verið mikil uppbygging og eru þar
nú 16 2ja manna herbergi með
baði sem voru tekin í notkun fyrir
Nesjavöllum.
2 árum. Önnur hafa einnig verið
endurnýjuð.
Á öllum Edduhótelunum eru veit-
ingasalir þar sem hægt er að fá
smárétti eða veislumat. Yfirleitt
gefst kostur á svefnpokaplássi ef
menn vilja. Síðustu sumur hafa
hótelin boðið þeim sérkjör sem gista
íjórar nætur eða fleiri. Er þá 5.
nóttin ókeypis og skiptir ekki máli
hvort gist er á sama hótelinu allar
næturnar eða eina nótt á hveijum
stað.
Sem dæmi um verð má nefna
að tveggja manna herbergi með
handlaug kostar 4.550 en með baði
6.700. Eins manns herbergi með
baði kostar 5.000. Svefnpokapláss
í skólastofu kostar 850 kr. og í
herbergi með handlaug 1.350 kr.
Morgunverður er á 700 krónur.
Vífilsganga
Hafnar-
göngu-
hópsins
Morgunblaðið/Þorkell
INGUNN og Þorsteinn Thorarensen hjá Fjölvaútgáfunni halda
hér á hluta Islandsbókanna en þær eru alls til á níu tungumálum.
Islandsbók á
níu tungumálum
KOMNAR eru út fimm nýjar bækur
í bókaflokki Fjölvaútgáfunnar, ís-
landsbækur, en þær eru unnar í
samstarfi við þýsku Herder-útgáf-
una í Freiburg.
Alls eru nú íslandsbækurnar til
á níu tungumálum, meðal annars á
rússnesku og japönsku. Síðast-
nefnda útgáfan er eina íslenska
landkynningarbókin sem til er á
japönsku og sú rússneska leysir af
hólmi aðra sem komin er vel til ára
sinna. Auk þess kemur íslandsbókin
í fyrsta sinn út á spænsku, dönsku
og sænsku. Að sögn Þorsteins Thor-
arensens hjá Fjölvaútgáfunni ráð-
gerir hann næst útgáfur á finnsku,
arabísku og hebresku.
íslandsbókunum verður öllum
dreift í verslanir innanlands en
danska útgáfan, eftir Aldísi Sigurð-
ardóttur, verður einnig'seld í Dan-
mörku. Aldís, sem er hálfdönsk og
hálfíslensk, er lektor við Háskóla
íslands. Titill bókar hennar er „Den
lykkelige skilsmisse", eða Farsæll
skilnaður._
Texti íslandsbókanna er sjálf-
stæður á hverju tungumáli fyrir
sig. Höfundarnir eru flestir útlend-
ingar sem þekkja vel til íslands og
lýsa persónulegri reynslu sinni af
landinu og íbúum þess, stundum i
samstarfí við íslenska höfunda.
Meðal höfunda má nefna Gérard
Lemarquis, stundakennara við há-
skólann, Sigurður A. Magnússon,
rithöfund, Aitor Yraola, lektor, og
Guðberg Bergsson, rithöfund. Ljós-
myndirnar eru þær sömu í öllum
útgáfunum, eftir Þjóðveijann Erieh
Spiegelhalter.
HAFNARGÖNGUHÓPURINN ýtir
úr vör nýrri raðgöngu, Vífils-
göngunni, og er ætlunin að ganga
annaðhvert miðvikudagskvöld. Far-
ið er frá Víkurbæjarstæðinu, suður
að Vífilsstöðum í tveimur fyrstu
áföngunum. Gangan hefst með til-
vísan í sögnina um Vífil leysingja
Ingólfs og Hallgerðar en sagt er
að hann hafi fyrir hvern róður frá
Gróttu gengið á Vífilsfell til að gá
til veðurs! Með aðstoð fróðra manna
verður reynt að sjá fyrir sér hvern-
ig landslagi og gróðri var háttað
um árið 900.
Raðgangn hefst í kvöld, 7.júní,
kl. 20 við stóra tjaldið á Miðbakka.
Athugið breyttan brottfararstað.
Eftir stutt spjall um framkvæmd
raðgöngunnar verður farið upp
Grófina að hinu gamla bæjarstæði
Víkur. Síðan verður gengið suður
í Skeijafjörð og inn í Fossvogsdal.
í Fossvogsbotni lýkur fyrsta
áfanga. Allir eru velkomnir í ferð
með Hafnargönguhópnum.
-----♦ ♦ ♦-----
Sunnlensk kynning
Land og
Ejgar 95
Hella. Morgunblaðið.
TÍMARITIÐ Land og Eyjar 95 er
komið út, en það er gefið út af
Sunnlenskri kynningu. Ritið er gef-
ið út í 20 þúsund eintökum og dreift
ókeypis til sumarhúsaeigenda og á
helstu viðkomustaðum ferðamanna
í héraðinu.
Að sögn Jóns Þórðarsonar, sem
stendur að Sunnlenskri kynningu
ásamt Bjarna Harðarsyni, er ritinu
ætlað að leiðbeina og fræða íslenska
ferðalanga á Suðurlandi. í því eru
upplýsingar um markverðustu stað-
ina, uppákomur sumarsins og fjöl-
breytta ferðaþjónustu. Þrjár sýslur
Suðurlands eru til umfjöllunar, Ár-
nes-, Rangárvalla- og V-Skafta-
fellssýsla auk Vestmannaeyja og
er efninu raðað niður í blaðið eftir
sveitarfélögum. Texti blaðsins er
að mestu unninn af Birni Hróars-
syni jarðfræðingi og Aðalheiði E.
Asmundsdóttur, en ritstjóri og
ábyrgðarmaður er Jón Þórðarson.
Sjómannadagsblað Vestmannaeyja
er komið Út og fæst á eftirtöldum stöðum:
Reykjavík:
Umferðarmiðstöð BSl,
Grandakaffi, Grandagarði,
Eymundsson, Austurstræti.
Kænunni, bensínstöð, Hanarfirði,
Bókabúð Keflavíkur,
Bensínstöð Esso, Garðinum,
Versluninni Bárunni, Grindavík,
Bókabúð Jónasar, Akureyri,
Bókabúð Andrésar Níelssonar, Akranesi.
Enn langt í samning við Marokkó
Bonino reynir að
mýkja Spánverja
Brussel. Reuter.
ENN ER langt í að Evrópusamband-
ið og Marokkó nái samkomulagi um
fiskveiðar skipa ESB í marokkóskri
lögsögu, að sögn Marcos Zatterin,
talsmanns sambandsins í sjávarút-
vegsmálum. Marokkómenn höfnuðu
í síðustu viku tilboði ESB í fimmtu
umferð viðræðna um nýjan fiskveiði-
samning.
Að sögn Zatterins bar mikið á
milli á samningafundi í Rabat á
föstudag. Marokkómenn höfðu fyrir
fundinn sagzt ekki myndu víkja frá
kröfum um að kvóti ESB yrði skor-
inn niður um 30-65% eftir tegund-
um. Að sögn fulltrúa í marokkósku
sendinefndinni gerði tilboð ESB ráð
fyrir 10-30% niðurskurði kvóta.
Framkvæmdastjórn ESB, sem fer
með samningsumboðið, mun nú ráð-
færa sig við aðildarríkin, einkum
Spán, sem ráðið hefur yfir íangflest-
um veiðileyíum skipa frá ESB f lög-
sögu Marokkó. Emma Bonino, sem
fer með sjávarútvegsmál í fram-
kvæmdastjórninni, mun funda með
Felipe Gonzalez forsætisráðherra og
Luis Atienza sjávarútvegsráðherra í
Madríd næstkomandi föstudag.
Búizt er við að Bonino reyni að
mýkja spænsk stjórnvöid og fá þau
til að sýna meiri sveigjanleika í
samningunum við Marokkó til þess
að ná megi samkomulagi.
Spænska stjórnin undir
þrýstingi heima fyrir
Spænska stjórnin er undir póli-
tískum þrýstingi heima fyrir, þar
sem hundruð reiðra fiskimanna hafa
hindrað fiskinnflutning frá Marokkó
í hafnarborginni Algeciras. Um 650
spænskir bátar liggja nú verkefna-
lausir i höfn eftir að fyrri samningur
við Marokkó rann út.
Brittan blandar
sér í bíladeiluna
SIR LEON Brittan, sem fer með
utanríkisviðskiptamál í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambands-
ins, átti í gær fundi með japönsk-
um ráðamönnum í Tókýó og sést
hér með Tomiichi Murayama for-
sætisráðherra. Brittan sagði að
ESB myndi ekki líða að Japan
og Bandaríkin gerðu með sér
samkomulag til að leysa bílavið-
skiptadeilu sína, ef sambandið
liti svo á að það bryti gegn evr-
ópskum hagsmunum eða reglum
Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.
Brittan sagði að yrðu japanskir
bílaframleiðendur við kröfum
Bandaríkjamanna um að kaupa
„sjálfviljugir" meira af banda-
rískum varahlutum, myndu Evr-
ópumenn líta svo á að um við-
skiptastýringu væri að ræða, sem
beindist gegn hagsmunum ESB.
Vonbrigði í Austurríki með ESB-aðild
Verðlagið enn hátt
en samkeppni eykst
Vín. Reuter.
MARGIR Austurríkismenn hafa
orðið fyrir vonbrigðum með að
loforð stjórnmálamanna um mikla
Iækkun á verði nauðsynjavara
með aðild að Evrópusambandinu
hafa ekki gengið eftir. Hins vegar
hefur ESB-aðiIdin, ásamt efna-
hagsuppsveiflu í Ungverjalandi
og Tékkóslóvakíu, aukið sam-
keppni um hylli austurrískra
neytenda.
Til tannlæknis í Ungverjalandi
Austurríkismenn streyma nú
yfir landamærin til nágrannaríkj-
anna; ESB-landanna Þýzkalands
og Italíu eða nýfrjálsu ríkjanna
Ungverjalands og Tékkóslóvakíu;
til að gera góð kaup, ekki sízt um
helgar.
Kaup á áfengi í Þýzkalandi
hafa margfaldazt, enda er leyfi-
legt samkvæmt reglum ESB að
fara með umtalsvert magn áfeng-
is á milli aðildarríkja, án þess að
greiða tolla. Verðlag á áfengi er
hátt í Austurríki og hefur austur-
ríska verzlunarráðið krafizt þess
að skattar á vín og sterka drykki
verði lækkaðir í Austurríki.
Vegna gengisþróunar er mjög
hagstætt fyrir Austurríkismenn
að kaupa föt á Ítalíu. Þá er al-
gengt að fólk sæki sér tannlækna-
þjónustu til Ungverjalands og
kaupi gleraugu í Tékkóslóvakíu.
Kostar 10.000 störf
Sérfræðingar telja að missir
viðskipta út fyrir landamærin
geti haft í för með sér missi allt
að 10.000 starfa og mikið tekjutap
fyrir kaupmenn.
Hins vegar er bent á að sam-
keppnin muni sennilega ýta undir
aukið fijálsræði á vinnumarkaði,
rýmri afgreiðslutíma verzlana og
betri þjónustu.
s
>
}
)
I
I
I
I
I
i
I