Morgunblaðið - 07.06.1995, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ1995 21
Keuter
Réttarhöldin í Simpson-málinu
Tveim vikið úr dómi
Los Angeles. Reuter.
DÓMARINN í Simpson-málinu í
Los Angeles, Lance Ito, bjó sig
undir það í gær að víkja tveim kvið-
dómendum frá. Var þá ljóst að enn
myndu réttarhöldin tefjast því að
verjendur 0. J. Simpsons voru stað-
ráðnir í að reyna að koma 5 veg
fyrir brottvikningu annars dómand-
ans.
Lögfræðingar knattspyrnuhetj-
unnar, sem grunuð er um morð á
fyrrverandi eiginkonu sinni, Nic-
ole, og vini hennar, sögðu í gær
að sakborningurinn vildi ekki vera
í réttarsalnum þegar réttarlæknir-
inn yrði látinn lýsa í smáatriðum
og með ljósmyndum sjálfum morð-
unum. Aðalveijandinn, Johnny
Cochran, taldi að það yrði „afar
erfitt" fyrir Simpson að hlusta á
frásagnir af því hvernig dauða
móður barna hans hefði borið að
höndum.
Ekki var búið að skýra frá því
hverjir kviðdómendurnir tveir væru
en talið að annar væri 28 ára göm-
ul kona úr röðum spænskumælandi
Bandaríkjamanna. Hún er sögð
hafa reynt að vara annan kviðdóm-
anda, Francine Florio-Bunten, við
því að verið væri að rannsaka vænt-
anleg bókarskrif hennar um réttar-
höldin. Florio-Bunten var síðar vik-
ið úr dóminum.
Hinn dómandinn er karl, starfs-
maður hjá póstþjónustu og munu
aðrir í kviðdóminum hafa kvartað
undan því að hann væri uppivöðslu-
samur.
Fórnar-
lamba Stal-
íns minnst
LECH Walesa, forseti Póllands,
vottar minningu 15.000 pólskra
liðsforingja, sem sovéski einræð-
isherrann Jósef Stalín lét myrða
vorið 1940, virðingu sína. Athöfn-
in fór fram í Katyn-skógi, skammt
frá Smolensk í Rússlandi, á sunnu-
dag. Framan var þýskum nasistum
yfirleitt kennt um morðin á liðs-
foringjunum, sem voru handtekn-
ir er Pólland gafst upp 1939 fyrir
sameinuðum heijum Stalíns og
Adolfs Hitlers, en Pólveijar vissu
betur og hafa morðin varpað
skugga á samskipti Pólveija og
Rússa um áratuga skeið.
------»■ ♦-------
Leysir Bildt
Owen af
hólmi?
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
LENA Hjelm-Wallén, utannkisráð-
herra Svía, hefur staðfest að Carl
Bildt, formaður sænska Hægri-
flokksins og fyrrum forsætisráð-
herra, sé einn af þeim, sem nefndir
eru sem hugsanlegir eftirmenn Ow-
ens lávarðar, sáttasemjara Evrópu-
sambandsins (ESB) í Bosníudeilunni.
Owen hefur ákveðið að láta af störf-
um, eftir að hafa freistað þess und-
anfarin ár að miðla málum í Bosníu.
Hjelm-Wallén sagði að Bildt væri
einn þeirra, sem hugsanlega kæmu
til greina sem eftirmenn Owens, en
hún vildi ekki tjá sig um hvort
sænska stjómin styddi tilnefningu
Bildts.
Af hálfu Breta hefur verið látið í
veðri vaka að best færi á að eftirmað-
ur Owens væri ekki frá einu af stóru
löndunum, heldur einhveiju öðru
landi. Bildt þykir afburða vel að sér
á sviði utanríkismála og hefur fylgst
vel með þróuninni í Bosníu.
......■»-♦-■»----
Vatn á sólinni
London. The Daily Telegraph.
VÍSINDAMENN hafa uppgötvað, að
vatn eða vatnsgufu er að finna á
yfirborði sólar, í sólblettum þar sem
hitinn er 2.765 gráður á selsíus og
helmingi minni en hann er annars
staðar á yfirborðinu.
Það voru starfsmenn Kitt Peak-
rannsóknastöðvarinnar í Arizona í
Bandaríkjunum, sem fundu vatns-
gufuna með tækjum, sem greina
efnasamsetningu með ljósöldumæl-
ingum.
„Þetta kom okkur alveg í opna
skjöldu og sýnir hve lítið við vitum
um hegðun vatns við mikinn hita,“
sagði dr. William Livingston við há-
skólann í Tucson en hann er einn
af höfundum greinar um þessa upp-
götvun í tímaritinu Science. Segir
hann, að súrefni og vetni verði að
vatni í sólblettunum enda hafi þau
mikla tilhneigingu til að mynda efna-
samband.
Nýr, einfaldur, ódýr og öruggur kostur fyrir
gjaldeyrissendingar til Evrópulanda
íslandsbanki býbur nú upp á nýjan
möguleika vib ab koma greibslu í erlendri mynt til
móttakanda innan Evrópu*. Þessi nýjung hefur
verib nefnd Samsending og hentar vel fyrir þá
sem vilja koma fjárhœb undir ákvebnu hámarki
til skila á skömmum tíma. Hámarksfjárhœb send-
ingar er mismunandi eftir löndum eba frá
200.000 - 700.000 kr.
Kostnabur vib Samsendingu er lœgri en
fyrir abrar sambœrilegar greibslur. Sendandi
greibir abeins 400 kr. gjald og getur jafnframt
tryggt þab ab greibslan komist til skila án
aukakostnabar fyrir móttakanda meb 400 kr.
aukagjaldi.
Meb þessum nýja möguleika er verib ab
tryggja örugg skil meb lœgri tilkostnabi og ab
móttakandi verbi ekki látinn greiba kostnab óski
sendandi greibslunnar þess.
Allar nánari upplýsingar fást í útibúum
Islandsbanka.
ÍSLANDSBANKI
- í takt vib nýja tíma!
*Þegar hefur verið samið við banka í Danmörku, Svíþjóð, Bretlandi, Hollandi og Þýskalandi.