Morgunblaðið - 07.06.1995, Page 40
40 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
t
Elskuteg móðir okkar,
ÞURÍÐUR EGGERTSDÓTTIR,
er látin.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Innilegar þakkir til starfsfólks Grundar.
Börnin.
t
Elskulegur bróðir minn,
GUNNARA. HUSEBY,
verður jarðsunginn frá Neskirkju í dag, miðvikudaginn 7. júní,
kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Afrekssjóð KR, íslands-
banka, Bankastræti, nr. 515-26-1240.
Britha Huseby.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
JÓRUNN ÞORGEIRSDÓTTIR,
Stöðlakoti,
sem lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 3. júní sl., verður jarðsungin frá
Breiðabólsstaðarkirkju, Fljótshlíð, laugardaginn 10. júníkl. 14.00.
Halla Sigurðardóttir, Ólafur Ó. Jónsson,
Anna Sigurðardóttir, Einvarður G. Jósefsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Bróðir minn,
GUÐMUNDUR KR. HELGASON,
Efra-Apavatni,
Laugardal,
lést í Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, 5. júní.
Jón Sölvi Helgason.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGURVEIG MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR,
Kirkjuvegi 26,
Vestmannaeyjum,
lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja mánudaginn 5. júní.
Ólafur Örn Kristjánsson, Roma Kristjánsson,
Sigurjón M. Kristjánsson,
Anna María Kristjánsdóttir, Hörður Þórðarson,
Hrafnhildur K. Kristjánsdóttir,
Trausti Kristjánsson, Eygló Eiríksdóttir,
Fanney Kristjánsdóttir, Ari Björnsson,
Kristján Kristjánsson, Kolbrún Kolbeinsdóttir,
Margrét Elsabet Kristjánsdóttir, Sigurður B. Alfréðsson,
Bjarki Kristjánsson, Lára K. Lárusdóttir,
Brynjar Kristjánsson, Ragnheiður Borgþórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
KRISTÍN S. SIGURBJÖRNSDÓTTIR,
Hólabraut 5,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðar-
kirkju föstudaginn 9. júní kl. 15.00.
Sigrún Þorsteinsdóttir, Sigurður Halldórsson,
Viggó Þorsteinsson, Margrét Bjarnadóttir,
Hjördís Þorsteinsdóttir, Gísli Sigurgeirsson,
Sigurbjörn Þorsteinsson, Sigríður S. Þormóðsdóttir,
Þorsteinn Þorsteinsson, Margrét Hafsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
JORUNN SIGURLÍN
ÓLAFSDÓTTIR
+ Jórunn Sigurlín
Ólafsdóttir
fæddist á Garða-
koti í Mýrdal 12.
nóvember 1903.
Hún lést á sjúkra-
deild Hrafnistu í
Hafnarfirði 29. maí
sl. Foreldrar Sigur-
línar voru Ólafur
Bjarnason bóndi í
Keldudal í Mýrdals-
sveit og Guðrún
Dagbjartsdóttir.
Systkini Sigurlínar
eru: Bjarni, Gunn-
ar, Dagbjört (öll
látin), Bjarngerður og Anna
(sem eru enn á lífi) Sigurlín
ólst upp í Keldudal en fluttist
í DAG er borin til moldar Sigurlín
Ólafsdóttir frá Vestmannaeyjum,
eða Lína amma eins og við barna-
börnin kölluðum hana. Það er
margs að minnast sem hægt væri
að skrifa margar bækur um en hér
gefst ekki ráðrúm til þess og ætla
ég að stikla á stóru úr lífi ömmu.
Sigurlín var barngóð og skemmtileg
amma. Lína amma og Jón byggðu
sér fallegt hús á Skólavegi 45 í
Vestmannaeyjum (Kirkjudalur). Og
á sumrin var oft gestkvæmt þar
því barnabörnunum þótti gott að
vera hjá Línu. Þegar börn fóru í
sveitina á sumrin þá þótti það jafn
eðlilegt að ég færi til Eyja til að
vera hjá Línu ömmu og Jóni afa.
Mikill og góður andi ríkti ætíð í
Kirkjudal og oft mátti finna kleinu-
lyktina langt niður eftir götu, því
Lína bjó til bestu kleinur sem gerð-
ar höfðu verið norðan Alpafjalla.
Lína átti líka dágott safn af hljóm-
plötum, bæði 78 og 45 snúninga.
Það var ætíð gaman að fá að
ung til Vestmanna-
eyja. Sigurlín gift-
ist Jóni Hinrikssyni
frá Fáskrúðsfirði
og eignuðust þau
saman þrjú börn en
fyrir átti Sigurlín
eina dóttur, Sól-
rúnu, f. 1930, sem
hún eignaðist með
Gesti Gíslasyni.
Börn Sigurlínar og
Jóns eru: Fríður, f.
1939, Hrefna, f.
1941, og Baldur, f.
1944.
Útför Sigurlínar
fer fram frá Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði miðvikudaginn 7.
júní og hefst athöfnin kl. 10.30.
gramsa í plötusafninu og hlusta á
fræga kappa s.s. Fats Domino,
Hauk Mortens o.fl. Stundum þegar
ég var að spila þá átti Lína það til
að taka dansspor með mér og held
ég að það hafi verið með fyrstu
kennslustundum í gömlu dönsunum
sem ég fékk um ævina. Lína var
alltaf passasöm á peninga og ekki
lét hún sér nægja að passa sína
eigin peninga heldur gætti hún þess
alltaf vel að ég færi vel með þá
peninga sem ég vann mér inn úti
í Eyjum og held ég að fleiri barna-
böm hafi sömu sögu að segja. Lína
og Jón bjuggu í Vestmannaeyjum
fram að eldgosinu árið 1973. Eins
og hjá mörgum öðrum Vestmanna-
eyingum þá setti það djúp spor í líf
þeirra. Lína og Jón fluttu þá til
Hafnarfjarðar og bjuggu þar síðan.
Árið 1983 lést Jón afi og skömmu
seinna fluttist Lína á Hrafnistu.
Það er ekki annað hægt að segja
en að Lína hafi alltaf fylgst vel
með, meira að segja þó að hún
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN EIRÍKSDÓTTIR
frá Hlíð,
A-Eyjafjöllum,
til heimilis
íHraunbæ 68,
lést í Landspítalanum 4. júní.
Jarðarförin fer fram frá Eyvindarhóla-
kirkju laugardaginn 10. júní kl. 14.00.
Steingrímur Guðni Pétursson,
Hugrún K. Helgadóttir, Guðjón M. Ólafsson,
Eirfkur I. Sigurjónsson, Guðrún Guðmundsdóttir,
Sigurlfn Þ. Sigurjónsdóttir, Einar Jónsson,
Sigurgeir H. Sigurjónsson, Eva Helgadóttir
og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur
og bróðir,
EIRÍKUR GRÖNDAL,
lést þann 5. júní.
Útförin ferfram frá Bústaðakirkju föstu-
daginn 9. júní kl. 10.30.
Elín Einarsdóttir,
Brynjar Eiríksson,
Kolbrún Ingólfsdóttir
og systkini hins látna. -
hafi verið komin yfir nírætt. Allt
hafði hún á hreinu, hver væri sonur
hvers eða hver bjó í hinu eða þessu
húsinu úti í Eyjum. Margar vinkon-
ur átti Lína. Eru þær flestar látnar.
Eftir langan ævidag kveðjum við
nú Sigurlín Ólafsdóttur. Guð hefur
verið henni góður og gefið henni
gott og langt líf. Ættkvísl hennar
teygir nú anga sína víða og ætt
hennar mun lifa um aldur og ævi.
Elsku amma mín, ég vil þakka þér
fyrir allar góðu stundirnar og megi
Guð vera með þér að eilífu.
Þinn dóttursonur,
Sigurjón Haraldsson.
Hún amma mín er farin, farin
þangað Sem vel er tekið á móti
henni.
Henni líður örugglega vel núna.
Amma var kjarnorkukona. Hún
var ætíð dugleg og pijónaði mikið.
Lína amma hafði mjög gaman af
því að segja sögur frá yngri árum
en hún var minnugri en margur
þrátt fyrir að vera orðin níutíu og
eins árs.
Það var á síðasta ári sem amma
byrjaði að veikjast alvarlega og átti
hún erfitt með að sætta sig við
það, því hún vildi aldrei láta hafa
neitt fyrir sér.
Eftir að hún var farin að sjá að
veikindin háðu henni var hún vilj-
ugri til þess að leyfa mér að stjana
við sig og var hún virkilega þakklát
fyrir það.
Það var gaman að vera hjá henni
og kom hún mér oft á óvart með
hnittnum setningum og það var
greinilegt að það var stutt í kímnina
hjá henni.
Lína amma var mikið snyrti-
menni og vildi alltaf vera vel til
fara. Þegar ég heimsótti hana eydd-
um við yfirleitt góðum tíma saman
í að snyrta neglurnar, andlitið og
ekki spillti fyrir að fá smá nudd.
Hún kallaði mig snyrtikonuna sína.
Amma var lítið fyrir að tjá tilfinn-
ingar sínar og gerði það yfirleitt
aldrei mér vitandi. En fyrir nokkr-
um mánuðum fékk hún mig til þess
að tárast, en þá sagði hún við mig
að hún væri heppnasta amma á
Hrafnistu því það ætti enginn eins
gott barnabarn og hún sem nennti
að hugsa svona vel um gamla konu
og bætti svo við, að henni þótti svo
rosalega vænt um mig. Það var
ekki oft sem hún talaði svona og
eru þessi orð hennar geymd en
ekki gleymd.
Eg er mjög ánægð að hafa feng-
ið tækifæri til þess að eyða góðum
tíma með henni ömmu minni til
hinsta dags.
Ég mun sakna hennar og varð-
veita vel þær minningar sem ég á
um hana.
Að lokum er hér ljóð eftir Davíð
Stefánsson frá Fagraskógi en við
lásum saman ijöldann alian af ijóð-
um eftir hann, enda var hann henn-
ar uppáhalds ljóðskáld.
Þú varst minn vetrareldur.
Þú varst mín hvíta lilja,
bæn af mínum bænum
og brot af mínum vilja.
Við elskuðum hvort annað,
en urðum þó að skilja.
Ég geymi gjafir þínar
sem gamla helgidóma.
Af orðum þínum öllum
var ilmur víns og blóma.
Af öllum fundum okkar
slær ævintýraljóma.
(Davíð Stefánsson frá Fagraskógi).
Þín sonardóttir,
Sigurlín Jóna Baldursdóttir.
AÐALNUMER
|HiOr0tml4ílí>ÍÍ>
- kjarni málsins!