Morgunblaðið - 07.06.1995, Page 52
52 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
uxur B olir öermudas
ílfýkomnir
stakir jakkar
og dragtir
tískuverslun v/Nesveg, sími 561 1680.
Búnaðarbariki íslands,
aðalbanki Aiísturstræti 5, Rvk.
525 6400
I Búnaðarbanki íslands,
austurbæjarútibú við Hlemiti,Rvk.
. Önnur símanúmer bankans breytast
samkvæmt nýja símanúmerakeninu.
BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
Blab allra landsmanna!
- kjarni málsins!
IDAG
SKÁK
Umsjön Margeir
Pétursson
HVÍTUR leikur
og vinnur
Staðan kom upp á minn-
ingarmótinu um Mikhail
Tal í Riga í Lettlandi í
vor. Indverjinn Vyswan-
athan Anand(2.715) hafði
hvítt og átti leik gegn Jan
Timman (2.620), Hol-
landi.
Hvítur virðist vera að
tapa biskupnum á c2, en
Anand hafði séð lengra:
45. Hxf6! og Tim-
man gafst upp. Hann
á um tvær leiðir að
velja: a) 45. - Dxf6
46. Dh7+ - Kf8 47.
g7+ - Ke8 48. Ba4+
og vinnur eða b) 45.
- Hxc2 46. Hf7 -
Dh8 47. Hh3 og
svarta drottningin
fellur.
Anand vegnaði vel
á mótinu, varð í öðru
sæti á eftir Kasparov
og er það enn ein vis-
bending þess að hann muni
veita Kasparov mjög harða
keppni í heimsmeistaraein-
víginu í haust. Timman
varð hins vegar með neðstu
mönnum og virðist í einum
mesta öldudalnum á öllum
sínum ferli.
Pennavinir
NÍTJÁN ára japönsk stúlka
með áhuga á listmálun:
Maki Fukui,
2-2-13 Obe Kawa-
nishi-shi
Hyogo-ken 666,
Japan.
TVÍTUGUR Breti með
áhuga á íslandi og tónlist
Bjarkar:
Daniel Holdsworth,
6 Railway cottage,
Ferryroad,
Hessle,
North Humberside,
HU13 OEB,
England,
TUTTUGU og fimm ára
sænskur piltur, vill helst
skrifa á sænsku:
Hákan Pettersson,
HöstvSgen 12,
730 50 Skulltuna,
Sweden.
FJÓRTÁN ára sænsk stúlka
með margavísleg áhuga-
mál:
Sofia Swahn,
Storgatan 93,
57734 Hultsfred,
Sweden.
ÁTJÁN ára stúlka í Litháen
með mikinn áhuga á íslandi
og safnar póstkortum:
leva Govedaite,
Dukstu 12-20,
2010 Vilnius,
Lithuania.
ÞRÍTUGUR Breti vill eign-
ast pennavinkonur:
Paul Hambleton,
60 Ash Lane,
WeUs,
Somerset,
BA5 2LS,
England.
SAUTJÁN ára japönsk
stúlka með marvísleg
áhugamál:
Fumie Watanabe,
442-3 Umaki-cho,
Matsuyama,
Ehime 799-26,
Japan.
ÞÝSKUR háskólastúdent
sem getur hvorki um aldur
né áhugamál:
David Abraham,
Löwenstr. 43B,
70597 Stuttgart,
Germany.
ÍTALSKUR háskólastúdent
með mikinn íslandsáhuga:
Mariano Pio Spagnoli,
via G. Meda 35,
20141 Milano,
Italy.
ENSK húsmóðir vill skrifast
á við konur á fertugsaldri.
Áhugamálin eru margvís-
leg:
Mrs. Carol Jarman,
18 Poplar Close,
Biggleswade,
Beds. SG18 OEW,
England.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Sæmundur
þaJkkar fyrir
sig-
ÉG ÞAKKA fyrir kom-
una og gjafir og skeyti
í fimmtugsafmæli mínu
4. júní sl. Lifið heil.
Sæmundur
Kristjánsson,
Álfhólsvegi 43a,
Kópavogi.
Óreiða hjá
ríkinu
ÞORSTEINN Brynjólfs-
son hringdi og kvartaði
yfir því hve seint ávísan-
ir frá hinu opinbera ber-
ist til launþega. Hann er
eftirlaunaþegi og segir
það bagalegt þegar út-
burður dregst úr hömlu.
Þetta getur komið illa við
marga sem þurfa að
standa skil á greiðslum,
s.s. húsaleigu, hita
o.þ.u.l. Þann 6. júní hafði
hann ekki fengið ávísuna
senda og hvetur hann hið
opinbera til að taka sig
á í þessum efnum.
Tapað/fundið
Peningaveski
fannst
SVART peningaveski
með engum skilríkjum
en einhveiju af pening-
um fannst á milli Mela-
búðarinnar og Sundlaug-
ar Vesturbæjar laugar-
daginn 27. maí sl. Upp-
lýsingar í síma 5517975
á kvöldin.
Silfurhringur
tapaðist
KARLMANNSHRING-
UR úr silfri með blóð-
steini tapaðist í Hvera-
gerði fýrir mánuði,
sennilega í námunda við
Heilsuhælið. Upplýs-
ingar í síma 5539192.
Barnakerra í
óskilum
BARNAKERRA hefur
verið í óskilum í tæpan
mánuð í Vesturbænum.
Uppl. í síma 5528774.
Farsi
„ Bg btyst vifrþui a5 þú hotfirhtilcL&
ao þxr hctfú komist hingab fyrirSiysriu’
Víkveiji skrifar...
AÐ VAR mikið um dýrðir í
Hallgrímskirkju um hvíta-
sunnuhelgina, en sl. laugardag var
setingarathöfn Kirkjulistahátíðar
þar með glæsilegri dagskrá, þar
sem m.a. 9 barnakórar úr Reykja-
víkurprófastsdæmum frumfluttu
nýja sálma eftir sr. Kristján Val
Ingólfsson, við tónlist eftir Hjálmar
H. Ragnarsson. í kjölfar opnunar-
hátíðarinnar var opnuð myndlistar-
sýning bama úr Myndlistarskólan-
um í Reykjavík, þar sem þema
sýningarinnar er englar. Sýningin
stendur til loka Kirkjulistahátíðar,
þann 18. júní.
xxx
VÍKVERJI sér fulla ástæðu til
þess að hvetja þá sem á annað
borð hugsa sér að sækja einhverja
af viðburðum Kirkjulistahátíðar til
þess að skoða sérstaklega þessa
skemmtilegu myndlistarsýningu
bamanna og raunar telur Víkvetji
að fullt tilefni sé fyrir menn að
gera sér sérstaka ferð í Hallgríms-
kirkju til þess að skoða sýninguna,
þótt ekki sé erindið annað með
kirkjuheimsókninni. Mynd af engli
sem þeytir lúður eftir Ólöfu Ólafs-
dóttur, 14 ára nemanda Mynd-
listarskólans í Reykjavík, prýðir
auglýsingar og dagskrárrit hátið-
arinnar. Fjölmargir aðrir englar
prýða veggi anddyris Hallgríms-
kirkju, enda var verkefni þetta
heildarverkefni allra barnadeilda
skólans á haustönn, en þar vora
110 nemendur. Úrval úr verkum
þessara nemenda er nú á veggjum
kirkjunnar.
xxx
M HELGINA viðraði vel til
útiveru hér á höfuðborgar-
svæðinu. Víkveiji hefur í þessum
pistlum margrómað fegurð Elliða-
árdalsins og hversu ánægjulegt er
fyrir útivistarfólk, hvort sem er þá
sem era fótgangandi eða á hjól-
hesti, að notfæra sér dalinn í góða
veðrinu. Á annan dag hvítasunnu
var stefnan hins vegar tekin á aðra
náttúruperlu við borgarmörkin,
þ.e.a.s. Heiðmörk. í Heiðmörk er
yndislegt að spretta úr spori eða
hjóla á þar til gerðum stígum. Það
sem skyggði á þessa Heiðmerkur-
heimsókn var að sjá með hvaða
hætti óprúttnir skemmdarverka-
menn hafa gengið um þessa vin
okkar. Það er bókstaflega með ólík-
indum að skemmdarfýsn geti verið
á svo háu stigi, að ekið sé á tré
og þau brotin, eins og gert var í
Heiðmörk nú um helgina. Víkveiji
telur að herða beri allt eftirlit á
stöðum sem þessum, fyrst félags-
legur þroski og virðing fyrir náttúr-
unni er ekki meiri en raun ber vitni.
Raunar er Víkveiji einnig þeirrar
skoðunar, að þegar upp um þá
kemst, sem fá útrás fyrir skemmd-
arfysn sína með svo lágkúrulegum
hætti sem þessum, eigi að taka á
slíku af fullri hörku. Ætli það væri
ekki vísasti vegurinn til þess að
koma mönnum til þroska, sem svo
stórlega heftir virðast vera, að refsa
þeim með þegnskylduvinnu, sem
verði ekki lokið, fyrr en þeir hafi
að fullu bætt fyrir þann óskunda
sem þeir hafa unnið.