Morgunblaðið - 09.06.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.06.1995, Blaðsíða 1
92 SÍÐUR B/C/D 128. TBL. 83. ÁRG. FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter Frækileg biörgun BANDARÍSKI flugmaðurinn Scott F. O’Grady (t.v.) brosti þeg- ar komið var með hann um borð í bandarískt skip í gær. Bosníu- Serbar skutu F-16C þotu hans niður sl. föstudag þegar hann var á flugi yfir norðvesturhluta Bosníu. Sérsveitarmenn land- gönguliðs bandaríska flotans björguðu honum í gærmorgun. ■ Sýndi mikla/18 Varnarmálaráðherrar NATO styðja ný áform í Bosníu Segja hraðlið vera síðasta hálmstráið Brussel. Reuter. VARNARMÁLARÁÐHERRAR að- ildarríkja Atiantshafsbandalagsins (NATO) hétu í gær eindregnum stuðningi við tíu þúsund manna hraðlið sem Bretar og Frakkar hyggjast senda til Bosníu. Sögðu ráðherrarnir að sú ráðstöfun væri eini möguleikinn á að koma í veg fyrir að aðgerðir Sameinuðu þjóð- anna (Sþ) í Bosníu yrðu að engu. Malcolm Rifkind, varnarmálaráð- herra Bretlands, tjáði ráðherrunum að hraðliðið yrði undir stjórn yfir- manna gæsluliðs Sþ í Bosníu, og. myndi aðstoða gæsluliðana við að sinna skyldum sínum. Að sögn heimildamanna innan NATO ítrekuðu ráðherrarnir nauð- syn þess að finna friðsamlega lausn á Bosníudeilunni, en horfðust jafn- framt í augu við að afstaða Bosníu- Serba til gæsluliða Sþ næstu mán- uði myndi ráða úrslitum um fram- tíð friðargæslunnar. Mætti breyta hlutverkinu Stjórnarerindrekar sögðu að bæði Bretar og Frakkar litu svo á að endurskoða mætti hlutverk hraðliðsins ef ástand mála breyttist ekki mjög til hins betra og brottför yrði óhjákvæmileg. „Ef þessi síðasta tilraun mistekst er einungis eitt til bjargar, og það er brottför. Það yrði hörmulegt, og er alls ekki eftirsóknarvert," sagði Volker Ruehe, varnarmálaráðherra Þýskalands. Fulltrúi NATO sagðist telja að ef ástandið batnaði ekki á næstu tveim mánuðum myndu bæði Bretar og Frakkar íhuga alvarlega að kalla friðargæsluliða sína heim með. haustinu. Fyrirhugað hraðlið nyti aðstoðar flugsveita NATO og yrði búið eigin árásarþyrlum. Hlutverk þess yrði að vernda gæsluliðana, sem eru lítt vopnaðir við hjálpar- störf sín. Hraðliðið myndi einbeita sér að verndarhlutverkinu og forð- ast vopnuð átök við Bosníu-Serba. Leyfa matvælaflutning Leiðtogar Bosníu-Serba sam- þykktu í gær að opna aftur vegi til þess að bílalestir Sþ gætu komið matvælum til Sarajevó. Fulltrúar samtakanna sögðu eftir sex klukku- stunda fund með leiðtogunum að Bosníu-Serbar segðust myndu ábyrgjast öryggi gæsluliðanna sem ækju bílum Sþ, og myndu fylgja lestunum til Sarajevó. Allt flug SAS lamað Kaupmannahöfn. Reuter. BÚAST má við að allt flug skandinavíska flugfélagsins SAS falli niður í dag vegna verkfalls margra flugmanna og verkbanns sem félagið hefur sett á aðra flugmenn. í gærkvöldi slitnaði upp úr lokatilraunum tii samkomulags í kjaradeilu sem flugmenn fé- lagsins og stjórn þess hafa átt í. Höfðu margir flugmenn boð- að verkfall í dag og á mánudag og þriðjudag, og kvaðst stjórn félagsins þá myndu setja verk- bann á alla flugmenn félagsins. Komi til verkfalls og verk- banns þessa þijá daga verður ekkert af um 800 áætluðum ferðum og mun það raska ferðaáætlun um 40 þúsund far- þega. Warren Christopher bjartsýnn á fund ísraela og Sýrlendinga Mikilvægustu friðarviðræður í fjögur ár Jcrúsalcm. Reuter. WARREN Christopher, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, kom til ísraels í gær og hóf með því 13. för sína til Austurlanda nær. Við komuna sagði hann að ísraelar og Sýrlendingar væru um það bil að hefja mikilvægustu friðarviðræður sínar í fjögur ár. Hann staðfesti einnig að í dag myndi hann eiga fund með Hosni Mubarak, forseta Egyptalands, og Yitzhak Rabin, forsætisráðherra Ísraels, í Kaíró. „Nú hefur í fyrsta sinn i fjögur ár fundist grundvöilur fyrir viðræð- um um öryggismái milli ísrael og Sýrlands," sagði Christopher. Slíkt væri kærkomin framför og gæfi möguleika á að heij'a viðræður milli hermálayfirvalda landanna fyrir lok þessa mánaðar. Rabin var einnig vongóður, og sagði fréttamönnum að hann hefði átt uppörvandi símtal við Bill Clint- on, Bandaríkjaforseta, um mögu- leika á friði við Sýrland. Hvorki gengið né rekið Ríkin tvö hófu friðarviðræður í Madríd 1991, en hvorki hefurgeng- ið né rekið við að ákveða hvenær og hvernig ísraelar dragi herlið sitt burt frá Gólanhæðum, sem þeir hertóku 1967. í síðasta mánuði samþykktu báðir aðilar að senda hermálafulltrúa sína til viðræðna um öryggismál á Gólan-hæðum og á sá fundur að fara fram í Washing- ton fyrir lok júní. Sagði Christopher nauðsynlegt að hraða viðræðunum ef umtalsverður árangur ætti að nást fyrir forsetakosningar sem verða í ísrael og Bandaríkjunum á næsta ári. Christopher sagðist bjartsýnn á að fundur hans með Mubarak og Rabin í Kaíró yrði upphafið að nýj- um kafla í samskiptum Israela og Egypta. „[Þessi ríki] eiga mikla möguleika á að vinna saman að friðarþróuninni." Snurða hljóp á þráðinn í sam- skiptum ríkjanna nýverið þegar ísraelar neituðu að gerast aðilar að samkomulaginu um takmörkun á útbreiðslu kjarnorkuvopna, þrátt fyrir að stjórnvöld í Kaíró hefðu krafist þess af þeim. För Christophers um Austurlönd nær lýkur á mánudag. Hann mun eiga fund með Yasser Arafat, leið- toga Palestínumanna, og hafa við- komu í Damaskus og Arnrnan. Noregs- konungur skoðar tjónið Haraldur Noregskonungur heimsótti í gær flóðasvæðin í Noregi og ræddi við fólk sem orðið hefur fyrir tjóni vegna hamfaranna. Hér ræðir hann (til hægri) við íbúa í bænum Tretten í Guðbrandsdal. „Það var gott að taka í höndina á konunginum og fá að vita að hann kærir sig um okkur,“ sögðu hjónin Jörga og Oddvar Nustad sem búa í Tretten. Heimili þeirra hjóna eyðilagðist af völdum flóðsins á föstudag- inn var. Vatnsborð Oyeren hækkaði ekki í gær, en yfirborð Mjösa steig jafnt og þétt um tæpan sentimetra á klukkustund. Sam- kvæmt nýjustu spám mun liækkun yfirborðs Mjösa ná hámarki 15. júní og verður það þá rúinum 8 metrum hærra en venjulega. Um tvö hundruð manns tóku á móti konunginum, sem kom með þyrlu hersins. Fyrst var flogið yfir flóðasvæðið til þess að hans hátign gæti betur áttað sig á umfangi skaðans sem orð- ið hefur. Hann heimsótti fimm staði á för sinni; Hamar, Trett- en, Trysil, Flisa og Lilleström. í dag mun Sonja drottning heimsækja fólk sem orðið hefur fyrir tjóni af völdum flóðsins. ■ 1500 manns/18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.