Morgunblaðið - 09.06.1995, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 09.06.1995, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1995 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Er það nú skepnuskapur. Þeir vilja ekki leyfa okkur að halda áfram að velta vandanum á undan okkur. Bankamenn og bankarnir undirrituðu kjarasamning 1 fyrrinótt Allir bankamenn fá 8,5% hækkun KJARASAMNINGUR sem Samband íslenskra bankamanna og bankarnir undirrituðu í fyrrinótt felur i sér 8,5% launahækkun til allra banka- manna. Samningurinn færir banka- mönnum 1% meiri launahækkun en samningurinn sem felldur var í síð- asta mánuði. Samningurinn er ekki jafnlaunasamningur. Bankamenn felldu kjarasamning, sem gerður var í síðasta mánuði. Sá samningur var sniðinn að samn- ingum ASI og VSÍ og fól í sér krónu- töluhækkun við upphaf samnings- tímans og prósentuhækkun um næstu áramót. Með nýja samningn- um hækka laun allra bankamanna um 8,5%. Hækkunin kemur í þremur áföngum, 3,3% 1. april 1995, 1% 1. júní 1995 og 3,7% 1. janúar 1996. í kjarasamningnum er tveimur launaflokkum bætt ofan á launatöfl- una, en með því móti er ætlunin að setja hluta af óunninni yfírvinnu og öðrum aukagreiðslum inn í taxta- kerfíð. í samningnum sem var felld- ur var einum flokki bætt ofan á. Umdeilt ákvæði um vinnu á að- fangadag og breytingar á orlofsrétti er ekki að finna í nýja samningnum, en það átti stóran þátt í að hinn samningurinn var felldur. Bankar verða því áfram opnir fyrir hádegi á aðfangadag ef hann ber upp á virkan dag. Ekki jafnlauna- samningur „Fyrir þá allra lægstu, sem eru sem betur fer mjög fáir hjá okkur, er krónutalan sem þeir fá út úr þess- um samningi nokkurn veginn sú sama og þeir fengu út úr hinum. Fyrir alla aðra er samningurinn betri,“ sagði Friðbert. Friðbert sagði að samningurinn væri ekki jafnlaunasamningur, en þó væri reynt að hækka þá lægst- launuðu án þess að riðía launa- flokkakerfínu. Friðbert sagði að krónutöluhækkun eyðilegði upp- byggingu launatöflunar og það hefði verið mat bankamanna að ekki væri rétt að fara þá leið nú. „Ég er nokkuð sáttur við þennan samning. Á formannafundi 19 aðild- arfélaga sambandsins í dag kom fram góður stuðningur við hann. Formennimir ætla að styðja samn- inginn innan sinna félaga. Ég tel þess vegna að það séu góðar líkur á að hann verði samþykktur," sagði Friðbert. Fangelsi í tvö ár fyrir misnotkun sljúpdætra HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær fer- tugan karlmann í tveggja ára fang- elsi fyrir kynferðislega misnotkun á tveimur stjúpdætrum-sínum... , Dómur yfir manninum var þyngdur úr 15 mánaðá fangelsi, því Hæsti- réttur taldi nægar sönnur korhnar fram fyrir. að bann hefði einnig íiaft mök, önnúr en samræði, við yftgri stjúpdótturina, en Héraðsdómur Norðurlands eystra taldi það ósann- að. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa á árunum 1982-1987 misnotað kynferðislega tvær dætur þáverandi eiginkonu sinnar. Fyrri hluta tíma- bilsins beindust brot mannsins gegn eldri stúlkunni, sem þá var 9-12 ára, og seinni hluta tímabilsins gegn yngri stúlkunni sem þá var 8-11 ára. Brotin voru kærð haustið 1993. Ákærði játaði brot gagnvart eldri stúlkunni, en neitaði að atferli hans hafi verið af þeirri stærðargráðu sem ákært var fyrir. Hæstiréttur var sammála sakarmati héraðsdóms og taldi nægilega sannað að ákærði hafi í endurtekin skipti viðþaft kyn- ferðismök, önnur en samræði, við stúlkuna allt frá árinu 1982-1986. Skilmerkilegur framburður Gagnvart yngri stúlkunni játaði ákærði eingöngu áreitni og snert- ingu í eitt skipti, en kvaðst ekki muna hvort það hafí verið utan klæða eða innan. Hæstiréttur benti á að framburður stúlkunnar hafi verið skilmerkilegur og sérfræðingar engan vafa talið leika á trúverðug- leika hennar. Þá hafí framburður hennar stoð í framburði systur henn- ar. Þar sem maðurinn hafí orðið sannur að athæfí sömu tegundar gagnvart eldri stúlkunni þyki ekki varhugavert að telja, þrátt fyrir neit- un mannsins, að nægar sönnur hafí komið fram um sekt hans gagnvart yngri stúlkunni. Dæmdi Hæstiréttur hann til tveggja ára fangelsisvistar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Hrafn Bragason, Guðrún Er- lendsdóttir, Haraldur Henrysson, Hjörtur Torfason og Pétur Kr. Haf- stein. Hjörtur skilaði sératkvæði og vildi staðfesta dóm héraðsdóms hvað varðaði brot gegn yngri stúlkunni, enda leiddu framkomin gögn ekki til nægilegrar sönnunar um nær- göngulla atferli en svo að meta bæri það til kynferðislegrar áreitni fremur en kynferðismaka. Sumarævintýri í Laugardal „Böm em besta fólk“ Hermann Ragnar Stefánsson SUMARÆVINTÝRI Laugardal nefnast leikjanámskeið fyrir böm sem verða í Laugardaln- um í sumar. Námskeiðin eru sambland af hreyfingu, fræðslu, menntun og list. Þau hófust 6.júní og eru hugsuð fyrir böm á aldrinum 5-11 ára. Skipt er í aldurshópa; 5-6 ára, 7-9 ára og 10-11 ára. Námskeiðin verða haldin á Engjateigi 1. Meðal þess sem boðið er uppá á nám- skeiðunum er leiðsögn í fram- komu og siðavenjum. „Við eram með hefðbundna dagskrá sem er frá kl. 10-16, þ.e. gönguferðir, íþróttir o.s frv,“ segir Hermann Ragnar Stefánsson sem hefur umsjón með námskeiðunum. „Við eram líka svo heppin að vera hérna á Engjateignum þann- ig að það er stutt í Laugardal- inn. Við föram þá náttúrlega í húsdýragarðinn, fjölskyldugarð- inn og grasagarðinn. Námskeiðið hófst 6.júní og þátttakan er alveg ljómandi. Það er t.d. alveg fullbók- að núna á fyrsta námskeiðið. Síð- an er verið að skrá á næstu nám- skeið. Hvert námskeið er tvær vikur og það næsta hefst Í9. júní.“ -Eru þessi námskeið eitthvað frá- brugðin öðrum leikjanámskeiðum? „Það er sérstakt hjá okkur að við eram með valgreinar fyrir utan hina hefðbundnu dagskrá sem krakkarnir geta farið í ef þau vilja. Þær era leikræn tjáning, mynd- list, tónlist, enska og dans. Þá velja þau þær greinar sem þeim líst á og mæta klukkan 9 á morgn- ana og fá tvær kennslustundir með sérfræðingi. Við erum með leikara, myndlistarkennara, enskukennara og tónlistarkennara í þessu. Fyrir þetta borga þau sérstaklega. Sumir vilja þetta og aðrir ekki. Þessum valnámskeið- um hefur verið sýndur mikill áhugi. Síðan fæ ég hérna í heim- sókn allskonar fólk sem er með starfskynningar fyrir bömin.“ „Við opnum hérna korter fyrir átta á morgana. Það má þá koma bömunum hingað og það era margir sem nýta sér þessa þjón- ustu. Við höfum síðan ofan af fyrir þeim þangað til hefðbundin dagskrá hefst klukkan tíu. Bömin geta síðan verið hérna til korter yfír fimm þó að dagskránni Ijúki klukkan fjögur. Við leggjum mikla áherslu á að bömin hvíli sig vel í hádeginu. Ég les alltaf framhalds- sögu þegar þau era búin að borða. Þá hvíla þau sig og fara í hvíldar- stellingar. Eins kennum við þeim ferskeytlur. Þau fara með þær í talkór og eiga að læra vísuna. Á kvöldin fara þau svo með hana ljósritaða heim. Þau læra svona 2-3 vísur á viku. Einnig legg ég fyrir þau gátur þegar þau fara heim á daginn og þau eiga svo að svara mér næsta dag. Tilgang- urinn er sá að þau velti þessu fyr- ir sér og ræði þetta kannski við foreldrana og skapi þá jafnvel umræður á heimilinu." -Nú eru framkoma og siðavenjur á dagskrá námskeiðsins. Hvernig fer það fram? „Ég og Unnur konan mín höfum leiðbeint fólki með þetta í mörg ár. Við Jóhann Öm Ólafsson sjáum um þetta en við eram báðir danskennarar og þetta fylgir mjög dansinum. Við byijum á því alveg frá fyrsta morgni að temja bömunum tillitssemi og réttar umgengnisvenjur. Við kennum þeim svona þetta hefð- bundna; að þakka fyrir sig, taka tillit til annara í hópnum, taka til- lit til þeirra sem eldri era, tala ekki hátt, en vera samt frjálsleg og skemmtileg og láta sér líða vel. Við förum einnig yfir borðsiði og almennar siðavenjur og kenn- um þeim þetta um leið.“ ►Hermann Ragnar Stefánsson, danskennari og dagskrárgerð- armaður, er 67 ára að aldri. Hann er kvæntur Unni Arn- grímsdóttur og eiga þau þrjú börn. Hermann er með gráðu í félagsráðgjöf frá háskólanum í Chicago, danskennarapróf frá Institut Carlsen í Kaupmanna- höfn og gráðu í dansi frá Arth- ur Murrey Dancestudio í Chicago. Hann rekur í dag Dansskóla Hermanns Ragnars. -Er þörf á að kenna íslenskum börnum framkomu og siðavenjur? „Það er svo sannarlega þörf á að kenna börnum framkomu og siðavenjur því þessu er mjög ábótavant í dag. Ég hef mikla reynslu í þessum efnum. Ég kenni nú víða og fer í marga grann- skóla og aga er víða ákaflega ábótavant. Það er lítill agi hvort sem það er á heimilinu, í skólanum eða á vinnustaðnum. Ég get ekki ímyndað mér að hægt sé að ná neinum árangri, hvorki á vinnu- stað, í skóla eða á heimilinu ef ekki era einhverjar reglur. Ég er þá að tala um agareglur en ekki heraga. Ég skipa aldrei fyrir. Ég set einungis ákveðnar reglur. Al- veg eins og í skólanum, þar hljóta að verða að gilda einhveija ákveðnar reglur og mér fínnst að þeim reglum mætti fylgja betur eftir. Á vinnustað held ég að sé ekki nokkur leið að vinna ef ekki era þar einhveijar umgengnisregl- ur. Ég myndi ekki vilja fara t.d. í fangelsi ef ekki væru þar reglur. Ég held að á meðal siðmenntaðra þjóða séu slíkar reglur sjálfsagð- ar.“ ^Er agaleysi rneira nú en áður fyrr? „Mér fínnst íslensk börn óskap- lega óöguð, ég fer ekkert ofan af því. Ég veit alveg hvenær þessi óagi byijaði. Það gekk yfir svona alda, smitun erlendis frá um að það ætti ekki að banna börnum neitt. Það væri til að hefta tjáning- arfrelsi og o.þ.h. En það er ekki rétt. Öll böm vilja aga og öll börn vilja vita hvað þau mega og hvað þau mega ekki. Enda eru þau alltaf að spyija. Það þarf bara að leiða þau. Börn eru nefnilega besta fólk eins og Stefán Jónsson rithöfund- ur sagði. Það þarf bara að tala við þau á réttum nótum. Ég er ekki í nokkrum vandræðum með þetta hjá mér. Hér era um 50 börn á öllum aldri og það gengnr mjög vel.“ -Hvað standa þessi námskeið lengi yfir? „Við verðum með námskeiðin eitthvað fram í ágúst vegna þess að eftirspurnin er mikil. Margir sem era með svona sumarstarf hætta eftir verslunarmannahelg- ina en við ætlum að vera eitthvað lengur. Aðsóknin er það mikil, “ Aga er víða ákaflega ábótavant

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.