Morgunblaðið - 09.06.1995, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ1995 9
JÓN I. Pálsson og Karl Guðmundsson, leiðsögumenn í Laxá
í Kjós, hafa komið auga á nokkra nýrunna í Laxfossi.
ÞAÐ er haft fyrir satt að laxinn
éti ekki í fersku vatni. Ýmsir draga
það í efa og benda á að lax sem
rýkur í tvöfaldan skota.-þ.e.a.s. tvo
stóra laxamaðka á öngli, og sporð-
rennir þeim af græðgi sýni fremur
hungur heldur en skort á umburð-
arlyndi gagnvart öðrum íbúum
árinnar, jafnvel þótt möðkunum
sé haldið nauðugum í vatninu og
séu ekki náttúrulegir íbúar þess.
Át 20 maðka
Dæmi eru um að laxar hafi
veiðst með ætisleifar í maganum,
en jafnan mun það vera nýrunninn
lax en síðar dregst maginn saman
og magasýrur laxins þverra er
hrogn og svil taka að þroskast.
Oddur Sæmundsson skipstjóri var
í Norðurá fyrir nokkrum dögum
og veiddi eftirminnilegan lax.
Oddur var að veiða á Stokkhyls-
broti sem er þekktur vorveiðistað-
ur í Norðurá. Hann renncli maOKi
og skjótt fór lax að eiga við agn-
ið. Eftir nokkra stund var lítið eft-
ir af maðkinum og Oddur beitti
upp á nýtt. Enn var átt við agnið
og enn étið af. Gekk nú hvorki né
rak og Oddur beitti hvað eftir ann-
að. Stundum komu slitrur af maðki
upp úr, stundum ber öngullinn.
Alls tíu sinnum mátti Oddur beita
upp á nýtt og eru menn þá að
tala um a.m.k. 20 stóra digra laxa-
maðka. Þegar hér var komið sögu
var veiðimanni nóg boðið og hann
hrifsaði í þegar laxinn tók aftur
til við fyrri iðju. Festist laxinn loks
og var landað nokkru síðar, 10-11
punda fiski.
Fer síðan ekki fleiri sögum af
þessum nartgjarna laxi fyrr en
Oddur tók til við að slægja hann
til átu þegar heim var komið. Vall
þá úr maga hans kös af laxamaðki!
FRÉTTIR______________________________
Nýr formaður Hundaræktarfélags íslands
Vill efla hundafimi __
og kannar aðild að ISI
NÝKJÖRINN formaður Hundaræktarfélags íslands, Guðmundur
Helgi Guðmundsson ásamt fráfarandi formanni félagsins, Guð-
rúnu R. Guðjohnsen.
EFLING á hundafimi sem íþrótta-
grein og hugsanleg umsókn Hunda-
raektarfélags íslands um inngöngu
í íþróttasamband íslands er eitt af
markmiðum nýkjörins formanns
Hundaræktarfélags íslands, • Guð-
mundar Helga Guðmundssonar.
Guðmundur segir að hundafimi sé
til dæmis ólympíugrein í Noregi og
segist hann hafa orðið var við tals-
verðan áhuga á greininni hér á
landi. Væri til dæmis hægt að nota
greinina til þess að efla unglinga-
starf félagsins.
Guðmundur bar nýlega sigurorð
af Sigríði Pétursdóttur í kosningum
á aðalfundi félagsins og tekur við
af Guðrúnu R. Guðjohnsen. Guð-
mundur Helgi, sem starfar sem
rafeindatæknir á Landspítalanum,
segir starfið leggjast vel í sig, hann
sé ánægður með störf fráfarandi
formanns félagsins og hyggist
halda áfram á sömu braut.
Varðveisla
íslenska hundsins
Helstu markmið segir Guðmund-
ur vera varðveislu íslenska hundsins
og eflingu á ræktun hans og ann-
arra hundategunda. Guðmundur
segist einnig vilja efla dýraverndun-
arsjónarmið meðal meðlima félags-
ins. Einnig vilji hann bæta sam-
skipti og auka samvinnu hundaeig-
enda við almenning annars vegar
og yfirvöld hins vegar.
í því sambandi megi nefna nýleg-
an úrskurð umboðsmanns Alþingis
sem kvað á um að gjaldtaka fyrir
hundahald skyldi einungis vera not-
að til að standa undir kostnaði sveit-
arfélaga af hundahaldi. Þessi úr-
skurður hafi leitt til þess að gjald
fyrir hunda í Reykjavík hafí lækkað.
Stofnun svæðafélaga
Guðmundur segist ætla að láta
athuga hvernig gjaldtöku sé háttað
í öðrum sveitarfélögum. Annað bar-
áttumál félagsins sé svo að hunda-
hald verið leyft um allt land, til
dæmis sé leyfi um hundahald háð
undanþágu í Reykjavík.
Þá vilji hann vinna að bættum
aðbúnaði svokallaðra vinnuhunda,
til dæmis björgunarhunda, hunda
sem eru notaðir við fíkniefnaleit,
hunda sem leiða blinda og varð-
hunda. Til dæmis hafi björgunar-
hundar sýnt mikilvægi sitt eftir
snjóflóðið á Súðavík í vetur og því
sé brýnt að vel sé búið að þeim.
Alls eru 1.300 félagar í Hunda-
ræktarfélagi íslands og segir Guð-
mundur að flestir þeirra séu á höf-
uðborgarsvæðinu Einnig sé starf-
andi svæðafélag á Norðurlandi og
sé stefnt að því að koma upp slíkum
félögum í öllum landsfjórðungum.
Leikskólakennarar
Vilja upp-
eldis-
háskóla
FULLTRÚARÁÐ Félags íslenskra
leikskólakennara hefur skorað á
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra að leggja sitt að mörkum að
stofnaður verði uppeldisháskóli sem
sameini fjóra skóla, Fósturskóla
íslands, Þroskaþjálfaskóla ísiands,
íþróttakennaraskóla k Laugarvatni
og Kennaraháskóla íslands.
Fulltrúaráðið minnir á í áskorun
sinni, sem samþykkt var á 7. vor-
fundi FÍL á dögunum, að Fóstur-
skóli íslands væri hvorki framhalds-
skóli né háskóli. Hann veiti nemend-
um sínum ekki háskólagráðu jafn-
vel þótt Kennaraháskóli íslands
meti það nám sem fram fari í skól-
anum sem háskólanám. Leikskóla-
kennarar minna ennfremur á það
þeir hafi unnið að því í 17 ár að
leikskólakennaramenntun færist á
háskólastig.
Leikskólakennarar hvetja
menntamálaráðherra að fylgja ráð-
um nefndar um mótun mennta-
stefnu sem skilað hafi tillögum um
mótun rammalöggjafar um kenn-
aramenntun á íslandi fýrir nokkru.
í niðurstöðum nefndarinnar hafi
einmitt verið lagt til að stofnaður
verði einn uppeldisháskóli.
Ályktun til borgarstjórnar
Á.vorfundinum var þeirri ákvörð-
un Reykjavíkurborgar að efla upp-
byggingu leikskóla í borginni fagn-
að. Fulltrúaráðið ályktaði þó að
ekki væri nóg að byggja hús heldur
verði að meta til launa þá ábyrgð
sem hvíli á leikskólakennurum.
Skorað var á borgarstjórn að gera
starf leikskólakennara eftirsóknar-
vert meðal annars með þeim hætti
að bæta kjör þeirra.
Úrval af frönskum
blússum og bolum
TESS
- Verið velkomin -
neðst við Opið virka^daga
Dunhaga, laugardaga
sími 562 2230 kl. 10-14.
Tökum upp í dag
nýjar sumarvörur
Skólavörðustíg 4a, sírni 551-3069.
OpiðKl. 13-18.30
Laugard. kl.10-16
Simi 581 1290.
Sendum þOKPIl)
ípóstkröfu. BORGARKRINGLUNNI
Auk þess
30 aðrar tegundir
af sportskóm á
aUa fjölskylduna
á frábæru veröi.
Fólk er alltaf
að vinna
í Gullnámunni:
75 milljónir
Vikuna 1. til 7. júní voru samtals 75.399.081 kr. greiddar
út í happdrættisvélum um allt land.
Petta voru bæöi veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af
öörum vinningum. Silfurpottar I vikunni:
Dags. Staöur: Upphæö kr.:
3. júní Háspenna, Laugavegi...... 590.129
5. júní Háspenna, Laugavegi...... 186.998
6. júní Ölver...................... 175.885
Staöa Gullpottsins 8. júní, kl. 16:00
var 4.974.551 krónur.
Silfurpottarnir byrja alltaf f 50.000 kr. og Gullpottarnir f 2.000.000 kr.
og hækka síöan jafnt og þétt þar til þeir detta.