Morgunblaðið - 09.06.1995, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1995 13
LANDIÐ
Morgunblaðið/Aldís
KÓRFÉLAGAR fylgjast með myndasýningunni.
Oánægja veitingamanna á Tálknafirði
Hópið mátti
ekki vera opið
Tálknafjörður - Eigendum Hóps-
ins á Tálknafirði, sem er matsölu-
og vínveitingastaður, var tilkynnt
rétt fyrir miðnætti á hvítasunnu-
dagskyöld að staðinn mætti ekki
opna á miðnætti eins og til stóð.
í bréfi dómsmálaráðuneytisins til
allra lögreglustjóra landsins, sem
dagsett var 30. maí sl., kom fram,
með vísan í álit umboðsmanns Al-
þingis að sérstakt leyfi lögreglu-
stjóra þyrfi fyrir skemmtanahaldi
aðfaranótt annars dags hvítasunnu
en jafnframt er mælst til þess að
slíkt leyfí sé veitt sé um það sótt.
Hefði átt að vera látin vita
Alison Mills, sem rekur Hópið
ásamt eiginmanni sínum, segist hafa
haft opið þessa nótt sl. fjögur ár og
er hún óánægð með að hafa ekki
verið látin vita að hún þyrfti að
sækja sérstaklega um núna. Hún var
búin að ráða trúbador til að skemmta
þessa umræddu nótt og hún segir
að sumir gestanna hafí verið komnir
um langan veg og þeir hafi þurft
að snúa við.
Hún segist vera ósátt við að þurfa
að standa og sitja eins og sýslumað-
Hellu - Rafmagnsveitur ríkisins á
Suðurlandi hafa undanfarna mánuði
unnið að tengingu nýrrar 66 kíló-
volta raflínu milli Flúða og Hellu en
með henni fæst hringtenging á kerf-
ið frá Búrfelli að Flúðum.
Að sögn Örlygs Jónassonar, um-
dæmisstjóra RARIK á Suðurlandi,
er tilgangur verksins að auka flutn-
ingsgetu frá Búrfelli á Hvolsvöll en
mjög mikið álag er á núverandi línu
ur vilji, bara af því að hún selji
áfengi, hún borgi skemmtanaleyfí
og löggæslugjald fyrir utan að hún
útvegi atvinnu. Hún segir að þetta
sé í annað sinn sem staðnum sé lok-
að án fyrirvara, hitt skiptið hafi
verið eftir miðnætti á föstudaginn
langa árið 1992.
Leyfið hefði verið veitt
Þórólfur Halldórsson sýslumaður
segir að ekki hafi verið hægt að leyfa
opnun staðarins vegna þess að eig-
endum hefði láðst að sækja um leyfí
til þess. Ef það hefði verið gert í
tíma þá hefði leyfið verið veitt.
„Þetta er á hvítasunnudag og auðvit-
að þurfa menn í rekstri að hafa
þann fyrirvara sem eðlilegur er,“
sagði Þóróifur. Hann segir að alltaf
hafí þurft leyfí fyrir skemmtanahaldi
þessa nótt, það sé ekkert öðruvísi
en áður.
í bréfi ráðuneytisins kemur fram
að dómsmálaráðherra hafí skipað
nefnd til að endurskoða helgidaga-
löggjöfína og sé henni ætlað að
hraða störfum sínum. Því er mögu-
Iegt að þessum málum verði öðru-
vísi háttað að ári.
yfir vetrarmánuðina og nauðsynlegt
að létta á því. „Við erum að bregð-
ast við auknu álagi auk þess sem
við notum tækifærið og byggjum
yfír allan rofabúnað sem áður var
úti og losnum um leið við hin hvim-
leiðu tengivirki sem vissulega eru
ekki til prýði í umhverfmu. Rekstur
kerfisins og allt viðhald er mun auð-
veldara þegar allur búnaður er inni
í húsi,“ sagði Örlygur.
Nýstárleg
predikun
Hveragerði - NÝSTÁRLEG
predikun kom í stað hinnar hefð-
bundnu við guðsþjónustu í
H verager ðiskirKj u.
Troðfullt var í kirkjunni þegar
Yngri-kór Grunnskólans í Hvera-
gerði flutti þar söngleik er kom
í stað predikunar. Greinilegt var
á undirtektum og mætingu að
fólk kunni vel að meta þessa
nýjung í kirkjustarfinu. Aðalum-
fjöllunarefni söngleiksins var
friður og mikilvægi þess að kær-
leikur ríkti manna á meðal.
Skyggnusýning á teikningum
barna er tengdust efninu var
skemmtilega fléttuð inní sýningu
verksins og flutningurinn endaði
á því að börnin færðu foreldrum
sínum rauða rós sem tákn um
þann frið er þau boðuðu. Ein-
söngvari var Birgitta Sölvadóttir
en stjórnandi kórsins er Kristín
Sigfúsdóttir.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
FRÁ tjaldmarkaðsdeginum.
Líflegt á
Ijaldmark-
aðinum
Selfossi - FYRSTI tjaldmarkaðs-
dagurinn á Selfossi var um helgina
en fyrirhugað er að halda markaðs-
daga tvisvar í mánuði í sumar. Á
markaðsdögunum verður ýmislegt
gert til að lífga upp á stemmninguna
ásamt því að í boði er ýmiss konar
varningur en tjaldmarkaðurinn á
Selfossi er opinn öllum sölumönnum
hvaðanæva af landinu. Það er Björg-
unarsveitin Tryggvi á Selfossi sem
annast uppsetningu og framkvæmd
tjaldmarkaðarins í samstarfí við
verslanir og atvinnu- og ferðamála-
nefnd bæjarins.
Veruleg umferð er um miðbæinn
á Selfossi um helgar, einkum þegar
líður að sumri og sumarbústaða-
byggðirnar í nágrenninu fyllast af
fólki. Sölumenn á fyrsta markaðs-
deginum voru ánægðir með daginn
og töldu að framundan væri gott
tjaldmarkaðssumar. Tjöldunum er
komið fyrir á grassvæði í miðbæ
Selfoss en gert er ráð fyrir þvi að
þau fái fastan og frágenginn stað á
næstu árum á skipulögðu útivistar-
svæði í miðbænum, enda starfsemin
talin hafa sannað sig. Á fyrsta mark-
aðsdeginum, laugardagin 3. júní, lék
þýsk lúðrasveit sem átti leið um Sel-
foss og Leikfélag Selfoss skemmti
bömum auk þess sem Kjörís var á
lágu verði viðstöddum til gleði.
' Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
STARFSMENN Byggðasels í Hveragerði vinna nú við að reisa
nýja tengibyggingu á Hellu en þeir reistu sams konar hús á
Flúðum í haust. Lokið hefur verið við að reisa staura á milli
Flúða og Hellu en starfsmenn Rarik munu strengja vírana í lín-
una síðla sumars en þá er áætlað að taka hana í notkun.
66 kílóvolta raflína
milli Flúða og Hellu
Fjölmenni í
kvennareiðtúr
KONUR í Hestamannafélaginu
Geysi í Rangárvallasýslu fóru
fyrir skömmu í reiðtúr en þátt-
taka var með besta móti og
mikil og góð stemmning í hópn-
um. Var lagt upp frá hesthús-
unum á Hellu og Hvolsvelli og
mættust hóparnir á miðri leið
og riðu sem leið liggur að
Lambhaga á Rangárvöllum þar
sem konurnar tóku lagið fyrir
Sjöfn Guðmundsdóttur og fjöl-
skyldu hennar þar á bæ. Því
næst var haldið í Golfskálann
á Strönd þar sem kvennanna
beið kvöldverður. Var sungið
og trallað við undirleik harm-
onikku áður en hver hélt til
síns heima eftir velheppnaða
samverustund.
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Kísilsjóður fær aukið
fé til Kísiliðjunnar
Húsavík - Kísilsjóður sem starfað
hefur um skeið hefur nú fengið
aukið fjármagn til starfsemi sinnar
en markmið hans er að efla at-
vinnulíf í þeim sveitarfélögum sem
tengjast starfsemi Kísiliðjunnar
hf. við Mývatn.
Nýverið hefur reglugerð sjóðs-
ins verið breytt þannig að 20% af
arði ríkisins af Kísiliðjunni renna
í sjóðinn ásamt hluta námaleyfis-
gjalds og hefur þetta eflt sjóðinn
mikið.
í maímánuði var samstarfsverk-
efni Prýði hf. og Kaupfélags Þing-
eyinga á Húsavík veittur styrkur
til þróunar á sérhæfðum fatnaði.
Einnig fékk undirbúningshópur til
stofnunar Náttúruskóla við Mý-
vatn styrk en ætlunin er að sá
skóli taki á móti erlendum vísinda-
mönnum og nemendum.
ViOskipravinir
fasleignasala
Við vekjum athygli á því að
Fasteignablað Morgunblaðsins kemur
út á þriðjudögum í sumar
Fyrsta Fasteignablað
Morgunblaðsins á
þriðjudögum kemur út
20. júní.