Morgunblaðið - 09.06.1995, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1995
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Þóraí
Galleríi
Sævars
ÞÓRA Sigurðardóttir opnar
myndlistasýning-u í Galleríi
Sævars Karls 9. júní næstkom-
andi og stendur sýningin til 30.
júní.
Verkin á sýningunni eru unn-
in með blýanti, bleki og krít á
striga og eru öll frá síðasta ári.
Þóra stundaði nám við MHÍ,
í Myndlistaskóla Reykjavíkur
og við skúlptúrdeild Det Tyske
Kunstakademi í Árósum. Á síð-
astliðnu ári tók Þóra þátt í
tveimur samsýningum tíu dan-
skra myndhöggvara, þ.e. í
Kunstbygningen, Árósum, og í
Fyns Kunstmuseum, Óðinsvé-
um. Hún hefur einnig tekið
þátt í samsýningu íslenskra
myndhöggvara á Kjarvalsstöð-
um (Skúlptúr-Skúlptúr).
Þóra er um þessar mundir
þátttakandi í samsýningu í All-
ersmaborg, Groningen, Hol-
landi, þar sem hún sýnir þrívíð
verk.
Norrænir
brunnar
LAUGARDAGINN lO.júní
kl.16.00 verður opnuð sýning
við og í sýningarsal Norræna
hússins á umhverfislistaverk-
um í tilefni af norrænu mynd-
listarári. Yfirskrift sýningar-
innar er norrænir brunnar
Myndlistarmönnum, ásamt
arkitekt og landslagsarkitekt,
var boðið að vinna hugmyndir
útfrá umhverfi Norræna húss-
ins og þema sýningarinnar.
Verk 14 þeirra má sjá í sýning-
arsal hússins og utanhúss eru
íjórir norrænir „brunnar".
í tengslum við sýninguna
verða haldnir fyrirlestrar um
umhverfislist. Nemendur við
MHI verða með gjörning
kl. 17.00 á laugardag í fundar-
sal hússins.
Sýningin mun standa til 9.
júlí og verður opin daglega
kl.13-19.
Gunnar sýnir
í Nesbúð
NÚ stendur yfir sýning Gunn-
ars Guðjónssonar í Nesbúð,
Nesjavöllum. Gunnar er fæddur
í Reykjavík 1941. Hann hélt til
náms í teikningu og málaralist
við skólann Excuela Marssana
á Spáni 1972.
Arið 1974 flutti Gunnar aftur
heim til íslands og sama ár
hélt hann stóra sýningu á verk-
um sínum á Kjarvalsstöðum.
Árið 1981 hélt hann síðan aðra
sýningu í boði Menningarstofn-
unar Bandaríkjanna og hefur
síðan haldið margar sýningar á
verkum sínum.
Helstu viðfangsefni Gunnars
eru landslags- og sjávarmyndir.
Flestar myndir hans eru unnar
með olíulitum á striga. Sýningin
stendur yfir í sumar.
„Skagarek“ í
Kirkjuhvoli
SUMARSÝNINGIN „Skaga-
rek“ verður opnuð í Listasetr-
inu Kirkjuhvoli, Akranesi, á
morgun, laugardag kl. 14.
Þar sýna verk sín 13 lista-
menn, búsettir á Akranesi, og
sýna þeir málverk, glerlist,
höggmyndir, veflist, leiriist og
skúlptúra.
Sýningin er opin daglega frá
kl. 14-16.30 og stendur til 20.
ágúst.
Að fanga andann
MYNDLIST
Viö Ilamarinn
MÁLVERK INNSETNING
Þóra Þórisdóttir. Opið frá 14-18 alla
daga nema þriðjudaga til 18. júní.
Aðgangur ókeypis.
MEÐ sanni er óvenjuleg fram-
kvæmd í listhúsinu „Við Hamar-
inn“ í Hafnarfirði um þessar
mundir, þar sem áður var fremri
hluti Portsins. Er hér um að ræða
trúarlegan gjörning og innsetn-
ingu í tilefni hvítasunnuhelgarinn-
ar og það merkilega við fram-
kvæmdina er að listamaðurinn er
fæddur á hvítasunnudag fyrir 23
árum.
Eitthvað hefur helgi hvítasunn-
unnar svo seitlað inn í heilakirnu
afmælisbamsins, því það virðist
altekið Heilögum anda og upp-
hafningu, vera með afbrigðum sið-
nennið. Það heitir að vinna fyrir
trúna á Krist og Heilagan anda.
Og eins og stendur í skrá: „Á
hvítasunnudag úthellti guð anda
sínum yfir lærisveinana. Andinn
var okkur gefínn eftir að Jesús
steig upp til himna, til að leiða
okkur í allan sannleika, til að vera
huggari okkar og fræðari og til
að opinbera kraft Guðs. Andinn
talar ekki af sjálfu sér, heldur orð
Guðs, en orðið er Jesús Kristur.
Ekki er hægt að lýsa Heilögum
anda í myndum né orði öðruvísi
en að grípa til dæmisagna og
myndlíkinga. Biblían er því hlaðin
slíkum táknmyndum og dæmisög-
um. Líkingarnar yfir Heilagan
anda eru margar. Dúfan var hús-
dýr á dögum Gamla testamentsins
og eini fuglinn sem leyfilegt var
að fórna. Dúfan er tákn Heilags
anda.“
Það er svo út frá þessu sem
listspíran Þóra Þórisdóttir gengur
á sýningu sinni og fleiri táknum,
sem eru eldur, vindur (andvari),
hljóð (gnýr), vatn (regn, lind, læk-
ur), olía, hvít klæði og innsigli.
Þóra leitast við að fylgja þessu
eftir í bókstaflegri merkingu, því
þessa alls sér stað í salnum, og
auk þess kúra lifandi dúfur á loft-
Séreignasióður með tryggingum að eigin vali
Gunnar Baldvinsson; rorstöðumaður reksturs sjóða hjá VÍB; segir að nú
feti sjóðfélagar í ALVÍB, Almennum lífeyrissjóði VÍB; keypt tryggingar
tjá Sameinaða líftryggingarfélaginu og á þann hátt notið sambærilegra
trygginga og sjóðfélagar í sameignarsjóðum. Gunnar segir að ALVÍB sé
eini séreignarsjóðurinn sem tryggi mönnum lífeyrisgreiðslur til æviloka.
Nú eruð þið farnir að bjóða
tryggingar í tengslum við ALVIB.
Hver er tilgangurinn með þvt og
hverju breytir þetta fyrir
sjóðfélaga?
Tilgangurinn er að þeir sem géta valið
sér lífeyrissjóð geti greitt í séreignar-
sjóð og notið hliðstæðra trygginga og
bjóðast í sameignarsjóðum.
Og hvaða tryggingar er um að
rœðal
Það eru fimm tegundir af trygg-
ingum sem sjóðfélagar velja um. 1
fyrsta lagi ævilífeyrir sem tryggir
sjóðfélögum mánaðarlegar tekjur
frá tilteknum aldri til dánardags. í
öðru lagi líftrygging sem tryggir
nánustu vandamönnum eingreiðslu