Morgunblaðið - 09.06.1995, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1995 21
ÞÓRA Þórisdóttir við verk sitt.
bitum. Þá er séð fyrir öllum þörf-
um dúfnanna, korn er á mörgum
ferköntuðum hillum í lóðréttri röð
upp í loft, sem einnig þjóna sem
svefnhillur, ásamt aflöngum sér-
hönnuðum láréttum svefnhillum á
veggjum. Þottaskál er á stalli og
flísalagður veggur með spegli fyr-
ir ofan hann. Þá rignir ofan í
hlaðna sporöskjulaga þró á gólfi
og _er það hugvitsamleg fyrirtekt.
Á endavegg er málverk af liggj-
andi konu í sófa „Trú er fullvissa
um það sem maður vonar“ (1), og
sjálfur sófinn er fyrir neðan mál-
verkið, á sessunni er svo biblía á
hvítu klæði. Þetta málverk sætir
hvað mestum tíðindum á sýning-
unni, en ávinningur hefði verið að
sleppa rituðum tilvitnunum beggja
vegna nektarinnar.
Ritaðar trúarlegar tilvitnanir
eru annars mjög víða, jafnvel á
drifhvítum gluggatjöldum, sem
eru hönnuð af listakonunni og falla
vel að sýningunni. Það er mikill
hugur og yndisþokki í þessari
framkvæmd og mun meiri sál en
á sýningunni „Stefnumót listar og
trúar“ í Hafnarborg, jafnframt
kemur hún meira á óvart fyrir
upprunaleikann og bernska leik-
gleðina.
Bragi Ásgeirsson
viö fráfall sjóðfélaga. í þriðja lagi
afkomutrygging sem tryggir
mánaðarlegar tekjur til 60 eða 65
ára aldurs ef starfsorka skerðist
um helming eða meira. Fjórða
tryggingin er iðgjaldstrygging sem
tryggir áframhaldandi greiðslu í
lífeyrissjóð og kaup á tryggingum
ef starfsorka skerðist um helming
eða meira. í fimmta lagi sjúkra-
og slysatrygging sem tryggir
dagpeningagreiðslur í allt að þrjú
ár vegna sjúkdóms eða slyss og
eingreiðslu við varanlega örorku,
ef örorka er metin 40% eða
meiri.
Hverju breyta þessar tryggingc /
fyrir sjóðfélaga?
Nú býður ALVÍB heildarlausn í
lífeyrismálum. Áður fyrr
ráðlögðum við sjóðfélögum að
verða sér úti um þessar
tryggingar sjálfir eða greiða í
sameignarlífeyrissjóði. Nú getum
við boðið mjög góða lausn í
lífeyrismálum. Kosturinn er að
sjóðfélagar vita nákvæmlega
hversu mikill hluti af iðgjöldum í
lífeyrissjóð fer í tryggingar og
hvað tryggingarnar kosta auk þess
sem þeir eignast sinn séreignar-
sjóð sem erfist við fráfall sjóð-
félaga.
Er þetta ekki mjög dýrt?
Sameinaða líftryggingarfélagið
býður sjóðfélögum ALVÍB
hagstæð kjör af því hér er um
heilan sjóð að ræða. ALVÍB sér
um að greiða iðgjöldin og
upplýsingar um tryggingavernd
og kostnað við tryggingarnar
birtast á yfirlitum fjórum sinnum
á ári. Tryggingastærðfræðingar
hafa áætlað að 30% til 40% af
iðgjöldum í sameignar-
lífeyrissjóði renni í tryggingar.
Hvernig geta sjóðfélagar tryggt
sér lífeyrisgreiður til ceviloka?
ALVÍB er eini séreignarlífeyris-
sjóðurinn þar sem sjóðfélagar
geta tryggt sér lífeyrisgreiðslur til
æviloka. Þeir geta tryggt sér
lífeyrisgreiðslur frá tilteknum
aldri til æviloka með því að
kaupa ævilífeyri. Ef sjóðfélagi
klárar t.d. inneign sína í
séreignarsjóði 80 ára þá myndi
ævilífeyririnn tryggja honum
lífeyrisgreiðslur til æviloka.
Áætluð skipting eigna vi& starfslok
140% Lifeyrissjó&ur
20% Sparifé
40% Hús, bill,
sumarhús, o.fl.
Réttindi í lífeyrissjóði eru oftast stœrsta
eign fólks við starfslok en algengt er að fólk
greiði í lífeyrissjóð í 40 til 45 ár af cevinni.
Allir geta greitt í ALVÍB; annað
hvort eingöngu eða sem viðbót
við greiðslur í sameignarsjóð.
Hver og einn verður að meta
hvort það hentar honum og þá
hvernig og hvaða tryggingar
henta best.
FORYSTA í FJÁRMÁLUM!
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Aðili aö Verðbréfaþingi íslands •
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 560-8900.
Golli
JÓN Múli og Jónas Árnasynir
taka við verðlaununum.
Bræður
verð-
launaðir
Á ÞINGI Sambands norrænna tón-
skálda og textahöfunda (Nordisk
Populærautoruninon), sem haldið
var í Reykjavík 4. og 5. júní voru
NPU verðlaunin veitt bræðrunum
Jóni Múla og Jónási Árnasonum
fyrir framlag þeirra til leikhústón-
listar.
NPU verðlaunin eru heiðursverð-
laun sem veitt eru annaðhvert ár
norrænum tónskáldum og textahöf-
undum. Þetta er í fyrsta skipi sem
verðlaunin eru veitt íslenskum höf-
undum, en árið 1993 komu þau í
hlut hins þekkta sænska leikhús-
manns og grínista Hans Alfredson
og þar á undan fékk þau norski
söngvarinn Jens Book-Jenssen.
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson,
fráfarandi forseti NPU, afhenti
verðlaunin á Hótel Borg að við-
stöddum fjölda norrænna höfunda
sem sátu þingið.
-----» » ♦---
Sumartónleikar
á þriðjudögum í
Listasafni
Sigurjóns
ÞRIÐJUDAGINN 13. júní hefst
tónleikaröð sumarsins í listasafni
Siguijóns Ólafssonar, en allt frá
árinu 1989 hefur safnið staðið að
vikulegum sumartónleikum alla
þriðjudaga á tímabilinu júní, júlí og
ágúst.
Á fýrstu tónleikunum munu þau
Guðrún S. Birgisdóttir, Martial
Nardeau og Pétur Jónasson leika
verk eftir ýmsa höfunda en alls
verða flytjendur á tónleikum þessa
sumars 27 talsins og tónlistin, sem
flutt verður, bæði gömul og ný, ís-
lensk og erlend.
-----♦ ♦ ♦---
Ólafur í List-
húsinu
ÓLAFUR Oddsson opnar fyrstu
einkasýningu sína á málverkum
unnum í kol, túss, vatnsliti, akrýl
og olíu í Listhúsinu í Laugardal á
morgun, laugardag.
Sýningin stendur til J9. júní og
er aðgangur ókeypis.
-----»_♦_♦---
Sýningu Svans
og Barkar
að ljúka
„HÚS velúrsálarinnar“, sem er yfir-
skrift sýningar Barkar Arnarsonar
og Svans Kristbergssonar, í Gallerí
Greip og hefur staðið yfir frá 3.
júní, lýkur nú á þriðjudag.
Þetta er þriðja sýning þeirra í
Reykjavík, en þeir hafa tekið þátt
í nokkrum sýningum erlendis.
Galleríið er opið alla daga frá
kl. 14-18 meðan á sýningunni
stendur.