Morgunblaðið - 09.06.1995, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1995 41 ‘
___________BRÉF TIL BLAÐSINS
„Eitt sinn
stríðsmennu DP
ÚR KVIKMYNDINNI Once We Were Warriors sem sýnd er í
Regnboganum um þessar mundir.
Frá Sigurlaugu S.
Gunnlaugsdóttur:
ÞEIR sem ætla að sjá kvikmynd-
ina Once We Were Warriors (Eitt
sinn stríðsmenn) eiga rétt á að átta
sig á aðstæðum. Myndin er um
Maórafjölskyldu á Nýja-Sjálandi.
Atök hafa verið á Nýja-Sjálandi
um réttindi, kaup og kjör verka-
fólks, ekki síst Maóra, og um land
Maóra í norðurhluta landsins.
Myndin er innlegg í hugmynda-
fræðilegt stríð sem ríkir samhliða.
Maórar voru fyrstu landnemarn-
ir á Nýja-Sjálandi. Fyrir miðja síð-
ustu öld gerðu höfðingjar Maóra
samkomulag við breska nýlendu-
herra um skiptingu lands. Ferill
Islands og Nýja-Sjálands er að því
leyti líkur að þótt þau væru form-
lega undir konungdæmi annars rík-
is, urðu þau að iðnríkjum. Með til-
heyrandi breytingum á félagsað-
stæðum borga og sveita safnaðist
fjármagn á fárra hendur með hjálp
stofnana ríkisvaldsins, innan
ramma þjóðríkisins. Þessi lönd eru
að því leyti ólík að á Nýja-Sjálandi
er fjölþjóðlegt samfélag en á ís-
landi er sá veruleiki fremur nýr.
Ráðastéttin á íslandi hefur fylgst
gaumgæfilega með þróun í stjórn-
málum og efnahag á Nýja-Sjálandi
á síðustu árum, því hún óskar að
feta í fótspor ríkisvaldsins þar sem
hefur t.d. afnumið „skylduaðild"
að verkalýðsfélögum.
„Menningarstríð" hefur færst í
aukana á undanförnum árum. Það
stendur í engum tengslum við
„ólíka menningu" einsog orðið
kann að gefa til kynna, heldur var
það ræst - og nafngjöfin reyndar
Ííka - af hægrisinnuðum stjórn-
málamönnum víða um lönd, sem
eiga ekki sjálfir uppá pallborðið í
stjórnkerfinu einsog það er í dag,
en munu vafalaust fá sitt tæki-
færi. Sótt er að fólki sem erfiðleik-
ar kapítalismans hafa hvað mest
áhrif á og það gert ábyrgt.
„Útlendingar“ eru gerðir ábyrgir
fyrir atvinnuleysi. Nýbúar og aðrir
„misnota“ heilsugæsluna. Atvinnu-
laust fólk er sakað um svindl og
þjófnað eða sætir niðrandi nafn-
gjöf, „þeir sem minna mega sín“.
Mæðrum er kennt um ófarir bama
sinna og feður hnepptir í ánaúð
undir því yfirskini að þeir beri
ábyrgð á rýrum tekjum fyrrum fjöl-
skyldu sinnar. Grafið er frekar
undan réttaröryggi verkafólks með
því að snúa sönnunarbyrði við
þannig, að menn séu ekki lengur
saklausir uns sekt er sönnuð.
Vinnandi fólk er skotmarkið
Mikilvægt er að átta sig á að
vinnandi fólk er skotmarkið í menn-
ingarstríðinu. Svo dæmi sé tekið
gefur hægrisinnuð eiturtunguárás
á „asískar konur“ tilefni til þess
að þær séu pískaðar á vinnustað
og öll stéttin gjaldi þess. Asískar
konur eru þó ekki stétt. Flestar
asískar konur hér eru verkakonur.
Aðrar eru menntamenn eða við-
skiptajöfrar.
A Nýja-Sjálandi er vaxandi
hópur Maóra í millistétt og hefur
gert það gott í viðskiptum undanf-
arið. Til skýringar má taka sam-
svarandi dæmi frá Bandaríkjunum
þarsem blökkumenn voru nær und-
antekningarlaust lágt launað
verkafólk fyrir aldarfjórðungi en
skiptast nú í stéttir einsog almennt
gildir um þjóðfélagið. Staða
blökkumanna sem eru kapítalistar
eða í millistétt er vitaskuld góð
fyrir þá sjálfa, en skiptir engu fyr-
ir hina.
Fyrirlitning á
verkalýðsstéttinni?
Alan Duff, höfundur sögunnar
Once We Were Warriors, er Maóri.
Joan Shields, frambjóðandi Banda-
lags kommúnista á Nýja-Sjálandi,
segir í blaðagrein að „fyrirlitning
hans á verkalýðsstéttinni" birtist
skýrt í kvikmyndinni. „Hann dreg-
ur upp mynd af Maórahjónum í
verkalýðsstétt sem lifa á aðstoð frá
félagsmálastofnun, eru á stöðugu
fylleríi og partí allar nætur. Mann-
inum er lýst einsog ruddalegri
skepnu sem gengur í skrokk á konu
sinni. Börnin njóta engrar um-
hyggju enda verður einn sonurinn
smákrimmi, annar gengur í glæpa-
klíku og dóttirin bindur enda á líf
sitt eftir að drykkjuvinur foreldr-
anna hefur nauðgað henni.“
Þetta eru „þemu í hugmynda-
fræðilegri atlögu og miða öll að
sömu niðurstöðu, að í verkalýðs-
stétt sé annars flokks fólk“. Þeir
„beina spjótum sínum að útivinn-
andi konum, unglingum, Maórum“
og fleirum, en „skotmarkið er alltaf
verkalýðsstéttin. Þeir eru að reyna
að sýna okkur framá að við getum
ekki stjórnað nokkrum hlut, hvað
þá samfélaginu“, segir Joan Shi-
elds.
Þar sem myndin gekk í kvik-
myndahúsum á Nýja-Sjálandi
komst upp um hneykslismál. Ráð-
herra í ríkisstjórninni varð uppvís
að því í mars að hafa í tvígang
hringt inn í útvarpsþátt, þóst vera
Maóri og lýst því fjálglega hvernig
hann lifði af félagsmálaaðstoð, nóg
að drekka og fint að þurfa ekki
að vinna. Það er athyglivert að
ráðherrann hafði ekki fundið neinn
til að hringja fyrir sig.
SIGURLAUG S.
GUNNLAUGSDÓTTIR,
Seljavegi 11, Reykjavík.
Svar til Sigurðar
Magnússonar
Frá Rafmagnseftirliti ríkisins:
SIGURÐUR Magnússon, fv. yfir
rafmagnseftirlitsmaður, hefur tví-
vegis á undanförnum vikum skrifað
opin bréf í Morgunblaðið til Raf-
magnseftirlits ríkisins um efni Orð-
sendingar RER nr. 2/95. Vegna
þeirra rafmagnsmenntuðu manna,
sem lesið hafa bréf Sigurðar og
kunna að vera í óvissu eftir lestur
þeirra, tel ég rétt að svara skrifum
Sigurðar á sama vettvangi. Sigurð-
ur hefur ekki þekkst ítrekuð boð
Rafmagnseftirlits ríkisins um að
útskýra sjónarmið sín nánar fyrir
starfsmönnum RER eða hlusta á
ástæður, sem að baki umræddrar
orðsendingar eru.
Með Orðsendingu nr. 2/95 tekur
rafmagnseftirlitið ekki afstöðu til
þess, hvaða varnarráðstöfun gegn
of hárri snertispennu er notuð.
Ýmsar aðferðir eru leyfðar, skv.
grein 203 í reglugerð um raforku-
virki nr. 264/71 með síðari breyt-
ingum. Tvöföld einangrun og núllun
eru hvort tveggja viðurkenndar ráð-
stafanir. Tvöfaldri einangrun fylgir
sú kvöð, að hana á að auðkenna
með sérstöku merki, tvöföldum
ferningi, en sé önnur vamarráðstöf-
un notuð, t.d. núllun, sem Sigurði
verður tíðrætt um, má merkið ekki
vera á þeim rafbúnaði, sem núllaður
er.
I umræddri orðsendingu er lögð
áhersla á að fullnægja í hvívetna
þeim kröfum, sem gerðar eru til
tvöfaldrar einangrunar, ef henni er
á annað borð beitt einhvers staðar
í raflögn eða raforkuvirki, þar með
talið, að tæki eða búnaður beri
merki um tvöfalda einangrun. Hins
vegar verður að afmá eða líma yfír
þetta merki, eins og kveðið er á um
í orðsendingunni, ef ekki er unnt
að uppfylla skilyrði til tvöfaldrar
einangrunar eða þau brotin með
röngum aðgerðum. Það gæti leitt
til slyssfef þeir, sem við raforku-
virki vinna, eru blekktir með röng-
um upplýsingum eða merkingum.
Þetta á ekkert síður við, þó að ein-
ungis fagmenn megi vinna við raf-
orkuvirki, enda vita þeir, hvaða
vörn býr að baki tvöfaldrar einangr-
unar, þekkja reglur um hana og
merkið, sem notað er til að auð-
kenna þessa varnarráðstöfun.
Meginregla er, að ekki má jarð-
tengja þegar beitt er tvöfaldri ein-
angrun — en henni verður að beita
rétt.
Tvöföld einangrun á einungis við
um lágspennt raforkuvirki. Þess
vegna er ekki verið að fjalla um
háspennutöflur í Orðsendingu nr.
2/95.
Sú ábending og áminning, sem
Vidarkyntir pottar
Fyrir sumarbústaðinn eða garðinn heima.
yiðfBlómávalí
hsestujSaQÓ.-]
Kynning
wm
viðarkyntir pottar
Hamraborg 10 200 Kópavogi s. 552 8440 S/F 588 5848 thorthor@ismennt
felst í orðsendingunni, er ekki sér-
íslensk. Hún er í samræmdum evr-
ópskum reglum og endurspeglast
m.a. í öðrum norrænum reglum og
ekki síst í þýskum, sem jafnframt
eru ítarlegri. Sigurði Magnússyni
er að sjálfsögðu velkomið að kynna
sér þessar reglur líka hjá Rafmagns
eftirliti ríkisins, á sama hátt og
hverjum þeim, sem áhuga hefur.
Undirritaður vill ekki stunda
orðaskak í fjölmiðlum við Sigurð
Magnússon, en tilvitnanir í orð eða
ritverk af hvers kyns tagi verða að
vera nákvæmar. I fyrri grein sinni
brenglar Sigurður merkingu setn-
ingar í umræddri orðsendingu með
rangri tilvitnun.
BERGUR JÓNSSON,
rafmagnseftirlitsstjóri ríkisins.
Helstu einkenni: Með sokk
og Eva miðsóla með trimomic
dempun - mjúkir og stöðugir skór.
Þyngd: 370 gr.
Stærðir: 38-47
Verð aðeins kr. 7.590
FJÖLSPORT
MIÐBÆ . HAFNARFIRÐI
mmúTiLíFPmm
GUESIBÆ . REYKJAVÍK
BLÁSKJÁR
BARNAFÖT
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 17b
FRÁBÆRT VERÐ
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut
Kopavogi, sími
567-1800
Löggild bílasala
Opið laugard. kl. 10-17,
sunnud. kl. 13-18.
Nissan Sunny SLX 4x4 Artic Edition '94,
blár, 5 g., ek. 21 þ. km., álfelgur, rafm. í
öllu, dræattarkúla, tveir dekkjagangar á
felgurm V. 1.470 þús.
Einnig: Nissan Sunny SLX 1,6 Station
'93, vínrauður, 5 g., ek. 55 þ. km., rafm.
í rúðum, tveir dekkjag. V. 1.090 þús.
MMC Colt GLXi '91, sjálfsk., m/öllu, ek.
70 þ. km. V. 890 þús.
Nissan Terrano 5 dyra 2,7 Turbo diesil
'93, rauður, 5 g., ek. 26 þ. km., ABS
bremsur, rafm. í rúðum o.fl. V. 2.650 þús.
Renault Clio 1,4 RT '91, 5 dyra, svartur,
5 g., ek. 47 þ. km., rafm. í rúðum o.fl.
V. 740 þús.
Nissan Sunny SLX Sedan '94, sjálfsk.,
ek. 12 þ. km. Sem nýr. V. 1.250 þús.
Cherokee Limited '89, sjálfsk., ek. aðeins
64 þ. km., leðurinnr. o.fl. Toppeintak. V.
1.890 þús.
MMC Lancer GLXi 4x4 Station '93, 5 g.,
ek. 61 þ. km., álfelgur, rafm. í öllu. V. 1.450
þús.
Nissan Sunny 1600i SR '94, steingrár,
sjálfsk., ek. 15 þ. km., rafm. í rúðum, ál-
felgur, spoiler (2). Einn með öllu. V. 1.260
þús.
Hyundai Pony LS Sedan '94, 5 g., ek. 25
þ. km. Tilboðsverð 780 þús. Sk. ód.
MMC Lancer GLXi '94, dökkgrænn,
sjálfsk., ek. 9 þ. km., álfelgur, spoiler o.fl.
V. 1.450 þús. Sk. ód.
Chevrolet Blazer S-10 Thao '86, sjálfsk.,
ek. 75 þ. mílur. Góður jeppi. Tilboðsverð
730 þús.
Ford Broco II '84, rauður, 4 g., ek. 110
þ. km., nýsk. '96. Tilboðsverð 490 þús.
Subaru Legacy Artic Edition 4x4 '93,
hvítur, 5 g., ek. 29 þ. km., álfelgur, rafm.
í rúðurp o.fl. V. 1.890 þús.
MMC Colt GLXi '93, rauður, 5 g., ek. 42
þ. km., álfelgur, spoiler, rafm. í öllu.
V. 1.150 þús.
Citroen BX 14E '87, blár, 5 g., ek. 140
þ. km. Mikið endurnýjaður, gott eintak.
Tilboðsv. 230 þús.
Daihatsu Feroza EL '94, grænn/grár, 5
g., ek. 11 þ. km. Tilboðsverð 1.390 þús.
Sk. ód. Einnig: árg. '90, 5 g., ek. 87 þ.
*km. Tilboðsv. 890 þús.
Subaru E-10 4x4 Minibus '88, 7 manna,
5 g., ek. aðeins 67 þ. km. V. 490 þús.
Nissan Patrol diesel Turbo langur '91, 5
g., ek. 106 þ. km. Gott eintak. V. 2.650 þús.
Toyota Hi Lux D. Cap diesil m/húsi '92,
5 g., ek. 94 þ. km., 33“ dekk, brettakant-
ar. V. 1.850 þús. Sk. ód.
MMC Colt GL '91, 5 g., ek. 40 þ. km.
V. 720 þús. Sk. ód.
MMC Lancer GLXi '91, Hlaðbakur, 5 g.,
ek. aðeins 34 þ. km., rafm. í rúðum o.fl.
V. 990 þús.
Höfum kaupendur að:
’92-'94 árg. af MMC Paj-
ero, Toyota D. Cap,
Landcruiser og 4Runner.