Morgunblaðið - 09.06.1995, Blaðsíða 52
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SI'Ml 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(S>CENTRUM.IS / AKllREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Mikill ágreiningur er um ýmis
atriði nýs sjómannasamnings
Þokast hægt í átt
til samkomulags
HÆGT þokaðist í samkomulagsátt
í kjaradeilu sjómanna og útvegs-
manna í gær. Flest bendir þó til að
samningar takist fyrir sjómannadag.
Að sögn Geirs Gunnarssonar vara-
sáttasemjara er deilt um fá afmörk-
uð atriði. Hann sagði að ágreiningur-
inn væri þess eðlis að erfitt væri að
ná samkomulagi, m.a. vegna þess
að aldrei hefði verið samið um sum
þessara atriða áður.
Vonir um að fljótt gengi að ná
samkomulagi um nýjan kjarasamn-
ing eftir að ágreiningur leystist um
verðmyndun á fiski gengu ekki eft-
ir. Samningafundi var frestað í fyrri-
nótt eftir að hörð orðaskipti höfðu
átt sér stað milli samningamanna.
Fundi var framhaldið kl. 11 í gær-
morgun. Þá var staðan sú að deilt
var um ein 18 atriði. Togast var á
um öll þessi atriði fram eftir degi í
gær. Langur tími fór í að ræða hafn-
arfrí og helgarfrí og var skammt í
að samkomulag næðist um þau
mál. Flest benti til að nokkrum
málum þar til viðbótar yrði ýtt út
af borðinu. Þar á meðal var krafa
sjómanna um breytingar á oliuverðs-
tengingu.
Skip ekki á sjó fyrir
sjómannadag
Meðal mála sem tekist var á um
í gærkvöldi voru kröfur sjómanna
um sérveiðar, uppsagnarfrest und-
irmanna og starfsaldursálag, en sjó-
menn krefjast þess að þeir haldi
áunnum réttindum þegar þeir flytj-
ast milli útgerða. Til umræðu voru
einnig nokkrar gagnkröfur LÍÚ,
m.a. um að hlutaskiptum verði
breytt ef fækkun á sér stað í áhöfn
skips. Nú er ljóst að ekkert skip
fer á veiðar fyrir sjómannadag. Út-
gerðarmenn í Þorlákshöfn. sem haft
hafa uppi hótanir um að láta úr
höfn, hafa ákveðið að sjá til í trausti
þess að samningar takist fyrir sjó-
mannadag.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
SUMARIÐ vitjaði ioks Norð-
lendinga og Austfirðinga í
gær. Hitinn fór yfir 20 stig
á nokkrum stöðum og á
Akureyri sýndi hitamælir
Kiwanis 25 stig og höfðu
ekki sést þar jafnháar tölur
misserum saman. Sigríður í
garðyrkjustöðinni Grísará í
Eyjafirði sendi starfsfólki
Veðurstofunnar 7 hvítar rós-
ir í tilefni dagsins og voru
Hlýjar
kveðjur
að norðan
þau Ásdís Auðunsdóttir,
Björn Karlsson, Halldóra
Morgunblaðið/Sverrir
Ingibergsdóttir og Unnur
Ólafsdóttir að vonum ánægð
með sendinguna. Rósunum
fylgdi ósk um sama veður
90 daga í ár! Ekki eru mikl-
ar líkur á því að sú ósk ræt-
ist en hins vegar er spáð
svipuðu veðri næstu daga.
Búist er við miklum vatna
vöxtum og eru starfsmenn
Vegagerðarinnar og sveit-
arfélaga í viðbragðsstöðu.
Morgunblaðið/Þorkell
Ráðherra í
heimsókn
VO VAN Kiet forsætisráðherra
Víetnams kom í opinbera heim-
sókn hingað til iands í gær ásamt
eiginkonu sinni og fjölmennu
föruneyti. Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra og eiginkona hans,
Ástríður Thorarensen, héldu
gestunum veislu í Perlunni í
gærkvöldi. I dag ræðir Vo Van
Kiet við íslenska ráðamenn og
fer m.a. til Þingvalla.
Alversdeilan
Verkfall á
miðnætti
semjist ekki
DEILUAÐILAR kjaradeilunnar í ál-
verinu komu saman til sáttafundar
kl. 11 í gærmorgun og stóðu viðræð-
ur yfir fram eftir kvöldi. Þegar Morg-
unblaðið fór í prentun voru allar lík-
ur taldar á viðræðum yrði haldið
áfram fram eftir nóttu.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins varð lítill sem enginn árang-
ur af viðræðunum í gær og var ekk-
ert farið að ræða launaatriði væntan-
legra kjarasamninga. Þess í stað var
eingöngu fjallað um sérkjaraatriði
væntanlegra samninga, að sögn
Gylfa Ingvarssonar, aðaltrúnaðar-
-manns starfsmanna.
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri VSÍ, sagði að
ákveðnar þreifingar hefðu átt sér
stað en lausn á deilunni væri ekki í
sjónmáli.
Verkfall sem nær til tæplega fimm
hundruð starfsmanna í álverinu í
Straumsvík hefst á miðnætti í kvöld
hafi ekki samist fyrir þann tíma en
samkvæmt samningum aðila gefst
tveggja vikna aðlögunartími til að
undirbúa álverið fyrir stöðvun.
Gagnrýni á GATT-frumvarp
Heimsmarkaðs-
verð óraunhæft
NEYTENDASAMTÖKIN og for-
ráðamenn innflutningsfyrirtækja
gagnrýna þau ákvæði GATT-frum-
varps ríkisstjórnarinnar, sem snúa
að innflutningi landbúnaðarafurða.
Fyrir efnahags- og viðskiptanefnd
Alþingis hafa verið lagðar upplýs-
Xfllgar, sem sýna að á því verði, sem
landbúnaðarvörur fást nú á í Vestur-
Evrópu, yrði tollvernd sú, sem ís-
lenzkur landbúnaður nyti, miklu
meiri en gert. hefur verið ráð fyrir.
Ástæðan er sú, að sögn Neytenda-
samtakanna og forstjóra Hagkaups
hf., að heimsmarkaðsverðið, sem
miðað er við í frumvarpinu, er óraun-
hæft og vörurnar fást ekki nema á
talsvert hærra verði. Tollar, sem
frumvarpið kveður á um, leiða þá til
verðs, sem er allt að 150% hærra en
á innlendum afurðum, þótt um sé
að ræða þann takmarkaða innflutn-
ingskvóta, sem flytja á til landsins á
lægri tollum en annan innflutning. í
Jjrfáum tilfellum er verð innfluttu
vörunnar lægra en sambærilegrar
innlendrar vöru.
Verðið á osti lægra með
„háum“ tollum
Misræmið á milli heimsmarkaðs-
verðs og þess verðs, sem Neytenda-
samtökin telja eðlilegt að miða við,
leiðir sömuleiðis til þess, samkvæmt
útreikningi samtakanna, að innfluttur
ostur verður dýrari með þeim tollum,
sem lagðir eru á hið takmarkaða
magn innflutnings, sem átti að verða
á lægra verði, en með tollum, sem
lagðir verða á almennan innflutning
og áttu að vera hærri. Munar yfir
600 krónum á kílóið af Brie-osti.
Efnahags- og viðskiptanefnd held-
ur fund í dag. Vilhjálmur Egilsson,
formaður efnahags- og viðskipta-
nefndar, segir að þar verði væntan-
iega tekin ákvörðun um þær breyting-
ar, sem nefndin kunni að sjá ástæðu
til að gera á frumvarpinu.
■ Stendur GATT/26-27
Kona rænd
og slegin
RÁÐIST var á konu í bíla-
geymslu undir Ráðhúsi
Reykjavíkur um hálf fimm-
leytið í gær og stolið af henni
tösku. Þegar konan streyttist
á móti sló árásarmaðurinn
hana í andlitið og komst í
burtu með töskuna. í henni
voru fimm þúsund krónur í
peningum ogýmsir persónu-
legir munir. Árásarmannsins
er leitað.
Nýtt álit umboðsmanns Alþingis um kæru lyfjaheildsala vegna lyfjasölu
Fyrirmæli ráðuneytis
eiga sér ekki lagastoð
UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur
gefið út það álit, að fyrirmæli heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
isins, að lyfsölum sé heimilt að af-
greiða samheitalyf í stað tilgreinds
sérlyfs, ef fyrirmæli læknis um það
atriði skortir, eigi sér ekki viðhlít-
andi stoð í lyfjalögum eða reglu-
-gptf um.
Tildrög málsins voru þau að sett
var reglugerð um það að lyfjafræð-
ingar mættu ekki breyta lyfjaávísun
ef læknar skrifuðu R á eftir heiti
lyfsins, en ef þeir skrifuðu S ætti
að afhenda ódýrasta samheitalyfið.
Ráðuneytið sendi síðan frá sér
dreifibréf til apóteka sumarið 1992,
með þeim fyrirmælum að hefðu
iæknar gleymt að rita S eða R á
eftir heiti lyfs, hefðu lyljafræðingar
heimild til að afgreiða ódýrustu
samheitalyfin.
Stefán Thorarensen h/f, sem
hefur umboð fyrir mörg lyf, kærði
þessi fyrirmæli ráðuneytisins til
samkeppnisráðs og áfrýjunarnefnd-
ar samkeppnismála, sem vísuðu
málinu frá sér.
í framhaldi af því bar fyrirtækið
fram kvörtun til umboðsmanns Al-
þingis, sem nú hefur ályktað því í
vil. „Niðurstaðan er sú að ekki hafi
verið stoð fyrir fyrirmælum ráðu-
neytisins hvorki í lögum né reglu-
gerðum,“ segir Haukur Ingason,
lyfjafræðingur hjá Stefáni Thorar-
ensen h/f.
Ráðuneytið hefur sent frá sér
nýja reglugerð sem gengur í gildi
1. júlí, þar sem S og R merkingar
á lyfseðlum verða felldar niður.
Teknir verða upp nýir lyfseðlar og
eiga læknar að skrifa upphafsstafi
sína á eftir ávísun ef ekki má breyta
þeim. „Við munum taka upp nýja
lyfseðla og teljum þetta rétt svona,“
segir Páll Sigurðsson, ráðuneytis-
stjóri heilbrigðisráðuneytisins.
Haukur segist aftur á móti ekki
vera sáttur við nýju reglugerðina:
„Samkvæmt niðurstöðu umboðs-
manns Alþingis er þetta ólöglegt,
því ekki má breyta ávísun lyfseðils
nema með samþykki læknis, því
hann ber ábyrgð á lyfseðlinum sam-
kvæmt lögum. Ég lít ekki á það sem
samþykki þótt læknir sleppi að
skrifa upphafsstafi sína á lyfseðil-
inn og samkvæmt lögum má ekki
breyta ávísun lyfseðils án hans sam-
þykkis. Við teljum þessa reglugerð
vita ólöglega og munum að sjálf-
sögðu kæra hana. Hún stenst ekki
læknalög, lyfjalög né lög um vöru-
merki."