Morgunblaðið - 16.06.1995, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995 9
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Sialdséður hvítur spói
HVÍTIR spóar eru sjaldséðir
fuglar. Þessi leirhvíti spói varð
þó á vegi ljósmyndara Morgun-
blaðsins á Austurlandi og full-
yrða má að spóinn hafi ekki eðli-
íegt magn litarefna í sér. Ólafur
K. Nielsen fuglafræðingur segir
að fuglinn sé hálfur albínói. Hann
væri ekki skjannahvítur heldur
bæri á brúnum skellum á búk
hans. Alla jafna er spóinn
brúndröfnóttur, með dökkan koll
og dökkar augnrákir. Ljósar rák-
ir ofan á höfði spóa eru aftur á
móti besta einkenni hans og
greinir hann frá fjöruspóa. Ólaf-
ur segir að það komi alltaf fram
hvítir albínóa fuglar. Sjálfur hafi
hann séð hvítan hrafn, skógar-
þröst og hrossagauk, hvíta grá-
gæs og stokkönd en aldrei hvítan
spóa.
Hentu þorski fyrir borð á Selvogsbanka í maí
Sex netabátar sviptir
veiðileyfi í vikutíma
SEX netabátar, sem veiðieftirlits-
menn Fiskistofu stóðu að því að
henda þorski fyrir borð á Selvogs-
banka í maímánuði, voru sviptir
veiðileyfi í vikutíma frá og með
seinasta laugardegi, samkvæmt
úrskurði sjávarútvegsráðuneytis-
ins.
Fiskistofa kærði framferði bát-
ana til ráðuneytisins og Rannsókn-
arlögreglu ríkisins. Þrír veiðieftir-
litsmenn voru sjónarvottar að at-
hæfi áhafna bátanna og festu það
á myndband. Jón B. Jónasson,
skrifstofustjóri í sjávarútvegs-
ráðuneytinu, segir að eftir að ráðu-
neytið hafði kannað málið og rætt
við áhafnir bátanna, hafi vikulöng
svipting á veiðileyfi þótt hæfileg
refsing enda teldust sönnur færðar
á brot þeirra.
Bátarnir missa veiðileyfi sín á
sama tíma og verkfall sjómanna
stöðvar veiðar skipa, en Jón segir
að verkfallið lengi ekki tíma svipt-
ingar. Ekki hafí verið hægt að líta
til hvort að verkfall stæði yfir,
væri yfirvofandi eða að leysast,
frekar en til brælu eða sambæri-
legra ytri aðstæðna sem hindri
veiðar.
Viðurkenna ekki brotið
Hann segir sjómennina á bátun-
um sex ekki viðurkenna að þeir
hafi fleygt nýtanlegum afla, heldur
segi í vitnisburði þeirra að þeir
hafi aðeins sleppt lifandi smáfiski.
Jafnframt hafi verið samhæfður
framburður skipveija fjögurra bát-
anna, þess eðlis að vegna fækkun-
ar í áhöfn þeirra væri enginn sjó-
maður við netarúlluna á borðstokk-
inum til að hirða þann fisk sem
losnaði úr neturn, og af þeim sök-
um slitnaði töluvert af fiski úr
netum og flyti aftur með bátunum.
„Skýrslur þeirra voru ögn sér-
kennilega samhljóða," segir Jón
en áhafnir tveggja báta vildu hins
vegar ekki koma sjónarmiðum sín-
um á framfæri eða gera sérstakar
athugasemdir við kæru Fiskistofu.
Landhelgisgæsla og Fiskistofa
hafa eftirlit með að bátarnir sex,
sem flestir eru skráðir á sunnan-
verðu landinu, hlíti sviptingu veiði-
Ný reglugerð um veiðikort gefin út
Selveiðar heimil
ar án korts
Umferðarátak
lögreglunnar
á Suðvesturlandi
Athyglinni
beint að eft-
irvögnum
LÖGREGLAN á Suðvesturlandi mun
í samvinnu við Bifreiðaskoðun íslands
leggja sérstaka áherslu á eftirlit með
eftirvögnum dagana 19.-23. júní nk.
Meðal annars verður hugað að eft-
irvögnum dráttarvéla í tengslum við
vinnuskólana, speglabúnaði dráttar-
tækja með breiða eftirvagna og eftir-
vögnum flutningabifreiða og tjald-
vagna.
Bifreiðaskoðun íslands og lögregl-
an munu reyna að vekja athygli á
ákvæðum reglugerðar þar að lútandi,
reyna að upplýsa fólk eftir föngum
um gerð og búnað, skilyrði og skrán-
ingu o.fl. Auk þess munu lögreglu-
menn og skoðunarmenn vinna saman
tiltekna daga á ákveðnum svæðum
með það fyrir augum að fylgjast með
og athuga nefndan búnað.
Nú fer í hönd sá árstími er gefa
þarf þessum þætti umferðannála sér-
stakan gaum, eftir því sem segir í
fréttatilkynningu frá samstarfsnefnd
lögreglunnar á Suðvesturlandi í um-
ferðarmálum.
SAMKVÆMT nýrri reglugerð um
veiðikort, þar sem kveðið er á um
að menn þurfi að hafa bæði veiði-
kort og skotvopnaleyfi til að stunda
veiðar hérlendis á fuglum, refum,
minkum og hreindýrum, þarf ekki
sérstakt leyfi til að skjóta sel.
Veiðikortin ná ekki yfir selveið-
ar, að sögn Ásbjörns Dagbjartsson-
ar veiðistjóra, en hins vegar hafi
selur verið meðal annarra veiðidýra
í frumvarpi því sem lagt var fyrir
Alþingi. I meðförum þingsins var
selurinn hins vegar tekinn út.
Eðlilegt að selur sé með
„Selurinn hefur ekki verið í lög-
urn um skotveiðar, en í upphafi
endurskoðunar á lögunum var
reiknað með að selurinn yrði með,
eins og eðlilegast er, en honum var
kippt út af einhveijum ástæðum,"
segir Ásbjörn.
„Ef að veiðimaður er staddur í
almenningi, t.d. utan við netlög,
þ.e. 100 metra frá landi þar sem
hann er ekki staddur í annars
manns landi, er ekkert sem friðar
sel. Mér finnst hins vegar mjög lík-
legt að selurinn endi með öðrum
spendýrum í löggjöfinni og hæpið
að láta hann standa fyrir utan,
enda á hann samleið með öðrum
villtum dýrum sem nýtt eru með
veiðum á íslandi."
Reglugerðin tók gildi um sein-
ustu mánaðamót, en með henni
varð sú breyting helst að allir sem
stunda veiðar á villtum dýrum, öðr-
um en rottum og músum, skulu
afla sér veiðikorts sem embætti
veiðistjóra gefur út. Áður gilti
byssuleyfi sem veiðikort.
Einungis handhafar veiðikorta
mega stunda skotveiðar hér eftir,
að því tilskildu að þeir hafi skot-
vopnaleyfi hér á landi. Kortið gildir
að jafnaði í eitt ár í senn og er ár-
gjald 1.500 krónur, en kortið fæst
ekki endurnýjað nema veiðimaður
hafi skilað veiðiskýrslu til embættis
veiðistjóra um veiði seinasta árs.
♦ ♦ ♦
Búfé á ábyrgð
eigenda
LAUSAGANGA búfjár á vegsvæðum
stofnvega og tengivega þar sem girt
er báðum megin er bönnuð. Þar er
búfé því alfarið á ábyrgð eigenda
sinna.
Sýslumaðurinn í Borgarnesi vekur
sérstaka athygli á þessu en reglur
um lausagöngu búfjár við vegi breytt-
ust við gildistöku nýrra vegalaga á
síðasta ári. í frétt frá sýslumanni
segir að mikið sé nú utn sauðfé við
vegi í umdæminu og bendir hann.eig-
endum á að ijarlægja það. Vegagerð-
inni er einnig heimilt að fjarlægja
búfé af vegsvæðum á kostnað eig-
enda.
Umferðarátak lögreglu
Sérstakt umferðarátak hefur staðið
undanfarið í umdæmi lögreglunnar í
Borgarnesi og tók lögreglan þar 42
ökumenn sl. helgi fyrir of hraðan
akstur. Jafnframt voru þrír ökumenn
teknir vegna gruns um ölvun við akst-
ur, átta voru teknir með vanbúnar
kerrur eða aftanívagna og tíu vegna
vanbúinna bifreiða. Átakinu verður
haldið áfram næstu helgar.
Þórsmerkurferðir fyrstu helgina í júlí
Slá verslunar-
maimahelginni við?
ÚTLIT er fyrir fjölmenni í Þórs-
mörk fyrstu helgina í júlí. Mun það
vera regla fremur en undantekning
að umrædd helgi slái verslunar-
mannahelginni við hvað varðar
ferðir í Þórsmörk.
Undanfarin ár eru mörg dæmi
þess að fyrsta helgin í júlí hafi ver-
ið fjölmennasta helgi ársins í Þórs-
mörk, að sögn lögreglunnar á
Hvolsvelli. Hestamót hafa haft ein-
hver áhrif á ferðamannastrauminn
á þessum tíma en fyrstu helgina í
júlí 1992 var heildarfjöldinn á svæð-
inu metinn allt að 3.000 manns, að
sögn lögreglunnar. Hún bendir þó
á að veður og færð fjallvega skipta
miklu máli varðandi ferðamanna-
strauminn inn í Þórsmörk ár hvert.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins frá Ferðafélagi íslands,
Útivist og Austurleið hafa nálægt
800 manns bókað sig í Þórsmörk,
fyrstu helgina í júlí. Þar af eru
tæplega 400 framhaldskólanem-
endur af höfuðborgarsvæðinu sem
verða í Húsadal á vegum Austur-
leiðar. Langflestir þeirra Þórsmerk-
urgesta sem hafa bókað sig verða
í tjöldum.
Full búð af
fallegum sumar-
fötum á góðu
verði.
fc
DIMMALIMM
Skólavörðustíg 10,
s. 551-1222
Fólk er alltaf
að vinna
íGullnámunni:
75 milljonir
Vikuna 8. tii 14. júní voru samtals 74.992.850 kr. greiddar
út í happdrættisvélum um allt iand.
Þetta voru bæði veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af
öðrum vinningum. Silfurpottar í vikunni:
Dags. Staður: Upphæð kr.:
Mamma Rósa, Kópavogi. 255.259
Mónakó...........
8. júní
8. júní
9. júní
9. júní
9. júní
11. júní
12. júní
12. júní
13. júní
13. júní
13. júní
14. júní
14. júní
................. 61.832
Mónakó..................... 139.411
.................. 96.663
Mónakó....................
Háspenna, Laugavegi........ 63.234
Eden, Hveragerði............. 283.201
Háspenna, Laugavegi........ 82.375
Háspenna, Hafnarstræti..... 116.524
Garðakráin, Garðabæ........ 140.750
Mónakó........................ 61.692
Háspenna, Laugavegi........ 140.935
Café Royale, Hafnarfirði... 94.509
Mamma Rósa, Kópavogi....... 127.733
Staða Gullpottsins 15. júní, kl. 12:30
var 5.780.436 krónur.
j ,HE>
Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr.
og hækka síöan jafnt og þétt þar til þeir detta.