Morgunblaðið - 16.06.1995, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995 11
FRÉTTIR
Gott samkomulag um niðurkeyrslu í álverinu
Morgunblaðið/Þorkell
BRJOTA þarf í skurn kríólítsins í kerunum til þess að súrál eigi greiðari leið að skautunum.
Stærsti skaðinn yrði
tap viðskiptasambanda
HARALDUR Jónsson, fulltrúi verkalýðsfélaganna í nefnd um
framkvæmd verkfalls, og Einar Guðmundsson, fulltrúi ÍSAL.
Hægt og sígandi
lækkar í kerunum í ál-
verinu í Straumsvík. Að
öllu óbreyttu stöðvast
starfsemi þar 24. júní
nk., náist ekki sam-
komulag í kjaradeilu
starfsmanna og ÍSAL.
Guðjón Guðmundsson
heimsótti álverið í gær
FJÓRTÁN daga lokunarferli
er nú næstum hálfnað en
unnið er að lokuninni í
fullri samvinnu milli full-
trúa verkalýðsfélaganna og fulltrúa
ISAL sem skipa nefnd um fram-
kvæmd verkfalls. Rannveig Rist,
steypuskálastjóri, segir að hugsan-
legt sé að ÍSAL tapi viðskiptasam-
böndum verði af lokun framleiðsl-
unnar og að fari svo verði það stærsti
skaði fyrirtækisins.
Einar Guðmundsson, fulltrúi
ÍSAL í nefndinni, segir að það sé
hlutverk hennar að fjalla um öll þau
álitamál sem upp koma á lokunar-
tímabilinu. Haraldur Jónsson, full-
trúi verkalýðsfélaganna, sagði að
1986 hefði verið gert samkomulag
um það hvernig skyldi standa að
niðurkeyrslu á framleiðslu í álverinu
því áður hefði ríkt ágreiningur um
framkvæmdina. I samkomulaginu
felst að einn maður frá hvorum
aðila kemur að málinu.
Einar segir að stundum þurfi
nefndin að taka ákvarðanir í skynd-
ingu, t.a.m. þegar bilanir koma
upp. Haraldur sagði að það hefði
verið ákvörðun verkalýðsfélaganna
að gefa víðtækar heimildir til þess
að framleiðslan gengi sem eðlileg-
ast fyrir sig og hefðu þegar verið
veittar miklar undanþágur.
Stóriðjuver
„I framkvæmdinni hefur verið
staðið að málum á heldur rólegri
nótum en í fyrri skiptum. Þetta er
öðruvísi fyrirtæki en flest önnur í
landinu. Alver er ekki eins og skip
sem er bundið við bryggju og það
er ekki markmið verkalýðsfélag-
anna að valda tjóni heldur að ná
samkomulagi um kaup og kjör.
Verkfall er aðgerð sem í eðli sínu
getur valdið tjóni en markmiðið er
að valda sem minnstu tjóni á niður-
keyrslu tímabilinu," sagði Haraldur.
Fyrst þegar gengið er um ganga
kerskálanna öðlast hugtakið stór-
iðjuver merkingu í huga blaða-
manns. Hvor skáli er einn kílómetri
að lengd og þar fara starfsmenn
um á reiðhjólum. Hár straumur fer
í gegnum rafskaut í kerunum en
eitt rafskaut þarf fyrir hvert tonn
sem framleitt er af áli. í kerskálan-
um virðist andrúmsloft tiltölulega
hreint en þar er sterkt rafsegulsvið
og eftir um 20 mínútna dvöl í skál-
anum seinkaði armbandsúr blaða-
manns sér um nálægt 10 mínútur.
Ef slökkt yrði á kerum storknaði
málmurinn og raflausnin í þeim. í
kerunum er 960 gráðu hiti og þeg-
ar málmurinn kólnar niður fyrir
storknunarmark, sem er 680-690
gráður á Celsius á málminum og
930-950 gráður á raflausninni, er
talað um að hann frjósi. í kerunum
er u.þ.b. 20 sm lag af áli og þar
fyrir ofan um 20 sm lag af bráðnu
kríólíti sem hefur minni eðlisþyngd
en ál. Niður í kríólítbráðinu standa
rafskautin, um 6 sm ofan við yfir-
borð álsins. Þar fer fram aðskilnað-
ur súrefnis og áls og hreint ál verð-
ur til. Álið sekkur til botns í kerun-
um og er sogað upp annan hvern
sólarhring.
Meira tekið en framleitt
Rannveig sagði að niðurkeyrslan
snerist í raun um það að verið
væri að taka meira af áli úr kerun-
um en framleitt væri í þeim. Venju-
lega er jafnmikið framleitt af áli í
kerunum og tekið er út úr þeim.
320 ker eru í álverinu og við venju-
legar aðstæður eru tekin frá 1.200
til 2.400 kg af áli úr hvetju keri
annan hvern sólarhring. Stefnt er
að því að lækka í kerunum um rú-
man einn sentimetra að meðaltali
á dag á niðurkeyrslutímanum.
Úr kerunum fer álið í deiglu og
steypt er úr því svokallaðir álbarrar
en algengt er að þeir vegi frá 4-11
tonn. Barrarnir eru allt að 8 metrar
á lengd, 2,20 metrar á breidd og
0,6 metrar á þykkt.
Rannveig segir að náist sam-
komulag á niðurkeyrslutímanum
megi forða tjóni en takist það ekki
verði skaðinn fljótlega eftir það.
Einar segir að það taki allt frá
þremur og upp í sex mánuði að
koma starfseminni aftur í gang ef
hún stöðvast á annað borð. Þá er
nauðsynlegt að hreinsa raflausnina
upp úr kerunum. Rannveig segir
að þetta sé erfitt starf sem unnið
yrði með loftpressu og gröfum og
mikil mengun fylgi því.
„Þetta ferli tekur að lágmarki
þrjá mánuði í báðum skálunum en
líklega nær sex mánuðum," sagði
Rannveig. Ferlið kostar nálægt
540 milljónum króna og er þá ekki
reiknað með framleiðslutapi sem
verður. Velta ISAL hefur verið
7-10 milljarðar króna á ári sein-
ustu ár.
Hún segir það þó ekki mesta tjón-
ið því stöðvist framleiðslan gæti svo
farið að ISAL missti samninga við
viðskiptavini. „Við framleiðum völs-
unarbarra sem er vinnsla sem er
lengra komin en t.d. í löndum þriðja
heimsins. Þeir framleiða ál í hleifum
til endurbræðslu en við erum komin
einu þrepi lengra því við framleiðum
barra sem síðan eru valsaðir niður
í þunnar plötur sem notaðar eru
t.d. innan á mjólkurfernur, tann-
kremstúpur, lyfjapakkningar,
spegla í ljós og prentplötur. Sú
hætta getur skapast að við missum
markaði því viðskiptavinir okkar
þurfa að fá vöruna afhenta jafnóð-
um. Það er til lengri tíma litið alvar-
legra mál en sá hálfur milljarður
sem stöðvunin kostar beint.“
UNNIÐ við að fjarlægja gjall úr deiglu í steypuskála.
Skólavörðuholt - til sölu
lítið, fallegt einbýli, mikið endurnýjað. Húsið er í
góðu ástandi.
Upplýsingar í síma 552 6191.
» ^ ................ \
íbúð til sölu
Góð 4ra herbergja íbúð til sölu á góðum stað í Reykja-
vík. Vandaðar og miklar innréttingar. Stutt í búðir og
skóla. Gott hús.
Upplýsingar í síma 553 3491.
Frumskilyrði þess að njóta útivistar er réttur klæðnaður.
Margur vanbúinn ferðalangur hefur orðið fyrir barðinu á
snöggum og óvæntum veðrabrigðum. SIX-TEX* sport-
fatnaður er 100% vind- og vatnsþéttur en hleypir samt
útgufun líkamans að miklu leiti í gegn og hentar því vel í
hvaða veðri sem er.
66*N
SKÚLAGÖTU 51 SÍMI 551 1520, FAXAFENI 12 SlMI 588 6600