Morgunblaðið - 16.06.1995, Page 35

Morgunblaðið - 16.06.1995, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995 35. Hallgrími, Bjarna P., Karli og Sigr- únu, sem urðu eins og frændsystkini okkar. Karl var hrifinn brott í blóma lífsins og við syrgðum þennan bernskuvin okkar sárt og við tók erfitt tímabil í lífi Pollu og Magnús- ar. Þau, sem lifðu sig svo mikið inn í líf barna sinna og vildu allt gera til að vernda þau og efla, misstu yngsta soninn og syrgðu hann sárt. Leiðarstjarna Magnúsar og Le- opoldínu var að gefa börnum sínum ótakmarkaða ást og umhyggju og helst allt það sem þau höfðu farið á mis við sjálf. Þau unnu ómældan vinnudag að þessu marki og saman glöddust þau yfir öllum þeim tæki- færum sem börnin nutu og unnu markvisst að því að skila þeim heil- um í höfn. Samheldni og tryggð barnanna við Pollu var líka einstök, því börn og barnabörn voru alltaf í kringum hana bæði meðan Magnús lifði og eftir að hún var orðin ein á Þrastargötunni. Polla sleppti aldrei hendinni af þeim sem einu sinni höfðu komist undir verndarvæng hennar, Þess nutum við Lóðagæsirn- ar í ríkum mæli, umvafnar kærleika og umhyggju hinnar trúuðu, næmu Pollu sem aldrei brást trausti neins þess sem ungur hafði verið falinn i forsjá hennar. Við trúðum henni fyrir leyndarmálunum, óskum okkar og æskudraumum og vissum að hún geymdi það allt í hjarta sínu og huga og myndi aldrei bregðast trún- aðinum. Æviskeið Halldóru Kristínar Le- opoldínu Bjarnadóttir er á enda runnið. En minningin lifír um merk- an íslending, mikinn gieðigjafa og jákvætt afl, um sterka konu sem fór sínu fram með mildina og glaðværð- ina í farangrinum. Guð blessi minn- ingu hennar og styrki afkomendur hennar í sorginni og söknuðinum. Sigríður Asdís Snævarr. Ekkert varir að eilífu. Hve oft erum við ekki minnt á það. Jafnvel þó við vitum að hvetju stefnir þá er eins og við séum ávallt óviðbúin þegar við fréttum lát náins vinar. Við höldum alltaf að lengri tími gef- ist. Svo var einnig nú. Er ég heyrði af láti Leopóldínu var eins og allt stöðvaðist, stöðvaðist litla stund. Innst inni var ég samt fegin. Hetju- leg barátta hennar var á enda, nú hlaut henni að líða betur. Hún Polla, eins og hún var kölluð meðal vina, var alltaf svo hress og kát. Það geislaði af þessari konu. Þetta einstaka bros sem enginn.mun gleyma sem Pollu hefur þekkt. Availt gat hún miðlað mér einhverri lífsins speki bæði í gamni og alvöru, mér fannst ég alltaf vera betri mann- eskja er ég fór af hennar fundi. Eg var 16 ára gömul þegar ég kom fyrst á heimili Pollu og Magga og strax var mér tekið af þeirri elsku og hlýju sem ég mun ávallt vera þakklát fyrir. Því hagaði svo til er að mitt fyrsta heimili var í nágrenni við Pollu og Magga þá var gott að koma í heimsókn og þiggja góð ráð, því öllum vildu þau hjálpa og hvers manns götu greiða. Nú má ekki skilja það svo að alitaf hafi gleðin setið við borðið hennar Pollu, ó nei, sorgin kom þar einnig við. Þegar hún var ung og nýgift kona missti hún fyrsta barnið sitt, dótturina Sigrúnu, úr lungnabólgu. Síðar lést sonur hennar Kari 22 ára að aldri í hörmulegu umferðarslysi og fyrir réttum 10 árum hvarf eiginmaður hennar, Magnús Pétursson, yfir móðuna miklu eftir erfið veikindi. En hún Polla reis undir hverri raun. Hún var greind og mikilhæf kona, hafði yndi af söng og ferðalögum. Vart get ég hugsað mér betri uppa- landa en Pollu. Alltaf var hún að hvetja og telja kjark í börn sín svo og vini barna sinna. Allir voru vel- komnir til Pollu. Hún var mörgum mikil og góð móðir. Eg og fjölskylda mín kveðjum Pollu með þökk fyrir allt og allt. Elsku Sirrý, Bóbó, Hallgrímur og Sigrún, sendum ykkur og börnum ykkar innilegar samúðarkveðjur Sigurbjörg Eiríksdóttir. • Fleirí minningargrcinar um Leopoldínu Bjarnadóttur bíða birtingar og munu birtast í blað- inu næstu daga. GUÐMUNDUR KJERÚLF Guðmundur Kjerúlf fæddist í Reykjavík 18. júlí 1935. Hann lést í Reykjavík 10. júní siðastliðinn. Hann ólst upp á Akri i Reykholtsdal, hjá foreldrum sínum Andresi Kjerúlf er lifir son sinn og Halldóru Jónsdótt- ur sem nú er látin. Systkini Guðmund- ar eru Þórunn, f. 10.10. 1930, býr í Reykjavík, og Jón- as, f. 20.1. 1939, býr á Akranesi. Árið 1959 kvæntist Guðmundur Ingibjörgu Helga- dóttur, f. 20.3. 1937. Sonur þeirra er Guðmundur Ingi f. 5.4. 1968. Hann býr í Reykjavík ásamt unnustu sinni írisi Sigur- jónsdóttur, f. 4.12. 1970. Útför Guðmundar fer fram frá Laug- arneskirkju í dag og hefst at- höfnin kl. 15. „Þegar maður hefir tæmt sig að öllu, mun friðurinn mikli koma yfir hann. Allir hlutir koma fram í tilvistina, og menn sjá þá hverfa aftur. Eftir blóma ævinnar fer hvað eina aft- ur til upphafsins. Að hverfa aftur til upphafs- ins er friðurinn; það er að hafa náð takmarki tilvistar sinnar." (Lao-Tse). Elsku mágkonu, Gumma, írisi, Andrési, systkinum og öðrum að- standendum hins látna votta ég mína dýpstu samúð. Far vel kæri vinur. Dagný. Það er harmur í huga, þegar lífi iýkur og leiðir skilur, a.m.k. um sinn. En handan móðunnar miklu, handan landamæra lífs og dauða, munu leiðir liggja saman að nýju. Þá verður þar góðra vina fundur. Sumir menn skilja eftir fögur bióm minninga á lífsveginum sem þeir ganga. Sumir menn eiga glaðværð, hjartahlýju og góðvild og hnýta traust bönd vináttu og tryggðar við þá menn sem verða þeim samferða í lífi og í starfi. Slíkur maður var vinur minn og starfsfélagi, Guð- mundur Kjerúlf. Það var sárt að heyra andlátfregn hans en minning- in um góðan dreng dregur úr sárs- aukanum. Það var í Sundhöll Reykjavíkur sem leiðir okkar Guðmundar lágu saman. Þar vorum við báðir starfs- menn og áttum mikil og góð sam- skipti, sem fljótlega þróuðust upp í trausta og innilega vináttu. Guð- mundur Kjerúlf var afbragðs starfs- maður, trúr í verkum, hugkvæmur og handlaginn og lét sér annt um þau verk sem hann var að vinna. Samviskusemi og snyrtimennska voru honum í blóð borin og báru honum fagurt vitni í hveiju verki. Guðmundur Kjerúlf hafði ríka réttlætiskennd til að bera og alltaf var hann boðinn og búinn til að rétta þeim hjálparhönd, sem þess þurftu með, hvort heldur sem það voru starfsfélagarnir eða sundhall- argestir. Það fer ekki hjá því að fólk með þessa eiginleika öðlist traust, vináttu og virðingu starfsfé- laga sinna og annarra sem þeir eru návistum við. Þess vegna kveðjum við starfsfólkið í Sundhöll Reykja- víkur Guðmund Kjerúlf með sökn- uði, virðingu og þökk. Við sendum ástvinum hans, eiginkonu, syni, vandamönnum og vinum innilegar samúðarkveðjur og biðjum guð að styðja þau og hugga. Guð blessi ykkur öll. Það er sagt að tíminn lækni öll sár og ljúf, lifandi minningin um góðan genginn dreng mun draga úr sviða í sárum þegar frá líður. Ingibjörg, Guðmundur Ingi og íris Hrönn. Orð eru fátækleg og ekki tiltæk til að tjá hug minn til ykkar á þessari sorgarstundu. En ég bið ykkur heilla, bið guð að styrkja ykkur nú og um alla framtíð. Menn- irnir deyja, en minn- ingamar lifa, lýsa og verma. Guðmundur Kjerúlf hefur kvatt þennan jarðheim og gengið á fund þess sem öllu ræður. Honum fylgja kærleiksríkar kveðjur og fyrirbænir um góða ferð yfir landamærin. Guð blessi minningu hans. Fyrir hönd starfs- fólks Sundhallar Reykjavíkur, Stefán Trjámann Tryggvason. Ég man mætavel fyrstu kynni mín af Guðmundi Kjerúlf, Mumma. Hann var fyrsti og eini alvörukær- asti Ingibjargar systur minnar. Við strákarnir í Litlahvammi bárum tak- markalausa virðingu fyrir þessum manni sem vissi allt um bíla, þetta stóra áhugamál okkar. Konurnar f Litlahvammi, amma, mamma og Heiða, féllu allar kylliflatar fyrir þessum svarthærða, svipsterka pilti, með sitt trausta, rólega fas og bjarta bros. Þær tóku hann umsvifalaust í dýrlingatölu og það var staða sem hann naut hjá þeim alla tíð upp frá því. Það var engin furða þó konunum í Litlahvammi fyndist mikið til Guð- mundar koma. Allir sem kynntust honum fundu að þar fór óvenju heil- steyptur maður, traustur og ákveð- inn en þó háttvís. Ég hef engum manni kynnst sem hafði traustara handtak. Guðmundur hleypti snemma heimdraganum úr sveitasælunni í Reykholtsdal og fór ungur til náms í bifvélavirkjun í Reykjavík. Á sínum fyrsta vinnustað var honum treyst fyrir mannaforráðum, ábyrgð sem hann axlaði með stakri prýði. Þessi ár voru mikill ævintýratími. Mummi og nokkrir vinir hans grófu upp, hjá Bjarna í Túni, gamlan fjórhjóladrif- inn Bedford-bíl, líklega árgerð 1942. Með eigin höndum var byggt yfir Beddann og farið að stunda fjalla- ferðir, sumar nokkuð glæfralegar, þó allar enduðu vel. Þannig hófst hið raunverulega lífsstarf Mumma, bílar og ferðalög. Þó árin í Reykjavík væru ánægju- leg stefndi hugurinn ávallt á heima- slóð og á það, að verða sjálfs síns herra. Það varð svo úr að Mummi og Indý fluttu búferlum og settust að í Reykholtsdal. Þar settu þau á stofn bílaverkstæði og nefndu í Litla- hvammi, lítið í fyrstu en það stækk- aði ört. Fyrstu árin voru verkefnin aðallega bíla- og búvélaviðgerðir, en ^íðar urðu bílayfirbyggingar og hóp- ferðaakstur stærstu þættir starf- seminnar. Það má segja að Mummi hafi með verkstæðinu í Litlahvammi hleypt nýju lífi í sveitasamfélagið í Reykholtsdal, lifi sem það samfélag býr að enn. í mörg ár var verkstæð- ið fjölmennasti vinnustaður sveitar- innar, uppspretta hugmynda og verkefna. Þau verkefni sem unnin voru í Litlahvammi, oft við frum- stæðar aðstæður, voru mörg lyginni líkust. Þar fór saman frábær hópur verkmanna og sterkur vilji Mumma, sem ekki kunni að gefast upp. Sum- ir bílar sem byggt var yfir á verk- stæðinu voru svo stórir að meðan unnið var við framendann varð aft- urendinn að standa úti og tjaldað yfir. Mummi var athafnamaður, ætíð með hugann við nýjar hugmyndir, að kanna nýja möguleika. Þegar hann átti ekki lengur skap saman með sínum gömlu sveitungum flutt- ust þau Ingibjörg til höfuðborgarinn- ar þar sem hann starfaði til dauða- dags. Störf Mumma voru þess eðlis að hann eignaðist mikinn fjölda kpnn- ingja og vina. Hann var einstakiega vel látinn bílstjóri á ferðalögum. Margir ferðahópar fóru árum, jafn- vel áratugum saman, með Guðmundi Kjerúlf í ferðalög, treystu engum betur. Útlendir ferðamenn töldu hann einfaldlega galdramann, í þeirra augum gat hann allt, þekkti allar leiðir, kunni öll örnefni, leysti allah vanda. Mummi var að mörgu leyti maður andstæðnanna, alvörugefínn en glaðlyndur, í senn fornmaður en þó nútímamaður, opinn fyrir nýjungum en þó fastheldinn á gamlar hefðir. Mér fannst hann alltaf mikill þver- haus, í bestu merkingu þess orðs, þrautseigur, fastur fyrir, kunni ekki að gefast upp. Hann var orðheldinn og ætlaðist til þess sama af öðrum. Ég þykist vita að hann hafi stundum farið halloka í viðskiptum vegna þessa meðfædda heiðarleika. Hann fór alltaf sínar eigin leiðir, vildi ráða stefnunni sjálfur. Mummi flíkaði ekki innstu tilfinningum sínum, var að eðlisfari dulur. Það vár þó greini- legt að undir glaðlegu, rólyndu yfir- borði var hann tilfinningaríkur mað- ur sem gat verið auðvelt að særa. Nú er þessi silfurhærði öðlingur allur. Hann valdi sjálfur örlög sín á sama hátt og hann vildi sjálfur stjórna lífi sínu. Ég veit að hann er mörgum mikill harmdauði. Hans verður sárt saknað. Steinar Harðarson. Leiðir okkar lágu saman haustið 1978 er ég gerðist skólastjóri í Reyk- holti. Þessi dagfarsprúði og hógværi maður vakti strax athygli mína. í landi Breiðabólstaðar hafði hann reist iðnaðarnýbýlið Litla-Hvamm en Ingibjörg kona Guðmundar var alin upp hjá afa sínum og ömmu í Litla-Hvammi í Laugardalnum í Reykjavík. Hann byggði þar bif- reiðaverkstæði Guðmundar Kjerúlfs. Vegna þeirra umsvifa, sem þar voru, myndaðist þar byggð fjögurra fjöl- skyldna. Iðnaðarnýbýlið stóð svo sannarlega undir nafni. Margt starfsmanna var og úr sveitinni. Verkstæðið var ekkert venjulegt bif- reiðaverkstæði. Til viðbótar við al- mennar viðgerðir var þar byggt yfir langferðabifreiðar og undirvögnum þeirra oft breytt. Sú smíði miðaðist við íslenskar aðstæður og var svo vönduð að margir urðu heldur betur undrandi, þegar þeir þurftu að gera við ytra byrði yfirbygginganna, að sjá að grindin sjálf var óskemmd. Smíðin bar starfsmönnum hans fag- urt vitni og öllum var ljóst að Guð- mundur vildi að gæði framleiðslunn- ar væru höfð í fyrirrúmi. Á sumrin voru sumir af starfsmönnum hans bifreiðastjórar hjá öðrum á lang- ferðabílum sem byggt hafði verið yfir á verkstæðinu. Sjálfur naut hann þess mjög að sinna ferðamönn- um og óbyggðir íslands voru hans starfs- og leikvöllur. Með breyttri túlkun tollalaga og svikum í viðskiptum sem hann varð fyrir var svo þrengt að þessari starf- semi að Guðmundur ákvað að selja verkstæðið hlutafélagi. Hann vildi gefa samfélaginu tækifæri til að halda þar uppi umsvifum ef það gæti orðið til þess að þeir sem hann hafði haft í vinnu gætu unnið þar áfram. Öfundar- og fyrirsátursmenn verða víst alltaf til. Á þessum tíma- mótum lenti hann í skattrannsókn sem stóð í fimm ár og lauk með fullum sigri Guðmundar. Hann var ekki sektaður um svo mikið sem krónu. Rannsóknin hafði farið á stað á röngum forsendum. Fimm ár í skattarannsókn var mikið álag. Guð- mundur hafði afhent öll sín gögn. Það reyndi á traust minni og það brást honum aldrei. Hann varð aldr- ei aftur samur maður. Guðmundur flutti frá Litla- Hvammi suður til Reykjavíkur þegar hann hafði ekki lengur atvinnu uppfrá og starfaði fyrir íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur í Bláfjöll- um og í Sundhöll Reykjavíkur. Verk hans voru af sömu gæðum og áður. Hann setti ávallt svip á það um- hverfi sem hann lifði í. Guðmundur Kamban segir í kvæðinu Spunakon- an „Snúrurnar hrökkva, snældan er full og snurðulaust allt sem ég spann“. Þessar ljóðlínur og framhald þeirra sóttu á hug minn þegar ég frétti andlát Guðmundar. Allt sem hann gerði var á þann veg. „Hver vill Drottins dæma verkin, dæma mannsins ævileiðir,“ sagði séra Árni á Skútustöðum. Án alls tillits til þess hvað okkur finnst rétt eða sann- gjarnt yrkir lífið áfram. Eftirlifandi konu Guðmundar, Ingibjörgu Helgadóttur, Guðmundi Kjerúlf yngri, Andrési Kjerúlf föður hans, og systkinum hans Jónasi og Þórunni Kjerúlf færi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Það er ekki einskis virði að eiga minningu um dreng góðan. Olafur Þ. Þórðarson, skólastjóri í Reykholti. Látinn er í Reykjavík vinur okkar Guðmundur Kjerúlf sem nú skal minnast með örfáum orðum. Margs er að minnast frá liðnum dögum> Þegar við komum í Reykholtsdalinn fyrir tæpum 30 árum vorum við svo lánsöm að kynnast Guðmundi, Ingi- björgu og Guðmundi Inga þegar hann kom til sögunnar. Gestum og gangandi var ávallt vel fagnað á heimili þeirra í Litla-Hvammi. Guðmundur átti um langt árabil bifreiðaverkstæði í dalnum og fékkst við hvers konar bifreiðaviðgerðir ásamt nýbyggingu langferðabif- reiða, en varð síðan frá að hverfa vegna erfiðleika sem upp komu varð- andi rekstur fyrirtækis hans, sem voru fólgnir í breyttum markaðssað- stæðum. Ein lyndiseinkunn Guð- mundar var sú að vilja leysa hvers manns vanda og leituðu menn til hans í tíma og ótíma með ýmiss konar vandamál. Einnig sá hann í félagi við samstarfsmann sinn Guðna um akstur skólabarna til og frá skóla á vetrum. Til þess var tek- ið hversu vel tókst til í samskiptum hans við börnin öll þau ár sem hann stundaði þennan akstur. Synir okkar minnast hans og þakka honum sam- veruna og hlýtt og elskulegt viðmót alla tíð. Á sokkabandsárum okkar vorum við samtíma Guðmundi, Ingi- björgu og fleira fólki á Spáni. Þá lék^ Guðmundur við hver sinn fingur og áttum við góða daga saman. Farið var í ýmsar skoðunarferðir, á mark- að og fleira og áttum við saman marga fundi síðan til að minnast þessarar ferðar. Sumarið 1980 hóaði hann Spán- arförunum saman og bauð öllum hópnum í fjallaferð á sínum fjallabíl og skyldi haldið norður Kjöl. Haldið var að heiman í blíðskaparveðri yfir Uxahryggi um Þingvöll og Suður- land. Fyrstu nóttina var dvalið við Hvítárvatn og gist í skálanum. Dag- inn eftir ætluðum við að halda áfram norður. En vegna veðurblíðunnar sóluðum við okkur, en Guðmundur brá sér frá á bílnum. Hann kom fljótt til baka með flautuna á fullu. Þegar hann kom til okkar sagði hann okk- ur að hann hefði séð strók á himnin- um og taldi að Hekla væri farin að gjósa. Slegið var upp fundi um hvað við ættum að gera. Niðurstaðan var sú að við skyldum snúa við og kanna hvort Hekla væri virkilega að gjósa. Fljótlega varð ljóst að svo var. Farið var að Skarði í Landssveit til fundar við heimamenn þar. Öllum hópnum var boðið til stofu og fengum við leyfi heimamanna til að tjalda á tún- inu svo við gætum fylgst með fram- vindu gossins. Slógum við upp tjöld- um og áttum þarna saman ógleym- anlegan dag og nótt. Um kvöldið var glampandi logn og gátum við. haft kveikt á kertum úti og virt gosið fyrir okkur. Þetta kvöld er eitt hið eftirminnilegasta, því Hekla skartaði sinu fegursta í rökkrinu og andinn í kringum okkar var allt að því himneskur. Guðmundur og fjölskylda fluttu til Reykjavíkur fyrir nokkrum árum og hefur fundum fækkað. Þó höfum við haft samband í gegnum Guð- mund Inga og haft fregnir af Guð- mundi og Ingibjörgu. Nú hin síðari ár hefur Guðmundur átt við van- heilsu að stríða. Um tíma hefur hann verið í veikindaleyfi frá störfum sín- um hjá Sundhöllinni í Reykjavík, en hann starfaði þar. Að leiðarlokum viljum við þakka Guðmundi samfylgdina um leið og við vottum þér Indý, Guðmundur Ingi, íris, Andrés, Þórunn, Jónas og fjölskyldur okkar dýpstu samúð. Minningin um góðan dreng lifir í hjörtum okkar. Sigríður og Snorri, Reykholti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.