Morgunblaðið - 16.06.1995, Page 41

Morgunblaðið - 16.06.1995, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ Frá Sigvrjóni Sigurðssyni: ER ÉG var á leið til vinnu minnar nú fyrir skömmu og var að hlusta á þá ágætu útvarpsstöð Bylgjuna varð ég svo undrandi að ég get ekki orða bundist. Þar var Stefán Jón Hafstein fjölmiðlamaður að úthúða veitingamönnum landsins með ýmiskonar fullyrðingum sem frekar hefðu átt heima í ræðu- keppni framhaldsskólanna en á „virtri“ útvarpsstöð. Enginn bjór seldur með 500% álagningu Stefán sagði m.a. að veitinga- menn hefðu enga stjórn á græðgi sinni og það væru aðeins örfáir veitingamenn sem leggðu minna en 500% á bjórinn hjá sér. Stefán, ég spyr þig, hefur þú einhvern tím- ann rekið veitingahús eða fyrir- tæki almennt? Veist þú að það selur enginn veitingamaður bjór með 500% álagningu? Veist þú að það er ekkert veitingahús inni á lista yfir arðbestu fyrirtæki lands- Banglades- búar vel- komnir á víkingahátíð Frá Rögnvaldi Guðmundssyni: VEGNA leiðs misskilnings hefur það verið mistulkað svo af þeim stöllum Sigrúnu Ásu Markúsdóttur og Jó- hönnu K. Eyjólfsdóttur að forráða- menn víkingahátíðar í Hafnarfirði séu því mótfallnir að blaðamenn frá Banglades fái að sækja stóru vik- ingahátíðina sem haldin mun í Hafn- arfirði 6.-9. júlí nk. Svo er alls ekki. Hið rétta í málinu er að blaðamenn- irnir frá Banglades hafa með bréfi verið boðnir hjartanlega velkomnir á víkingahátíðina og við boðist til að vera þeim innan handar um gistingu o.fl. Hið rétta er hins vegar að þess- um mönnum hefur verið bent á að þeir þurfi að hafa samband við út- lendingaeftirlitið til að fá vegabréfsá- ritun. Það er allt og sumt. Allir velkomnir Víkingahátíðin í Hafnarfirði er alþjóðleg fornmenningarhátíð þar sem allir eru velkomnir. Hátíðin mun höfða jafnt til flölskyldufólks sem fræðimanna. Norræna húsið á ís- landi tekur virkan þátt í hátíðinni og fjöldi fyrirtækja og stofnana styrkja hana þannig að sem best megi til takast. Margir vei þekktir erlendir fræðimenn munu halda fyr- irlestra er tengjast víkingaöldinni. Má þar nefna Magnús Magnússon, hinn þekkta sjónvarpsmann og vík- ingasérfræðing frá Skotlandi, Jónas Kristjánsson, fyrrverandi forstöðu- mann Árnastofnunar, Ragnar Tor- seth frá Noregi, sem þekktur er fyr- ir siglingar á víkingaskipum, Wlad- j yslaw Filipowiak, forstöðumann þjóðminjasafnsins í Szczecin í Pól- landi og Stig Jensen, forstöðumann | fomminjasafnsins í Ribe í Dan- mörku. Auk þess munu leikrit sýnd og fornt, vandað handverk verður í hávegum haft og margt fleira. Tilraun til að endurskapa forna menningu Þetta er því heiðarleg tilraun til að endurskapa forna menningu og | okkur er að sjálfsögðu heiður að því að sem flestir sæki hátíðina, óháð i uppruna sínum. i Með von um að óheppilegur mis- skilningur hafi að fullu verið leiðrétt- ur. RÖGNVALDUR GUÐMUNDSSON, framkvæmdastjóri víkingahátíðar. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu Og Lesbók verður framvegis varðveitt í Gagnasafni þess. Morgunbiaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirt- ingu eða á annan hátt. Þeir sem af- henda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrir- vari þar að lútandi. BRÉF TIL BLAÐSINS Dagbók veitingamanns Meðalálagning á víni lægri en á mörgu öðru ins? Veist þú að á lista yfir stærstu fyrirtæki landsins í veltu er fyrsta veitingahúsið nr. 150? Varðandi álagningu á bjór þá skal ég hér með opna augu fólks fyrir sann- leika málsins. Veitingahús kaupa vín á sama verði og almenningur Fyrst ber að taka fram að veit- ingahús fá vínið ekki á lægra verði en almenningur, þ.e.a.s. ég þarf að greiða 2.300 kr. fyrir flösku af Smirnoff. Bjórinn er stundum dýrari til okkar því umboðsaðilar taka af okkur svokallað þjónustu- gjald til að fá nú eitthvað fyrir að skaffa okkur tæki og hreinsa þau reglulega. Gjald þetta er frá 900-1.200 kr. pr. kút eftir teg- und. Dæmi okkar verður Tuborg Gran sem er nýr bjór á markaðnum í kútum. Kúturinn kostar til okkar 7.540 kr. og eru í honum 25 1. Ef ég.seldi 0,5 1 á 500 kr. þá ætti ég að fá út úr kútnum 25.000 kr. í veltu fyrir utan rýrnun, sem er alitaf einhver. Ekki veit ég á hvaða veitingahúsum Stefán Jón kaupir sinn bjór en þangað fer væntanlega ekki venjulegt fólk því að bjórinn þar myndi kosta skv. fullyrðingum Stefáns, 905 kr. eða 7.540x500%/50. Sannleikur málsins er að veitinga- menn á íslandi eru með að meðal- tali álagningu í kringum 1-1,5 sem er talsvert lægra heldur en í mörgum öðrum geirum þjóðfélags- ins. Hver er t.d. álagning Stöðvar 2? Hver er álagningarprósenta Bylgjunnar á hveiju orði í lesnum auglýsingum? Hver er álagningin á hveijum dálkasentimetra í aug- lýsingum hjá blöðum og tímarit- um? Það kostar um 8.000 kr. að fá einn skjá birtan í sjónvarpi. Hver verðleggur þetta? Af hveiju þarf Stöð 2 að verðleggja auglýsingar sínar eins hátt og raun ber vitni og rukka líka áskriftargjald? Hvar er ykkar siðferði? Áður en þið kastið næsta steini þá skulið þið átta ykkur á því að þið sitjið í glerhúsi. SIGURJÓN SIGURÐSSON, Álfatúni 1, Kópavogi. FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ1995 41 Orðsending til handhafa debetkorta Geráar hafa verið nokkrar breytingar á skilmálum vegna debetkorta Búnaðarbanka íslands í samráði við Samkeppnisstofnun. Nýjar reglur og skilmálar taka gildi 1. júlí og liggja jbær frammi í öllum útibúum Búnaðarbankans. Eftirtaldar greinar taka efnislegum breytingum og er sérstök athygli vakin á grein 14.1. Úr eldri reglum A. ALMENNT UM DEBETKORT 6.4. Korthafi ber ábyrgð á öllum grei&slum/úttektum, sem verSa vegna notkunar Debetkorts hans, sbr. þó 10. 2. málsgr. 6.6. Korthafi ábyrgist tjón gagnvart bönkum og sparisjóðum, sem verður vegna vanrækslu hans við vörslu eða notkun Debetkorts eða leyninúmers þess. 7.3. Utgefendur Debetkorta eru ekki ábyrgir fyrir tjóni, sem verður vegna lagaboða, aðgerða stjórnvalda, náttúruhamfara, stríðs, verkfalls, verkbanns, skæruverkfalla eða annarra slíkra aðstæðna, rafmagns- truflana eða rafmagnsleysis, né vegna truflana í símkerfi eða öðrum boðleiðum eða samgöngum. Tjón, sem gæti orðið af öðrum ástæðum, bætist ekki af útgefanda hafi hann sýnt eðlilega aðgæstu. 7.4. Utgefendur Debetkorta eru ekki ábyrgir fyrir tjóni né óhagræði, sem verður vegna þess að móttöku Debetkorts er hafnað. 9.1. Notkun Debetkorts erlendis er heimil þar sem merki MAESTRO/ CIRRUS eða VISA ELECTRON er uppi. Af erlendum viðskiptum og úttekt reiðufjár erlendis reiknast þjónustugjald, skv. gjaldskrá. 10.2. Sjálfsábyrgð korthafa takmarkast við jafnvirði ECU 150 í ísl. krónum, ef kort hans er notað af óviðkomandi aðila, áður en hvarf þess uppgötvast og er tilkynnt skv. 1. tölulið. 10.3. Sérstök athygli er vakin á að korthafi ber fulla ábyrgð á úttektum meðglötuðu korti,sétilkynningarskylduekki fullnægtstraxog hvarf þess uppgötvast. 11.2. Við útgáfu korts greiðir korthafi sérstakt stofngjald auk venjulegs árgjalds. 11.3. Banka/sparisjóði er heimilt að færa korthafa til gjalda á viðskiptareikningi hans mánaðarleg færslugjöld fyrir notkun kortsins, kostnað vegna reikningsyfirlita, kostnað vegna endurnýjunar korts, árgjöld á 12 mánaða fresti og gjald vegna útvegunar afrits af sölunótu, allt samkvæmt gjaldskrá bankans hverju sinni. 14.1. Bankar/sparisjóðir áskilja sér rétt til að breyta notkunarreglum þessum og skilmálum, enda séu þær breytingar auglýstar. Ef Debetkortið er notað eftir að breytingar hafa verið auglýstar, skoðast það sem samþykki korthafa á þeim. Að öðrum kosti skal notkun kortsins hætt og það tilkynnt bankanum/sparisjóðnum. Ef engin slík tilkynning berst innan fjórtán daga frá auglýstri breytingu, skoðast hún samþykkt af korthafa. B. DEBETKORT SEM GREIÐSLUKORT 5. Greiðslur með Debetkorti koma fram á reikningsyfirliti þess viðskiptareiknings, sem kortið er tengt og korthafi fær sent frá banka/ sparisjóði með umsömdu millibili. Ayfirlitinu kemur fram nafn seljanda, þar sem kortið var notað, ásamt dagsetningu og upphæð. Ef um erlend viðskipti er að ræða kemur einnig tram upphæð kauplandsins. Ef korthafi hefur athugasemdir við reikningsyfirlit sitt, ber honum að tilkynna það banka/sparisjóði sinum innan 20 daga frá móttöku þess. Gildir frá 1. júlí 1995 A. ALMENNT UM DEBETKORT 6.4. Korthafi ber ábyrgð á öllum greiðslum/úttektum, sem verða vegna notkunar Debetkorts hans, sbr. þó 10.2. og 13.1. og 13.2. 6.6. Korthafi ábyrgist tjón gagnvart bankanum, sem verður vegna vanrækslu hans við vörslu eða notkun Debetkorts eða leyninúmers þess, sbr. 10.2. 7.3. Utgefendur Debetkorta eru ekki ábyrgir fyrir tjóni, sem verður vegna lagaboða, aðgerða stjórnvalda, náttúruhamfara, stríðs, verkfalls, verkbanns, skæruverkfalla eða annarra slíkra aðstæðna, rafmagnstruflana eða rafmagnsleysis, né vegna truflana í símkerfi eða öðrum boðleiðum eða samgöngum. 7.4. Útgefendur Debetkorta eru ekki ábyrgir fyrir tjóni né óhagræði, sem verður vegna þess að móttöku Debetkorts er hafnað sem greiðslu hjá söluaðila eða í sjálfsafgreiðslutæki, né öðrum skaða, sem leitt getur þar af, sbr. þó 13.1. og 13.2. 9.1. Notkun Debetkorts erlendis er heimil þar sem merki MAESTRO/ CIRRUS eða VISA ELECTRON er uppi. 10.2. Sjálfsábyrgð korthafa takmarkast við jafnvirði ECU 150 í ísl. krónum, ef kort hans er notað af óviðkomandi aðila, áður en hvarf þess er tilkynnt. Þetta á ekki við ef um stórfellt gáleysi eða svik af hálfu korthafa hefur verið að ræða. Tilkynningaskyldu ber að fullnægja svo fljótt sem verða má eftir að hvarf korts uppgötvast. 11.2. Bankanumerheimiltaðfæra korthafatilgjalda á viðskiptareikningi hans gjöld skv. gjaldskrá, sbr. grein 11.1. 13.1. Telji korthafi að hann hafi orðið fyrir skaða vegna tæknilegrar bilunar í hraðbanka eða öðrum sjálfsafgreiðslutækjum, þá ber bankanum fyrir hönd viðkomandi sölu- eða þjónustuaðila að færa fram fullgild rök fyrir því að búnaðurinn hafi starfað rétt þá er umrædd viðskipti fóru fram, en er ella ábyrgur fyrir tjóninu. 13.2. Ábyrgð bankans takmarkast við beint fjárhagslegt tjón korthafa, en nær ekki til annars skaða eða óþæginda, sem leitt geta af bilun sjálfsafgreiðslubúnaðar. Bankinn ábyrgist ekki tjón þegar tæknibilun á að vera korthafa Ijós, svo sem þegar skilaboð þess efnis koma fram á tölvuskjá. 14.1. Bankinn áskilur sér rétt til að breyta notkunarreglum þessum og skilmálum, enda séu þær breytingar tilkynntar korthafa með minnst 15 daga fyrirvara. í tilkynningu um breytta skilmála skal vakin athygli á þvi i hverju breytingarnar felistog á rétti korthafa til að segja samningi upp. Noti korthafi kort sitteftirað breyttir skilmálar hafa tekiðgildi, telsthann samþykkur breytingunni. B. DEBETKORT SEM GREIDSLUKORT 5. Greiðsluf með Debetkorti koma fram á reikningsyfirliti þess viðskiptareiknings, sem kortiðertengtog korthafi færsentfrá bankanum með umsömdu millibili. A yfirlitinu kemur fram nafn seljpnda, þar sem kortið var notað, ásamt dagsetningu og upphæð. Ef um erlend viðskipti er að ræða kemur einnig fram upphæð kauplandsins. Ef korthafi hefur athugasemdirviðreikningsyfirlitsitt, ber honumaðtilkynna þaðbankanum innan 20 daga frá móttöku þess. I vafatilvikum hvílir sönnunarbyrðin á kortaútgefanda. 0BÚNAÐARBANKIÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.