Morgunblaðið - 17.06.1995, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
*
Arsgamall
drengur
drukknaði
LÍTILL drengur drukknaði í á
við bæinn Sveinungsvík,
skammt austan við Raufar-
höfn, síðdegis í fyrradag.
Drengurinn var úti við fjár-
hús með föður sínum og tveim-
ur eldri systkinum. Hann varð
viðskila við systkini sín og þau
vissu ekki hvar hann var þegar
faðirinn spurði þau um hann.
Á rennur við bæinn aðeins
nokkra metra frá fjárhúsinu.
Hún var í miklum vexti, mó-
rauð og straumþung. Faðirinn
óttaðist að drengurinn hefði
lent í ánni og hljóp samstundis
niður með henni. Hann fann
drenginn í beygju á ánni þar
sem hún er breiðari og Iygn-
ari. Hann reyndi lífgunartil-
raunir en þær tókust ekki.
Drengurinn hét Sveinbjöm
Gunnarsson og var fæddur 1.
mars á síðasta ári.
Veikur sjó-
maður sóttur
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar
sótti í fyrrinótt veikan sjómann
um borð í Sandvík skammt út
af Grindavík.
Þyrlan fór í loftið rétt fyrir
klukkan fimm í fyrramorgun
og var lent rúmri klukkustund
síðar við Borgarspítalann.
Konan
sem lést
KONAN sem lést í bílslysi í
Skagafírði sl. þriðjudag hét
Brynja Pétursdóttir til heimilis
að Laugavegi 61 í Reykjavík.
Brynja lætur eftir sig eigin-
mann og Q'ögur uppkomin böm.
Á slysadeild
eftir bílveltu
ÖKUMAÐUR sendibíls var
fluttur á slysadeild eftir að bif-
reið hans valt eftir harðan
árekstur á mótum Háaleitis-
brautar, Brekkugerðis og
Listabrautar um sjöleytið í
gær. Sendibíllinn hafnaði á
götuvita og felldi hann áður en
hann valt.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðins reyndist öku-
maðurinn ekki alvarlega slas-
aður.
fHargtuittíHíifeílb
MORGUNBLAÐIÐ kemur næst
út þriðjudaginn 20. júní.
• GríS í
• fcæiuHttfr á nmsvc-.
• BiBififi <3« i'*b3ÍX%ft
• Krys^tur <<g þvsfiír
8uiiiarfrí
á í§landl
Morgunblaðinu í dag fylgir 32
síðna blaðauki sem nefnist Sum-
arfrí á íslandi.
FRÉTTIR
Á fjórða hundrað skip létu úr höfn að loknu verkfalli
Fimm togarar á
leið í Smuguna
FIMM íslenskir togarar em á leið
í Smuguna og fleiri útgerðarmenn
íhuga að senda skip sín þangað. Á
milli 15 og 20 skip stefna á úthafs-
karfamiðin á- Reykjaneshrygg. ís-
lensku síldveiðiskipin komu á miðin
í nótt, en að sögn færeyskra sjó-
manna er góð síldveiði innan ís-
lensku landhelginnar.
Á fjórða hundrað skip fóm á sjó
í gær og fyrrinótt að loknu þriggja
vikna sjómannaverkfalli. Fjögur
skip em á leið í Smuguna. Þau era
Stakfell frá Þórshöfn, Margrét frá
Akureyri, Már frá Ólafsvík og Sól-
berg frá Ólafsfírði. Hólmanesið frá
ÞORSTEINN Pálsson dómsmála-
ráðherra segir íslendinga munu
leggja megináherzlu á aukin áhrif
á ákvarðanatöku Schengen-ríkj-
anna, í viðræðum um aðlögun nor-
ræna vegabréfasamkomulagsins að
Schengen-sáttmálanum um afnám
landamæraeftirlits innan ESB. Þor-
steinn telur viðræðumar geta orðið
erfíðar, en stefnt er að undirritun
samkomulags á fyrri hluta næsta
árs.
Eskifírði leggur af stað í dag.
Nokkur portúgölsk skip em nú í
Smugunni og hafa borist fregnir
af þokkalegri veiði þeirra.
Engin humarveiði
Veiði á úthafskarfa á Reykjanes-
hrygg kann að ráða nokkm um hve
mörg íslensk skip fara í Smuguna.
Á annan tug skipa er nú á Ieið á
úthafskarfamiðin á Reykjanes-
hrygg. Þar eru fyrir a.m.k. þijú
íslensk skip, Baldvin Þorsteinsson,
Haraldur Kristjánsson og Siglir.
Úthafskarfaveiði hefur verið léleg
á Reykjaneshrygg síðustu daga.
Formaður Schengen-ráðsins,
Robert Urbain, lagði til á fundi með
dómsmálaráðhermm Norðurland-
anna í Brassel í gær að tengsl Nor-
egs og íslands við Schengen yrðu
með svipuðum hætti ogtengsl þeirra
við Evrópusambandið samkvæmt
EES-samningnum.
„Það er erfítt fyrir okkur að taka
þátt að óbreyttum þessum tillögum
og við leggjum áherzlu á breytingar
á þeim. Mér fínnst að við höfum
Mjög léleg veiði er hjá humarbát-
um og stefnir í að ekkert verði úr
humarvertíðinni þetta árið ef ekki
rætist úr. Bátamir vom að fá allt
niður í 20 kíló af humri á hefð-
bundnum humarmiðum suður af
landinu.
Yfír 30 skip em komin eða að
komast á síldarmiðin við landhelg-
islínuna milli íslands og Færeyja.
Færeysk skip hafa verið að fá góð-
an afla báðum megin við línuna
undanfarna daga. Ef vel veiðist er
búist við að þau 49 þúsund tonn,
sem eftir em af kvótanum, klárist
á innan við 10 dögum.
ekki nægjanleg áhrif eða aðild að
umræðum um ákvarðanatöku með
þeim hætti," sagði Þorsteinn. „Ef
við tökum að okkur þær skuldbind-
ingar, sem við emm reiðubúin að
gera, þ.e. gæzlu ytri landamæra
Schengen-svæðisins, verðum við á
móti að fá sem mesta möguleika í
allri umfjöllun og undirbúningi
ákvarðanatöku.“
■ Viðræður/24
Björk O g
Jackson
takast á
SALA á Post, breiðskífu Bjarkar
Guðmundsdóttur, hefur farið vel
af stað í Bretlandi, að sögn
starfsmanna One Little Indian,
útgáfu hennar.
Blaðafulltrúi útgáfunnar,
Christina, sagði að miðað við
söluna á plötunni ætti hún góða
möguleika á að komast í eitt-
hvert efstu sætanna á listanum.
Það gæti þó sett strik í reikning-
inn að ný breiðskífa Michaels
Jacksons, HlStory, kom út í Bret-
landi í gær, en föstudagur og
laugardagur eru jafnan helstu
plötusöludagar vikunnar. Christ-
ina segir að slagurinn sé helst á
milli Bjarkar og Jacksons, en
þess má geta að hann seldi 22
milljónir eintaka af síðustu breið-
skífu sinni.
Hér á landi hefur platan selst
vel að sögn Ásmundar Jónssonar
þjá Smekkleysu, en hann segir
að fyrsta sending, 2.000 eintök,
sé upp urin hjá Smekkleysu.
Debut, fyrsta sólóskifa Bjarkar,
hefur selst í rúmum 10.000 ein-
tökum hér á landi.
-----♦ ♦ ♦-----
Staða refaræktar góð
Fá 6-8 þús-
und kr. fyr-
ir skinnið
ARI Teitsson, formaður Bændasam-
taka íslands, segir að staða refa-
ræktar sé mjög góð um þessar
mundir og að hærra verð fáist nú
fyrir refaskinn á mörkuðum en
nokkm sinni áður.
Ari segir í viðtali í Morgunblaðinu
í dag að refabændur séu að fá 6-8
þúsund kr. fyrir refaskinn þessa
dagana samanborið við 1.500 kr.
fyrir um fimm árum.
Sauðfjárbændur nýti refabú
Ari segir það dapurlegt að menn
skuli ekki nýta þau refabú sem til
em 5 Iandinu og standa mörg ónot-
uð. Skynsamlegt hefði verið að
sauðfjárbændur, sem em að hætta
búskap, gerðu slíkt.
■ Það er hart/32
Rcutcr
ÞORSTEINN Pálsson dómsmálaráðherra og Bjorn Westh, danskur starfsbróðir hans, brugðu á leik
á ráðherrafundi Norðurlandanna og formanns Schengen-ráðsins í gær og báru þriðja dómsmálaráð-
herrann, Grete Faremo frá Noregi, á gullstól i tilefni afmælis hennar, sem bar upp á fundardaginn.
Áherzla á áhrif í Schengen
Sendifulltrúi Slóvakíu á íslandi o g í Noregi með aðsetur í Ósló *
Óvænt kallaður heim frá störfum
MILAN Richter, sendifulltrúi Slóv-
akíu í Noregi og á íslandi, með
aðsetur í Ósló, hefur látið af störf-
um. I samtali við norska blaðið
Aftenposten segir Richter að þessi
ákvörðun hafi komið sér mjög á
óvart.
Til stóð að Richter, sem er skáld,
myndi lesa upp úr verkum sínum
í Norræna húsinu ásamt íslenskum
skáldum fyrir nokkru, en skyndi-
lega var hætt við það.
Richter segir við Aftenposten
að honu hafí líkað starfíð sem
sendifulltrúi vel og því hafi það
komið honum óþægilega á óvart
er hann var kallaður heim. Ekki
einungis vegna þess að hann sjái
fram á vera atvinnulaus mennta-
maður í Slóvakíu.
Þögnin óþægilegust
Hann segir að hin opinbera þögn
í kringum uppsögnina sé óþægileg-
ust. Þögnin sé jafn þrúgandi og á
áttunda áratugnum í Tékkóslóvak-
íu, er hann fékk ekki að gefa út
ljóð sín.
Richter hóf störf í slóvakísku
. utanríkisþjónustunni í október
1992 og kom til Ósló í desember-
mánuði sama ár. Sendiráðið í Nor-
egi sér einnig um ísland og hefur
hann komið hingað til lands. Richt-
er hefur ekki
síst unnið að
því að efla
menningar-
tengsl milli
Slóvakíu og
Noregs og Is-
lands.
Hann hefur
þó einnig orðið
að vinna að
öðrum verkefnum, t.d. að verja
Meciar, forsætisráðherra Slóvakíu,
er Simon Wiesenthal sakaði hann
um að hafa gefið út yfirlýsingar
sem væru andsnúnar sígaunum.
Hann sendi Aftenposten grein þar
sem að hann skýrði sjónarmið slóv-
akískra stjórnvalda, en hún var
endursend sökum þess að hún var
of löng. Richter stytti ekki grein-
ína.
Richter er gyðingur en segir
gyðingahatur ekki stórt vandamál
) Slóvakíu, líkt og vestrænir fjölm-
íðlar hafi haldið fram. „Ég vona
að það sé ekki ástæða þess að ég
er kallaður heim. Það em litlir
hópar sem hafa haldið uppi gyð-
mgaofsóknum en almenningur
o!xr ^kert á móti gyðingum.
ötóru flokkarnir hafa fordæmt
gyðingahatur. Ég verð að taka þá
tmanlega," segir Richter.
Milan Richter