Morgunblaðið - 17.06.1995, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 17.06.1995, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ -Þú hefur þá aldrei misst trúna á þessa búgrein? „Nei. Þegar farið var af stað var það gert á þeirri forsendu að við værum með ódýrt hráefni en hrá- efni í refafóður er fyrst og fremst fiskúrgangur. Við eigum mjög mik- ið af honum en honum er víða fleygt. Auk þess erum við með sláturúr- gang sem ekkert er annað gert með heldur, þannig að hráefnið í loðdýra- fóður átti að vera mjög ódýrt hér á landi. Hins vegar gerðum við þau mistök að leggja í allt of miklar fjár- festingar í fóðurstöðvum og menn byggðu dýr hús, sem leiddi svo af sér fjárfestingarkostnað og um það leyti sem flestir voru að ljúka sínum fjárfestingum, fengum við meiri nið- ursveiflu á verði en menn áttu von á. En það stendur óbreytt að óvíða í heiminum eru betri aðstæður til að rækta ref heldur en á íslandi. Hann þolir mjög vel haust- og vetr- arkulda og þarf líka gott næði,“ segir Ari. -Sérðu fyrir þér framtíð í refa- ræktinni? „Já. í raun og veru hefði verið mjög skynsamlegt að einhverjir sauðfjárbændur sem eru að hætta búskap héfðu tekið við rekstri í þeim loðdýrahúsum sem til eru í landinu. Ég er ekki að mæla með að við fjárfestum meira en það er mikið af ónýttri fjárfestingu sem þjóðhagslega væri mjög hagkvæmt að nota. Vandamálið er hvað menn eru brenndir af fyrri vandræðum." Félagsmáladeyfð er orðin aivarlegt vandamál Ari er fæddur á Brún í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu, 13. mars 1943, sonur hjónanna Teits Björns- sonar bónda frá Hallbjamarstöðum í Reykjadal og Elínar Aradóttur frá Grýtubakka í Höfðahverfi. Að loknu landsprófí tók Ari búfræðipróf frá Bændaskólanum á Hvanneyri og eftir að hafa m.a. starfað við land- búnað á búi föður síns fór Ari í fram- haldsnám í búvísindum á Hvanneyri og lauk þaðan BS-prófi árið 1973. Ari byggði nýbýli á Hrísum skammt frá Brún og hefur stundað þar bú- skap, auk þess að gegna starfí hér- aðsráðunauts Búnaðarfélags Suður- Þingeyinga frá því hann lauk prófí. Ari hefur einnig gegnt ýmsum trún- aðarstörfum og átti m.a. sæti í stjórn Stéttarsambands bænda í sjö ár og er í stjórn Kaupfélags Þingey- inga. Eiginkona Ara er Elín Magn- úsdóttir frá Birkihlíð í Reykholtsdal og eiga þau þijú böm. Teitur, faðir Ara, sinnir enn bú- skap á Brún ásamt Erlingi syni sín- um en Teitur verður áttræður í haust. Hann var um langt skeið mikilvirkur í félagsmálum í sýslunni og var einnig fulltrúi á Búnaðar- þingi um árabil. Ari segir að það hafi þó ekki verið fyrir áhrif af fé- lagsmálastörfum föður síns að hann tók að sér trúnaðarstörf fyrir bænd- ur. „Astæðan er fyrst og fremst sú að í starfí mínu sem héraðsráðu- nautur og bóndi hef ég skynjað þörfína á að vinna að þessum mál- um. Deyfð og áhugaleysi í félags- málum er orðið mjög alvarlegt vandamái, það á ekki síður við um verkalýðshreyfínguna en bænda- samtökin og raunar flestar aðrar félagsmálahreyfingar,“ segir Ari. Hreinskilna umræðu um eðli og stöðu landbúnaðarins Fyrstu vikurnar í starfi formanns Bændasamtakanna hafa verið annasamar, enda mörg stór við- fangsefni á höndum bænda þessa dagana vegna viðræðna sem hafn- ar eru um endurskoðun búvöru- samningsin’s og breytinga á inn- lendri löggjöf vegna gildistöku nýja GATT-samkomulagsins 1. júlí næstkomandi. Þá er enn ólokið tals- verðri vinnu við skipulagningu hinna nýju bændasamtaka. „Eg hef verið töluvert mikið fyrir sunnan þessa síðustu tvo mánuði en ég hygg að það breytist og ég verði meira héma, enda kann ég vel við mig heima hjá mér, þar sem M[jög góð staða í refaræktinni „Við hjónin eigum refabú í félagi við bróður minn, og erum með 43 refalæður. Konan mín hirðir búið að mestu en ég veiti hjálparhönd þegar á þarf að halda. Auk þess erum við með 40 kindur, sem við höfum í búi bróður míns. Það er nú allur búskapurinn,“ segir Ari aðspurður um búskápinn á Hrísum. „Staðan í refaræktinni er mjög góð þessa dagana. Það fæst hærra verð fyrir refaskinn en verið hefur frá því að skinnaframleiðsl- an hófst í landinu 1980. * Margir refabændur voru mjög illa staddir en þeir sem þraukuðu hafa bætt stöðu sína mjög síðustu tvö árin. Það má nefna sem dæmi að þegar skinnaverð- ið var sem lægst, í kringum 1990, vorum við að fá 1.500 krónur fyrir skinnið, en núna fáum við 6.000- 8.000 kr. Það er í raun og veru dapurlegt að menn skuli ekki nýta þau refabú sem til eru í landinu og standa mörg ónotuð. Hins vegar eru menn svo brenndir af verðsveiflum fyrri ára að þeir þora ekki að hella sér út í þetta. Það er dýrt að byija og enginn getur ábyrgst mönnum þetta verð til lengri tíma. Það verður auðvitað ekki svona hátt mjög lengi en það bendir margt til þess að þetta verð geti haldist næsta sölutímabil," segir Ari. Ari Teitsson, ráðunautur og bóndi á Hrísum í Reykjadal í Suður-Þingeyjar- sýslu, var kjörinn formaður hinna nýstofnuðu Bændasamtaka íslands í mars. I samtali við Omar Friðriksson segir Ari að landbúnaður á Islandi verði ekki rekinn nema í sátt við þjóðina. Kjarabarátta bænda snúist í meginatriðum um að framleiða góða vöru með lágmarkstilkostnaði, og það sé einfaldlega spuming um faglega þekkingn og aga í vinnubrögðum sem bændur verði að horfast í augu við, þvi að heimurinn fer harðnandi. ARI hugar að ný- bornum lömbum í fjárhúsi sínu. Þau hjónin reka líka refabú, í félagi við Erling bróður Ara, og eru með 43 refa- læður. ÞAÐ var ofankoma og al- hvítjörð í Reykjadal þegar blaðamaður Morgun- blaðsins sótti heim hjónin Ara Teitsson, ráðunaut og bónda og Elínu Magn- úsdóttur á Hrísum í lok maí sl. „Þetta hefur verið mjög óvenjuleg tíð,“ segir Ari, „það hafa ekki komið hér hlýindi og sunnan- átt síðan í október. Tún eru að mestu óskemmd en að miklu leyti ennþá undir snjó. Jörð er þýð og túnin virðast óskemmd, þannig að það kemur til með að spretta mjög hratt, ef hlýnar en það lætur á sér standa," bætir hann við. Ari Teitsson var kosinn formaður hinna nýju Bændasamtaka Íslands sem stofnuð voru í mars sl. eftir sameiningu Búnaðarfélags íslands og Stéttarsambands bænda. Ari lýsti því þá strax yfir, að hann hygð- ist búa áfram á Hrísum og stjórna málefnum samtakanna í hlutastarfi frá heimili sínu í Reykjadal. Tæknin gerir þetta kleift, að sögn Ara en hann er með faxtæki og tölvu á skrifstofu sinni á Hrísum sem brátt verður beintengd höfuðstöðvum Bændasamtakanna. Ari segir að fulltrúar bænda sem búsettir eru víðsvegar um landið haldi í auknum mæli símafundi til að komast hjá ferðalögum, sem hann segir vera mikinn tímaþjóf. Kosturinn sé einn- ig sá að fundirnir fari síður út í málalengingar og verði markvissari en ella. Arí Teitsson, formaður Bændasamtaka íslands og bóndi á Hrísum, í viðtali um stöðu landbúnaðarins og kiör bænda ÞAÐER HART AÐOKKUR SÓTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.