Morgunblaðið - 17.06.1995, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 17.06.1995, Blaðsíða 58
58 laugardajgur n. júní 1995 MORGUNBLAÐIÐ Tommi og Jenni Ljóska I wasasleep, BUT NOUÍ l'M RE5TIN6 MY EYE5 Ertu sofandi, eða ertu að hvíla augun? Ég var sofandi, en nú er ég að hvíla augun. Segðu augunum að koma aftur til leiksins! EYES ARE UP AtL OAY..THEY NEEP L0T5 OF REST.. Augun eru vakandi all- an daginn ... þau þarfnast heilmikillar hvíldar... BREF TTL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Upplýsingar VR- blaðsins beint frá Tryggingastofnun Frá ritstjórn VR-blaðsins: NOKKUR úlfaþytur hefur orðið vegna greinar í síðasta VR-blaði um afslátt, sem fólki á atvinnuleys- isbótum ber að fá af heilbrigðisþjón- ustu og fleiru. Einkum hefur Tryggingastofnun ríkisins brugðist hart við og segir í athugasemd frá henni í Morgun- blaðinu 8. þ.m. að sitthvað sé rangt með farið í umræddri grein í VR- blaðinu. Ritstjórn VR-blaðsins þykir því rétt að skýra í örstuttu máli aðdrag- anda greinarinnar í blaðinu. Starfs- maður VR, sem starfar við atvinnu- leysisbætur, komst að því fyrir til- viljun að í reglugerð frá heilbrigðis- °g tryggingamálaráðuneytinu frá 16. júní 1994, undirritaðri af þáver- andi ráðherra og ráðuneytisstjóra, segir m.a. svo: „Einstaklingur sem verið hefur samfellt atvinnulaus í sex mánuði eða lengur skV. stað- festingu Atvinnuleysistrygginga- sjóðs á rétt á heilbrigðisþjónustu á sömu kjörum og lífeyrisþegar njóta“. Umræddur starfsmaður sneri sér að sjálfsögðu beint til Trygginga- stofnunar ríkisins símleiðis og spurði hver þau kjör væru, sem líf- eyrisþegar njóta. Það tók nokkurn tíma að finna aðila innan stofnunar- innar, sem taldi sig geta svarað þessu, en hann fannst að lokum. Hann gaf upplýsingar um kjörin, sem lífeyrisþegar njóta. Upplýs- ingarnar, sem birtust í VR-blaðinu um afsláttinn fyrir atvinnulausa, sem samkvæmt áðurnefndri reglu- gerð skal vera hinn sami og fyrir lífeyrisþega, eru því komnar beina leið frá Tryggingastofnuninni sjálfri og þar hefur VR-blaðið ekki svo mikið sem hnikað einum stafkrók. Það hefur hins vegar komið fram í samtölum við fulltrúa Trygginga- stofnunar undanfarna daga að vinnureglur innan stofnunarinnar sjálfrar varðandi afslátt af heil- brigðisþjónustu eru ekki alveg sam- stíga því, sem segir í áðurnefndri reglugerð. Verður að viðurkenna, að þann möguleika athugaði VR- blaðið ekki, enda hafa ekki borist nein gögn þar að lútandi til VR, þrátt fyrir fullyrðingar fulltrúa Tryggingastofnunarinnar um hið gagnstæða. En til þess að kynna nefndar vinnureglur hefur Trygg- ingastofnuninni verið boðið rými í VR-blaðinu. Starfsfólk við atvinnuleysisbætur hjá VR telur að vitneskja um þann afslátt, sem VR-blaðið benti á að atvinnulausu fólki bæri að fá, hafi ekki áður en greinin kom í blaðinu verið almenn og nánast ekki hægt að benda á nokkurn mann, sem hafði hugmynd um afsláttinn. Ef til vill ekki að undra, þar sem jafn- vel hjá Tryggingastofnuninni sjálfri reyndist ekki auðvelt að fá upplýs- ingar um þennan afslátt til handa bótaþegum atvinnuleysisbóta. Það þótti því vissulega tímabært að benda á hann á opinberum vett- vangi. Um annan afslátt, sem einn- ig var sagt frá í þessari grein, svo sem af strætisvögnum og fleiru, var heldur ekki almennt vitað eins og sést best á því, að hringt var frá Strætisvögnum Reykjavíkur á skrifstofu VR til að spyrjast nánar fyrir um þennan afslátt, sem talað væri um í blaðinu, hve mikill hann væri og hveijir ættu að fá hann. Nú hefur hins vegar verið vakin athygli á málinu og það sem veiga- mest er, þeir sem eru atvinnulausir og hafa úr litlu að spila en þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda, eru vonandi farnir að nýta sér afslátt- inn. Og ekki má gleyma afslættin- um í strætó, á bókasöfn og sund- staði. PÉTUR A. MAACK, ÓLAFUR GAUKUR ÞÓRHALLSSON, ritstjórar VR-blaðsins. Macintosh getur það Frá Birni S. Stefánssyni: H VERFISKJ ÖRSTJ ÓRNIR í Reykavík hafa það verk meðal annars að aðstoða fólk, sem ekki reynist vera á réttum stað á kjör- skrá, við að finna kjörstað sinn. Hverfiskjörstjórnir höfðu því hjá sér kjörskrá fyrir Reykjavík, en gátu leitað aðstoðar í síma til til að fínna fólk í öðrum kjördæmum. Nú hefur orðið sú breyting til hag- ræðis að hverfiskjörstjórn hefur hjá sér tölvu með kjörskrá alls landsins. Annað mál er það og það get ég ekki þagað um að sá, sem nýtir þessa kjörskrá, fær á skjáinn ensk orð, sem hann verður að bregðast við við leitina. Það er óafsakanlegt, að stjórnvöld fari þannig að ráði sínu að láta fólk ekki fá í hendurnar íslensk gögn. Ég veit að þetta væri ekki svona ef notaðar væru Macintosh-tölvur, eins og tíðkast reyndar í skólum landsins. Við fylgjumst með því hvernig sendimenn íslands vinna að því að íslenskir bókstafir verði ekki hornreka í alþjóðlegum tövlusam- skiptum og höfum getað fagnað góðum árangri þeirra. Nú væri ráð að setja þessa menn í að vinna að því að tölvuskjáir íslenskra stjórnvalda verði búnir íslenskum leiðbeiningum. Einfaldasta ráðið er líklega að nota Macintosh. BJÖRN S. STEFÁNSSON, Kleppsvegi 40, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.